Morgunblaðið - 21.06.1998, Side 8

Morgunblaðið - 21.06.1998, Side 8
8 B SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ - t Ferð um Sýrland -fyrsta grein jr EG var á röltinu í næsta ná- grenni við hótelið morguninn eftir að ég kom, svona til að ná áttum og rifja Damaskus upp fyrir mér þegar tvær ungar stúlkur gáfu sig á tal við mig. „Megum við æfa okkur í ensku?“ sögðu þær kurteislega og ég spurði á móti hvort ég mætti þá ekki æfa mig duggulítið í arabísku. Þar með var fognuðurinn alger og við sett- umst inn á næstu tesjoppu og tók- um upp létt spjall. Þetta viðmót, hlýtt og forvitið þykir mér áberandi í fari Sýrlend- inga og þeir eru nauðalíkir Islend- ingum hvað það snertir að eftir fyrstu þrjár setningarnar bera þeir alltaf upp spuminguna: Hvernig líkar þér í Sýrlandi? Og verða yfir sig glaðir þegar í ljós kemur að manni líkar undurvel. Loksins veit ég hvað ég ætla að verða Sýrland er ekki ferðamannaland. Ekki enn. Það er óhjákvæmilegt annað en að því komi. Með um það bil ellefu þúsund ára sögu má geta nærri að menjar nánast allra sið- menninga er þar að finna. Svo að sagan er ekki bara hvert sem litið er, hún er í bókstaflegri merkingu undir hverju skrefi sem maður stíg- ur. Þó óhemjumikið hafi verið gi-af- ið upp víðs vegar um landið sem rekja má aldir aftur í tímann er það ekki nema brot af því sem menn þykjast vera vissir um að mætti grafa upp. Veldi Fönikíumanna, Grikkja, Rómverja, Býzantína og þegar kemur nær samtímanum múslimar, krossfaramir, Ottómanríki Tyrkja og enn síðar Breta og Frakka - allt hefur skilið eftir fjölbreytileg spor. Sjálf hef ég fram að þessu ekki verið þeirrar náttúru að hrífast af rústaborgum fortíðar og þessháttar sögustöðum. Ekki íyrr en núna. Eg held það hafi verið í Ugarit sem er rétt við hafnarborgina Lattakia sem ég var gersigruð. I Ugarit er enn ekki búið að grafa upp nema hluta borgarinnar sem átti sitt blómaskeið á 16.-13. öld fyrir Krist þegar hún var miðstöð viðskipta frá Egyptalandi, Eyjahafi, Kýpur, Sýr- landi og Mesópótamíu. Fórnargjafir voru sendar hvaðanæva að í hof aðalguðsins, Ba- al. Ugarit var einnig miðstöð lær- dóms og þar hefur fundist elsta staf- róf í heimi frá 12. öld f. Kr. Töflum- ar með stöfunum skoðaði ég síðar á söfnunum í Damaskus, Lattakia og í Aleppo. Það var í Ugarit sem ég uppgötvaði loksins hvað mig langaði til að verða þegar ég yrði stór: fom- leifafræðingur í Sýrlandi. Nokkrar elstu borgir heims eru í Sýrlandi Allnokkrar borgir í Sýrlandi geta með nokkrum rétti gert tilkall til þess að eigna sér titilinn um að vera þær elstu sem enn eru byggð- ar á sínum foma stað. Ibúar í Aleppo draga mjög í efa fullyrðing- ar manna í Damaskus að sú síðar- nefnda sé eldri. Það er að mati sér- fróðra erfitt að kveða upp úr með það en sannanleg merki byggðar í báðum borgum hafa rakið sig rösk- lega fimm þúsund ár aftur í tímann. Oft spurði fólk mig um hvað við hefðum búið lengi á Islandi og var ekki laust við að menn rækju upp stór augu þegar ég sagði þeim frá ellefu hundmð ára byggð. „En hverjir bjuggu þar á undan ykkur?