Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 B ÁGÚST Morthens með þann fyrsta af „Stólnum“ eða „Pallinum" í Ölfusá við Selfoss, tæplega 14 punda hrygnu. ÞAÐ er sama á hverju gengur, alltaf fá þau Þor- gelr Haraldsson og Kolbrún kona hans eitthvað þegar þau opna Víðidalsá. Hér eru þau með fyrstu laxana úr ánni, 13 og 15 punda. Frænda- fundur - Islensk- færeysk ráðstefna HEIMSPEKIDEILD Há- skóla íslands og Fróðskapar- setur Fproya standa fyrir ráð- stefnu um íslensk og færeysk máleftii dagana 24. og 25. júní í Odda, stofu 101 og hefst hún kl. 9 24. júní. Þetta er þriðja ráðstefnan í ráðstefnuröðinni Frændafundur. Haldnir verða tólf fyrirlestrar, þar af fjögur fyrirlestrarpör, um hin ýmsu málefni, svo sem ungmennafé- lagshreyfinguna, sjálfsvitund þjóða í norðri, rannsóknir á líf- ríki sjávar á norðurslóðum og samband Færeyja og íslands. Auk þess verður hringborðs- fundur um sambúð dönsku, ís- lensku og færeysku í löndun- um tveimur. Fyrirlestrarnir verða fluttir ýmist á íslensku eða færeysku. Hún er öllum opin og að- gangur er ókeypis. ALOE VERA ALOE VERA GEL 98% hreint ALÓE VERA húðgel. Nærandi, styrkjandi og rakagefandi. Naturlægemiddel MT nr. 6145493 Utsölustaðir Stella Bankastræti, Hygea Kringlunni, Laugavegi og Austurstræti, Kaupf. Skagfirðinga, Stjömuapótek Akureyri, Hilma Húsavík, Vestmannaeyja- apótek, Laugamesapótek. Einnig fæst ALOE VERA sjampó fyrir hár og húð, krem, lotion, varasalvar, 2 gerðir og sólkrem. c^fe/la Bankastræti 3, sími 551 3635. Póstkröfusendum Mikið af öllu á Arnarvatnsheiði FÆRÐ er orðin mjög góð inn á Amarvatnsheiði og þangað streyma nú menn til veiða í helstu veiðivötnum svæðisins, Úlfsvatni, Arnarvatni litla og Amarvatni stóra. Frést hefur af frábærri veiði, þannig fór veiði- maður nokkur einn síns liðs fyr- ir skömmu og hélt til byggða á ný með rúmlega 70 fiska. Mest var það bleikja um 1- 2 pund, en í afl- anum vom einnig 16 ur- riðar á bilinu 2 til 3,5 pund. Veiðin sem að ofan er get- ið var tekin í Úlfsvatni, en Morgunblaðið hef- ur einnig frétt af góðum afla í Amarvatni litla. Þar eins og í Úlfsvatni er aflinn að mestu væn bleikja með stöku stórurriða í bland. Það fylgir sögunni af Amarvatnsheiði, að gífurlegur mývargur sé á heiðinni, meira en áður og er þá mikið sagt. Mikil uppsveifla hefur verið í mývargi síðustu sumur og vanir veiðimenn í öllum landshlutum hafa staðfest þá tilfinningu sína í samtölum við blaðið. Það þýðir auðvitað feitari silungur, en menn verða að vera við hinu versta búnir og hafa annaðhvort mýflugnanet eða áburð í fóram sínum. Nema hvort tveggja sé. Stórsilungar Lítið hefur spurst af urriða- veiðiánni Minnivallalæk að und- anfömu, enda hentar það urrið- anum illa að gína yfír flugum í sólríku og heitu veðri eins og verið hefur á sunnanverðu land- inu síðustu vikurnar. Um daginn gerðist það þó, að skyndilega dró ský fyrir sólu. Þá vom menn að veiðum í hinum margrómaða Stöðvarhyl. Gerðist þá urriðinn ólmur mjög og tók grimmt. Náð- ust tíu urriðar á land, en sam- kvæmt reglum staðarins var öll- um sleppt aftur. Allir vom físk- arnir áætlaðir á bilinu 5 til 9 pund, en þeir veiddust á smáar púpur. I Þingvallavatni hefur borið á stómm urriðum það sem af er sumri. Einn fékk 9 punda fisk, annar fékk tvo, 10 og 12 punda, sama daginn og það síðasta sem heyrðist af stórfískunum á Þing- völlum var að veiðimaður hefði náð 15 punda físki. Urriðar þessi hafa allir veiðst á spón. Hoppandi lax í sjónum ... Vatnsleysið kemur í veg fyrir að laxinn gangi af krafti í ámar. Sumir halda því reyndar fram að það sé h'tið eða ekkert af laxi yfirleitt, en aðrir eru bjartsýnni og reikna með göngum þegar fyrstu rigningar koma. Fregnir eru farnar að berast þess efnis, að menn sjái talsvert af laxi stökkvandi í sjónum, t.d. í Kolla- firði, úti fyrir Úlfarsá og Laxá í Kjós. Ugglaust má sjá þessa sjón víðar. Enn bíða menn eftir því að tveggja ára fiskurinn sýni sig í ríkari mæli og menn óttast að- eins um afdrif hans. Margir hafa farið niður í fjöru í von um að sjá hann í sjónum biða eftir rigningunni. Það hefur bragðist, en menn hafa þó orðið til að benda á, að stóri laxinn er langt því frá jafn duglegur að stökkva í árósum og smálaxinn. Þess vegna sé það ekki vísbending um að hann sé ekki fyrir liendi þó menn hafí ekki séð hann fleytandi kerlingar á sjónum. Mörg dæmi em um að stórlax- inn gangi og veiðist með smálax- inum er líður á sumarið, er þurrkar hafa verið miklir fram- an af sumri. KEW Hobby léttir þér þrifin Staögreitt kr. 19.944,- Með Hobby 1500 og Dynamic 4600 X-tra getum við boðið þér hagkvæmar lausnir á hreingerningarþörfum þínum. Snúningsbursti Bílasettið inni- heldur þessa þrjá hluti sem gera þvottinn ennþá auðveldari. ÞEKKING • ÚRVAL • ÞJÓNUSTA REKSTRARVÖRUR Réttarhálsi 2*110 Rvk • Sími: 520 6666 ■■■■ R Fundur sjóðfélaga ALVÍB verður haldinn mánudaginn 29. júní 1998, kl. 17:15 að Kirkjusandi Stjórn ALVÍB boðar til auka ársfundar sjóðfélaga mánudaginn 29. júní 1998. Á fundinum verður lögð fram tillaga um stofnun tryggingadeildar ALVÍB í samræmi við lög um lífeyrissjóði nr. 129/1997. Dagskrá: 1. Fundarsetning 2. Breytingar á samþykktum. Tillaga um stofnun tryggingadeildar. 3. Önnur mál. Þeim sjóðfélögum sem vilja kynna sér tillögur um breytingar á reglugerð ALVlB er bent á að hægt er að nálgast reglugerðina hjá VÍB á Kirkjusandi, hringa í síma 560 8900 og fá hana senda eða fletta reglugerðinni upp á vefnum slóð www.vib.is, undir lífeyrismálum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi * Sími 560 89 00 • Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.