Morgunblaðið - 31.07.1998, Page 5
4 B FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
DAGLEGT LIF
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 B 5
ÞENNAN engil flutti Arnar
Gauti með sér í handfarangri
frá Feneyjum.
JESÚMYNDINA keypti Arnar
Gauti í antíkverslun í Reykjavík.
Englastyttur
sem endurspegla lífið
MEÐAN ungt fólk í Reykjavík flyst í
hrönnum í gamla miðbæinn kýs Arn-
ar Gauti „lífskúnstner“ að búa uppi á
Höfða meðal stórra iðnfyrirtækja.
Það er auðskiljanlegt þegar komið er
inn í þakhýsið hans á 4. hæð. Þvílíkt
útsýni. Þarna hefur hann búið í tvö ár
og stílfært íbúðina efth- sínu höfði.
Arnar Gauti er þekktur fyrir að
vera annar Kúltúnnanna á FM 95,7,
verslunarmaður í GK, gluggaskreyt-
ingamaður, ljóðskáld, greinarhöfund-
ur hjá Heimsmynd og fleira. Þegar
hann er inntur eftir því hvernig megi
kenna hann er „lífskúnstner" eina
skilgreiningin sem kemur til álita.
íbúð Arnars Gauta er einn stór
geimur sem hann hefur innréttað
sjálfur, hátt til lofts og vítt til veggja.
í loftinu eru stórir þakgluggar sem
gera íbúðina stærri og bjartari og það
er að vissu leyti eins og að koma inn á
safn að koma inn til Arnars Gauta.
Hann hefur sankað að sér hlutum frá
hinum ýmsu heimshornum. I íbúðinni
er blanda af antíkmunum og nýjum
stílhreinum húsgögnum. Hvert sem
litið er blasa við skemmtilegir hlutir
smáir sem stórir, t.d. gamlir tekassar
frá Kenýa sem þjóna hlutverki nátt-
borðs, margvíslegir munnþuirku-
hringir sem er smekklega raðað upp í
sérsmíðaða hillu, antíkútvarp og rit-
vél á einu borðinu, glæsileg listaverk
eftir G. R. Lúðvíksson á veggnum
ásamt leikhúsandlitum frá London og
svona má lengi telja.
Læknataska og ferðahorn
I einu horni íbúðarinnar er gamal-
dags læknataska úr leðri sem Arnar
Gauti hefur notað á ferðalögum sín-
um um heiminn og stillt síðan upp
ásamt öðrum gömlum munum, en
þetta kallar hann ferðahornið sitt.
Þar er mjög gamalt landakort af Evr-
ópu, kíkir, myndavél, vekjaraklukka
og fleira í antík stíl. Við hliðina á
þessu ferðahomi er svo ný tölva og
það er gaman að sjá nútímamanninn
sem vinnur við hana umkringdan
hlutum úr fortíðinni.
Það leynir sér ekki að Arnar Gauti
er tískugúrú þegar gengið er fram
með einum veggnum. Þar hefur
hann staflað öllum þeim tískublöðum
sem hann er áskrifandi að á mjög
stílhreinan hátt, þannig að þau njóta
sín sem hluti af mublunum. Einnig
hefur hann safnað öllum þeim
plakötum sem Islenska óperan hefur
gefið út síðan 1978 enda mikill óp-
eruunnandi. Hann hengir ekkert
upp á vegg hjá sér nema að vel
hugsuðu máli, hann hefur metnað
fyrir útlit heimilis síns.
A miðju stofugólfínu stendur svo
kertastjaki sem Arnar hannaði og lét
smíða fyrir sig í Smíðagallerí. Uppá-
halds húsgagnið hans Arnars Gauta
er spegill frá 1890-1900 sem var
keyptur á uppboði í Danmörku. Þessi
glæsilegi spegill er rúmlega tveggja
FATASLÁIN er búin til úr röri
sem fékkst f Húsasmiðjunni.
metra hár, útskorinn og gylltur.
Marmarahilla skiptir honum í tvennt,
þetta eru því eiginlega tveir speglar.
A hillunni eru tveir þungir kerta-
stjakar úr verslun í Reykjavík og
stytta sem Arnar Gauti keypti í lista-
galleríi í Danmörku.