“ var síðan spurt og mörgum fannst það brandari að landið hefði ekki fundist öllu fyrr og verið mannlaust með öllu þær aldir sem hver sið- menningin eftir aðra var við lýði í Sýrlandi. í Bosra er glæsilegasta útileik- hús frá tímum Rómverja Það var fyrir tilstuðlan Middle East Tourism að ég fór í ferðina út um landið. I upphafi hafði ég sam- band við forstjórann Dr. Maher BRÚÐHJÓNIN á heiðurspallinum í brúðkaupsveislunni í Lattakia. ÞÆR hófu dansinn og síðan komu flestar hinna á eftir m í ‘ Ljósmyndir/Jóhanna Kristjónsdóttir. MALULAH, þar sem mál Jesú hefur varðveist. Næst fjöllunum eru felulitir á húsunum en neðar í þorpinu má sjá blá og rauðmáluð þök. ) ) ) s ) ) ) : ) t í kastölum krossfaranna og stærsta útileikhúsi heims : Væri Sýrland annars staðar á hnettinum en í Miðausturlöndum mundi þar úa og grúa af ferðamönnum, að dómi Jóhönnu Kristjónsdóttur sem ferðaðist um landið þvert og endilangt í síðasta mánuði. Þar má fletta hverju lagi mannkynssögunnar af öðru - sagan er ekki aðeins við hvert fót- mál heldur einnig undir hverju spori. Daadouehe til að leita mér upplýs- inga af því ég stefni á frekara nám í arabísku og íslömskum fræðum í Damaskus næsta vetur. Þó það væri fjarri í hans verka- hring tók hann beiðni minni elsku- lega og sendi mér auk þess girni- legar upplýsingar um ferðir sem skrifstofan hans skipuleggur. Mér fannst það gæti líka verið bráðgott að fara í ferð um landið og reyna að átta mig á hvort ég héldi að ég gæti búið þar upp á eigin spýtur á vetri komanda. Löngu áður en ferðinni lauk var ég komin að niðurstöðu um það og lét það verða mitt síð- asta verk að ganga frá innritun næsta vetur. Dr. Daadouche stakk upp á ræki- legri ferð svo ég sæi sem allra mest. Hann gaf mér góð kjör og fannst gott og til eftirbreytni að ís- lendingur sýndi Sýrlandi áhuga. Hann vonaði að meira yrði um ís- lenska gesti í framtíðinni. Hann stakk upp á að byrja á dagsferð til suðurs og þá var Bosra auðvitað staðurinn. Bosra er milli tveggja áa sem báðar renna í Yarmuk fljótið. Þetta er sérstæður og magnaður staður, þar sem svart basaltið gerir umhverfið dulúðugt. En aðalaðdráttarafl Bosra er úti- leikhús frá tímum Rómverja á svæðinu sem sagt er hið stærsta í heimi og rúmar 14 þúsund áhorf- endur. Umfram allt er þetta best varðveitta leikhús sem til er. Leikhúsið er óvenjulegt m.a. af því að það er í rauninni aðaluppi- staða kastalans sem umlykur það. Þarna er haldin listahátíð á hverju ári en á þeim heita degi sem ég kom í heimsókn héldu óbreyttir Sýrlendingar uppi fjörinu. Það voru dansaðir hringdansar og tvídansar og fjöldadansar af þvílíkri gleði að ég sat hugfangin og horfði á. Það var ekki að sjá aðskilnað kynjanna í þessum dönsum og það- an af síður að konurnar væru kúg- aðar eins og þjóðsögurnar og trölla- i sögurnar segja. Ungar sýrlenskar stúlkur sveifluðu flæðandi svörtu t hári og blikkuðu strákana miskunn- | arlaust og þó var ekki beint flört í þessu þannig að mæður eða frænk- ur þyrftu að hafa áhyggjur af. Það lá bara svo aldeilis ljómandi á þeim. I þorpinu þar sem mál Jesú Krists er enn talað Fyrsta dag ferðarinnar komum við til Malulah sem er ekki nema 50 J eða 60 km frá Damaskus. Þorpið er J í þröngum dal við rætur tígulegra f fjalla. Það er engu líkara en húsin j þrýsti sér upp að klettunum og þar ríkir meiri litadýrð á húsunum en almennt gerist og gengur því grátt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.