Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 8

Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR RECOHOCI COHÐUCIR UBORAU W .fmifip (b-w | I -iL I Morgunblaðið/Stefán Stefánsson FERÐALANGARNIR. Talið frá vinstri: Brynja Steinsen, Hrafnhildur Skúladóttir, Örn Magnússon, Ragnheiður Stephensen, Helga Torfadóttir, Kristján Ragnarsson, Inga Fríða Tryggvadóttir, Halla María Helgadóttir, Herdís Sigurbergsdóttir, Fanney Rúnarsdóttir, Ragnheiður Karlsdóttir, Auður Hermannsdóttir, Judit Rán Esztergal, Svava Sigurðardóttir, Heiða Erlingsdóttir, Gerður Beta Jóhannsdóttir, Ágústa Edda Björnsdóttir, Theódór Guðfinnsson og Harpa Melsteð. Hver hefur sinn poka að draga HVER hefur sinn djöful að draga en í tilfelli Ágústu Eddu Björnsdóttur má segja að hún hafi sinn að bera. Þar sem hún er nýliði í landsliðinu kemur í henn- ar hlut að bera boltapokann og sjá til þess að boitarnir séu til staðar - að vísu eru engin viðurlög við því að gleyma pokanum en það er ekki létt að standa undir gríninu og skotunum, sem því fylgja. Ágústa beit á jaxlinn og axlaði ok sitt því ef henni varð á að gleyma honum, þó ekki væri nema stutta stund voru stöllur hennar ekki lengi að láta vita af því og eftir að hafa hiustað á þær hamra á skyldum nýliðans, kom varla fyrir að hún gleymdi sér. En var þetta svo mikil kvöð? „Já, þetta er svo sannarlega kvöð,“ sagði Ágústa Edda og kvað fast að orðum. „Þetta er svo fyr- irferðarmikið og klistur úti um allt, maður er allur úta- taður og gólfið á herberg- inu líka svo að þetta loðir við mann.“ ✓ Islenska kvennalands- liðið í handknattleik fékk boð um að spreyta sig á alþjóðlegu móti á * Spáni. Stefán Stefáns- son slóst með í för, tók niður ferðapunkta og kynntist hressum skellibjöllum og grimmum baráttujöxl- um - hvort tveggja bjó í flestum stúlkunum. Haninn í húsdýragarðinum í Laugardal galaði syfjulega þeg- ar íslenska kvennalandsliðið í hand- _ knattleik hélt suður til Spánar á al- þjóðlegt handboltamót 10. júní síð- astliðinn. Stúlkumar tíndust á stað- inn ein af annarri þegar leið að brott- farartíma, klukkuna vantaði stundar- fjórðung í sex að morgni. Sumar voru glaðbeittar en blaðamaður hefur óneitanlega séð þær hressari. Fyrst á staðinn var Brynja Steinsen úr Val - hún hafði verið síðust síðast og það er varla leggjandi á nokkurn að láta yfir sig ganga vandaðar, hárbeittar og tíðar athugasemdir með því að láta það koma fyrir sig tvisvar. Þar sýndi sig strax að andrúmsloftið í hópnum er gott - stutt í grínið. Loks var haldið af stað suður á flugvöll og endumar í pollunum með- fram Reykjanesveginum vom í óða * önn að snyrta sig í morgunsárið þeg- ar rútan lullaði framhjá. Og þegar járnfuglinn hóf sig upp fyrir skýin mátti grilla í sólbakaða Reykjavík fyrir neðan, augnlok tóku að síga og við tók 18 tíma ferðalag til Madrid á Spáni. Þangað var komið rúmum klukkutíma eftir miðnætti og ferða- langanna beið brauð og ávextir. Allir vom þreyttir og gátu hvorki byrjað að kvíða fyrir eða hlakka til morgnn- dagsins - því þeir svifu fljótlega inn í draumalandið. Hver verður að ■«. standa sína plikt Fyrsti morgunninn á Spáni hófst með látum. Strax klukkan 6 að morgni að íslenskum tíma var blaða- maður spurður um úrslit í fjórða leik Chicago Bulls og Utah í úrslita- keppni NBA en honum lauk nokkmm klukkustundum áður. Játa t varð fákunr.