Morgunblaðið - 31.07.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.07.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 B 7 SALVADOR Dali hannaði Chupa Chups vörumerkið. príki HELGI Jóhannesson Morgunblaðið/ssv Blandað salat með jarðarberjum og fetaosti 1 haus íslenskt salat 1 haus icebergsalat 1 frisésalat 200 g jarðarber 8 stk. ferskur aspas 200 g fetaostui- raspað hýði af einni sítrónu 2 hvítlauksgeirar 50 g furahnetur salt Sósa V2 dl ólífuolía 1 msk. sítrónusafi Vi dl appelsínusafí fínmalaður svartui' pipar 2 ísmolar Skolið salatið varlega og leggið það á viskustykki til þems. Skerið burtu stilka og skolið aftur og þerrið. Rífíð niður í breiða skál. Skolið jarðarberin og skerið hvert þeirra í fjóra báta. Skerið aspas í ská- sneiðar og fetaostinn í teninga. Blandið jarðarbeijum, aspas og fetaosti saman við rifna salatið. Ristið furuhnetui-nar á þuni pönnu. Snúið þeim og pressið hvítlaukinn yfir þegar hnetumar hafa fengið gylltan lit. Stráið salti yfir. Dreifið hnetunum og rifna sítrónuberkinum yfir salatið í skálinni. Hrærið ólífuolíunni, sítrónusafanum, appelsínusafanum, svai-ta pipamum og ísmolunum saman og dreypið yfir áður en borið er fram. Gott með ólífubrauði. kenndi grunnskólabörnum ensku og dönsku á árum áður. „Undanfarið hef ég verið að æfa mig í að skipta hratt á milli þeirra þriggja tungu- mála sem ég kann best en það er sérstök tækni sem verður að þjálfa. Þetta er skemmtilegt verkefni og mjög nauðsynlegt fyrir þá sem sinna viðskiptum án landamæra." Hjá Dönsku flótta- mannastofnuninni gegnir Sigrún stöðu deildarstjóra eftirlitsdeildar á fjármála- sviði en hún hefur ákveðið að hætta þar um áramót og venda sínu kvæði enn einu sinni í kross. „Eg læt mig dreyma um bókaút- gáfu og er um þessar mundir að stofna tvö fyrirtæki, PP FORLAG á íslandi og Pilot Publis- hing í Danmörku. Eg verð með starfsmenn á báðum stöðum og ferð- ast sjálf til íslands nokkrum sinnum á ári.“ Sigrún segist undrandi á þeim að- stöðumun sem hún hefur orðið vör við í löndunum tveimur. „I Dan- mörku er allt gert til þess að hjálpa fólki að koma á fót eigin atvinnu- starfsemi. Ég fékk ókeypis nám- skeið um virðisaukaskattskil, fag- lega hjálp við stofnun fyrirtækisins og greiddi ekkert fyrir leyfið. A Is- landi þarf hins vegar að borga fyrir að stofna einkafyrirtæki og fagleg aðstoð liggur ekki á lausu. Það er eins og fólki á Islandi sé refsað fyrir að vilja gera eitthvað nýtt.“ Las bókina níu sinnum Þrátt fyrir þetta er PP FORLAG nú orðið að veruleika og hefur þegar gefið út sína fyrstu bók, Lífið í jafn- vægi eftir Bob Greene og sjónvarps- stjörnuna Oprah Winfrey. Magnea Matthíasdóttir jiýðir bókina sem fjallar um leið til betra lífs með réttri hreyfingu og sjálfsstjórn í mataræði. „Það er margt fróðlegt í bókinni þótt maður þurfi ekkert endilega að grenna sig,“ segir Sig- rún sem nánast kann bókina utan að enda búin að lesa hana samtals níu í dag get ég bæði rifist og gert samninga ó dönsku sinnum á þremur tungumálum síðan hún fékk hana fyrst í hendur. „Ég er með fleiri bækur í takinu sem ég hyggst gefa út í Danmörku og á íslandi. Stefnan er einföld: Ég ætla að gefa út bækur sem mér sjálfri þykja skemmtilegar og það eru aðallega bækur um konur og eftir konur. Ég er helst að hugsa um sjálfshjálp- arbækur og ævisögur og hver veit nema við- skiptabækur slæðist með.“ Sigrún kveðst einnig hafa áhuga á sjálfshjálp- arbókum fyrir unglinga. „Mér finnst nauðsynlegt að kenna bömum og unglingum að njóta bóka og nota þær sér til aðstoðar. Bók- menntir virðast vera að víkja fyrir tónlist, kvikmyndum og annars kon- ar áreiti sem er miður því það er hægt að fá svo gríðarlega mikla vit- neskju úr góðum bókurn." Lífið er áhætta Sigrún hefur ekki áhyggjur af því að markaðurinn sé mettur af þeirri tegund bóka sem hún hyggst gefa út. „Lífsreynslubækur með réttum ábendingum eru alltaf vel þegnar. Margir hafa þann hæfileika að skrifa sig frá vandamálum á þann hátt að aðrir njóti líka góðs af og ég mun reyna að fá slíkt fólk til þess að skrifa fyrir mig.