Morgunblaðið - 31.05.1998, Page 16
^6 B SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998
DÆGURTONLIST
MORGUNBLAÐIÐ
RAPP er ekki bara fyrir lita;
bæði er að bleiknefjum hefur á
stundum tekist bærilega upp og
svo að aðrir minnihlutahópar,
til að mynda spænskumælandi,
hafa á köflum náð prýðilegum
árangri á rappsviðinu. Þar í
sveit skipar sér Big Punislier
sem sendi frá sér fyrstu breið-
skifuna fyrir skemmstu.
Big Punisher er engin smá-
smíði eins og nafnið gefur
til kynna; á þriðja hundrað kíló
að þyngd, en rappar eins og
ballettdansari. Hann segist
sjálfur ekki líta sig öðrum aug-
um en þeldökka starfsbræður
sína, enda hafí það verið fyrir
tilstilli þeirra að hann sneri sér
að rappinu; sérstaklega eftir að
hafa heyrt í Rakim. „Það er
ekkert mál að rímbinda alls
kyns veigalítið kjaftæði, en þeg-
ar menn vilja rím eins og
Rakim er eins gott að standa
sig,“ segir hann og bætir við að
hann hafí komist á plast með
því að leita uppi rappforingja í
nágrenninu og fara í rímglímu
við hann. „Þegar hann heyrði
að ég gat tekið hann í nefið og
alla þá sem han kallaði til bauð
hann mér að vera með í einu
lagi og þar með var ég kominn
á kortið."
Big Punisher er spænsku-
mælandi eins og getið er, ætt-
aður frá Puerto Rico. „Víst
kynni ég að neta það að verða
fyrstur spænskumælandi rapp-
ara að ná gullsölu, enda myndi
ég sanna fyrir öðrum spænsku-
mælandi listamönnum að þeir
standa engum á sporði ef þeir
hafa trú á sjálfum sér. Minn
helsti metnaður er þó að vera
nefndur í sömu andrá og aðrir
rapparar; að vera settur á stall
með Rakim, 2Pac, Biggie
Smalls...“
Radiohead-Airbag
How Am I Driving
BADIOHEAD
airBAG / HOW AM 1 DRIVING?
1426148550 -mis nmi ALBUM is MMECIWTHEUSA
the miCE finally find me.
BíHa-
bær
BÍTLABÆRINN Keflavík
heitir diskur sem Geimsteinn
gefur út og hefur meðal ann-
ars að geyma gamlar og óút-
gefnar upptökur með Hljóm-
um. Diskurinn er gefínn út í
tengslum við Poppminjasafn-
ið í Keflavík.
Meðal laga á diskinum eru
34 ára gamlar upptökur með
Hljómum á áður óútgefnum
lögum eftir Gunnar Þórðar-
son, Fleygðu ekki neinu í
flýti frá þér og Húmið er
hljótt. Þetta eru fyrstu lögin
sem Gunnar samdi og fyrstu
upptökurnar sem til eru með
Hljómum. Lögin hafa aldrei
áður verið gefin út en þau
voru hljóðrituð í Ríkisút-
varpinu árið 1964.
Bítlabærinn Reykjavík er
fyrsta útgáfa Poppminja-
safnsins og á diskinum, sem
er tvöfaldur, eru eingöngu
flytjendur frá Suðurnesjum.
Meðal söngvara eru Einar
Júlíusson, Ellý Vilhjálms,
Engilbert Jensen, Fmnbogi
Kjartansson, Gunnar Þórð-
arson, Hljómar, Jóhann G.
Jóhannsson, Jóhann Helga-
son, Júdas, Karl Hermanns-
son, Magnús Kjartansson,
Magnús Þór Sigmundsson,
María Baldursdóttir, Ruth
Reginalds, Rúnar Júlíusson,
Savanna tríóið, Shady
Owens, Trúbrot, Vignir
Bergmann, Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, Þorsteinn Egg-
ertsson og Þórir Baldursson.
Fjöldi annarra listamanna
kemur við sögu, til að mynda
Ásgeir Óskarsson, Björgvin
Gíslason, Björgvin Halldórs-
son, Gunnar Jökull Hákonar-
son, Gunnar Ormslev,
Hljómsveit Magnúsar Ingi-
marssonar, Hljómsveit
Svavars Gests, Karl Sig-
hvatsson, Pétur Östlund,
Rúnar Georgsson og Tryggvi
Hiibner.
Framleiðandi og yfirum-
sjónarmaður disksins er
Rúnar Júlíusson.