Englastyttur eru einnig í sérstöku
uppáhaldi hjá Arnari Gauta. íbúðin
öll er englum prýdd og hvert sem litið
er blasa við falleg englaandlit, hjá
gömlu ritvélinni, á rúmstokknum, hjá
símanum. Þó er einn engill sem er í
alveg sérstöku uppáhaldi hjá honum.
Ljósmyndir/Ásta Kristjánsdóttir
ARNAR Gauti fékk spegilinn á
uppboði í Danmörku en hann er
sfðan 1890-1900. (Kertasljakarn-
ir eru úr verslun í Reykjavfk en
styttuna keypti Arnar Gauti í
listagalleríi í Danmörku.)
ARNAR Gauti hefur sankað að
sér hlutum víðs vegar að.
Það er englastytta sem stendur á
miðju gólfí með kerti sér við hlið.
Þessi stytta er tæpur einn metri á
hæð en hana flutti Amar Gauti með
sér frá Feneyjum íyrir fjórum árum
en hann er sérstaklega heillaður af
ítalskri menningu. Arnari Gauta
finnst englarnir endurspegla lífið á
margvíslegan hátt. Sumum finnst all-
ar englastyttur eins en það finnst
honum ekki.
„Sjáðu t.d. þennan," segir hann og
bendir, „hann brosir, en ekki ein-
hverju englabrosi heldur prakkara-
DAGLEGT LIF
HEIMILi UNGA
Heimili fólks eru eins misjöfn og mennirnir
eru margir. Flestir útbúa heimili sín þó
þannig að þeim líði vel. Sumir kaupa hluti
eins og allir aðrir eiga meðan aðrir leita
fanga á ólíklegustu stöðum. Alda Sigurðar-
dóttir kíkti í heimsókn til fimm ólíkra ein-
staklinga, fékk að skoða uppáhalds húsgögn-
in og heyrði sögurnar á bak við þau. Sumir
hlutir voru frá Danmörku, Englandi, Portú-
gal eða Þýskalandi, aðrir úr Kolaportinu eða
geymslunni hjá afa og ömmu.
Elskendur
og gamall bangsi
SÓFI frá afa og ömmu kærastans
og bangsi sem fylgt hefur Rögnu frá tveggja ára aldri.
FOLKSINS
RAGNA heldur mikið uppá
þessa mynd sem hún fékk á
Majorka fyrir stuttu.
STJORNUR
hanga fyrir ofan
rúmið hjá
Rögnu, sem
fékk þær í versl-
uninni Filipps-
eyjum við Hverf-
isgötu.
SMEKKLEGUR sófi við borð,
sérhannað af Arnari Gauta.
brosi, hann hefur greinilega gert eitt-
hvað af sér. Sérðu líka hvernig þessi
situr,“ segir hann og bendir á annan.
„Hann hefur greinilega gert eitthvað
af sér líka. Þessi héma aftur á móti er
engill, það er ekki spurning," bætir
hann við og bendir á þann þriðja.
Við þessar vangaveltur sér greinar-
höfundur alla englana í kringum sig í
allt öðru ljósi. Fyrii- skemmstu voru
þetta venjulegar englastyttur sem allt
í einu vom farnar að segja heilmikið
um mannfólkið og ekki síst Arnar
Gauta sjálfan.
RAGNA Kjartansdóttir, eða Cell-7
eins og hún er kölluð, er búin að
leigja stúdíóíbúð í austurhluta Kópa-
vogs síðan í vor. Þetta er einungis
tilraun því hún mun flytja aftur til
foreldra sinna í lok sumars, enda
bara átján ára og hálfnuð með
menntaskólann. Hún er þekkt fyrir
að vera besti kvenkyns rapparinn á
Islandi og er í hljómsveitinni Su-
bterranian.
Þó að Ragna hafi ekki leigt nema í
skamman tíma, er íbúðin hennar full
af fallegum persónulegum hlutum,
rétt eins og hún hafi búið þar lengi.
Það fyrsta sem hún sýnir greinar-
höfundi er rómantísk leirstytta af
tveimur nöktum elskendum sem
sitja þétt upp við hvort annað.
Styttuna, sem er frá Portúgal,
fékk hún frá kærasta sínum, Ái-na
Gunnarssyni, fyrir rúmlega hálfu ári
en þá voru þau búin að vera saman í
eitt ár. Ragna er nýkomin frá Ma-
jorka en þar keypti hún mynd sem
hún heldur einnig mikið uppá. Þetta
er falleg mynd af tveimur englum
sem halda hvor í sinn endann á hvítu
klæði. Það leynir sér ekki að það
leynist mikil rómantík á
STYTTA frá Portú-
gal sem kærasti
Rögnu gaf henni
í tilefni af eins
árs samveru-
afmæli.
