Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rúmlega 71% svarhlutfall í könnun Gallups fyrir Rikisútvarpið Tæplega 68% eru fylgjandi veiðiieyfagjaldi í lögsögunni TÆPLEGA 68% eru fylgjandi því að lagt verði veiðileyfagjald á þá sem hafa veiðikvóta í ís- lenskri fiskveiðilögsögu, samkvæmt könnun Gallups sem unnin var fyrir Ríkisútvarpið og greint var frá í kvöldfréttum útvarps í gær. And- víg veiðileyfagjaldi eru 23%. Könnunin fór fram símleiðis dagana 11. til 23. júní og voru 1.139 einstaklingar af öllu landinu í úrtaki á aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlutfall var 71,1% og skekkjumörk 1—4%. Af þeim sem eru eldri en 35 ára eru yfir 80% ósátt við kvótakerf- ið. Meiri óánægja með kvótakerfið er meðal kjós- enda stjómarandstöðuflokkanna en kjósenda stjómarflokkanna tveggja. Um 59% kjósenda Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks era óánægð með kvótakerfið en um 80% stjómarand- stöðuflokkanna. Þá vilja rúmlega 69% breyta kvótakerfinu og rúmlega 10% halda því óbreyttu en rúmlega 20% vilja leggja það niður. Einnig var í skoðanakönnun Gallups spurt hvað fólki fyndist um þá ákvörðun Sverris Her- mannssonar að stofna stjómmálaafl sem ynni meðal annars að því að leggja niður kvótakerfið. Þótti 47% aðspurðra það röng ákvörðun hjá Sverri en rösklega 35% kjósenda fannst ákvörð- un hans rétt. íslenskur kafari hætt kominn í neð- ansjávarsprengingu á Kýpur „Eins og raf- magn hefði farið í gegnum mannu FINNUR Óskarsson telur að hann og fé- lagar hans hafi sloppið ótrúlega vel þegar sprengja sprakk í sjónum skammt frá þeim stað þar sem þeir voru við köfun á Kýpur á miðviku- dagsmorgun. Eng- inn slasaðist alvar- lega en fimmmenn- ingarnir munu fara í frekari rannsókn- ir vegna slyssins. „Við vorum fímm kafarar sem fórum út klukkan átta að morgni og vorum búnir að kafa í um tuttugu mínútur þeg- ar mikil sprenging varð skammt frá okkur. Við misst- um loftið en komumst öll til- tölulega fljótt upp á yfírborð- ið,“ segir Finnur. „Sprenging- in var svo mikil að það var eins og rafmagn hefði farið í gegn- um skrokkinn á manni. Maður sá ekkert en vissi að það eina sem maður gat gert var að koma sér upp. Eg fann loftið mitt og fór þá að sjá í kringum mig, og reyndi að leita að hin- um. Tveir þeirra voru þá komnir upp á yfírborðið og hinir tveir komu skömmu síð- ar.“ Sprengjan sprakk á 12 metra dýpi, rétt fyrir ofan kaf- arana sem voru á 17 metra dýpi. Finnur segir að allir í hópnum hafi verið þjálfaðir kafarar sem brugðist hafi rétt við. Hann segir að litlu hafi mátt muna því skömmu síðar hafí hópurinn ætlað að hækka sig, í tíu til tólf metra dýpi og ef sprengjan hefði sprungið ör- Iitlu síðar hefðu þeir eflaust lent í henni miðri. Farið var með fimmmenningana á sjúkrahús þar sem þeim var gefið súr- efni, teknar af þeim myndir og þeir að lokum sett- ir í afþrýstiklefa, þar sem þeir voru í tvo til þrjá tíma. Finnur segist enn vera að ná sér eftir slysið. „Allur skrokkurinn er aumur og þreyttur og mér er illt í brjóstkassanum, en þrýstingurinn var svo mikill að það urðu smásprengjur í lungunum." Finnur er búsettur í Dan- mörku og mun