Morgunblaðið - 21.06.1998, Page 7

Morgunblaðið - 21.06.1998, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 B 7 hlið þess og styður við bak þess en framtíð þess er ekki lengur í höndum manns.“ Myndu gefa hægri fótinn fyrir að syngja Móa segir að nú orðið þyki henni skemmtilegra að syngja sín eigin lög en annarra. Henni fínnst best að starfa sjálfstætt en eigi að síður segist hún vera mjög háð fjölskyldunni sinni. „Ég vil vera í skjóli fjölskyldunnar," seg- ir hún. Þar fær hún andlega nær- ingu enda er þar að finna margt skapandi og hugmyndaríkt fólk. „Ég hræðist ekkert eins og að leiðast," segir hún og undirstrik- ar um leið að hingað til hafi leið- indin ekki verið fyrirferðamikil. Líf þessarar ungu konu hefur þvert á móti verið viðburðaríkt og óvæntir atburðir hafa oft orðið á vegi hennar. Eitt slíkt ævintýri gerðist þegar Andy Grove for- stjóri Intel bauð henni og OZ mönnum að flytja atriði, sem þau höfðu sýnt skömmu áður á stórri alnetssýningu, á 300 manna fundi sem haldinn er árlega í Sun Valley í Bandaríkjunum og valda- mestu menn landsins mæta til. „Við lifðum eins og konungar og þetta var mjög óraunverulegt. Sá sem heldur fundinn er Herbert Allen en hann á stórt fjármála- fyi-irtæki og er sagður vera tengiliðurinn á milli Hollywood og Wall Street. Hann bauð mér að syngja í lokahófi fundarins og sagði si svona við mig: Vinir mín- ir eru frábærir músíkantar og þeir bíða eftir þér. Þá var þetta tólf manna big band,“ segir Móa og brosir breitt en hæverskt. „Ég þurfti ekki annað en gera svona,“ segir hún og lyftir hendi, „og þeir vissu nákvæmlega hvað ég ætlaði að gera. Fólk myndi gefa hægri fótinn á sér fyrir að fá að syngja með þessum mönnum. Þarna voru umboðsmenn frá Hollywood, t.d. Jeffrey Berg frá International Creative Mana- gement, og gamall maður, sem er sagður vera guðfaðir Hollywood, kom og kyssti á hönd mína. Stofnandi sjónvarpsstöðvarinnar MTV, Summer Redstone, sem er níutíu ára og eitthvað, var þarna líka. Þetta var alveg fáránlegt!" -En hvert sækir þessi grann- vaxna og frísklega kona kraftana? „Ég er mjög kraftmikil en verð auðvitað að hugsa um að safna orku eins og aðrir. Ég syndi mikið. Sund er alveg frábært, maður er úti og manni gefst gott tóm til að hugsa. Ég er annars frekar upp- tekin af því núna hvernig maður safnar kröftum," segir hún og seg- ist einmitt hafa haft það að leiðar- ljósi þegar albúm nýju plötunnar var hannað. „Þar held ég utan um stálkassa sem táknar orkuna og er einmitt að hlaða mig,“ bætir hún við og tekur undir kveðju tveggja stúlkna sem koma með stafræna myndbandstökuvél að borðinu okkar. „Við erum að gera mynd- band fyrir vinnuskólann," segja stöllurnar. „Ertu til í að segja okk- ur hvernig þú sérð sjálfa þig fyrir þér eftir tíu ár?“ Ekki vefst það fyrir Móu en svarið liggur á milli hluta þar til myndbandið verður sýnt. - En við hvað skyldi hún fást, þessi heillandi, unga kona, að tíu árum liðnum? hugsa ég þegar við kveðjumst í glampandi sólskininu og Móa dregur varalit upp úr pússi sínu svo lítið ber á. Hún segist kunna þá list, þrátt fyrir að vera skapstór, að láta lítið fyr- ir sér fara. „Fljótlega gleymir fólk að ég er viðstödd og ég fæ að heyra margt sem ég ella fengi ekki að vita,“ segir hún. Blaða- maður er þess fullviss að hér eft- ir gleymir enginn Móu, tónlistin hennar á eftir að sjá til þess. Norskur fréttamaður særður JÚGÓSLAVNESKI herinn sýndi í vikunni skilríki og tökuvél norska blaðamannsins Pála Refsdals, sem særðist í átökum hersins og aðskiln- aðarsinna Kosovo-Albana á mánu- dag. Refsdal var í för með skærulið- um og segja heimildarmenn úr röð- um þeirra Refsdal ekki lífshættulega særðan. Hann starfar í lausa- mennsku og kvaðst starfa fyrir TV2 í Noregi en sjónvarpsstöðin hefur vísað því á bug. I frétt Aftenposten segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem Refs- dal komist í hann krappan en hann hefur margoft starfað á átakasvæð- um, m.a. í