STYTTAN sem Ragna fékk þeg-
ar Subterranian var valin
bjartasta vonin 1998.
bak við harða ímynd þessarar
stelpu. I einu horninu er rúmið
hennar og fyrh- ofan það er fullt af
hangandi marghtum stjörnum sem
hún fékk í versluninni Filippseyjar
sem móðir hennar áv Rúmið, sem er
úr dökkbrúnum viði og útskorið,
flutti móðir hennar til Islands frá
Filippseyjum. I fyrstu kunni Ragna
ekki að meta það en er þakklát í
dag.
Bjartasta vonin
árið 1998
í öðru horni íbúðarinnar er gam-
alt sófasett með skemmtilegu brún-
leitu munstri, en það kemur frá afa
og ömmu kærastans. Þau þurftu að
losna við sófasettið svo hún þáði það
með þökkum og sér ekki eftir því,
þar sem þægindin eru í fyrirrúmi. I
sófanum lætur sjúskaður bangsi
fara vel um sig en hann hefur Ragna
átt síðan hún var 2 ára. Hún hefur
alla tíð tekið hann með sér í öll
ferðalög utan- sem innanlands og
finnst ekki taka því að hætta því
núna.
Fyi-ir framan sófann er sjónvarp
sem er stillt á MTV og rapptónlist
hljómar meðan við spjöllum saman.
Ofan á sjónvarpinu sómir sér vel
styttan sem hún fékk þegar Su-
bterranian fékk íslensku tónlistar-
verðlaunin sem Bjartasta vonin
1998.
Einnig era gamlar myndir af
henni og móður hennar í litlum
römmum ofan á sjónvarpinu. Á
veggnum þar fyrir ofan hangir svo
rammi með mörgum ljósmyndum af
veggjalist sem hún tók í Þýskalandi.
Á öðram vegg er svo Erró plakat
sem sómir sér vel fyrir ofan hljóm-
tækin hennar. Það er skemmtilegt
við stúdíóíbúð Rögnu hvemig hún
blandar saman ólíkum hlutum frá
ólíkum stöðum.
Ommustíll
með skemmtilegu ívafi
MYND eftir Jóhann Torfason
1995/96 hangir á ganginum í íbúð Ásgerðar.
ÁSGERÐUR við uppáhaldshúsgagnið sitt,
pianói frá byrjun aldarinnar.
Á BESTA stað í vesturbænum býr Ásgerður
Júníusdótth- óperasöngkona í snyrtilegri og
rúmgóðri fimm herbergja íbúð, sem hún og
eiginmaður hennar eru nýlega búin að festa
kaup á. Ásgerður er sérstaklega þekkt fyrir
fallegan óperasöng (ásamt því að vera gift
Sjón). Það kom greinarhöfundi ekki á óvart að
uppáhalds húsgagnið hennar er píanó frá
byrjun aldarinnar. Það era antíkmunir sem
heilla Ásgerði eins og sést á smekklegu heimili
hennar. Það er hátt til lofts og fallegir listar í
loftinu. íbúðin er full af húsgögnum með sál
og það skemmtilega er að hún þekkir söguna á
bakvið hlutina, enda eru flest húsgögnin frá
skyldfólki hennar. Einnig er gaman að sjá öll
þau listaverk sem hanga á veggjunum hjá
henni sem flest eru eftir listamenn eins og
Flóka, Húbert Nóa og Jóhann Torfason. Með
þessu er hinn svokallaði „ömmustíll“ brotinn
upp á skemmtilegan hátt. Ásgerður heldur
einmitt sérstaklega upp á eitt málverkið sem
er eftir Húbert Nóa. Það breytir litum eftir
birtu og hún segist geta horft á það í langan
tíma í einu.
Eins og fyrr sagði er uppáhalds húsgagnið
hennar Ásgerðar píanó frá byrjun aldarinnar.
