Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 4
4 B SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ rims Eftir langan feril sem verkfræðingur, ráð- herra og seðlabankastjóri lætur Steingrím- ur Hermannsson nú af opinberum störfum. Kristín Marja Baldursdóttur fékk að skyggnast inn í skemmtilega fortíð hans, hlustaði á frásagnir hans af fólkinu í land- inu, og kynntist örlítið manninum sem allir vita hver er en færri kannski þekkja. OKKRIR stjórnmála- menn samtímans hafa notið vinsælda og trausts meðal þjóðarinnar. Stein- grímur Hermannsson er einn þeirra. Verkfræðingurinn sem ætlaði aldrei að skipta sér af pólitík var formaður Framsóknarflokksins í fimmtán ár og forsætisráðherra landsins í sjö ár. Að vísu drakk hann í sig pólitíkina sem drengur inni á kontór föður síns, Hermanns Jónas- sonar forsætisráðherra, og hefði því kannski getað sagt sér hvaða stefnu lífið tæki. En á þeim árum hafði hann meiri áhuga á trésmíði. A morgun, 22. júní, verður hann sjötugur og lætur senn af störfum sem seðlabankastjóri. Ég spyr hvort hann líti á þessi tímamót sem lok einhvers eða upphaf nýs tímabils. „Þetta er mikill áfangi. Ákveðin verkefni eru að baki og önnur eru framundan, þetta eru því ekki enda- lokin. Ég er ánægður með það sem ég hef gert og lokið við, og lít jiví til baka með töluverðri ánægju. Ég hef lokið ferli mínum í stjórnmálum og tel það hafa verið lán að hafa haft vit á því að hætta þegar ég gerði það. Og ég hef átt ánægjulegan tíma í Seðlabankanum og unnið þar með góðu fólki, þótt starf mitt þar hefði líklega ekki hentað mér í lengri tíma. Svo er fjölmargt sem ég hef verið að bauka við, smíðar og skógrækt, og því mun ég halda áfram. Ég er mikið fyrir útivist og hef hugsað mér að auka hana aftur, ætla til dæmis að ganga á Hvannadalshnjúk um næstu mánaðamót og bjóða fjölskyldunni með í tilefni afmælisins. Nú munum við hjónin hafa meiri tíma fyrir golfið og kannski getum við farið oftar á skíði til Sviss með fjölskylduna. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki lengur bestur á skíðum í fjöl- skyldunni, strákarnir eru orðnir miklu betri. Komnir niður þegar ég á hálfa leiðina eftir. Enda sagði Edda, konan mín, að ég yrði að muna að ég væri ekki þrítugur lengur. Ég var dálitill glanni á skíðum áður, sleit lið- bönd og svo framvegis, en núna á þessum aldri er ég farinn að hugsa meira um að brjóta mig ekki. Ein- beiti mér heldur að kennslunni. í síð- ustu skíðaferð voru tveir litlir Stein- grímar með og það var mjög gaman að leiðbeina þeim.“ Innan um síða kjóla Steingrímur hefur því komið ná- lægt uppeldi bamabamanna, en ég bið hann um að segja mér frá því uppeldi sem hann sjálfur fékk í ráð- herrabústaðnum. „Ég fékk eftirminnilegt uppeldi. Þegar við bjuggum á Laufásveginum og faðir minn var að byrja í pólitík, átti ég í töluverðum átökum. Kollu- banamálið svonefnda stóð sem hæst, menn vom heitir í pólitíkinni þá, og ég lenti í slagsmálum við stráka í hverfmu. Þegar ég kom heim einn daginn með blóðnasir vai' mömmu nóg boðið og sagði að ræða yrði við foreldrana um þessi slagsmál, þau gengju ekki lengur. En þá sagði pabbi: Komstu höggi á hann? Já, sagði ég. Þá er jafnt á komið, sagði hann. Þetta þætti víst ekki gott uppeldi núna. Síðan fluttumst við í ráðherra- bústaðinn við Tjarnargötu. Það var stórt hús, ég hafði þrjú herbergi meira eða minna, í kjallara, á háa- lofti og svo mitt herbergi á hæðinni. Ég kynntist ungui: pólitíkinni þótt ég hefði ekki skilning eða áhuga á henni þá. Faðir minn var á kafi í henni, en þá var þetta allt saman öðruvísi, til dæmis var það oft vikuferð að fara norður á Strandir. Móðir mín vann heima eins og siður var þá, og ég segi oft að ég hafi þar verið mjög lánsamur. Ég ólst upp við Tjömina, var á skautum og í jakahlaupi. Einn daginn kom ég í þrígang blautur heim, og þegar ég kom í þriðja sinn sagði mamma: Nú á ég ekki fleiri fót. Svo læsti hún dyrunum. Bjöm Þorláksson kom mér í kynni við strákana á Hávallagötunni. Ég gekk í félag þeirra sem bar heitið Röskir drengir og var