Morgunblaðið - 20.06.1998, Side 42
42 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Veiðifélag Langár ber
alla ábyrgð á fjármögnun
Sýningum lýkur
^MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá stjóm
Veiðifélags Langár:
„Vegna fréttar DV og Ríkissjón-
varpsins mánudaginn 15. júní sl.,
um að Búnaðarbanki Islands fjár-
magni byggingu veiðihúss fjTÍr
Ingva Hrafn Jónsson sem er leigu-
taki að Langá á Mýrum næstu
fimm ár. Skal eftirfarandi tekið
fram: Veiðifélag Langár byggir
umrætt veiðihús og sér um alla
fjármögnun á byggingarfram-
_ kvæmdum.
Veiðifélagið hefur að sjálfsögðu
leitað til lánastofnana til að fjár-
magna undirbúning og fram-
kvæmdir við bygginguna.
Fram til dagsins í dag hafa
framkvæmdir verið fjármagnaðar
um það bil með eftirfarandi hætti:
Landeigendur hafa lagt fram 14
hluta kostnaðar, Sparisjóður
Mýrasýslu Í4, Lánasjóður landbún-
aðarins 'A og Búnaðarbanki ís-
lands í Borgamesi 'A. Veiðifélag
Langár ber alla ábyrgð á fjár-
mögnun og öllum lánum svo og á
byggingarframkvæmdum og skilar
leigutaki húsinu fullbúnu til notk-
unar.“
Islenski
kórinn í
Gautaborg í
Seljakirkju
ÍSLENSKI kórinn í Gautaborg
heldur tónleika í Seljakirkju
laugardaginn 20. júní kl. 17. Á
efnisski’ánni er blandað laga-
val, aðallega norræn tónlist.
Kórinn er búinn að vera á
hringferð um landið og era
þetta lokatónleikar kórsins hér
á landi.
Stjórnendur kórsins eru
Kristinn Jóhannesson og Tuula
Jóhannesson.
Gerðarsafn
Nú stendur yfir í Gerðarsafni í
Kópavogi sýning á verkum eftir
Vigni Jóhannsson. Vignir sem ný-
lega lauk verki fyrir Listahátíð í
Reykjavík sýnir að þessu sinni
hefðbundin málverk úr íslenskri
náttúru.
Petta er síðasta sýningarhelgi á
sýningunni í Gerðarsafni.
Listasafn
fslands
SÝNINGU á höggmyndum og
frottage-verkum Max Emst í
Listasafni Islands lýkur um næstu
helgi. Sýning þessi hefur farið víða
um lönd og gist nokkur helstu
listasöfn Evrópu.
Á sýningunni eru 60 bronsskúlp-
túra frá tímabilinu 1930 - 74 og 32
„frottage" þrykkmyndir úr mynda-
röðinni „Histoire naturelle“ frá
1926 og steinþrykk frá Dada-tíma-
bilinu 1917.
Þá era á sýningunni yfír 100
ljósmyndir eftir kunna og ókunna
höfunda sem varpa ljósi á ævi og
störf listamannsins.
Einnig er sýnt myndband um
æfi listamannsins í kjallara safns-
ins um helgar.
Safnaleiðasögn verður sunnu-
daginn 28. júní kl. 15.00.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Lausar stöður við
Framhaldsskóla
Vestfjarða
Við Framhaldsskóla Vestfjarða á ísafirði eru
frá 1. ágúst nk. lausar eftirtaldar stöður: Heilar
kennarastöður í íslensku, stærðfræði, eðlis-
fræði/tölvufræði, viðskiptagreinum, vélstjórn-
argreinum og rafiðnaðargreinum. Hlutastöður
í dönsku, sérkennslu, hjúkrunarfræði og félags-
greinum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist fyrir 30. júní til Framhalds-
skóla Vestfjarða, pósthólf 97,400 ísafjörður.
Frekari vitneskju veitir undirritaður í síma
456 3599 eða 456 4540.
Skólameistari.
IÐNSKÓLINN í HAFNARFIRÐI
Reykjavíkurvegi 74 og Flatahrauni,
220 Hafnarfirði,
sími 555 1490, fax 565 1494.
