Morgunblaðið - 31.07.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.07.1998, Blaðsíða 1
 l 1 ■ SPARISTELL Á ÞJÓÐLEGUM NÓTUM/2-3 ■ SEX ÁRA OG MYNP- SKREYTIR BÆKUR/2-3 ■ INNANSTOKKS HJÁ UNGUM ÍSLENDINGUM /4-5 ■ UMBYLTI TILVERUNNI/6-7 ■ MYNDAR KONUR í STURTU/8 ■ Jákvæð uppreisn í þjóðarminni HÚN er runnin upp, eina ferðina enn, helgin sem kennd er við frídag verslunarmanna. Pessi óopinbera þjóðhátíð á sér langa sögu: hún er í raun afsprengi Þjóðhátíðarinnar 1874 og byrjaði fyrir síðustu alda- mót sem eins konar „þjóðhátíðar- minning" í anda þjóðemisvakning- ar. Pótt þjóðemiskenndin sé vísast ekki ofarlega í hugum margra leng- ur hefur síður en svo dregið úr vin- sældum verslunarmannahelgarinn- ar: Hún virðist falla vel að „skemmtanamenningu" samtímans. En helgin sú arna er skömm og ekki bara skemmtileg: Hún hefur á sér jákvæðar og neikvæðar hliðar. Fyr- ir alla. í augum foreldra er hún ann- ars vegar jákvæð fjölskylduhátíð, tækifæri til að viðra tjaldið, fara í útilegu með bömunum og sýna sig og sjá aðra. En fyrir foreldra sem eiga böm á táningsaldri er hún hins vegar áhyggjuefni því helgin býr yfir mörgum hættum: Það tekur því varla að tíunda ótæpilega drykkju, fiknieíhaneyslu, skrílslæti, skemmd- ir, óvarlegt kynlíf og ofbeldi, af kyn- ferðislegum jafnt og öðrum toga. Upptalning þessi er kannski í hnotskurn það sem gerir eftirvænt- ingu unglinga eftir Helginni svona mikla: Helgibrot era ávallt heill- andi. Rétt eins og á Gamlárskvöldi hvílir nánast á unglingnum kvöð að skemmta sér ógurlega, eða heita „kríp“ (þ.e. að vera ,,púkó“) ella. Útihátíðin hefur tekið á sig blæ inn- vígsluathafnar, með karnevalísku ívafi, þar sem nánast er skylt að sleppa fram af sér beislinu og háma í sig forboðna ávexti og reykja eða bergja á afurðum þeirra. Vissulega er spennandi og skemmtilegt að út- búa sig í útilegu með félögum. Fróð- legt væri afturámóti að vita hjá hvað mörgum eftirvænting um- hverfist í spennufall á sjálfum mót- staðnum þar sem höft eru látin lönd og leið og íyrirhyggjuleysi ræður ríkjum. Af venjubundnum frétta- Morgunblaðið/Arni Sæberg ÚTBÚIN og eftirvæntingarfull í útihátíðarstemn- ingu og jákvæðir Þjóðhátíðargestir í Eyjum. flutningi að helginni yfirstaðinni má ráða að ófáir sleiki eftir hana sárin: illa til reika unglingar og rjúkandi rústir tjaldborga benda trauðlega til þess að útihátíðir séu almennt fé- lagslega og persónulega þroskandi viðburðir. Tjald(að) til einnar nætur Stundum gæti virst sem kjarn- orkuvetur útihátíða, „dagurinn eft- ir“, sé beinlínis eftirsóknarverður í augum sumra unglinga. Heyrst hef- ur að sumir hafi fyrirhyggju í fyrir- hyggjuleysinu og kaupi sér ódýran útbúnað, svefnpoka, tjald o.fl. með það fyrir augum að skilja það eftir á vígvellinum. Getur kannski verið að öll fjölmiðlaathyglin sem er beint að neikvæðum endalokum útihátíðar- innar gylli þau og sé hvetjandi? Með því að uppfylla „kröfu“ hneykslun- argjarnra um þessa sömu eymd fá þeir unglingar sem leika leikinn hvort tveggja athygli og útrás og gera í leiðinni pínulitla uppreisn gegn foreldrunum. Aður en farið er að býsnast yfir sívarandi og versnandi „unglinga- vandamáli“: Vandinn er ekki nýr af nálinni og liggur mun dýpra en til nýsprottinna og rótlausra unglinga. I fréttum af verslunarmannahelgi 1952 segir t.d. af „ölmóðum óspekt- arlýð“. Hefðin, á heldur dapurleg- um uppákomum, er því fyrir hendi: ef til vill órækt einkenni smáþjóðar sem ekki enn er komin af gelgju- skeiði. Hvað sem því líður hljóta allir að sjá að hefðin, eins og hún gerist nei- kvæðust og verst, er ekki vænleg innvígsluathöfn fyrir ungt fólk, ekki nema það vilji ganga inn í óbreytt og óstýrilátt „drykkjumannasamfé- lag“ eins og manni virðist oft sann- nefni á íslensku þjóðfélagi. Upp- reisnin á útihátíðum, oftar en ekki frá brennivínsdauða, er því engin uppreisn, þegar upp er staðið. gesv ■ BETRI DÝNA - BETRA BAK Yfir 32 þúsund bandarískir og kanadískir kírópraktorar mæla eingöngu með CHIHOPIIACTIC heilsudýnunum enda þróunarverkefni þeirra í samvinnu við SptÍngWSll verksmiðjurnar. ^Simu LAUGN Opið virka daga: kl. 10:00 - 18:00» laugardaga: kl. 11:00 - 16:00 • sími 581 2233

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.