Morgunblaðið - 21.06.1998, Page 16

Morgunblaðið - 21.06.1998, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ 16 B SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ1998 ’ DÆGURTÓNLIST HLJÓMSVEITIN Stillupp- steypa leikur tónlist sem er nokkuð á skjön við það sem hæst ber og hefur fyrir vikið þunnskipaðan aðdáendahóp hér heima. Þeir Stilluppsteypumenn hafa þó ekki látið það á sig fá, hafa einfaldlega stefnt á erlend- an markað með góðum árangri, en gefa öðru hvoru út plötur hér á landi, nú síðast tólftommuna Reduce by Reducing. Liðsmenn Stilluppsteypu hafa dvahst erlendis undanfarið og stundað nám í raftónfræðum í Hollandi. Heimir Björgvinsson, einn Stillupp- steypumanna, segir að Holland hafí orðið fyrir valinu meðal ann- Eflir Arno ars fyrir það að Motthíosson þar sé miðstöð tónlistar á við þá sem þeir leika og einnig hafi út- gáfa þeirra í Evrópu, Stalplaat, höfuðstöðvar þar. Það fór og svo að þeir fengu yfrið nóg að gera ytra í spilamennsku og upptökum. „Það er svo stutt að fara um alla Evrópu frá Hollandi og við höfum spilað á tólf tónleikum á þessu ári, í Frakklandi, Svíþjóð, Hollandi og Þýskalandi og stefnum reyndar á tónleikaferð um Þýskaland síð- sumars.“ Stilluppsteypa er með iðnustu hljómsveitum að gefa út, sendir allt á heppni RAPP og R&B lifh’ góðu lífi hér á landi og reyndar sífellt betra lífi ef marka má síaukna útgáfu af slíku efni. Þar fremst í flokki er útgáfan For ya Mind sem Róbert „Robbi Rapp“ veitir forstöðu. Útgáfa StffluppsteyPumenn ræða tónlist jafnan frá sér tvær til þrjár skífur á ári hjá ýmsum útgáfum víða um heim. Hér heima er alltaf starfrækt F.I.R.E. útgáfan, sem nokkrar unghljómsveitir stofnuðu fyrir margt löngu og Stillupsteypa hef- ur nýtt til útgáfu. Þannig sendi sveitin frá sér tólftommu fyrir skemmstu, væntanleg er diskút- gáfa af þeirri tólftommu og síðan hyggst Stalplaat gefa út með sveitinni disk með haustinu. A tólftommunni, sem F.I.R.E. gefm- út, eru tvö lög, annað tekið upp á síðasta ári en hitt endurunnið af japönskum tónlistarmanni. Þau lög og fleiri til verða á diskútgáfu tólftomm- unnar sem kemur út Svíþjóð á vegum japanskrar útgáfu. Heimir segir og að í takt við aukna útgáfu sé stöðug og jöfn söluaukning á skífum sveitarinnar og á eflaust eftir að taka við sér nú eftir að Stilluppsteypa var beðin að hita upp fyrir Sonic Youth í Berlín. Heimir segir Berlínai-tónleikana þannig til komna að Thurston Moore, leiðtogi Sonic Youth, hafði samband við Stalplaat og óskaði eftir því að Stilluppsteypa myndi hita upp fyrir sveitina á tónleikum í Amsterdam. „Við sáum okkur aftur á móti ekki fært að gera það og þá bað hann okkur um að hita upp í Berlín sem var auðsótt," seg- ir Heimir og bætir við að þetta hafi komið þeim félögum mjög á óvart, „en þetta er bara rokk og ról“. Fleiri tónleikar eru framundan, þar á meðal sjaldgæf- ir tónleikar hér á landi, því nítj- ánda júlí næstkomandi heldur Stilluppsteypa tónleika með Hilmari Jenssyni og Skúla Sverrissyni í Iðnó. í vetur tekur svo námið aftur við, því framundan er þriggja ára nám í tónsmíðum og raftónfræð- um. Heimir segir að næstu ár verði eflaust skemmtileg, því sam- hliða náminu verði mikið um tón- leikahald og ferðalög. „Þetta er ekki lengur bara áhugamál, tónlist er orðið aðalstarfið, það sem mað- ur er að gera og vill helst gera.“ Róbert segir að skífan sé gefin út fyrir innlendan markað og um leið erlendan, því þótt það sé erfitt að koma sér á framfæri ytra, sé sjálfsagt að reyna það. „Hér á landi eru óteljandi sveitir að reyna að koma sér áfram svo menn geta rétt ímyndað sér hvernig ástandið er úti,“ segir hann og kímir. „Það byggist allt á heppni, að vera réttur maður á réttum stað. Tónlistin er nógu góð en samkeppnin er hörð.