Morgunblaðið - 21.06.1998, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 B
N-Kóreumenn
, viðurkenna eld-
flaugaútflutning
Tókýó. Reuters.
NORÐUR-Kóreumenn viður-
kenndu í fyrsta sinn í vikunni að
þeir hefðu selt erlendum ríkjum
eldflaugar og sögðu að Bandaríkja-
stjórn þyrfti að greiða þeim bætur
ef hún vildi að vopnaútflutningnum
yrði hætt.
Þetta kom fram í fréttaskýringu
norður-kóresku fréttastofunnar
KCNA en þar var ekki skýrt frá því
hvaða ríki keyptu eldflaugarnar.
Sérfræðingar í hermálum hafa sagt
að Pakistanar, íranar, írakar og
Sýrlendingar séu á meðal þjóða sem
hafa fengið eldflaugar frá Norður-
Kóreu.
„Vilji Bandaríkjamenn hindra
eldflaugaútflutninginn verða þeir að
aflétta viðskiptabanninu á Norður-
Kóreu sem allra fyrst og greiða
bætur fyrir tjónið sem landið myndi
verða fyrir yrði útflutningnum
hætt,“ sagði fréttastofan. „Mark-
miðið með eldflaugaútflutningnum
er að afla erlends gjaldeyris sem við
þurfum á að halda.“
Shinya Kato, sérfræðingur í mál-
efnum Norður-Kóreu, sagði að
þetta væri í fyrsta sinn sem Norð-
ur-Kóreumenn skýrðu frá útflutn-
ingi sínum á eldflaugum. „Norður-
Kóreumenn nota eldflaugamar sem
tromp í tilraunum sínum til að
tryggja samkomulag við Banda-
ríkjamenn um að aflétta viðskipta-
banninu og knýja fram pólitískar
tilslakanir."
Bandaríkjamenn settu viðskipta-
bann á Norður-Kóreu eftir Kóreu-
stríðið 1950-53. Kim Dae-jung, for-
seti Suður-Kóreu, sagði þegar hann
var í Bandaríkjunum í vikunni sem
leið að hann væri hlynntur því að
slakað yrði á viðskiptabanninu.
Draga allt
að 4.000 km
Vamarmálasérfræðingar segja
að Norður-Kóreumenn hafi byrjað
að framleiða skotflaugar snemma á
síðasta áratug og þeir skutu
Rodong-1 eldflaug í Japanshaf í til-
raunaskyni árið 1993. Rodong-1 eld-
flaugin dregur um 1.000 km og
hægt væri að skjóta henni á vestur-
hluta Japans. Eldflaugin var hönn-
uð eftir sovéskum Scud-eldflaugum,
sem írakar beittu í stríðinu fyrir
botni Persaflóa 1991. Rodong-2 eld-
flaug Norður-Kóreumanna er svip-
uð og dregur 1.500 km.
Sérfræðingamir telja að Norður-
Kóreumenn séu einnig að þróa eld-
flaugar af gerðinni Taepodong sem
draga allt að 4.000 km.
Japanskir embættismenn hafa
látið í ljós áhyggjur af því að
Pakistanar kunni að aðstoða Norð-
ur-Kóreumenn við að framleiða
kjarnavopn. Norður-Kóreumenn
hafa neitað því að hafa reynt að
þróa kjarnavopn en áskilið sér rétt
til að smíða og nota eldflaugar til að
styrkja varnir landsins.
ENN EINN NÝR
hornsófi frá Húsqaqnahöllinni.
BOSTON
Ekta leður á slitflötum.
Fáanlegur í mörgum leðurlitum.
159.980,-______________ím
Raðgreiðslur til allt að 36 mánaða. CE)
Raögreiðslur I 36 mánuði.
Meðalgreiðsla kr.
5.659,-
á mánuði.
Boston er aott dæmi um sófa fyrir þá sem kjósa að
eiga vandaoan og fallegan hornsófa. Hátt bak, góður
stuðningur og nautsterkt leður á slitflötum. Boston
hornsófinn er frábær kostur fyrir íslensk heimili.
Sparaðu þér sporin og komdu í stærstu
húsgagnaverslun landsins.
Einnig fáanlegur sem sófasett.
3-2-1 3-1-1
169.980,- 154.780,-
Við erum hérfyrir þig.
HÚSGAGNAHÖLUN
Ðíldshöfðl 20 - 112 Rvík - S:510 8000
www.mbl.is
>
>
I
I
I
I
SIATTUVHAMARKADUniWI
Sláttuvélar - Hekkklippur - Garðtætarar - Sláttuorf - Keðjusagir - Jarðborar
Husqvarna vélorf
Fyrir atvinnumanninn. Bensínknúin vélorf
sem henta vel til þess að slá kanta,
grasbrúska og illgresi. 44,5 cc mótor.
Sláttuhaus og diskur fylgja.
Verð kr. 59.024
Flymo E400
Létt loftpúðavél.
Hentug fyrir litlar lóðir.
Létt og meðfærileg. J
1500W rafmótor. m
Verð kr. 23.904 ly
Hekkklippur meö
snúningshandfangi
Einu klippurnar á markaðnum
með snúningshandfangi.
65 og 75 sm sverð.
_ 5,5 kg. .
m Verð kr. 59.665
Flymo E330
Turbo light
Létt loftpúðavél.
Hentug fyrir litlar lóðir.
Létt og meðfærileg.
1150W rafmótor. J
Verðkr. 16.794 jÆ
Ekki sýnd.
Flymo GT500
Létt loftpúðavéi. Notuð af
atvinnumönnum. Hentug
fyrir brekkur, stórar lóðir
og erfiðar aðstæður.
5 hp tvígengismótor.
Breidd 50.5 sm.
Verð kr. 69.745
Husqvarna Rider 970H
Hagkvæm atvinnusláttuvél með sjálfskiptingu
(Hydrostatisk). Vélinni má snúa við á 20 sm
bletti. Sláttubreidd 97 sm með þriggja blaða
sláttudekk. Sláttuhæð 4 - 9 sm. 15.5 hp mótor.
Verð kr. 495.017,-
Flymo 460 Pro vélorf
Bensinknúið vélorf tyrir sumarbústaði
og heimagaröa. 32.5 cc mótor.
6,1 kg. Sláttuhaus og diskur fylgja.
Verð kr. 28.683
SU 0DYRASTA A
MARKAÐNUM!
MTD sláttuvél
3.5 hp mótor.
Sláttubreidd 51 sm
með stál sláttudekki.
Verð kr. 17.820
UTSOLUSTA0IR: HUSASMIÐJAN.
VÉLIN, REYKAJVÍK. STAPAFELL, KEFLAVÍK.
RADlÓNAUST, AKUREYRI. VÍK, NESKAUPSTAÐ.
Faxafeni 14. Sími 568 5580. Opið mán. - fös. 9 -18. Lau. 10 -14
©Husqvama
©Husqvarna