áttu og fékk hann þá að Af vígalegum val- kyvjum og skemmti- legum skellibjöllum BRYNJA Steinsen úr Val var fyrst leikmanna til að mæta við brottför árla morguns en það var Ifka ástæða fyrir því - hún var síðust f síðustu ferð og fékk þá laufléttar athugasemdir. Ágústa Edda Bjömsdóttir tók heldur ekki áhættuna. „Ha, er til Cocoa Puffs á Spáni?“ AÐ kvöidi komudags var tekið til við að panta morgunverð enda sinn siður í þeim málum í hverju landi. Þegar fslensku stúlkurnar báðu um hefðbundinn - „traditionaI“ - morgunverð gat Kristján sjúkraþjálfari ekki á sér setið og spurði: „Ha, er virkileg til Cocoa Puffs héma?“ og til allrar hamingju fyrir hann heyrðu leikmenn ekki til hans. RÚTUBÍLASÖNGUR ásamt tilheyrandi tilburðum var fastur liður. Það var ekki öilum gefið að ná taktinum en Öm Magnússon farar- sljóri og Kristián Ragnarsson sjúkraþjálfari reyndu hvað þeir gátu. heyra að þetta væri engin frammi- staða, maðurinn sinnti ekki vinnu sinni, þær væru áskrifendur og fleira - allt í léttum tón en þó erfitt að sitja undir. Því var freistandi að segja eitt- hvað til að kaupa sér tíma og létta af pressu en það væri vísast skammgóð- ur vermir - eflaust hefur hitinn átt þátt í að þessari fáránlegu hugmynd laust niður í kollinn. Eftir nokkur símtöl og ýmsar krókaleiðir fengust úrslitin og allir voru sáttir - blaða- maður slapp í þetta sinn en þakkar kærlega fyrir að sumir pítsastaðir á íslandi eru opnir allan sólarhringinn. Þegar haldið var á morgunæfing- una lá leiðin framhjá herbúðum þar sem ungir hermenn í dökkum fótum með riffla um öxl þrömmuðu í hitan- um. Spánski fararstjórinn upplýsti að þar í landi væri 9 mánaða herskylda fyrir karlmenn en þeir geta líka unn- ið hana af sér með því að sinna sam- félagsþjónustu í 11 mánuði. Það vilja flestir frekar enda ekki margir orðið, sem hafa áhuga á að læra her- mennsku. Eigi að síður er reynslan oft góð, þar venjast menn miklum aga en það koma líka margs konar vandamál upp - í hernum er hvorki þrasað né rökrætt og í stórum hópi á níu mánuðum er hægt að læra marga ósiði. „Má ég þá frekar biðja um smá hasar“ Á æfingum var hitað upp með fót- boltaleik og þá var oft meira um kapp en forsjá. A bakvið tal um léttan leik til að hita upp og „bara að hafa gam- an af þessu“ var greinilegt að ekkert annað en sigur kom til greina. Yfir- leitt eru yngri á móti eldri og að sögn leikmanna er ekkert í húfi en í trún- aði og eftir því, sem heyra mátti strax eftir leik, var sigur afar mikil- vægur og sigurvegarar sýndu ótrúleg tilþrif og mikið hugmyndaflug í að stríða þeim er lutu í lægra haldi. Þá skildi ég af hverju ekkert var gefið eftir í upphituninni. Á morgunæfing- unni tók svitinn fljótlega að spretta út á Frónbúum og rann vatnið ljúft niður um þurrar kverkar. Spánski fararstjórinn, Marga, átti ekki við sama vandamál að stríða, þvert á móti - hún sat í síðbuxum með gæsa- húð, henni var ekki heitt. Spænska landsliðið átti æfingatíma á eftir því íslenska og byrjaði að hita upp með eltingarleik. Það hnusaði í þeim ís- lensku og einni varð á orði: „Mætti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.