“ •V': „sem fyrst“. Ekki er þó allt talið því síðar á ár- inu er líka væntanleg- ur diskur með tón- leikaupp- tökum frá Hæfileikarikar Tvíburasystm-n- ar sem skipa Real Flavaz. Robbi segir að engin þurrð sé á ungu hæfileikafólki hér á landi, „það eru krakkar úti um allt að búa til tónlist, ólíkt því sem var fyrir fáum árum. Það verður örugglega fullt af ferskum böndum þegar kemur að því að gera næstu skífu. Við reynum að halda okkur við rappið og R&B og reynum að fá ungar hljómsveitir til okkar svo við getum komið þeim á framfæri. Það hefur engin útgáfa sinnt þessari tónlist hingað til.“ Byggist Morgunblaðið/Þorkell Athygli Stund milli stríða hjá Portmönnum. SPROTI heitir útgáfa sem hóf starfsemi sína með safnskífu ýmissa hljómsveita á síðasta ári. Á skífunni voru ýmsar sveitir að stíga fyrstu skrefin á plasti, þar á meðal Port. Portverjar segja hljómsveitina hafa orðið til fyrir tveimur árum en kjami sveitarinnar myndaðist fyrir hálfu öðru ári þegar núverandi trymbill gekk í sveitina. Sem stendur eru þeir Portmenn, Karl Dagur Lúðvíksson, Magnús Þór Magnússon, Rúnar Jónsson og Ólafur Þór Jósefsson, þó bassaleikaralausir, en segjast vera að prófa ýmsa líklega. Eins og getið er komu fyrstu lög Ports út á safnskífunni Sprotum á síðasta ári og næst á dagskrá er lag á skífunni Kvistum sem kemur út á næstu dögum. Sú útgáfa verður meðal annars tilefni til að hefja tónleikahald af krafti, en Portarar segjast hafa verið latir við að spila frá stofnun. „Við höfum fyrir vikið lent í þvi að fólk hafi þekkt vel til heimsendis, en ekki endilega tengt það okkur. Það er vissulega leiðinlegt en engum að kenna nema okkur sjálfum og við bætum úr því.“ Port hefur eytt miklum tíma í æfingarhúsnæði sínu að semja lög og útsetja og var því meira en tilbúin þegar hún leitaði til útgefanda í von um útgáfu. „Hann sendi okkur í stúdíó til að taka upp tvö lög, en við vorum svo ólmir að við tókum upp tíu lög á fyrsta deginum," segja þeir félagar og bæta við að þeir eigi nóg af lögum til að gefa út og í startholunum með breiðskífu fyrir haustið. Þeh- segja að tónlistin sé heldur að herðast með tímanum og þannig sé lagið á Kvistir hrárra og beittara en það sem þeir áttu á síðustu safnskífu, meira í ætt við tónleikaútgáfu en nostur í hljóðveri. „Planið hjá okkur er að taka saman tuttugu laga prógramm, ekki bara með lögum eftir okkur, og reyna að vekja rækilega athygli á því hverjir við erum.“ Port minnir á sig Ungsveit Bounce Brothers. Robbi segir að For Ya Mind sé undirmerki á Innn útgáfunni, meðal annars til að aðgreina tónlistina frá annarri útgáfu Innn. „Ef menn sjá plötu á merkinu For Ya Mind, vita þeir nokkurn veginn hvaða tónlist er á skífunni,“ segir hann en Robbi stýrir útgáfunni. Hann hefur þó í nógu að snúast, hefur hlaupið í skarðið sem DJ hjá Subterranean, troðið upp sem DJ Rampage um borg og bý og að auki rutt rappinu braut í íslensku útvarpi með þáttum sínum á X-inu. „Það verður örugglega minni tími til að spila með Subta,“ segir Robbi, „og ég á örugglega líka eftir að gera minna af því að troða upp annars staðar ef ég ætla að stýra útgáfunni almennilega. Það skiptir þó mestu máli að halda tengslunum við það sem er að gerast," segir hann og bætir við að það verði ekki vandamál. Á plötunni nýju, sem heitir einfaldlega For Ya Mind, Volume 1, eiga lög Real Flavaz, Subterranean, DJ Rampage & Mr Bix, Bounce Brothers og Aria.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.