Morgunblaðið - 12.06.1998, Blaðsíða 8
8 B FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998
DAGLEGT LIF
MORGUNBLAÐIÐ
GUÐBERGUR er gjaman
kallaður Bílabergur vegna
þessa áhugamáls síns.
Hann er nýorðinn fimmtug-
ur og það er óhætt að segja að kraft-
> mikil farartæki hafi verið hans ær og
kýr frá því hann var lítill strákur á
Flateyri þar sem hann er fæddur og
uppalinn.
Guðbergur er bifreiðastjóri hjá
Allrahanda á Flateyri. Hann kevrði
áður fyrir Guðmund, Teit og Ölaf
Ketilsson og meðal farþega vora
guttamir sem nú eru stjórnendur
Allrahanda.
Guðbergur segist hafa „átt fjallið"
í nokkuð mörg ár. Hann er þar að
tala um Breiðadalsheiði, en um tíma
var hann sá eini sem hélt þar uppi
reglubundnum samgöngum. Nú er
hann hættur að aka yfir heiðina í alls
kyns veðravítum, hann ekur daglega
undir það í rennifæri.
Þessum dreng þarf ekki
að kenna meira
Bílpróf Guðbergs er líklega nokk-
uð lýsandi fyrir náin kynni hans og
ökutækja frá unga aldri. „Eg hafði
frá 14 ára aldri ekið tugi þúsunda
kílómetra,“ segir hann. „Þegar tími
var svo til kominn, kom ökukennar-
inn frá Isafirði yfir á Flateyri og sótti
mig. Við sóttum prófdómarann sem
Bílarnir
eru hans ær og kýr
lét mig keyra samkvæmt kúnstarinn-
ar reglum. Eftir tíu mínútur sagði
hann: „Þessum dreng þarf ekki að
kenna meir.“ Fyrir þetta þurfti ég að
greiða, með skírteini og öllu, 830
krónur. Stærsti hlutinn af þessari
upphæð var bensínkostnaður yfir á
Flateyri og aftur til baka.“
Guðbergur ók bæði rútum og vöru-
flutningabifreiðum í sautján ár, og þá
oft í eigin nafni. Hann hefur líka
komið lítilsháttar nærri sjómennsku
og öðrum tengdum störfum. „Svo var
maður eitthvað að paufast í löggæsl-
unni héraa á Flateyri. Mér var
meinilla við blessað tollvarðastarfið
sem fylgdi því að vera í löggæslunni,
það gat komið fyiir að sumir væru að
reyna að múta manni, en maður tók
þá réttu tökunum. Oft var verið ögra
manni með hótunum og um leið var
verið að kanna viðbrögðin hjá mér.
Ég var ekki nema 16 ára gamall á
þessum tima og kominn í lögreglu-
búning.“
Guðbergur segir að oft hafi verið
mikið um að vera á böllunum þegar
nokkrar skipshafnir voru í landi og
gjarnan brotist út slagsmál á böllum,
yftrleitt vegna kvennamála. „Maður
varð að taka einn og einn fyrir í einu
með aðstoð annarra. Oftast var farið
með viðkomandi út og hann bundinn
við ljósastaur andspænis Félags-
heimilinu. Þá var hvorki til staðar
fangaklefi á Flateyri né bfll frá emb-
■ ættinu og engin Vestfjarðargöng
voru komin til sögunnar. Menn voru
því látnir dúsa þarna úti þar til þeim
var orðið kalt eða þá að þeir höfðu
fengið nóg af því að vera opinber
skotmörk fyrir háðsglósur og snjó-
kast. Þá voru þeir yfirleitt búnir að
jafna sig og fengu að fara aftur inn.“
56 bílar á ævinni
Bflabergur stendur vel undir nafni
því hann hefur um ævina átt 56 bíla.
„Ég lifði og hrærðist í öllu sem
tengdist bflum og átti dýrustu, flott-
ustu og kraftmestu fólksbílana héma
fyrir vestan. Þar að auki keypti ég
dýrasta vörubfl sem komið hafði
hingað tfl lands á þessum tíma, 10
cylindra bíll með 24 gíra áfram og
drif á öllum hjólum.“
Guðbergur hætti eigin útgerð á
rútuakstri um leið og hann fékk
vörubílinn. „Tildrög þess að ég fóm-
aði rútunni fyrir vörubflinn var sú að
við fórum með hóp af fólki í rútu með
Kraftmikil farartæki
hafa frá æsku verið ær
og kýr Guðbergs
Guðnasonar, bifreiða-
stjóra á Flateyri. Egill
Egilsson, fréttarítari
Morgunblaðsins á Flat-
eyri, hitti hann að máli
og forvitnaðist um bíl-
ana í lífi hans.
Smyrli í mánaðarflakk um Evrópu.
Ég sá þennan vörubfl á vörusýningu í
Frankfurt í Þýskalandi og linnti ekki
látum fyrr en ég hafði pantað hann.
Ég hafði aldrei séð svona tæki áður.“
Guðbergur komst fyrst í alvöru ná-
vígi við ökutæki sjö ára gamall.
„Pabbi átti þá eldgamlan Air Bed-
ford frá hernum og ég notaði tæki-
færið einu sinni þegar farið var á
bflnum niður í fjörusand að ná í hrá-
efni í pússningu fyrir hús sem pabbi
var að byggja og stalst í ökuferð á
bflnum.
„Þetta sama ár stal ég jarðýtu með
herfi aftan í og tókst að eyðileggja
heflt tún þar sem jarðýtan stóð. Eng-
an grunaði mig enda hvarflaði ekki
að fólki að barn hefði getað stolist í
jarðýtuna.“
Guðbergur segist þarna ekki hafa
verið alveg ókunnugur stjómtækjun-
um í jarðýtunni því að hann hafði oft
setið í hjá pabba sínum þegar hann
vann á sams konar tækjum. „Þarna
tel ég að upphafið að bfladellu minni
hafihafist," segir hann.