Afganistan og á Sri Lanka. Þar var hann t.d. staddur með skæruliðum á bátskænu sem stjómarherinn gerði árás á. Kastaði Refsdal sér útbyrðis og svamlaði í sjónum í hálfa aðra klukkustund áð- ur en honum var bjargað en krökkt var af hákörlum á svæðinu. Þau vítamín og næringarefni sem mjólkin hefur að geyma gegna mikilvægu hlutverki í daglegu lífi okkar alla ævi. Látum aldrei vanta mjólk á okkar heimili. Niðjamót hjónanna frá Heiði á Langanesi ---------------------------------1 Hönnunarsamkeppni I A VEGUM FAGRÁÐS TEXTÍLIÐNAÐARINS íslensk ull d nýrri öld NIÐJAMÓT verður haldið að Varmalandi í Borgarfirði dagana 26.- 28. júní nk. Þar koma saman niðjar hjónanna Lárusar Helgasonar og Arnþrúðar Sæmundsdóttur frá Heiði á Langanesi. Fyrsta niðjamót afkomenda Lárusar og Arnþrúðar var haldið á Heiði árið 1982 í tilefni 100 ára fæð- ingarafmælis Lárusar og er nú hald- ið í annað sinn. Lárus Helgason fæddist 22. apríl 1882 í Ásseli á Langanesi. Arnþrúður Sæmundsdóttir, Sæ- mundssonar bónda og hreppstjóra á Heiði, fæddist 14. janúar 1888 af ætt Þorláks Marteinssonar, bónda í Hraungerðisseli í sömu sveit. „Lárus og Arnþrúður giftust 5. febrúar 1906, þau bjuggu allan sinn búskap á Heiði til ársins 1952 er þau fluttu til Þórshafnar. Lárus lést 5. september 1952, Arnþrúður lést 12. febrúar 1963. Lárus og Arnþrúður áttu miklu barnaláni að fagna og eignuðust 14 börn og einn uppeldis- son. Afkomendur Lárusar og Arnþrúð- ar teljast nú orðið í hundruðum og verður í tilefni niðjamótsins gefið út veglegt niðjatal,“ segir m.a. í frétta- tilkynningu frá undirbúningsnefnd. „Gert er ráð fyrir að mótsgestir komi á staðinn á fóstudag, 26. júní. Formleg setning mótsins fer fram laugardaginn 27. júní með sameigin- legu borðhaldi um kvöldið. Eftirtald- ir taka á móti þátttökutilkynningum: Hjalti Hjaltasson, Lára Einarsdótt- ir, Helga Gunnólfsdóttir, Hilmar Arason, Lárus Jóhannsson, Þráinn Árnason, Bergur Vilhjálmsson, Jóna Jónatansdóttir, Ingimundur Ö. Pét> ursson og Sæmundur Sæmundsson. Ennfremur eru pantanir í hótelgist- ingu hjá Hjalta svo og á hótelinu sjálfu og skólanum í Varmalandi,“ segir ennfremur. Fagráö textiliönadarins efnir til samkeppni um hönnun á fatnaði þar sem íslenska ullin er notuð sem hráefni að miklu eða öllu leyti. Markmið samkeppninnar er að stefna saman hön- nuðum og framleiðendum í leit að góðum hugmyndum, en jafnframt að vekja ;li á íslenskri hönnun og koma á framfæri þeim fata- og textílhönnuðum # sem vinna með ullina. Stefnt er að því að móta heilsteyptar fatalínur á grunni verðlaunatillagna og framleiða þær fyrir almennan markað. Öllurn menntuðum teaitíl- og fatahönnuöum er sérstaklega boðið að taka þátt í keppninni en hún er jafnframt opin almenningi. Fimm manna dómnefnd mun velja 2-3 hugmyndir sem verða þróaðar áfram í samstarfi við fataframleiðendur. Dómnefnd skipa: Frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Guðjón Kristinsson framkvæmdastjóri, Gunnar Hilmarsson verslunar- maður, Logi Úlfarsson framkvæmdastjóri og Oddný Kristjánsdóttir klæðskeri. Sigurvegarar hljóta 300.000 kr. verðlaun hver frá Fagráði textíliðnaðarins og verður ekki gert upp á milli verðlaunasæta. Reglur eru frjálslegar hvað varðar gerð og framsetn- ingu, en miða skal við að íslensk ull sé notuð að einhverju eða öllu leyti sem hráefni. Tekið verður við tillögum jafnt í formi mynda/teikninga sem frumhluta. Erestur til að skila tillögum rennur úumánudaginn 17. ágúst. Tillögur skulu berast Iðntæknistofnun, Keldnaholti, 112 Reykjavík merktar „Islensk ull á nýrri öld“.Tillögur skulu merktar dulnefni, en nafn, kennitala, heimilisfang og símanúmer þátttakanda skal fylgja með í lokuðu umslagi. Nánari upplýsingar veitir Sævar Kristinsson í síma S70 7100 (fax: S70 71 10, netfang: tex@iti.is)______________________ ♦ Fagráð textíliðnaðarins Cfief Peng HM VE1SLA Þú fcerð ömt í kaupbœti þeqar þú sœkir tilboðsrétti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.