Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
Það er aðalat-
riðið að upp-
lifa messu á
hverjum degi
og vera í sam-
félagi við Guð
og hinar syst-
urnar, alveg
eins og í
hverri annarri
fjölskyldu.
ar fjölskyldan okkar. Þeir vita allt
um okkur,“ segir hún sposk á svip.
„Eg held að við séum í góðri
samvinnu við fólkið. Áður var allt
starfsfólk héðan frá Stykkishólmi
og nágrenni, en nú kemur það víð-
ar að. Ég hef alltaf verið hlynnt
því, að fólk héðan ynni hin almennu
störf eins og í býtibúri og svoleiðis.
Það vekur kannski áhuga þess á að
læra hjúkrun eða eitthvað annað
sem tengist starfí spítalans."
Systir Renée rifjar upp gamla
tíma þegar ófaglærða fólkið hjálp-
aði til við að þvo sjúklingunum, það
fylgdist með hjúkrunarfólkinu á
næturvakt, kynntist sjúkrahúslíf-
inu og gerði það sem þurfti. Hún
tekur fram, að þótt tímarnir hafi
breyst þurfí umönnun, sérstaklega
í sambandi við aldraða, ekki að
snúast öll um lækningu heldur
skipti umhyggja og væntumþykja
ekki síður máli og það lærist ekki í
skóla. „Góð kona getur látið mikið
gott af sér leiða,“ segir hún.
Hættir sem
príorinna
Hjá St. Franciskussystrum er
príorinna valin til þriggja ára í
senn en mest í sex ár. Systir Renée
er ánægð með þetta fyrirkomulag
fyrir margra hluta sakir. Samtals
hefur hún gegnt þvi starfi í 12 ár.
I ágúst næstkomandi hættir hún
sem príorinna og hafa systurnar
óskað eftir því að fá príorinnu að
utan. „Okkur fínnst tími til komin
að fá ferska vinda hingað inn.
Breytingar eru alltaf til góðs þó að
þær geti stundum verið erfíðar,"
segir hún.
Þó að hún sé að hætta sem príor-
inna er ekki þar með sagt, að hún
ætli að hætta að vinna og setjast í
helgan stein. „Ég ætla í smávegis
frí til Belgíu, en vonandi kem ég
aftur sem fyrst,“ segir hún og út-
skýrir að hún sé orðin meiri Is-
lendingur en Belgi.
íslendingar eru sjaldnar
ánægðari nú en áður fyrr
Hún segir að á þeim tæpu fimm-
tíu árum, sem hún hafí átt heima á
Islandi hafi orðið gííúrlega miklar
breytingar. „Það hafa líka orðið
breytingar í Evrópu og ég viður-
kenni að ég hef verið lengi í burtu
og veit því ekki nákvæmlega
hvernig fólkið í Belgíu er, en mér
virðist sem Islendingar séu sjaldn-
ar ánægðir en þeir voru áður. Fólki
finnst það sífellt þurfa að eignast
eitthvað og heldur að hamingjan
felist í því. Jafnvel þarf það að
kaupa ný tæki um leið og þau koma
á markaðinn.
Ég óska engum að lifa í fátækt
og vandræðum," segir hún af festu,
„en ég held að það væri gott fyrir
suma að lifa og bjarga sér í skorti
um einhvern tíma. íslendingar hafa
sloppið mun betur en aðrar Evr-
ópuþjóðir við afleiðingar styrjalda.
Ég held að breytingar frá einfóldu
lífi og til þess sem við höfum núna
hafi orðið alltof hraðar hér á landi.
Áður fyrr var fólk mun ánægðara
með minna. En ég er útlendingur
og kannski er þetta ekki rétt,“ seg-
ir hún svo afsakandi. „En mér
finnst ég sjá þetta svona með mín-
um gömlu augum.“
BRIDS
Umsjón
Arnór G. Kagnarsson
Sumarbrids 1998
Mánudagskvöldið 15. júní urðu
þessi pör efst í sumarbrids 1998.
(Meðalskor 216).