„í sjálfu sér var þessi bíladella
ósköp skiljanleg því á uppvaxtarár-
um mínum var ekki mikið um bíla-
umferð. Maður hagaði keyj-slunni
eftir því og oft var farið greitt yfir.
Ég virti alltaf umferðarreglur eins og
stöðvunarskyldu, biðskyldu, umferð-
arljós. í raun allt nema hraðann, ég
hef alltaf haft dálæti á honum.“
Brotnir hálsiiðir eftir árekstur
Bergur lenti eitt sinn í alvarlegu
bflslysi á Isafirði. „Slysið varð með
þeim hætti að ég var á leið upp Aðal-
götuna á ísafirði á mótorhjóli með
farþega. Skyndilega er bfl ekið úr
hliðargötu í veg fyrir mig. Ég hafði
séð bílinn koma úr hliðargötunni og
kannaðist þar við eiganda bflsins sem
var góðkunningi minn. í fyrstu hélt
ég að hann væri að stríða mér með
því að svína í veg fyrir mig, en seinna
kom í ljós að hann hafði verið að
stríða systur sinni sem var í bfl á
undan. Kunningi sá mig aldrei koma
á hjóhnu. Ég ákvað að gefa ekki eftir
tómmu og ók áfram á löglegum hraða
í þetta skiptið, jafnvel þó að hjólið
væri kraftmikið. Þegar ég sá hvert
stefndi gaf ég allt í botn og reyndi að
komast hjá árekstri, en það tókst
ekki. Ég lenti á bflnum miðjum á
milli sætanna, rak höfuðið í rennuna
og dyrastafurinn fór úr honum. Far-
þeginn aftan á hjólinu flaug yfir bfl-
inn og hafnaði á götunni. Hjólið
fylgdi á eftir mér og veitti mér þungt
högg enda mölbrotnaði hjálmurinn
sem ég var með.
Félagi minn á hjólinu lá meðvit-
undarlaus á spítala í þrjá daga. Far-
þegar bflsins, fimm að tölu, sluppu
allir með skrekkinn utan einn sem
slasaðist á fæti. Bíllinn var talinn
gjörónýtur eftir áreksturinn."
Guðbergur var þarna nýbúinn að
kaupa sér nýjan vörubíl og hafði
fengið þriggja sumra vinnu við að
leggja Djúpveginn í ísafjarðardjúpi.
„Þegar slysið varð var ég nýbyrjaður
að vinna þarna innfrá og því ansi
hræddur um að missa vinnuna. Ég
strauk því af sjúkrahúsinu og fékk
bróður mömmu til að keyra fyrir mig
fyrst um sinn. Þá gerðist það að
hann stakk sig á ryðguðum stálvír og
fékk heiftarlega sogæðarbólgu
þannig að hann var fluttur með
sjúkraflugvél suður. Ég fór því
inneftir, en þar sem ég hafði strokið
af spítalanum hafði ekki gefist tæki-
færi til að rannsaka mig gaumgæfi-
lega eftir slysið. Eftir að ég hafði
verið meira og minna að kúgast allt
sumarið kom í ljós að ég var með
þrjá brotna hálsliði. Ég gat varla
haldið haus og var meira eða minna
sárkvalinn í vinnunni. Það er búið að
gera við þetta núna.“
Bergur segir þetta eina slysið sem
hann hafi lent í eftir að hafa ekið um
ævina á fimmtu milljón kflómetra.
„Það hlýtur að teljast ansi gott,“ seg-
ir hann.
Vír til bjargar
Eftir að hafa starfað í fjölda ára
sem bifreiðastjóri fer ekki hjá því að
Morgunblaðið/Egill Egilsson
umferðaröryggi sé Guðbergi ofar-
lega í huga. „Ég var búinn að ganga
með ákveðna hugmynd í maganum
nokkuð lengi áður ég ákvað að viðra
hana við þá í Vegagerðinni. Þeim
leist vel á hugmyndina en sögðust
ekki hafa neina trú á að hún yrði
framkvæmd vegna peningaleysis.
Málið er að mér ofbýður hvað mikið
er orðið um slys og óhöpp vegna
þess að bflar eru að renna þvert á
ljósastaura. Uti í heimi hafa menn
víða strengt tvo stálvíra á sérhann-
aða ljósastaura þannig að bílarnir
lendi ekki á þeim, heldur utan á vírn-
um sem er klæddur gúmmíi. Við
þetta myndast ekki högg vegna þess
að bfllinn snýst bara og fer þvert á
veginn.“
Guðbergur segir þessa útfærslu
hafa það framyfir vegrið að vera
mun ódýrara, og einfalt og fljótlegt í
uppsetningu. „Við getum til dæmis
ekki notað vegrið á Hnífsdalsvegi því
að það skefur svo mikið að því og það
er erfitt að koma snjónum frá því.
Þessa víra myndi ég vilja sjá á
Hnífsdalsveg og í Oshlíðinni til að
byrja með til vamar slysunum sem
verða af þessum sökum.“
Fallegir brúðarkjólar, slör og
kórónur til leigu og sölu.
Brúðarkjólaleiga Sophiu
Bakkavör 11, 170 Seltjamarnes
Sími 562 0137 - 895 8237
Ríkulegt úrval af fallegum gardínuefnum,
gardínustöngum, dúkum, pottaleppum,
diskamottum, svuntum o.fl. fyrir sumarhúsið.
gluggatj aldadeild, Skeifunni 8