Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKSTURSIÞROTTIR
Fjórir berjast um meistaratitil ökumanna í alþjóðarallinu
FOLK
■ TRYGGVI M. Þórðarson er
keppnisstjóri og lét ekki 10 daga
rúmlegu vegna eymsla í baki aftra sér
frá störfum. Hafði tölvu uppi í rúmi
og síma innan seilingar.
■ TRYGGVI hefur boðið Mikael
Fritzsimon eftirlitsmanni alþjóðabíla-
íþróttasambandsins að fylgjast með
keppninni. Hugmyndin er að sækja
um Evrópumeistarakeppni árið 2000.
Ef leyfí fæst fyrir slíku gæti það lað-
að fleiri erlenda keppendur að, en
talsvert kynningarstarf hefur verið
unnið erlendis vegna alþjóðai'allsins.
■ LANDSSÍMINN hefur lánað 25
farsíma í keppnishaldið, sem notaðir
verða af tímavörðum, undan- og eftir-
förum keppninnar. Líklegt er að 200
símar verði í notkun meira og minna í
kringum keppnina, meðal ökumanna,
viðgerðaiTnanna og annarra sem
fylgja keppninni.
■ ASGEIR Sigurðsson og Bragi
Guðmundsson verða undanfarar, en
þeir hafa unnið alþjóðarallið fjórum
sinnum. Þeir bíða spenntir, aka
Mitsubishi Pajero Turbo og eru sagð-
ir iða í skmninu, en Hekla lánar sjö
bíla til keppnisstjórnar.
■ ÁRNI Árnasson og kona hans,
Dröfn, munu verða eftirfarar, en Árni
er einn af stofnendum Bifreiðaí-
þróttaklúbbs Reykjavfkur sem held-
ur keppnina. Áætlað er að keppnis-
stjórn noti 5.000 lítra af bensíni en
Olis styrkir keppnina.
■ JEPPAKL UBB UR Reykjavíkur
sér um skipulag á áhorfendaleið í
Öskjuhlíð í kvöld og Ragnar Krist-
jánsson stýrir dæminu. Líklegt er að
140 starfsmenn komi að skipulagi
keppninnar næstu daga.
■ SAKU Viierima, sem hefur unnið
alþjóðarallið tvisvar sinnum, ætlaði að
keppa í ár á Ford Eseort. Hann stór-
skemmdi hins vegar bíl sinn í rall-
spretti í Englandi fyrir skömmu og
var lánsamur að meiðast ekki.
■ GUDNY Úlfarsdóttir og Elsa Krisl-
ín Sigurðardóttir eru einu kvenkyns
aðstoðarökumenn í rallinu. Guðný er
aðstoðarökumaður Fjölriis Þorgeirs-
sonar á Mazda fjórhjóladrifsbíl, sem
Baldur Jónsson bróðir Rúnars Jóns-
sonar, ók með góðum árangri á árum
áður. Elsa ekur sem fyrr með foður
sínum, Sigurði Óla Gunnarssyni.
Ikvöld
KNATTSPYRNA
1. deild karla:
Akureyri: KA - HK ..........18
Garðabær: Stjaran - Þór A...18
Víkin: Víkingur - Skallagrímur .. .18
HANDKNATTLEIKUR
Opna Reykjavíkurmdtið.
Grafarvogur:
Konur:
Haukar - Valur..............18
KR-Grótta - FH..............19
ÍBV - Víkingur..............20
Stjarnan - Fram.............21
FH - Haukar.................22
Austurberg:
Karlar:
FH - Selfoss................18
Fram - Fjölnir .............19
Stjaman - Þór...............20
Valur - ÍR b ...............21
Seljaskóli:
Karlar:
ÍR a - KR-Grótta............18
UMFA - Breiðablik ..........19
ÍBV-HK .....................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Reylqanesmótið
Njarðvík: Njarðvík - Keflavík.20
Ekkert elsku
mamma núna!“
n
Gunntaugur
Rögnvaldsson
skrifar
FJÓRAR áhafnir verða í hörku-
baráttu um íslandsmeistaratit-
ilinn yfir heildina í alþjóðarall-
inu. Þorsteinn Páll Sverrisson
og Witek Bogdanski á Mazda,
Rúnar Jónsson og Jón Ragn-
arsson á Subaru, Páll H. Hall-
dórsson og Jóhannes Jóhann-
esson á Mitsubishi og Sigurð-
ur B. Guðmundsson og Rögn-
valdur Pálmason á Rover
Metro. Þeir eiga allir góða
möguleika á titli, með góðum
árangri, en þessi keppni gefur
vægið 1,5 á við önnur mót, 30
stig fyrir fyrsta sæti í stað 20.