fara í frekari rannsóknir þegar þangað er komið, en hann heldur þangað í dag. Hinir kafararnir sluppu einnig að mestu ómeiddir en hljóðhimnan sprakk í einum þeirra. Sprengingin hefur vakið mikið umtal f fjölmiðlum á Kýpur og Iögreglan rannsakar orsök hennar. Hún hefur einn mann grunaðan um að hafa staðið að sprengingunni, en eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær telur hún líkleg- ast að óprúttnir aðilar hafi ætl- að að næla sér í eitthvað í soð- ið með því að sprengja dýnamít í sjónum og ná fiskin- um sem drepst þegar hann flýtur upp á yfírborðið. Finnur stundar köfun sem áhugamál og hefur gert sl. 9 ár, en hann hefur verið í fríi á Kýpur. Hann segist ekki ætla að kafa meira í þessari ferð en hann ætli ekki að setja áhuga- málið á hilluna eftir óhappið. Finnur Óskarsson Morgunblaðið/Kristinn Risarör fyrir VERIÐ er að smíða feiknarstór stálrör í Stálsmiðjunni fyrir Sult- artangavirkjun. Rörunum verður ætlað að taka við vatni úr að- veituskurði virkjunarinnar og beina því inn á hverflana tvo. Þvermál röranna er 6,1 metri þar sem það er mest og kæmist Sultartanga steypubíll í gegnum rörin, en þvermálið minnkar sem nær dregur hverflunum. Aætlað er að smíðinni ljúki næsta liaust og verða rörin, sem hvort um sig er um 30 metra langt, flutt í nokkrum einingum austur í Sult- artanga. Milljón- asti gest- urinn á mbl.is MILLJÓNASTI gesturinn á Morgunblaðið á Netinu mbl.is er væntanlegur á næstunni. I tilefni af því eiga notendur möguleika á að fá ferð til Minneapolis í boði Flugleiða. Aætlað er að milljónasti gestur- inn komi inn í byrjun ágúst og verður því í næsta mánuði dregið út nafn hins heppna sem fær flug og gistingu fyrir tvo til Minneapol- is sem er nýr áfangastaður Flug- leiða í Bandaríkjunum. Þessi fjöldi samsvarar þvi að hver Islendingur hafí komið nálega 4 sinnum á vef- inn á þeim stutta tíma sem liðinn er síðan hann hóf göngu sína. Það sem netnotendur þurfa að gera til að vera þátttakendur er að smella á þar til gerðan hnapp á www.mbl.is., skrá nafn sitt og aðr- ar upplýsingar. -------------- Fjallagarpar í Kazakstan Oveður haml- aðiför á toppinn TVEIR íslendingar sem hugðust klífa „Marmaravegginn" í Tien Shan-fjallgarðinum eru komnir til Almaty, höfuðborgar Kazakstan, heilir á húfi. Þeir komust ekki á toppinn vegna óveðurs, mikils fannfergis og snjóflóðahættu. Félagarnir Pétur Aðalsteinsson og Sigurður Ó. Sigurðsson voru þátttakendur í tólf manna bresk- um leiðangri, og klifu þeir hæst í 5.300 metra hæð, en fjallið er 6.414 metra hátt. Tien Shan-fjall- garðurinn hefur verið lítið sóttur af vestrænum fjallgöngumönnum og fyrir utan rússneska og jap- anska fjallgöngugarpa er aðeins vitað um tvo Breta og einn Banda- ríkjamannn sem hafa komist á tindinn. Félagamir segja ferðina hafa verið lærdómsríka, en leiðangurinn hefur staðið í u.þ.b. fjórar vikur. Von er á þeim til landsins í dag. I Sérblöð í dag ssím Á FÖSTUDÖGUM Ótrúleg kajakferð um Vestfirði Vígalegar húsmæður á takkaskóm Breiðablik vann í uppgjöri efstu liða 1. deildar/C2 Jackie Joyner-Kersee sigraði í síðasta sinn/C4 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.