Morgunblaðið - 24.07.1998, Page 47

Morgunblaðið - 24.07.1998, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 47 ' 1 BRÉF TIL BLAÐSINS Nátttröll nútímans Frá Aðalheiði Jónsdóttur: ALLMIKIL tíðindi hafa orðið í ís- lenskum stjórnmálum að undan- förnu. Alþýðubandalagið þríklofið segir í sumum fréttum, vonandi er það orðum aukið, en staðreynd er, að tveir þingmenn hafa sagt sig úr flokknum. Því miður, því oft hafa þeir staðið að góðum málum. En það breytir ekki því að þetta er ótrúleg þröngsýni. Steingrímur vildi jú halda áfram einhvers konar samningaferli byggðu á gömlum margra áratuga leikfléttum, en það gengur einfaldlega ekki upp. Kjósendur trúa ekki á þess konar skrípalæti lengur. En nú hljóta lín- ur innan Alþýðubandalagsins að skýrast og er það vel. Eg hefði haldið að það væri fyrir neðan virðingu þessara manna að hlaupa svona í burtu eins og hræddir hérar meðan enn fara fram viðræður milli flokkanna. Það sýnir reyndar að þeir vilja sundra en ekki sameiginlegt framboð stjórnmálaflokkanna og annarra fé- lagshyggjuafla í þjóðfélaginu. Kannski vilja þeir leyfa núverandi helmingaskiptastjórn að spreyta sig fram á næstu öld. Ekki er vert að velta sér upp úr vandamálum þessara manna, en heldur eru þau dapurleg. Sagt er að Alþýðubandalagsfé- lagið á Þórshöfn standi tómt eftir fundinn með Steingi’ími. Standa flóttamennirnir þá kannski líka tómir eftir eða hugga þeir sig við fiskveiðikvótann fræga? Vera má að þeir eigi samleið með sægreifum og „svoddan lýð“. Gamlar þjóðsög- ur segja frá nátttröllum og þurs- um, það skyldi þó aldrei vera að enn fínnist nátttröll í nútíma þjóð- félagi. Nú er veður til að skapa! Ég spái því, að þrátt fyrir þá sundrungu sem nú ríkir innan Al- þýðubandalagsins muni formaður flokksins standa með pálmann í höndunum áður en yfir lýkur. Vinstrisinnað fólk mun einfaldlega ekki leggja trúnað á þann hræðslu- áróður, að Alþýðubandalagið sé að færast til hægri, heldur sjá, að þarna tala hræddir menn sem ótt- ast um eigin hag, en láta sér í léttu rúmi liggja hagsmuni heildarinnar eða þeirra sem höllustum fæti standa í þjóðfélaginu og verða að þola alls konar hremmingar af helmingaskiptastjórninni gamal- kunnu. Þvi vil ég segja við stjómarand- stöðuflokkana og annað vinstrisinn- að félagshyggjufólk: Nú er veður til að skapa sterkt og sameiginlegt framboð, nú eða aldrei, tíminn er dýrmætui’ en naumur. Samt mun þetta takast. Margrét Frímanns- dóttir er ákveðinn og kraftmikill stjórnmálamaður og hefur duglegt fólk með sér. Því segi ég góða ferð inn í tuttug- ustu og fyrstu öldina! AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Kaplaskjólsvegi 55, Reykjavík. orð Um Matthíasi Kristiansen: GRÉTAR Eiríksson, áhugamaður í málnotkun á leikskólum, skrifaði í Velvakanda laugardaginn 18. júlí harðorða grein vegna þess að orð- skrípið „gærnótt“ komst inn í skjá- texta í kvöldfréttum sjónvarps. Heimtar hann aðgerðir í kjölfar þessa stórslyss. Þar sem undirritaður var á fréttavakt þetta kvöld vill hann leggja orð í belg. Það er laukrétt að umrætt orð- skrípi er ekki besta fáanleg ís- lenska og sjálfsagt er að biðjast af- sökunar á mistökum sínum. Það geri ég hér með. Grétar lýsir sig góðan sænsku- mann í umræddrí grein og veit því að hliðstæða orðski-ípisins er góð latína í sænsku (og reyndar norsku líka). Hann gerir sér líklega einnig grein fyrir því að alltaf er hætta á því að mistök geti átt sér stað í öllu vinnuferli, einkum þegar tími er jafnnaumur til yfirlegu og yfirleitt tíðkast í fréttaþýðingum. Þar kem- ur þýðandi ætíð síðastur að frétt- inni, jafnvel eftir að útsending er hafin, og oft liggur svo mikið á að koma henni út að mál- og prentvill- ur geta sloppið í gegn. Sjónvarpsþýðendur búa við þá sérstöku og skemmtilegu ögrun að áhorfendur hafa alltaf frumtextann til hliðsjónar og um land allt á sér stað stöðugt eftirlit með verkum þeirra. Oft er rætt um illa unnar þýðing- ar í sjónvarpi en gjarnan með al- mennum hrakyi’ðum og án dæma. Því ber að þakka Grétari fyrir rök- studda ábendingu. Óþarfi er þó að dylgja um óhæfa þýðendur og mál- farsráðgjafa þrátt fyrir að einhver geri mistök. Ég get til dæmis bent á að frumlag vantar í síðustu setn- ingu fyrir fyrstu greinaskil í grein Grétars. Það þýðir að sjálfsögðu ekki að hann sé ófær um að skrifa íslensku, honum urðu bara á mis- tök. Ég vil að lokum fullyrða að eftir- lit með málfari á fjölmiðlum er óvíða betra en hjá RÚV. Með stöðugt auknu flóði ritaðs og talaðs máls fjölgar þó að sjálfsögðu líkum á mistökum. Gott er að hafa eftirfarandi vísu í huga við alla gagnrýni, svo fyrri hluti þessa samsetta orðs eigi rétt á sér: Lastaranum ei líkai- neitt lætur hann ganga róginn. Finni hann laufblað fólnað eitt þá fordæmir hann skóginn. MATTHÍAS KRISTIANSEN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.