Það fékk hún fyrir milligöngu fyrsta söng-
kennara síns, Guðmundu Elíasdóttur sem
einnig er ömmusystir hennar. Við píanóið sit-
ur hún á útskornum borðstofustól klæddum
rósrauðu flaueli, en stólinn fékk hún frá ömmu
sinni. Ofan á píanóinu era liljur í vasa, krist-
alskarafla frá versluninni Fornleifi frænda, og
mjög sérstakur lampi sem var smíðaður á Is-
landi milli 1910 og 1920. Hann fékk hún í
versluninni Fríðu frænku og gaf eiginmanni
sínum af göfugu tilefni fyrir nokkra. Fyrir of-
an píanóið hangir teikning eftir Flóka. Það
kemur manni ekki á óvart að veggurinn gegnt
STÓLL, keyptur af til-
viljun eftir auglýsingu.
ANTÍKSKÁPUR keyptur í Svíþjóð fyrir
foreldra Ásgerðar.
píanóinu er hlaðinn bókum og á þennan fallega
hátt sameinast lífsviðurværi hjónanna.
Brjóstmynd og leðurstóll
með krómfótum
Ásgerður á fleiri uppáhaldshluti, eins og
hvítlakkað antíksófaborð með útskornum fót-
um sem er frá langafa og langömmu hennar,
stóran hvítlakkaðan antíkskáp sem er í sama
stíl og borðið. Hann var aftur á móti keyptur í
Svíþjóð fyrir mörgum árum fyrir foreldra Ás-
gerðar. Ofan á skápnum er kertastjaki sem
Asgerður heldur mikið upp á. Hann fékk hún í
verslun í London sem heitir „Past Times“ eða
bara liðnir tímar í lauslegri þýðingu. Einnig er
brjóstmynd ofan á skápnum sem afi eigin-
manns hennar keypti í Þýskalandi á námsár-
um sínum. Við hliðina á skápnum er glæsileg-
ur brúnn leðurstóll með krómuðum fótum,
sem er þannig tilkominn að móðir hennar fór
að skoða rúm eftir dagblaðsauglýsingu. Henni
leist síðan engan veginn á rámið en fékk stól-
inn fyrir slikk.
Á hornborði við sófann í stofunni era
nokkrir skemmtilegir antíkmunir. Þar er stór
marmaralampi frá ömmu hennar sem hún
hafði fengið í Evrópu fyrir löngu, og lítil
antík silfurskál sem er gjöf frá tengdamóður
hennar, en skálin er sannkallaður ættargrip-
ur. Tveir silfurkertastjakar koma frá Dan-
mörku og kristalsblómavasi fullur af dökk-
bleikum rósum, en hann keypti Ásgerður í
Kolaportinu. Þessi kristalvasi var alveg eins
og kristalsvasi sem langamma hennar átti og
Ásgerður braut þegar hún var lítil. Ásgerður
þekkti vasann strax þegar hún sá hann í
Kolaportinu og gerði hrein reyfarakaup. Ás-
gerður vandar valið þegar hún kaupir sér
hluti, en hún er einmitt nýbúin að festa kaup
á fallegum ljósum í gömlum stíl hjá Fríðu
frænku til að hafa á ganginum. Eldhúsinn-
réttingin er upprunaleg, en húsið var byggt
um miðja öldina, og því er mikill sjarmi yfír
henni.
Antíkhúsgögn Ásgerðar era henni greini-
lega mjög kær og þeim er vel við haldið. Þegar
hún strýkur yfir fallegasta hlutinn í íbúðinni,
píanóið, er eins og hún sé að strjúka yfir
heimsins mestu gersemar.
KISTA sem Steinar fékk frá Ameríku þeg-
ar hann var fimm ára.
VIÐ Laugaveginn leigja saman
tveir piltar rámgóða íbúð, sem
er yftr hundrað fermetrar, með
þriggja metra lofthæð og timb-
urgólfi. Þeir hafa sankað að sér
hlutum og húsgögnum víðsveg-
ar að og það er gaman að sjá
sj álfsbj argarviðleitnina
blómstra hjá strákunum. Þetta
era Bjarni Grímsson ljósmynd-
ari og skemmtanastjóri á Kaffi
Frank og Steinar Orri Fjeldsted rappfrömuð-
ur og textasnillingur í Quarashi, einnig kallað-
ur „Stoneyflex“.
