Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 3

Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ HM I KNATTSPYRNU ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 B 3 Reuters EDGAR Davids tryggði Hollendingum sæti f 8-liða úrslitum með marki á elleftu stundu. Davids er hér umkringdur samherjum sínum; (f.v.) Clarence Seedorf, Jaap Stamp, Michael Reizinger og Ronald De Boer. Glæsimark Davids kom Hollendingum áfram Leikmaðurinn snaggaralegi Edg- ar Davids var hetja Hollendinga í gærkvöldi er hann skoraði sigur- markið í 2:1 sigri á lokamínútu leiksins gegn Júgóslövum, í 16-liða úrslitum, sem fram fór í Toulouse. Markið var mjög glæsilegt, skot með vinstri fapti rétt utan vítateigs og knötturinn þandi út neta- Englendingar óánægðir STUÐNINGSMENN enska landsliðsins voru í allan gær- dag að tínast til St. Etienne þar sem Englendingar og Argent- ínumenn eigast við í kvöld. Leituðu þeir logandi ljósi að að- göngumiðum á leikinn en mik- illar óánægju gætir á meðal þeirra því þeir fá aðeins 2.079 miða, en völlurinn tekur alls 35.900 áhorfendur. Stuðnings- menn argentínska liðsins fá ekki fleiri miða, en þeir eru á hinn bóginn talsvert færri en þeir ensku. Englendingar vilja fá 10.000 miða en ljóst er að þeir fá þá ekki. Hefur engu breytt þótt íþróttamálaráð- herrann, Tony Banks, hafi haft afskipti af málinu, fleiri miðar eru ekki á boðstólum, segja for- ráðamenn keppninnar. Eng- lendingar bjuggu sig undir að þurfa að greiða nærri 30.000 krónur íyrir aðgöngumiðann á svörtum markaði, en þegar þeir komu var þeim sagt að verðið væri u.þ.b. tvöfalt hærra. Á stórum skjá í miðbæ St. Etienne verður leikur Rúmeníu og Króatíu sýndur í beinni út- sendingu en yfirvöld hafa ákveðið að sýna ekki leik Ar- gentínu og Englendinga af ótta við að upp úr sjóði á milli stuðningsmanna liðanna eins og gerðist er Englendingar og Túnismenn áttust við í Lyon. möskvana neðst í hægra markhorn- inu. Sigur Hollendinga var mjög sanngjarn því þeir stjórnuðu leikn- um lengst af en Júgóslavar voru hættulegir í skyndisóknum. Hollendingar leika í undanúrslitum á laugardag við sigurvegarana úr leik Argentínu og Englendinga, sem fram fer í kvöld. Júgóslavar léku sterkan varnar- leik í fyrri hálfleik og létu Hollend- inga um að stjóma spilinu. Það gekk erfiðlega fyrir þá hollensku að komast í gegn og oftar en ekki hlupu þeir á lokaðar dyr. En eftir 38 mínútna leik læddist markaskor- arinn Dennis Bergkamp inn um litla rifu sem myndaðist á varnar- veggnum og nýtti sér það til fulln- ustu og kom Hollandi í 1:0. Berg- kamp fékk boltann inn í vítateig og snéri á Michael Reiziger varnar- mann áður en hann skaut í vinstra hornið, en Ivica Kralj markvörður var með hendur á boltanum en náði ekki að halda honum. Þetta var 35. landsliðsmark Bergkamps og jafn- aði hann þar með hollenska metið sem var í eigu Faas Wikes. Júgóslavar byrjuðu síðari hálf- leikinn betur og voru fljótir að jafna metin. Það var Slobodan Komljenovic sem skoraði með skalla eftir aukaspyrnu frá Dragan Stojkovic á 48. mínútu - var óvald- aður við fjærstöng. Aðeins þremur mínútum síðar fengu þeir upplagt tækifæri til að komast yfir er vam- armaðurinn Jaap Stam togaði Vla- dimir Jugovic niður í vítateignum og dæmt víti. Predrag Mijatovic tók spymuna en þversláin varð Hollendingum til bjargar. Þetta var fyrsta vítaspyrnan sem er misnotuð síðan á HM 1990, eða 38 vítaspym- ur í röð. Eftir þessa snörpu sóknartil- burði Júgóslava tóku Hollendingar við sér og gerðu allt hvað þeir gátu til að skora. Markið lét hins vegar á sér standa og kom ekki fyrr en á lokamínútu leiksins eins og áður segir. Það fór vel á því að Edgar Davids, sem var besti leikmaður Hollands og reyndar vallarins, skoraði sigurmarkið. Dennis Bergkamp sagði eftir leikinn að lið sitt hefði verið sterkara og úrslitin því sanngjöm. „Við voram ákveðnir í að komast áfram. Þetta var mjög erfitt fyrir okkur eftir að þeir fengu vítið,“ sagði Bergkamp. „Við byrjuðum leikinn rólega og það gerðu þeir líka. Við tókum síðan völdin og vor- um betri.