Morgunblaðið - 20.06.1998, Side 14

Morgunblaðið - 20.06.1998, Side 14
14 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jim Smart HLUTI þess áfengis sem upp- lýst hefur verið að var smyglað. Rúmlega 4.000 lítrum af áfengi var smyglað til landsins frá Bandaríkjunum. * Afengissmygl upplýst EFTIRLITSDEILD embættis rík- istollstjóra og fíkniefnadeild lög- reglunnar í Reykjavík hafa upplýst smygl á rúmlega 4.000 lítrum af áfengi, aðallega vodka. Áfengið var flutt til landsins í gámi með skipi frá Bandaríkjunum. í frétt frá lögreglunni í Reykjavík segir að rannsóknin, sem staðið hafði yfír í nokkum tíma í samvinnu ríkis- tollstjóraembættisins og lögreglunn- ar í Reykjavík, hafi leitt til handtöku fjögurra manna 8. júní sl. Tveir þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarð- hald í þágu rannsóknar málsins. Þeir hafa nú báðir verið látnir lausir og er rannsókn málsins á lokastigi. Þrír menn hafa játað aðild að smyglinu. Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Reykjavfkur á fímmtudag Um * nefndir KOSNINGAR í yfír 20 nefndir, ráð og stjórnir á vegum Reykjavíkur- borgar, svo og í embætti borgar- stjórnar, voru fyrirferðarmiklar á fyrsta fundi nýrrar borgarstjómar á fímmtudag. Alls vom kringum 220 manns kjörnir til slíkra starfa en nokkrir sitja í fleiri en einni nefnd eða stjórn. Sigrún Magnúsdóttir stýrði fundi í upphafi sem aldursforseti borgar- fulltrúa. Guðrún Ágústsdóttir var kjörin forseti borgarstjómar með átta atkvæðum en sjö atlwæðaseðlar vora auðir. Guðrún Ágústsdóttir kvaðst reyna að sinna skyldum sín- um og leggja sérstaka áherslu á að koma í framkvæmd þeim breyting- um sem meirihluti og minnihluti náðu góðri sátt um á síðasta kjör- tímabili á samþykktum borgar- stjómar. Hún kvaðst vissulega hefði kosið að hafa aðeins lengri tíma en nú blasti við til að ljúka þessum verkum. Frestað var kjöri fyrsta varaforseta til eins árs að tillögu borgarstjóra en Steinunn V. Óskars- dóttir var kjörin annar varaforseti. Til setu í borgarráði, sömuleiðis til eins árs, vora kjörin þau Helgi Hjörvar, Sigrún Magnúsdóttir og >20 í og ráð Steinunn V. Óskarsdóttir af R-lista og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Inga Jóna Þórðardóttir úr hópi sjálfstæðismanna. Varamenn í borg- arráði voru kjörin þau Helgi Péturs- son, Guðrún Ágústsdóttir, Alfreð Þorsteinsson, Júlíus Vífíll Ingvars- son og Jóna Gróa Sigurðardóttir. Þá var komið að kjöri borgar- stjóra og var Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir sjálfkjörin þar sem ekki komu fram aðrar tillögur. Kjartan Magn- ússon, varaborgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins, kvaddi sér hljóðs og sagðist ekki geta tekið þátt í að kjósa Ingibjörgu Sólrúnu borgarstjóra. Hún hefði sem borgarstjóri á síðasta kjörtímabili gefíð fjölmörg loforð, t.d. að skattar yrðu ekki hækkaðir og skuldir borgarinnar greiddar nið- ur. Það hefði mistekist og loforðin verið svikin. Sagði hann þessar stað- reyndir einar og sér duga til að ekki ætti að endurráða borgarstjórann. í byggingarnefnd vora kjörin af R-lista þau Óskar Bergsson, sem verður formaður, Árni Þór Sigurðs- son og Guðrún Ögmundsdóttir og af hálfu sjálfstæðismanna þeir Hilmar Guðlaugsson og Gunnar Gissurar- son. í stjórn SVR vora kjörin Helgi FYRSTI fundur nýrrar borgar- stjórnar var haldinn á fimmtu- dagskvöld. Þar var kosið í nefndir og ráð borgarinnar og fram fór fyrri umræða um árs- reikning borgarinnar 1997. Pétursson, Agnar Guðmundsson og Sigurbjörg Ásgeirsdóttir af R-lista og Kjartan Magnússon og Kristján Guðmundsson af D-lista; í stjóm veitustofnana Alfreð Þorsteinsson, Vilhjálmur Þorsteinsson og Stein- unn V. Óskarsdóttir af R-lista og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Jóna Gróa Sigurðardóttir af D-lista og í félagsmálaráð vora kjörin Helgi Hjörvar, Páll R. Magnússon og Sveinn Sveinsson af R-lista og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur Magnússon af D-Iista. í fræðsluráð voru kjörin Sigi'ún Magnúsdóttir, Margrét S. Björns- dóttir og Sigrún Elsa Smáradóttir af R-lista og Guðrún Pétursdóttir og Eyþór Arnalds af D-lista og í stjórn Dagvistar barna voru kjörin af R-lista Kristín Blöndal, Aðalheið- ur Sigursveinsdóttir og Stefanía Traustadóttir og af D-lista Guðlaug- ur Þór Þórðarson og Helga Jó- hannsdóttir. í almannavamanefnd voru kjörin þau Garðar Mýrdal og Inga Jóna Þórðardóttir; í barnaverndarnefnd af R-lista þau Gréta Baldursdóttir, Sigrún