NS:
Guðbjöm Þórðarson - Vilh. Sigurðsson jr. ... 245
Jón Þorvarðarson - Hrólfur Hjaltason.243
Eyv. Magnússon - Nieolai Þorsteinsson .239
AV:
Friðrik Egilsson - Cecil Haraldsson .249
Þorst. Joensen - Hermann Friðrikss...248
Jón S. Kristinss. - Sigurdór Unndórss.247
Þriðjudagskvöldið 16. júní var
spilaður Mitchell með þátttöku 26
para. Spilaðar voru 9 umferðir.
Þessi pör urðu efst:
(Meðalskor 216)
NS:
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson.266
Þorst. Joensen - Gunnlaugur Sævarsson..248
Rafn Thorarensen - Þóróur Jörundsson ..240
AV:
Guóm. Baldursson - Hallgr. Haligrímss..245
Garðar Jónsson - Alfreð Kristjánsson.244
Jón V. Jónmundsson - Eggert Bergss.244
Tíu sveitir í útslætti!
Að loknum þriðjudagstvímenn-
ingi var spiluð útsláttarsveita-
keppni, því flestir áttu frí daginn
eftir. Tíu sveitir skráðu sig til leiks
og eftir snarpa spilamennsku stóð
sveit Ragnheiðar Nielsen uppi sem
sigurvegari. Sveitina skipuðu Hjör-
dís Sigurjónsdóttir, Gylfi Baldurs-
son og Jón Steinar Gunnlaugsson,
auk Ragnheiðar. í öðru sæti varð
sveit Kristófers Magnússonar, en
með honum spiluðu Albert Þor-
steinsson, Pétur Steinþórsson, Úlf-
ar Kristinsson, Vilhjálmur Sigurðs-
son yngri og Þorsteinn Joensen.
Ljóst er að sveitakeppnin er að
verða æ vinsælli hjá spilurum, enda
er oftast létt yfir mannskapnum á
meðan hún stendur yfir. Svo má
ekki gleyma því að bronsstigin safn-
ast líka saman í sveitakeppninni.
Miðvikudagskvöldið 17. júní var
spilaður Howell-tvímenningur og
urðu þessi pör efst:
Jón Ingþórsson - Halldór Guðjónsson..103
Eyv. Magnússon - Hermann Friðrikss.99
Guðrún Jóhannesd. - Jón S. Ingólfss.84
Spilað er öll kvöld nema laugar-
dagskvöld, alltaf byrjað klukkan
19.00. Mitchell-spilaformið er ríkj-
andi og eru ætíð notuð forgefin spil.
Á fóstudagskvöldum er svo hin vin-
sæla útsláttarsveitakeppni að lokn-
um tvímenningi og hefst hún venju-
lega um kl. 23.00. Spilastaður er
húsnæði Bridsambands íslands,
Þönglabakka 1 í Mjódd. Keppnis-
stjórinn, Matthías Þorvaldsson, að-
stoðar við myndun para þegar
menn mæta stakir. Allir eru vel-
komnir.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
öðunto
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 B
da\ei^v(
Tst^erðU
Vinningar vikunnar
•Geisladiskar með tóniistinni
úr kvikmyndinni.
•Geisladiskar með tónlistinni
úr söngleiknum.
•Málsverðir á Hard Rock Café
Schwarzkopf 4mNNEVa
PROFESSIONAI ' V i ^ l V # \
Z 71s? ,en^sf
l,7!lmei ^erjun, hatti og b« „
glæsileg verileun frá Máli „«
aðdáandi númet'
antian Grease-aðdaa11®1
e« unnið sérttannaóan
'waía«<la6.easefta
cnnneva Desi§n-
Frumflutningur á www.mbl.is!
Á miöviUudag getur pú hlustað á frumflutning fjögutra
| Jaga úr söngleiknum Grease bara á Grease-vefnum! ,
í 1.F.1KFÉUG J
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHÚSIÐ
>ESION
fllFUJI &
/V \/AKi( Pt~
GLERAUGNAVERSLUNIN MJÖDD