NÝ EP PLATA
- [6 NÝ LÖGl
Ensími í litsterkum liósum
i,
A POPP í Reykjavík tónleikunum í Loftkastal-
anum um næstu helgi stíga á stokk í fyrsta
sinn ýmsar sveitir, þar á meðal ein, Ensími,
sem heldur þá fyrstu eiginlegu tónleika sína,
en þó er sveitin að ljúka við breiðskífu. Ensími
skipa tónlistarmenn úr ýmsum áttum og liðs-
menn mjög svo ólíkra sveita.
Ensímingar hafa áður leikið með sveitum
eins og Jet Black Joe, Strigaskóm #42 og
Quicksand Jesus, svo fáeinna sé getið, en
aðdragandi sveitarinnar er einmitt að tyeir forðum
meðlimir Jet Black Joe, Hrafn og Jón Öm, fóru að
fást við tónlist saman. Þeir segja
svo frá að upphaflega hafí þeir
fengist við tölvur og hljómborð
og ætlað sér að gerast „tölvu-
kallar“, en fóru svo að sakna æf-
inganna og þess að vera að
glamra saman. Þá fóru fleiri að
bætast í hópinn, fyrst Franz og
síðan komu liðsmenn og fóru,
meðal annars kom Oddný og fór
Eftir Árna
Matthíasson
og kom aftur, þar til í janúar að síðasti Ensímingur
bættist við, Kjarri. A þessum tíma varð til nokkuð
af lögum sem tóku breytingum þegar sveitin fór að
spila saman í endanlegri mynd. Ensími byrjaði svo
á að taka upp kynningarupptökur eftir að hafa
unnið lagasafnið í hörgul heima í æfingaplássi og
útgefanda leist svo vel á að hann dreif sveitina í
hljóðver að taka upp. Eðlilega hefur því lítið verið
um spilamennsku, en eins og getið er leikur
Ensími á tónleikum í Popp í Reykjavík, en hefur
reyndar rignt niður tvívegis í kosningaspiliríi og að
auki stungið nefinu inn í Gaukinn.
Eins og áður er getið fór sveitin í hljóðver með
fastmótaðar skoðanir á því hvernig mál ættu að
skipast þar, en þegar vinna hófst með Adda 800
upptökumeistara tók tónlistin óvænta stefnu.
„Addi kom með fullt af skemmtilegum hugmynd-
um og kynnti okkur fyrir tölvunni sinni þannig að
við gerðum mikið af því að nota tölvuunnar takt-
lykkjur og ýmislegt fleira,“ segja Ensími, „og það
má segja að við séum búin að spila á allt í hljóðver-
inu sem hægt er að spila á, taka upp og eiga við í
tölvum til að gefa sem skemmtilegastan takt,“
segja þau, en einnig brugðu þau sér á nærliggj-
andi lager til að fá rétta hryndýpt.
Tóndæmi sem gefin eru við spjallið benda til
þess að Ensími hyggist leika fjölbreytta tónlist;
spanna frá glaðværu kraftapoppi í vellandi sýru.
Þau segjast reyndar ekkert velta fyrir sér heildar-
sýn eða svip; „Sjálf kunnum við best að meta plöt-
ur sem eru fjölbreyttar og gerum því það sem
okkur langar hverju sinni. Við völdum ekkert á
væntanlega plötu eftir því hvernig lögin pössuðu
saman eða ekki, heldur bara þau lög sem okkur
þótti skemmtilegust." Hefur ef til vill sitt að segja
að liðsmenn koma úr ólíkum áttum, léku á sinni tíð
kraftmikla sýru, grenjandi dauðarokk, klassíska
tónlist, djúprist popp og svo mætti telja. Hljóm-
sveitin á þó skurðpunkt í Ensími og ekki síst
vegna þess að allir hafa sitt að segja í tónlistinni,
hver meðlimur hefur sitt atkvæði. „Það má segja
að í hljóðverinu höfum við tekið stefnu í átt að raf-
eindatónlist og eigum örugglega eftir að nota
þannig hljóð og hljóðfæri í framtíðinni," segja liðs-
menn, en bæta við að sökum þess að lítill tími hef-
ur gefist til að fella saman ný stflbrigði verði
skrefið varla stigið til fulls á tónleikunum í Héðis-
húsinu. Það bíður þá bara betri tíma, en fyrsta
tækifæri til að sjá Ensími á sviði í góðum hljóm og
litsterkum Ijósum verður í Popp í Reykjavík um
næstu helgi og ástæða til að hvetja sem flesta til
að ljá liðsmönnum hennar eyra.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Lífhvatar Ensími; Jón Örn Jónsson, Franz Gunnarsson, Kjartan Róberts,
Hrafn Thoroddsen og Oddný Sturludóttir.