Sigurðardóttir og Sigmund- ur Stefánsson og af D-lista þau Hanna Johannessen og Kristín Eð- vald; í stjóm heilsugæslustöðva voru kjörin Kolbeinn Proppé, Helgi S. Guðmundsson og Ólafur Magnús- son; í stjórn Lífeyrissjóðs starfs- manna Reykjavíkurborgar vora kjörnir aðalmenn þau Kristinn Breiðfjörð og Jóna Gróa Sigurðar- dóttir; í samstarfsnefnd um lög- gæslumálefni vora kjörin Steinunn V. Óskarsdóttir og Kjartan Magn- ússon; í stjórn Sorpeyðingar höfuð- borgarsvæðisins voru kjörin Helgi Pétursson, Þuríður Jónsdóttir og Ragnhildur Helgadóttir af R-Iista og af hálfu sjálfstæðismanna þau Inga Jóna Þórðardóttir og Bryndís Þórðardóttir og í hverfísnefnd Graf- arvogs voru kjörin þau Guðrún Ágústsdóttir, Anna Geirsdóttir og Snorri Hjaltason. Frestað var kjöri tveggja fulltiúa í samstarfsráð Kjalarness. MARKAÐSTORO^ fíUNNAR, GARÐTRÉ, SUMARBLÓM, SKÓGARPLÖNTUR VERÐDÆMI. í SUMARHÚSALANDIÐ SITKA- OG BLAGRENI í HNAUS 75-100 CM Áður kr. 3410- 4380- BIRKI 40 PL. í BAKKA Áður kr. 1350-___. I SUMARHUSALANDIÐ STAFAFURA 40 PL. I BAKKA Áður kr. 1530- „ Nú aðeins kr. 820- ALASKAOSP I PK. 30-60 CM. KEISARI, JÓRA, PINNI Áður kr. 340- Nú aðeins kr. 199- VERKFÆRI, GARÐÁHÖLD O.M.FL. PLONTUSALAN l FOSSVOGI Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspftaia) Opið ki. 10 -19. helgar kl. 10 -18. Sími 564 1777 Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG O Dómur Hæstaréttar vegna dauða tíkurinnar Lady Queen í Neðstaleiti Nágranninn greiði 200 þús. króna. sekt HÆSTIRÉTTUR dæmdi á fimmtudag rúmlega sjötugan íbúa Neðstaleitis 1 til að greiða 200 þús. kr. í sekt fyrir að hafa drepið tíkina Lady Queen, sem var í eigu mæðgna, nágranna mannsins. Maðurinn krafðist þess fyrir Hæstarétti að dómur héraðsdóms yrði ómerktur og lagt íyrir héraðs- dómara að taka málið á ný til aðal- meðferðar á þeirri forsendu að byggt hefði verið á framburði dótt- urinnar, sem hafi verið mjög ótrú- verðugur. Til vara krafðist hann sýknu af öllum kröfum ákæravalds; ins eða einstökum ákæraliðum. I dómi Hæstaréttar segir að í dómi héraðsdóms komi nægilega skýrt fram hvað héraðsdómari hafi talið sannað og með hverjum hætti og er því ekki fallist á aðalkröfu manns- ins. Drapst inni í ibúð mannsins Mæðgurnar héldu hundinn í trássi við bann við hunda- og katta- haldi í húsinu og bann við að koma með hunda og ketti í húsið. Síðar fengu þær tíkina reglulega í heim- sókn. Áf þessu spruttu deilur milli þeirra og ýmissa annarra íbúa hússins. Föstudaginn 16. maí 1997 tók maðurinn hundinn af dóttur- inni á stigagangi í húsinu.T kjölfar- ið komst hundurinn sjálfur inn í íbúð mannsins - eða var færður þangað af manninum - og drapst þar. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ráðist á dótturina og slegið hana í handlegg með þeim afleið- ingum að hún hafí hlotið mar og eymsli. Hann viðurkenndi að hafa slegið á hönd hennar til að losa úr ól hundsins úr greip hennar en neitaði að meiðsl gætu hafa hlotist af. Konan er talin hafa getað hlotið áverkana af öðram völdum og ósannað að maðurinn hafí valdið þeim. Steig á hundinn og batt hann I síðari lið ákæru er maðurinn borinn sökum um eignaspjöll og brot á lögum um dýravernd með því að veita hundinum áverka sem leiddu hann til dauða. Hann sagðist hafa ætlað að taka hundinn af kon- unni og fara með hann út úr hús- inu. Hundurinn hafi síðan hlaupið inn í íbúð hans, hann farið þangað einnig og lokað dyrunum. Hundur- inn fannst síðar dauður, hangandi í ól sinni, bundinni í hurðarhún. Maðurinn lýsti því sjálfur hvernig hann steig á hundinn og batt hann. Talið er sannað að hundurinn hafi drepist af völdum áverka sem mað- urinn veitti honum. Honum átti ekki að geta dulist að atlaga hans að hundinum gæti leitt hann til dauða. 200 þús. króna sekt Við ákvörðun refsingar var höfð hliðsjón af því að hundurinn var hafður í húsinu í óleyfí og að mæðgurnar höfðu ítrekað ögrað manninum og öðram íbúum hússins með brotum á banni við hundahaldi þar. Sekt þykir hæfilega ákveðin 200 þús. krónur í ríkissjóð eða 35 daga varðhald ef sektin greiðist ekki innan fjögurra vikna. Mannin- um var gert að greiða helming sak- arkostnaðar, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Kjartans Ragnars hrl., sam- tals 200 þús. krónur, og saksóknar- laun, 100 þús. krónur. Ragnheiður Harðardóttir, settur saksóknari, sótti málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. I í r > ► ! 1 I > í >

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.