Við munum aka með hliðsjón af
titilslagnum í þessari löngu
keppni. Að komast klakklaust í
mark er mikilvægast
af öllu, þó sigurinn
verði líka í sigtinu.
Veðrið getur haft
mikil áhrif, ef rignir
mikið þá verða leiðirnar hálar, jafn-
vel blautar. Ef kveikjukerfið blotn-
ar illa geta menn tapað dýrmætum
tíma, sem erfitt er að vinna upp,“
sagði Rúnar í samtaii við Morgun-
blaðié. Hann féll úr leik í alþjóðar-
allinu í fyrra á 6. sérleið með brot-
inn gírkassa. Þá að aka í fyrsta
skipti á Subaru bflnum, sem þeir
keppa á núna, en hann er fjórhjóla-
drifínn eins og allir helstu keppi-
nautamir.
„Það er gaman að fá Hjört P.
Jónsson á nýjum bíl. Hann gæti
komið vel út í keppninni, hefur
nægan tíma til að venjast bílnum í
langri keppninni,“ sagði Rúnar og
kvaðst ekkert óttast nýju bílana, en
hann ekur bíl sem er kominn til ára
sinna, en er mikið endurnýjaður.
„Það er búið að yfirfara alla slitfleti
af kostgæfni. Það sýndi sig í síð-
ustu keppni að nýir bflar sem gaml-
ir geta bilað, en vélin fór hjá Páli
Halldóri. Það em alltaf vonbrigði
að falla úr keppni og þvi verður
mikilvægt fyrir alla í titilslagnum
að stilla kappinu í hóf, komast á
leiðarenda," sagði Rúnar.
Súrt að
falla úr leik
„Það er minni pressa á okkur,
sem gæti hjálpað okkur. Það er
meira í húfi fyrir andstæðingana
vegna meiri krafna frá kostunarað-
ilum. Við íylgjum þeim fast eftir og
bíðum þess að þeir byrji að fá skell-
ina,“ sagði Þorsteinn Páll, sem er
jafn Rúnari að stigum í íslands-
mótinu á gamla keppnisbílnum
hans.
Allir á Stjörnuvöllinn!
Fyrsta deild karla
í kvöld kl. 18
í Garóabæ
Stjarnan
BB
Þór
Olís er aöal styrktaraóili Stjörnunnar
„Við féllum úr leik eftir fyrsta
dag í fyrra. Bíllinn fór ekki í gang
að morgni annars dags, sem var
súrt. En ef við hefðum þekkt bflinn,
þá hefði kannski tekið 30 sekúndur
að laga hann. Við eram búnir að
skoða allar sérleiðir vel og þær era
flestar góðar. Þess vegna er vont
að þrjár fyrstu leiðirnar í dag ráði
rásröð, menn verða að aka grimmt
til að tapa ekki sætum. Þeir sem
era aftar en í 4.-5. sæti gætu lent í
grjóti og lausamöl á veginum, en
fyrstu bílar sloppið í gegn án þess.
Þá er hætta á að sprengja dekk,
sem getur reynst dýrkeypt. En það
getur verið dýrt að ofkeyra á fyrsta
degi, menn geta aldrei unnið þá,
bara tapað,“ sagði Þorsteinn.
Ný vél og
ný dekk
„Það verður ekkert elsku
mamma núna! Við höfum verið sak-
aðir um að keyra eins og kerlingar
og annað eins, frá þvi við byrjuð-
um. Við höfum tekið því með
stóískri ró. Núna ætlum við að
sanna okkur frá fyrstu leið,“ sagði
Páll Halldór.
„Við eram með nýja vél, eftir
áíáll í síðustu keppni í vélarsalnum
og pyngjunni. Nýja vélin er kraft-
meiri, hefur dýpra hljóð. Eg var
rosalega ánægður með vinnsluna á
æfingu og keppnin leggst því ein-
staklega vel í mig. Eg vona bara að
hann hangi þurr, það er lítið spenn-
andi að aka með vatn upp á miðjar
hliðar. Það er ávísun á vandræði.
