Morgunblaðið - 03.11.1998, Qupperneq 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur Jónsson og Þorlákur Traustason með hús ísafoldarprent-
smiðju að Þingholtsstræti 5 í baksýn.
GARfíl IR
S. 562-1211 562-1201
Skipholti 5
2 herbergja
Austurberg Snyrtileg 2ja herb.
íbúð á efstu hæð I góðri blokk. Verð:
4,9 millj.
Selvogsgrunn 2ja herb. tftii
en mjög snotur Ibúð á jarðhæð I
góðu húsi á þessum frábæra stað.
íbúðin er laus. Verð: 3,9millj.
Flúðasel 4ra herb. endaíbúð með
aukaherbergi á jarðhæð.101,4 fm. Góð
íbúð. Verð: 7,3 millj.
Álfholt Falleg 5-6 herb. íbúö, efri
hæð og ris, samt. 156 fm. Góð eign.
Áhvflandi 5,3 millj. húsbréf. Verð:
10,5 millj.
Engihjalli 4ra herb. falleg 97,4 fm
(b. á 3ju hæð. Tvennar svalir. Mikið
útsýni. Lyfta. Verð: 7,3 millj. Áhv. 3,6
millj.
Rauðás Glæsileg 6 herb. íb., hæð
og ris í litlu fjölbhúsi.Ef þú ert að leita
að stórri ib. í Selásnum, þá áttu að
skoða þessa. Verð: 10,7 mill
Krummahólar 2ja herb. góð
íbúð á 2. hæð. Verð: 4,3millj.
Fannborg 2ja herb. 48,2 fm sólrik
íb. á efstu hæð. Mjög stórar svalir. Nýtt
parket. Laus. Verð: 4,9 millj.
Hlíðarhjalli Vorum að fá [
einkasölu eina af vinsælu2ja herb.
íb. í tvíbýlishúsi. (búðin er stofa,
svefnherb., vandað eldhús, bað-
herb., þvottaherb. og forstofa. Sól-
pallur. Sérinngangur, sérhiti. Frábær
staður. Áhvíl. byggsj. ca. 5,1 millj.
3 herbergja
Ofanleiti Mjög falleg og góð 3ja
herb. íb. á 1. hæð í fjölb. Nýtt parket.
Nýmáluð. Þvottaherb. í íbúð. Miklar og
góðar innréttingar. Tvennar svalir og
sérgarður. Góð lán áhvílandi. Laus.
Hringbraut 3ja herb. lítil en
mjög góð íbúð á 2. hæð i litlu 4ra
íbúða húsi í gamla góða Vesturbæn-
um. Ibúðin er laus. Verð: 6 millj.
Spóahólar 3ja herb. íb. á 1. hæð í
3ja hæða fjölb. Laus. Áhv. 3 millj. góð
lán. Verð: 5,9 millj.
Raðhús - einbýlishús
Rauðagerði Einbýlishús, tvær
hæðir, samt. 302,7 fm. Á jarðhæð er
2ja herb. íb. Stór bilskúr. Garðskáli. Fal-
legur garður. Hús I góðu ástandi.
Flókagata Höfum tii söiu stórt
og gott hús á þessum vinsæla stað.
Húsið er tvær hasðir og kjallari, um
350 fm. Getur hentað hvort heldur
sem viröulegt einbýlishús eða gisti-
heimili, skrifstofur eða fyrir margvísl.
félagast. Bílskúr. Séribúð I kjallara.
Leitið nánariuppl.
Leiðhamrar Einbýlishús á einní
hæð með tvöf. bílsk. Húsið er mjög
vandaö að allri gerð og skiptist I stof-
ur, sjónvarpshol, 3 svefnherb.,
baðherb., eldhús, þvottaherb. og for-
stofu. Fallegur garður með heitum
potti. Friðsæll staður m. fallegu
útsýni. Hús fyrir vandláta. Verð: 21,0
millj.
Kári Fanndal Guðbrandsson,
Sigrún Sigurpálsdóttir,
lögg. fasteignasali,
Axel Kristjánsson hrl.
VANTAR - VANTAR!
Okkur vantar allar stærðir íbúða og húsa
á söluskrána okkar.
Höfum trausta og góða kaupendur að eignum í flestum
hverfum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og í Mosfellsbæ.
Ef þú vilt selja, vinsamlega hafðu samband.
Húsi ísafoldar-
prentsmiðju breytt
í íbúðahótel
Sú viðleitni á sér mikinn hljómgrunn
í þjóðfélaginu að endurnýja gömul hús og
fá þeim nýtt hlutverk. TVeir ungir menn
hafa keypt hús Isafoldarprentsmiðjunnar
að Þingholtsstræti 5 og eru langt komnir
með að breyta því í íbúðahótel með 19
íbúðum. Magnús Sigurðsson kynnti sér
framkvæmdirnar.