fljótlega kos- inn formaður." - Gömlu félagarnir segja að þú hafir notað ráðherrabústaðinn þér til framdráttar. Hótað að fundir yrðu ekki haldnh' þar ef þú yrðir ekki kos- inn formaður. „Já, já, þeir fullyrða þetta. Það átti að skipta um formann tvisvar á ári og þegar kom að þvl á ég að hafa sagt: Það er sjálfsagt að skipta um formann en þá getum við náttúrlega ekki haft fundina hér. Pabbi var hrifinn af íþróttaandan- um í þessum félgasskap. Því nutum við mikils frelsis í ráðherrabústaðn- um, voram í feluleikjum og eltinga- leikjum. Betri stofumar voru lokað- ar, og þegar mamma fann einhvern strákanna inni í klæðaskáp innan um síðu kjólana, var því herbergi lokað. Oft þegar við voram í eltingaleik stukkum við af svölunum niður á túnið fyrir neðan. Mamma vildi banna þetta, en eitt sinn þegar við höfðum stokkið kom faðir minn að- vífandi í gráum, fínum fótum, greip í handriðið, vippaði sér yfir og fór þetta miklu flottara en við. Sagði svo: Þetta er allt í lagi, ég skal tala við móður þína.“ - Menn vita margt um föður þinn, en hvemig kona var móðir þín, Vig- dís Steingrímsdóttir? „Hún var fyrirmyndarhúsmóðir. Hún var komin af sæmilega stæðu fólki, faðir hennar var bygginga- meistari, byggði meðal annars Thors Jensens-húsið og Kvennaskólann. Hún var send í skóla til Danmerkur og tók þar há próf, talaði mörg tungumál, saumaði og óf mikið og var einn af stofnendum Húsmæðra- skólans. Hún var róleg kona og trú- uð, studdi fóður minn í pólitíkinni en ég held þau hafi ekki rætt hana mik- ið sín á milli. Pólitíkin var aftur á móti rædd inni á kontór hjá pabba og þangað komu þeir Eysteinn Jóns- son og fleiri merkir menn. En þeir vora líka margir sem drukku kaffi í eldhúsinu hjá mömmu og þangað komu líka þekktir menn.“ - Stjórnaði hún kannski svona á bakvið? „Hún stjómaði öllu sem hún vildi stjórna. Hún var mjög klók í því, en lét pabba halda að hann réði. Hann kom sjaldan í eldhúsið og ef hann kom, átti hún það til að segja: Æ, Hermann vertu nú ekki að flækjast héma í eldhúsinu. Þótt faðir minn væri upptekinn í pólitíkinni var ég mikið með honum. Við fóram saman á veiðar, á skíði og gengum á fjöll. Ef hann kom heim af þingi og leiddist eitthvað sagði hann kannski: Komdu Steingrímur, við skulum koma upp í Heiðmörk. Þar veiddi ég fyrstu rjúpuna ellefu ára gamall. Eg var í sveit á sumrin, en fór oft með honum í laxveiði á vorin og haustin, veiddi minn fyrsta lax í Grímsá, átta ára gamall.“ Glímt hálfa nóttina Hann vildi ætíð vera fremstur í öllu, segja gamlii- félagar um Stein- grím, og minnast meðal annars frægrar Drangeyjarferðar unglings- pilta úr vegavinnunni á Vatnsskarði. I Drangey mönuðu þeir hver annan til að standa fremst á bjargbrúnum. Steingi'ímur, sem að sögn manna kaus heldur að fara fram af brúninni en að vera ekki fremstur, stóð á hæl- unum með þrítugan hamarinn fyrii' neðan sig. „Þetta vai' brjálæði, maður á ekki að segja frá þessu. Jú, ég stóð á hæl- unum með tærnar fram af brúninni og fann ekkert fyrir lofthræðslu þá, en vaknaði svo með martröð margar nætur á eftir.“ - Drangeyjarferðin skýrir kannski skjótan frama í stjórnmálum? „Þó svo að ég hafi beitt brögðum hjá Röskum drengjum, finnst mér þegar ég lít til baka að ég hafi aldrei sóst eftir frama. Árið 1962 var ég harðákveðinn í að fara ekki í stjóm- mál og það tók hálfa nóttina að fá mig til að taka að mér formennsku í eitt ár í FUF. Ungir menn deila oft eins og gengur og þeir gátu ekki komið sér saman um fonnann. Þá komu þeir nokkrir til mín upp á Tjamargötu, foreldrar mínir voru ekki heima, og reyndu að tala mig til. Ég gaf mig ekki, en svo náði ég í viskíflösku sem pabbi átti, og við glímdum og það endaði með því að ég samþykkti að taka að mér for- mennskuna í eitt ár. Árin í stjórn- málum urðu þrjátíu. Ég er líkur móður minni að því leyti að ég vinn skipulega. Það gerði faðir minn síður. Hann var meira fyrir það að fara til fjalla og hugsa. Eg vil skipuleggja daginn, og þegar ég tók við formennsku í FUF gerði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.