Það var greinilegt að strákarnir áttu von á
konu því það verður að segjast að þetta er
hreinasta íbúð sem greinarhöfundur hefur
komið í. Þeir eiga báðir nokkra
uppáhaldshluti sem ^ þeir
skreyta íbúðina með. Ibúð-
in skiptist með trébitum í
tvær rúmgóðar stof-
ur og tvö svefn-
herbergi. Það
era engir fataskápar
svefnherbergjunum
og þá gripu þeir til
sjálfsbjargarriðleitninn-
ar og útveguðu sér fata-
slár, sem skipta báðum
herbergjunum
skemmtilega. upp.
Steini hefur málað sitt herbergi í dökkblá-
um lit og er herbergið fullt af frábærum lömp-
um, sem eru einnig þeir allra sérstökustu sem
greinarhöfundur hefur augum litið. Einn
þeirra er vegglampi sem Steinar bjó til úr
gömlu hjólabretti sem hann keypti á síðasta
áratug. Hjólabrettið er með fígúrumynd og
Steini festi peru á það og hengdi það upp. Fyr-
ir neðan lampann er skærgi-ænn flauelissófi
sem hann fékk frá foreldram sínum í afmælis-
gjöf-
Við hliðina á sófanum er annar lampi, sem
hann fékk í Spútnik, hann er í laginu eins og
lítill turn á kastala og er yfir einn metri á hæð.
Hann er einnig með gullhúðaða kommóðu og
fleiri sérstaka hluti. Steinar heldur sérstak-
Álagapúði
og kista úr barnæsku
BJARNI og Steinar Orri og Bjarni við
„símaklefann" frá London.
LISTAVERK eftir Sigga mæjónes, sem
heitir þijú tippi.
lega upp á rauða kistu sem er á stofugólfinu
rið hlið sjónvarpsins. Hann fékk hana í Amer-
íku að gjöf frá foreldram sínum þegar hann
var 5 ára og hefur hún fylgt honum síðan. í
dag gegnir hún þri hlutverki að geyma mynd-
bandsspólur sem strákarnir eiga. Á henni era
margvíslegir límmiðar sem Steini
hefur sankað að sér.
Bjarni á nokkra hluti sem hann
heldur mikið upp á en einn þó sér-
staklega. Það er koddi sem hann
keypti í Kolaportinu með áprentaðri
mynd af Madonnu. Hann segir að
þessum kodda fylgi álög því riku eft-
ir að hann keypti koddann hitti hann
Madonnu í London. I stað þess að
hafa myndir uppi á vegg i herberginu
sínu fékk hann tvo rini sína (Harry og Richard)
til að mála fyrir sig „graffiti" með úðabrása á
herbergisveggina í stað þess að mála þá með
hefðbundnum hætti og eru þeir hrein lista-
verk. í einu horni herbergisins er silfurlitaður
ísskápur þakinn límmiðum alls staðar að.
Þennan ísskáp fékk hann að gjöf frá rini sín-
um. Á veggnum er svo breski símaklefinn
hans, þ.e. nokkrar myndir af símastúlkum sem
hann fékk í símaklefum í London. Einnig held-
ur Bjami mikið upp á spegil sem er umvafinn
rauðri jólaseríu sem rinur hans útbjó fyrir
hann.
Altari og
stafur vitringanna
I stofunni á svo Bjarni lítið altarishorn en
hann safnar alls konar jesúmunum. Á hillu eru
jesúlíkön, styttur, kertastjakar, krossar og
upp á vegg fyrir ofan þetta er spegill og tvær
fallegar myndir af Jesú sem hann keypti í
London. Einnig hefur hann staf upp á vegg
sem móðir hans gaf honum frá Spáni en þetta
er stafur eins og vitringarnir voru með.
í miðri stofunni er ljósbrúnt gamaldags
sófasett sem strákarnir fengu á húsgagna-
markaði í Kópavogi. Rétt við sófasettið er eld-
gömul hárþurrka sem er fmasta rtofustáss og
þeir fengu á skransölu erlendis. í stofunni eru
ekki hefðbundnar myndir á veggjum. Þeir
hafa hengt upp bakhliðar á hallærislegum
plötuumslögum eins og t.d. Limahl, Top Gun,
Hattur & Fattur og fleiri slíkum. Saman eiga
strákarnir fallegan kött sem er ekki vert að
nefna nema fyrir þær sakir að þeir voru búnir
að kalla köttinn Cleopötru Jones í nokkra
mánuði þegar þeir komust að því að þetta var
fress sem nú heitir Cleo.
ÍSSKÁPUR sem
Bjarni fékk að
gjöf frá vini.
ÁLAGAKODDI
úr Kolaportinu.