Netfang: idnhafn@ismennt.is
Heimasíða: http://www.ismennt.is/vefir/idnhafn
Framhalds-
skólakennarar
,Umsóknarfrestur um kennarastöðurfyrir
næsta skólaár, sem auglýstar voru í Morgun-
blaðinu 28. maí sl., er framlengdurtil 26. júní
nk.
Allar nánari upplýsingargefurskólameistari
í síma 555 1490.
Skólameistari.
Héraðslögreglumaður
Embættið óskar eftir héraðslögreglumanni
til almennra löggæslustarfa og skal starf hefj-
ast 6. júlí nk.
Laun samkvæmt kjarasamningum BSRB.
Skrifleg umsókn skal berast undirrituðum fyrir
4. júlí nk.
Upplýsingar eru veittar í síma 478 1363 á skrif-
stofutíma.
Sýslumaðurinn á Höfn,
Páll Björnsson.
Bjarneyjar S. Guðmundsdóttur og Líkafróns
Sigurgarðssonar verður haldið í Hótel Reyk-
holti (s. 435 1260) dagana 10.-12. júlí nk.
Upplýsingar í símum 567 1073, 551 7006,
.562 6461.
*
NAUOUIMGARSALA II TIL SÖLU
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Suðurgötu
8, Seyðisfirdi, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Lóð úr landi Saurbæjar I, Skeggjast.hreppi, þingl. eig. Sigurjón Sig-
urðsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, fimmtudaginn
25. júni 1998 kl. 14.00.
IVIiðás 1-5 hl. 02-01 Egilsstöðum, þingl. eig. Eikarás ehf., gerðarbeið-
andi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 25. júní 1998 kl.
14.00.
Sumarbústaðalönd
Til sölu sumarbústaðalönd í landi Úteyjar I við
Laugarvatn. Gott land til ræktunar á góðum
útsýnisstað. Kvöldsól. Stutt í veiði. Heitt og
kalt vatn við lóðarmörk.
Upplýsingar í síma 486 1194.
SMÁAUGLÝSINGAR
Sýslumadurinn á Seydisfirði,
12. júní 1998.
FÉLAGSLÍF
Uppboð
Framhald uppboðs á neðangreindri fasteign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Ægisgata 10, Ólafsfirði, Þinglýst eign Skúla Pálssonar, Soffiu
Húnfjörð og Arnbjörns Arasonar, gerðarbeiðandi Sparisjóður Ólafs-
fjarðar, fimmtudaginn 25. júní nk. kl. 10.00.
Ólafsfirði, 18. júní 1998.
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði,
Björn Rögnvaldsson.
BÁTAR SKIP
Til sölu Siqurborg HU 100
313 bt 2ja þilfara stálskip smíðað í Noregi árið
1966, gert út á togveiðar, búið 1014 ha Cater-
pillar aðalvél frá 1981. Skipið hefurverið mikið
endurnýjað og ástand þess er gott. Skipið selst
með veiðileyfi og öllum aflahlutdeildum þess
sem svara til eftirgreinds aflamarks fyrir yfir-
standandi fiskveiðiár: þorskur 217,569 kg, ýsa
138,633 kg, ufsi 8,893 kg, karfi 92,726 kg,
steinbítur 9,689 kg, grálúða 30 kg, skarkoli
39,372 kg, langlúra 327 kg, sandkoli 1,166 kg,
skrápflúra 533 kg, úthafsrækja 458,653.
Skipið er í einkasölu.
Suðurlandsbraut 50-108 Rvk.
Sími 588-2266 - Fax 588-2260
SKIPASALA ehf. Þorsteinn Guönason rek.hagfi.
KENN5LA
Vatnslitaskólinn
Sumarskóli á vegum Listasafns
Árnesinga á Selfossi 8, —19. júlí
Skólinn er jafnt fyrir starfandi listafólk og þá
sem ekki hafa reynslu af vatnslitun (akvarell).
Unnið verður úti í náttúrunni eftir því sem veð-
ur leyfir. Kennari: Torfi Jónsson. Komið
saman á Selfossi miðvd. 8. júlí kl. 20. Unnið
tvær helgar, 11,—12. og 18,—19. júlí frá kl.
10—16, einnig miðvd. 15. júlí frá kl. 20. Nám-
skeiðsgjald kr. 12.500. Uppl. og skráning í safn-
inu milli 14—17 í síma 482 2703 alla virka daga
nema mánudaga eða í síma 482 2190.