“ Sjálf segist Sigrún ekki þurfa að skrifa sig frá neinu og hyggst því ekki gerast höfundur í eigin forlagi. „Líf mitt er í svo miklu jafnvægi að betra gæti það ekki verið,“ segir hún hlæjandi og vísar í titil bókar Oprah Winfrey. „Ég er sátt við þær ákvarðanir sem ég hef tekið. Allir hafa gott af því að læra eitthvað nýtt og ég sé heldur ekki eftir því að hafa flutt utan. Mér fannst líka tími til kominn að verða sjálfs míns herra eftir að hafa unnið undir annarra stjórn í tuttugu ár. Bókaútgáfa er auðvitað áhættusöm grein en lífið er áhætta í sjálfu sér og ég er bjart- sýn.“ FYRIR fjörutíu árum hannaði súrrealistinn Salvador Dali (1904- 1989) vörumerki fyrir Chupa Chups spænska sleikibrjóstsykurinn, sem Spice Girls sleikja nú í tíma og ótíma á opinberum vettvangi samkvæmt samningi. Önnur nútímaleg og ár- angursrík markaðssetning felst líka í samstarfi við McDonalds og Nike og núna ku þeim sem ekki reykja og til- heyra tískuliðinu í London og New York þykja „smart" að sleikja Chupa Chups. Þegar sleikibrjóstsyk- urinn kom á markaðinn var löngu búið að finna upp hjólið og margt fleira þarft og óþarft til gagns og gleði. Sú einfalda hug- mynd Katalóníubúans En- ric Bernats að setja pinna á sætindi handa ungviðinu markaði engin tímamót í sögunni en hugnaðist þó foreldrum jafnt sem bömum mæta vel auk þess sem hagur Bernats vænkaðist snarlega. Hann hrinti hugmyndinni í fram- kvæmd og hóf að framleiða sleiki- brjóstsykur undir merkinu Chupa Chups. Frá þeim tíma hefur fyrir- tækið Sant Esteve Sesrovires í út- jaðri Barcelona vaxið og dafnað jafnt og þétt. Talsmenn þess fullyrða að á hverju andartaki gæði þrjú hundruð og fimmtíu þúsund manns út um all- an heim sér á afurðunum og á síð- asta ári hafi selst fjórir milljarðar Chupa Chups sleikipinna í 164 lönd- um. Augljós lausn? Upphaf velgengninnar má rekja til þess að Enric Bernat rann til rifja hversu sælgæti var yfirleitt óhentugt fyrir smáfólkið, sem var stærsti neyt- endahópurinn. Molarnir voru jafnan alltof stórir fyrir smáar hendur og litla munna. Þvottavélin var ekki orð- in almenningseign á Spáni á þessum tíma og því var mæðrum mikil ar- mæða að því að börnin velktust með Molarnir voru alltof stórir fyrir smóar hend ur og litla munna sælgætið í lófunum á milli þess sem þau settu það upp í sig og þurrkuðu síðan klístruga munna og kámugar hendur með fötunum sínum. Lausn Bernats á þessu hvimleiða vandamáli fólst í að setja nammið á pinna og þá gátu bömin gætt sér á góðgætinu prúðbúin og pen. Bernat varð vellauðugur og er núna stjórnarformaður í fyrirtæki sínu, sem framleiðir 1.500 sleikipinna á mínútu, auk þess sem verksmiðjur Chupa Chups í Frakklandi, Kína, Rússlandi, Kólumbíu og Mexíkó hjálpa til að metta markaðinn og ein í Indlandi bætist væntan- lega við í árslok. Salvador Dali og markaðssetning Hvað er svona merki- legt við spænsku sleiki- pinnana og hvers vegna skyldu neyt- endur yfirleitt taka eina tegund sleikipinna fram yfii- aðra? Markaðs- stjóri Cupa Chups segir markaðs- setninguna og vörumerkið lykilatriði. Frá upphafi var Bernat líka ljóst að umbúðirnar og vörumerkið skiptu miklu máli, enda ekki að ósekju að hann fékk sjálfan Dali til að hanna fyrir sig vörumerkið. Til þess að halda velli á sælgætis- markaðnum segir markaðsstjórinn nauðsynlegt að brydda sífellt upp á nýjungum. Þótt möguleikarnir með sykur á priki virðist í fljótu bragði harla takmarkaðir má geta þess að spænsku sleikipinnarnir fást með fimmtíu bragðtegundum, sem valdar hafa verið til framleiðslu eftir langt og strangt ferli alls konar prófana. Markaðssérfræðingar hafa ekki leg- ið á liði sínu við brögð og brellur og oft eru Chupa Chups sleikipinnarnir í kaupbæti með vatnsbyssum, litlum skrímslum, „karokí“-hljóðnemum og alls konar leikföngum til að freista yngsu kynslóðarinnar. vþj Fallegir brúðarkjólar, slör og kórónur til leigu og sölu. Brúðarkjólaleiga. Sophiu Bakkavör 11, 170 Seltjamames Sími 562 0137 - 895 8237 Morgunblaðið/Ámi Sæberg m hyU« CO-ENZVMH m«i Viðvarandi æska ISnEÍlsuhúsið Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu 6, Akureyri ÞAÐ ER ALDREl OF SEINT AÐ HUGSA UM HEILSUNA Frábœru amerísku heilsudýnurnar frá Einfaldlega toppurinn í atnerískum dýnum. * * Húsgögn ★ IMtntmrmvtlmmþH Slðumúla 28 • S. 568 0606

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.