Morgunblaðið - 05.06.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.06.1998, Blaðsíða 1
fe <... ■ FAÐMLÖG HANDA STÓRUM OG SMÁUM/2 ■ VERÐLAUN OG BARN SAMA PAGINN/3 ■ ÞJÓNAR RÉTTVÍSINNAR/4 ■ PENSLAR OG TÖLVUR TIL LISTSKÖPUNAR/6 ■ UNGAR FYRIRSÆTUR/7 ■ ASTHANGA JÓGA/8 ■ GEIR, Vilhjálmur og Logi töldu sig löglega í vaðlauginni og létu ekki á sig fá þótt krakka- skarinn færi vaxandi í kringum þá. sundhettur EINN af þessum skínandi dögum á landi sem stundum er kallað frostpinni. Æp- andi sólskin og allir í lauginni sem vett- lingi eða armkútum geta valdið. í Laugardals- lauginni er alltaf fjör á slíkum dögum svo miða- sölustúlkurnar komast varla í kaffi. „Við erum miðsvæðis og njótum þess ríku- lega,“ sagði Kristján Ögmundsson, forstöðumaður Laugardalslaugar. „Útlendingar skjótast hingað af tjaldstæðinu sem er við hliðina, elli- lífeyrisþegar af dvalarheimilum í nágrenninu og svo eru náttúrlega óteljandi fastagestir sem mæta óháð veðrinu." Kútar fyrir fullorðna I vaðlauginni sátu þeir Logi Unnarson Jónsson, Geir Brynjólfs- son og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, úrvalsdeild- armenn í knattspyrnu, en þessa dagana at- vinnumenn í busli. „Hér er tilvalið að flatmaga, spjalla og ná sér í lit,“ sögðu þeir samtaka og and- mæltu því að vaðlaugin væri einungis fyrir börn. „Það er samt eiginlega vegna Loga sem við erum héma, hann gæti lent í ógöngum á meira dýpi,“ sögðu Geir og Vilhjálmur glottandi en gátu þó tæplega státað af sundafrekum sjálfir. „Okkur sýnist fæstir koma í sundlaugarnar til þess að synda, að minnsta kosti ekki á svona sólardögum". Þegar grennslast var fyrir um sundfatastílinn kom í ljós að Vilhjálmur var í Þróttarabuxum. Iflegt undir sólinni Fyrir það fékk hann glósur frá vinum sínum í þá veru að þeir sem mættu í síðum og víðum stuttbuxum hlytu að hafa eitt- hvað að fela... Geir var í ljós- blárri sund- skýlu af Morgunblaðið/Golli gamla skólanum en Logi í tvílitri boxaraskýlu, merkjavöru að sögn hinna. Hins vegar kváðust þeir lítið spá í sundfatatísku, hægt væri að kaupa sér fyrir lítið fé sundfatnað sem dygði jafnvel og hvað annað. En hvað með kútatískuna? „Það er bara gamli góði björgunarhringurinn, sá áfasti,“ sagði Vilhjálmur hlæjandi. „Hann svínvirkar!“ Best í frosti í sundlauginni sjálíri voru stadd- ar þær Aldís Asmundsdóttir og Brynja Kristjánsdóttir. Þær skört- uðu línhvítum sundhettum og brostu breitt í sólinni. „Við mætum eiginlega með sundhettumar af gömlum vana, þetta er vetrarútbúnaður sem við höfum ekki ennþá lagt.“ Aldís keypti pífusundhettuna í Þýska- landi fyrir átta árum en Brynja fann sína í snyrtivöruverslun á Laugaveginum. „Við stoppum hér í svona hálfan annan tíma flesta virka daga, syndum 2-300 metra og njót- um nuddpottanna. Annars er albest í laugunum í hörkufrosti, þá fyrst koma heitu pottamir að réttu gagni,“ sögðu Aldís og Brynja, líflegar í rósóttum sumarsundbolum. Megin forsenda góðrar heilsu er góður svefn. Markmið okkar er að tryggja viðskiptavinum okkar úrvals vörur þar sem menn njóta góðrar hvíldar. Nú bjóðum við nýja vöruflokka og meira úrval en áður...sjón er sögu ríkari. CHIROPRACTIC Heilsudýnur ^ETRI DVa/4 - BETRAB^ Ný þjónusta: opið alla daga vikunnar. Virka daga: kl. 10:00-18:00 laugardaga: kl. 11:00-14:00, sunnudag: kl. 13:00-16:00 I N U I X 9 ÍD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.