Dagsferðir sunnudaginn 21.
júní.
Kl. 8.30 frá BSÍ. Baula. Gengið
frá Bröttubrekku á Baulu. Verð
2000/2200
Kl. 8.30 frá BSÍ. Árganga.
Gengið niður með Bjarnardalsá.
Verð 2000/2200.
Jónsmessunæturganga
þriðjudaginn 23. júní.
Kl. 20.00 frá BSÍ. Hestfjall í
Grímsnesi. Gengið frá Kiðja-
bergi og hring á fjallinu með við-
komu á Eyrunum. Frábært útsýni
á Jónsmessunótt. Verð 1500/
1700.
Helgarferðir næstu helgi
26. -28. júní. Básar. Ekið í Bása
á föstudagskvöldi. Varðeldur,
gönguferðir o.fl.
27. -28. júní. Fimmvörðuháls.
Gengið frá Skógarfossi á hádegi
á laugardag, upp með Skógá í
Fimmvörðuskála og gist. Gengið
í Bása á sunnudag.
26.-28. júni. Skælingar við
Eldgjá. Ekið i Eldgjá og gengið í
Skælinga. Sérstætt ævintýraland
í Skaftárhreppi. Gengið á Gjátind
og Uxatinda. Kynningarverð kr.
6900. Kynnist einstökum nátt-
úruperlum Skaftárhrepps.
Smiðjuvegi 5, Kópáyogi.
Samkomur dagana 19.-21. júní
kl. 20.00.
Carroll V. Thompson, ásamt 4 fyr-
irbiðjendum, þjónusta til okkar.
Carroll fjallar m.a. um afleiðingu
synda feðranna, sektarkennd og
höfnun.
Þau munu biðja persónulega fýrir
þeim sem þess óska.
Ailir hjartanlega velkomnir.
Heimasiða www.islandia.is/~vegur
Opið hús
fyrir nemendur
mína á Sogavegi
108, 2. hæð (fyrir
ofan Garðsapótek)
mánudags-
kvöldið 22. júni
kl. 20.00.
• Fræðsla.
• Hugleiðsla.
• Reikimeðferðir.
Guðrún Óladóttir,
reikimeistari,
sími 553 3934.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 21. júní
(sumarsólstöður)
Göngudagur FÍ og Spron
Takið daginn frá og mætið í
skemmtilega gönguferð um eitt
fjölbreyttasta útivistarsvæði suð-
Vesturlands og þó víðar væri
leitað.
Kl. 10.30 Nesjavellir -
Marardalur — Draugatjörn.
Spennandi gönguferð vestan
undir Hengli.
Kl. 13.00 Hellisheiði -
Draugatjörn, gömul þjóðleið.
Tilvalin fjölskylduganga. Gengið
með vörðum. Heilukofinn
skoðaður. Hóparnir hittast hjá
rústum gamla sæluhússins við
Draugatjörn þar sem í boði
verða léttar veitingar. Brottför
frá BSÍ, austanmegin og
Mörkinni 6.
Minnum á fjölskylduhelgi í
Þórsmörk 26.-28. júní. Léttar
göngur, ratleikur, kvöldvaka o.fl.
skemmtilegt. Pantið timanlega.
Gist i Skagfjörðsskála eða tjöld-
um. Mjög hagstætt verð.
KRISTIÐ SAMFÉLAG
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Laugardagur 20. júní kl.
18.00. Næturganga á Heklu.
Hekluganga um sumarsólstöður
og að næturlagi er ógleymanleg.
Verð 2.800 kr.
Sunnudagur 21. júní kl. 8.00.
Þórsmörk, dagsferð. Farið i
Langadal og stansað þar góða
stund. Verð 2.800 kr. Brottför frá
BSI, austanmegin.
Kl. 20.00 Sólstöðuganga:
Esja - Kerhólakambur. Árleg
ferð á einn besta útsýnisstað þar
sem sér yfir höfðuðborgar-
svæðið. Verð 1000 kr. Brottför
frá BSÍ, austanmegin og Mörk-
inni 6. Hægt að koma á eigin bíl
að Esjubergi.
Jónsmessunæturganga um
Svínaskarð á þriðjudags-
kvöld kl. 20.00. Verð 1000 kr.