Við ætlum okkur að aka á nýjum
dekkjum alla keppnina, það munar
miklu hvað grip varðar. Ætlum að
splæsa í þetta dæmi, leggja allt
undir. Eftir á að hyggja voram við
fúlir að falla úr leik síðast. Það
brýst fram í meiri keppnishörku
fyrir alþjóðarallið. Eg er sannfærð-
ur um að hraðamet verður slegið á
Lyngdalsheiði í keppninni, en það
er 6,55 mínútur. Steingrímur Inga-
son á það. Feðgarnir hafa oft náð
forystu í byrjun og hafa svo hangið
á henni. Ég verð að vera heitur frá
fyrstu leið núna,“ sagði Páll.
Sigur eina
vonin
„Við verðum að vinna keppnina
til að geta orðið íslandsmeistarar.
Það er þægileg staða að þurfa ekki
að verjast. Það kemur mjög fljót-
lega í ljós hverjir munu berjast um
sigur. Við erum með nóg af dekkj-
um til að slást um toppsætið," sagði
Sigurður Bragi
„Ég held að toppbílarnir eigi allir
eftir að lenda í einhverju basli í
langri keppninni. En bfll okkar hef-
ur oft unnið þessa keppni í höndum
Ásgeirs Sigurðssonar og Braga
Guðmundssonar. Við unnum í fyrra,
þannig að bíllinn hefur styrkinn og
hefur verið yfirfarinn vandlega fyrir
keppnina. Við erum klárir í annan
sigur," sagði Sigurður.
Hverju spá gömlu kempurnar?
Ásgeir Sigurðsson
1. Sigurður Bragi/Rögnvaldui'.
2. Þorsteinn/Witek.
3. Hjörtur/ísak.
„Ég held að Metro bfllinn verði
íyrstur eins og fimm síðustu ár undir
stjórn Sigurðai' Braga. Rúnar er bú-
inn að keppa 8 sinnum í rallinu og að-
eins vinna einu sinni, nær ekki tökum
á þessari keppni. Sigurður Bragi hef-
ur skynsemina til að stýra sínum fák
í endamark hratt og án áhættu. Mér
sýnist nýju bílarnir vera of viðkvæm-
ir til að vinna, treysti þeim illa til að
kiára,“ sagði Ásgeir.
Ómar Ragnarsson
1. Rúnai'/Jón.
2. Páll/Jóhannes.
3. Þorsteinn/Witek.
„Bróðir minn Jón og Rúnar sonur
hans vinna, held ég mér sé óhætt að
segja. Það er erfiðara að gera upp á
milli hinna, en Páll Halldór er orð-
inn vanui' öðru sætinu og tekur það
líklega. Þorsteinn hefur verið seigur
að safna stigum, dettur í það
þriðja," sagði Omar.
Ólafur Sigurjónsson
Feðgarnir Rúnai' og Jón vinna á
reynslunni. Hinir hafa verið að elta
þá í sumar, það breytist vai't. Það er
kominn tími á að Páll taki á sínu
tæki og hann verður annar. Ég hef
tröllatrú á Hirti sem ökumanni og
hann kemui- nýja bílnum í þriðja
sætið. Verður fljótur að læra,“ sagði
Ólafur.
Fyrri sigurvegarar
1997 Sigurður B. Guðmundsson/Rögnvaldur Pálmason, Rover Metro
1996 Rúnar Jónsson/Jón R. Ragnarsson, Mazda
1995 Ásgeir Sigurðsson/Bragi Guðmundsson, Rover Metro
1994 Ásgeir Sigurðsson/Bragi Guðmundsson, Rover Metro
1993 Ásgeir Sigurðsson/Bragi Guðmundsson, Rover Metro
1992 Ásgeir Sigurðsson/Bragi Guðmundsson, Rover Metro
1991 Saku Viierima/Hasse Kallström, Lancia Delta
1990 Ólafur Sigurjónsson/Halldór Sigurjónsson, Talbot Lotus
1989 Ólafur Sigurjónsson/Halldór Sigurjónsson, Talbot Lotus
1988 Jón R. Ragnarsson/Rúnar Jónsson, Ford Escort
1987 Jón R. Ragnarsson/Rúnar Jónsson, Ford Escort
1986 Þórhallur Kristjánsson/Gunnlaugur Rögnvaldsson, Talbot Lotus
1985 Saku Viierima/Errki Vanhanen, Opel Manta
1984 Ómar Ragnarsson/Jón R. Ragnarsson, Toyota Corolla
1983 Ómar Ragnarsson/Jón R. Ragnarsson, Toyota Corolla
1982 Hafsteinn Hauksson/Birgir V. Halldórsson, Ford Escort
1981 Ómar Ragnarsson/Jón R. Ragnarsson, Renault 5
1980 Finn Ryhl Anderson/Jan Johansson, Datsun 160J