“ Félagi Bergkamps hjá Arsenal, Marc Overmars, sagðist ánægður að sigur næðist í venjulegum leik- tíma. „Við vorum orðnir nokkuð þreyttir og því betra að ná að sigra í venjulegum leiktíma en í fram- lengingu þar sem „gullmark“ ræð- ur úrslitum. Eg er mjög ánægður og ég held að við verðskuldum að vera komnir í 8-liða úrslit,“ sagði Overmars. „Við vorum mjög óheppnir að tapa, en þetta er hluti af leiknum" sagði Slobodan Santrac, þjálfari Jú- góslava. „Við voram famir að gæla við framlengingu. En ég óska Hollendingum til hamingju. Við vörðumst ágætlega í fyrri hálfleik en fórum framar í síðari hálfleik og þá opnaðist leikurinn. Ef við hefð- um náð að skora úr vítinu væram við komnir áfram, en okkur var refsað fyrir að nýta það ekki,“ sagði Santrac. ■ STEVE Sampson sagði upp stöðu landsliðsþjálfara Bandaríkj- anna í gær en hann tók við liðinu í ágúst 1995 og lék það 62 leiki und- ir hans stjórn, sigraði í 26 leikjum, tapaði 22 og gerði 14 sinnum jafn- tefli. ■ SAMPSON er sjötti þjálfari liðs á HM í Frakklandi sem er hættur, en hann varð fyrsti Bandaríkja- maðurinn til að þjálfa bandaríska landsliðið. ■ SEPP Blatter lýsti því yfir um helgina að þrátt fyrir að stuðnings- menn Þjóðveija og Englendinga hefðu enn einu sinni orðið til vændræða þá breytti það engu um möguleika þjóðanna á að fá að halda heimsmeistaramótið í knatt- spymu árið 2006. Ákvörðun um hvar mótið verður haldið verður tekin eftir tvö ár. ■ BLATTER sagði ennfremur að hann teldi að Kina ætti ekki mögu- leika á að halda HM fyrr en eftir 2018. ■ HENRY Michel, landsliðþjálfari Marokkó, hefur fengið æðstu heið- ursorðu sem Hassan konungur Marokkó veitir erlendum ríkis- borgara. Orðuna fékk Michel i hófi sem konungur hélt liðinu við heim- komuna. „Þjóðin mun aldrei gleyma hvað þú gerðir fyrir hana,“ sagði Hassan er hann afhenti orð- una. ■ JÚRGEN Kohler meiddist á kálfa í upphitun fyrir leik Þjóð- veija og Mexíkómanna og koma Markus Babbel í hans stað. ■ LOTHAR Matthaus lék í gær sinn 128. landsleik fyrir Þýskaland og 24. leik á heimsmeistaramóti, fleiri en nokkur annar knatt- spymumaður. ■ DUNGA, fyrirliði Brasilíu, ætl- ar að hætta að leika með landslið- inu eftir heimsmeistaramótið. Dunga, sem heitir fullu nafni, Car- los Caetano Verri, er 34 ára og segisr það vera mátulegan aldur til þess að fara að rifa seglin. HM í Frakklandi er þriðja keppnin sem hann tekur þátt í. ■ PAOLO Maldini fyrirliði Ítalíu leikur sinn 19. landsleik fyrir þjóð sína gegn Frökkum á fostudaginn. Þar með hefur hann leikið fleiri leiki á HM en nokkur annar landi hans. Maldini lék sjö leiki á HM 1990 og sama fjölda fjórum árum siðar. Nú hefur Maldini leikið fjóra leiki og fimmti leikurinn verður gegn Frökkum. ■ AUK Maldini, sem er þrítugur, hafa varnarmennimir Antonio Ca- brini og Gaetano Scirea leikið 18 leiki á HM en víst er að þeir leika ekki fleiri þar sem þeir hafa báðir lagt skóna á hilluna. ■ SEBASTIAN Perez vamar- maður Bastia í Frakklandi hefur gengið til liðs við Blackbum fyrir um 350 milljónir króna. Hann gerði 5 ára samning og vonast til þess að með honum aukist líkur hans á að vera valinn í franska landsliðið eftir HM. ■ TOTTENHAM keypti einnig leikmann í gær er liðið reiddi fram um 160 milljónir króna fyrir Paolo Tramezzani vamarmann frá Pi- acenza á Ítalíu. Ballið er rétt að byvja Sigriður Hulda skrifar frá Brasilíu Það má segja að Brasilíumenn hafi fyrst sýnt brasilískan fótbolta eins og hann á að vera í seinni hálfleik í leiknum á móti Chile: Ronaldo lék vel og mörgum létti við að sjá hann spila eins og hann á að sér. Hreinar leiklínur, leikfimi og snilld. En það var þessi óþekkti piltur, Ces- ar Sampaio, sem undirbjó grunn- inn að glæsilegum sigri Brasilíu- manna með tveimur fyrstu mörk- unum, reyndar sami pilturinn og skoraði fyrsta mark Brasilíu- manna í heimsmeistarakeppn- inni, í leiknum á móti Skotum. Cesar heppni! En það er enginn asi á mönnum hér. Menn eru var- kárir og þrátt fyrir að fólk sé ánægt með árangurinn á móti Chile þá er engin sigurvissa. Því ballið er rétt að byrja. Óvæntir mótherjar Frábær leikur og yfirburðasig- ur Dana í leiknum á móti Nígeríu hefur aukið virðingu manna hér fyrir víkingunum í fóboltanum. Osigurinn á móti Norðmönnum var líka stór biti að kyngja þótt sá leikur hafi ekki haft mikla þýðingu því Brassarnir höfðu þegar tryggt áframhald í keppn- inni. En styrkleiki danska liðsins, frábær markvörður, góð vörn og sókn með Laudrupana í farar- broddi, vakti feikimikla athygli á þessum óvænta andstæðing. Menn bjuggust fastlega við að Nígería myndi vinna leikinn, en með lélega vörn og raglingslega sókn tókst þeim ekki að vinna á styrk Dananna. Það er vissulega undarlegt að hugsa til leiksins á föstudaginn: leiksnilld og liðug- heit latínska fótboltans á móti staðfestu, jafnvægi og skipulagi víkinganna. Vonandi verður það að minnsta kosti lifandi leikur með mörgum tækifæram og hraða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.