Morgunblaðið - 21.06.1998, Page 2

Morgunblaðið - 21.06.1998, Page 2
2 B SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ HEIMA hjá Berglindi í Madrid. „Ég er að búa mig undir nám í bún- ingahönnun og nýti frí- tímann heima vel; ég hafði gott pláss í Madrid, hafði íbúð alveg fyrir mig og þar af leið- andi gott næði. Ég var dugleg þar og nýtti tim- ann vel við að búa til í bókina mína, sem ég sýni þegar ég sæki um skólavist. Ég var miklu duglegri að vinna í henni en þegar ég var í Arabíu." BERGLIND er 23 ára Akumesingur. Eftir að hún hóf störf hjá flugfélag- inu Atlanta fyrir tveimur árum hefur hún verið samtals á tíunda mánuð í Saudi-Arabíu, flaug milli Madridar og Havana í rúma níu mánuði en nú er hún með aðsetur í Manchester á Englandi og fylg- ir þarlendum sóldýrkendum víða á leið þeirra í frí. Starf flugfreyju hefur löngum heillað marga snótina; eilíf ferðalög út og suður um heiminn. En líklega er ekki allt sem sýnist í þessu frek- ar en öðru. Vissulega era ílugfreyjur mikið á ferðinni, en starfið snýst ekki einungis um að færa fólki mat og drykk, heldur eru Berglind og hennar líkir fyrst og fremst öryggisverðir um borð, að hennar sögn. „Starfið getur orðið mjög erfitt, við vinnum vissulega færri daga en margir aðrir en vinnudagurinn er oft rosa- lega langur. Starfið er krefjandi, alltaf mikið af fólki um borð og það getur verið mjög lýj- andi. En auðvitað er þetta gaman líka; mér finnst til dæmis mjög skemmtilegt að búa í langan tíma á sama stað erlendis; þannig get ég kynnst löndunum og mannlífinu. Væri ég flugfreyja á íslandi væri aðeins um að ræða stuttar ferðir þaðan,“ sagði Berglind í samtali við Morgunblaðið, nýkomin „heim“ til Manchester á Englandi eftir 17 klukkustunda vinnuferð. Berglind segir misjafnt hvað hver og einn kjósi að gera í frítíma sínum, „en fyrst ég er í þessu starfi vil ég fá sem mest út úr því. Mér finnst ákaflega gaman að sjá nýja hluti og get því ekki hugsað mér að eyða tímanum í ekki neitt þegar ég stoppa á framandi stöðum. Nema kannski á Kúbu; ég kom þangað svo oft á níu mánaða tímabili að stundum leyfði ég mér að vera löt og slappa mjög vel af. Ég skoðaði mig vel um þar; stoppaði stundum í tvo daga og gat þá ferðast svolítið um eyjuna og var svo heppin að áhöfnin sem éjg var með var yfirleitt til í að gera eitthvað. Eg er búin að sjá nánast allt í Havana og nágrenni, skoð- aði litla bæi í grenndinni, fór á strandirnar og upp í fjöllin. Og ég er bú- in að ganga heilmikið um Havana; þar blasir alltaf eitthvað við sem annað hvort stingur þig í hjart- að eða er rosalega snið- ugt. Það er til dæmis gaman að sjá hvernig Kúbumenn bjarga sér; þeir hafa nánast ekki neitt til neins en alls kyns uppfinningar létta þeim lífið. Ég get nefnt sem dæmi hve sniðugt mér fannst að sjá venjulegt reiðhjól sem hafði verið breytt í mótorhjól; plastbrúsi, slanga og saumavéla- mótor dugðu til þess. Á Kúbu sést glögglega hve ótrúlega aðlögunarhæfni maðurinn hefur. Þar hendir fólk ekki því sem bilar heldur reynir að nýta til einhvers annars en áður.“ Hún sér margt ólíkt. „Jedda finnst mér mjög athyglisverð borg og það er í raun alveg einstakt að kynnast Saudi Arabíu, algjörlega lokuðu landi - nema fyrir þá sem eru með atvinnuleyfi - sem er al- veg heimur út af fyrir sig. Ég man að þegar ég kom í fyrsta skipti til Jedda fannst mér and- rúmsloftið strax rosalega skrýtið. Eingöngu voru Vesturlandabúar í hópnum, megnið kon- ur og við fundum strax að heimamenn fyrirlíta okkur. Við vorum ekki í einkennisbúningum þegar við komum fyrst; hafði verið sagt að vera í síðum buxum, víðum, ekki í þröngum peysum og alls ekki flegnum. Þegar við kom- um fannst heimamönnum við svo í alltof þröngum buxum og bolirnir voru allt of flegnir - þó þeir næðu alveg upp í háls! Einkennis- búningurinn, sem við erum auðvitað alltaf í eftir þetta, hylur allt nema andlitið og lófana. Hárið er meira að segja hulið með slæðu.“ Hún segir Saudi-Arabíu „algjört karlaveldi. Konur vinna ekki í landinu, nema nokkrar fil- SJÁSÍÐU10 Maður lendir stundum í því, ofan á allt annað, að kenna fólki hvernig á að nota klósettin! IHVU& /l «| BÉÉMf' mimm ■ 'ÆM ÉnHB? !é STARFSFÓLK Atlanta heldur mikið hópinn, að sögn Berglindar. Hér er hún á veitinga stað í Madrid ásamt einum vinnufélaga sínum, Unndóri Jónssyni. BROTTFÖR frá Madrid nálgast. Berglind tekur farangur sinn við flugstöðina áður en farið er út í vél. Á LEIÐ til Kúbu. „Við fáum yfirleitt hálftíma til fjörutíu mínútna hvfld á leiðinni; setjumst þá upp á efri hæðina og borðum og reynum að hafa það eins huggulegt og kostur er,“ segir Berglind.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.