HÚSIÐ að Þingholtstræti 5 í
Reykjavík hefur lengi sitt svip
á umhverfi sitt. Það var byggt 1943
pg upphaflega reist fyrir starfsemi
ísafoldarprentsmiðju. í húsinu var
því lengst af rekin prentsmiðja og
bókband, en undanfarin ár hefur
verið þar veitingahús, verzlun,
vinnustofur o. fl.. Alls er húsið um
1480 ferm. Það er steinsteypt og
skiptist í þrjár hæðir fyrir utan ris
og kjallara.
Snemma á þessu ári keyptu tveir
ungir menn húsið í þvi skyni að gera
það upp og hafa þeir nú látið inn-
rétta 19 íbúðir og tvö skrifstofuher-
bergi á efri hæðum þess en breytt
götuhæðinni í verzlunarpláss. Ætl-
unin er að reka í húsinu svokallað
íbúðahótel. Þarna eru að verki þeir
Þorlákur Traustason og Guðmundur
Jónsson. Fyrirtæki þeirra heitir
Langastétt ehf., en þeir keyptu hús-
ið af Lánasjóði Vestnorðurlanda,
sem hafði leyst það til sín á uppboði.
„Framkvæmdir hafa gengið mjög
vel. Þær hófust í maí á þessu ári og
íbúðahótelið var formlega tekið í
notkun 1. nóvember sl., þó að fram-
kvæmdum við húsið sé ekki lokið,“
segja þeir Þorlákur og Guðmundur.
„Þetta eru litlar íbúðir, svokallaðar
stúdíóíbúðir og um 25 ferm. að inn-
anmáli að stærð. íbúðimar eru allar
tilbúnar að kalla og framkvæmdum
við verzlunarplássið á götuhæðinni
lauk í síðasta mánuði, en talsvert er
enn efth- af kjallaranum."
Allt nýtt nema steypan
A rishæðinni eru sjö íbúðir, á
þriðju hæð eru sex íbúðir og skrif-
stofupláss og á annarri hæð eru sex
íbúðir og skrifstofupláss. „Það má
segja, að húsið hafi verið í fokheldu
ástandi, miðað við fyrirhugaðar
breytingar, þegar við tókum við því
og að allt í því sé nýtt nema steyp-
an,“ segja þeir félagar, Þorlákur og
Guðmundur.
Allar lagnir eins og rafmagns-
lagnir og pípulagnir hafa verið end-
urnýjaðar. Gluggar og gler er nýtt,
allir milliveggir eru nýir og sama
máli gegnir um eldhús, salerni og
böð. Allt er nýmálað. Rishæð húss-
ins er í rauninni alveg ný, þó að hún
hafi hvorki verið hækkuð eða
breikkuð. En burðarviririnu í risinu
var breytt og bætt kvistum við
þessa hæð.
Kvistirnir eru hannaðir í stíl við
upphaflegt útlit hússins, þannig að
útkoman sé líkust þvi, sem slíkir
gluggar hafi verið á húsinu alla tíð.
Utsýnið frá þessum gluggum er afar
skemmtilegt og gefur íbúðunum á
rishæðinni mikið gildi.
Mikil áherzla er lögð á öll öryggis-
atriði við endurnýjun hússins. „Sam-
vinna okkar við byggingaryfirvöld í
Reykjavík hefur verið afar góð. Við
breytingamar á húsinu er farið eftir
ströngustu öryggisreglum, sem
gilda um hótel, að því varðar brun-
aivamir og annað af því tagi, enda
ekkert mikilvægara en að allir slíkir
þættir séu í fullkomnu lagi fyrir
starfsemi sem þessa,“ segja þeir fé-
lagar.
Fataverzlunin Spakmannsspjarir
er á götuhæð hússins. Þessi verzlun
var áður í 100 ferm. plássi í húsinu,
þegar þeir Þorlákur og Guðmundur
tóku við því, en er nú í 300 ferm.
húsnæði.
En era þetta framkvæmdir, sem
borga sig. „Við hefðum ekki farið út
í þær öðru vísi,“ segja þeir félagar.
„Ibúðirnar fara í útleigu til fyiir-
tækja og stofnana og margir aðilar
hafa þegar sýnt þeim áhuga. Flugfé-
lagið Atlanta hefur þegar afráðið að
taka heila hæð í húsinu á leigu í vet-
ur fyrir starfsmenn sína og gesti.“
Kostnaðaráætlun við þessar fram-
kvæmdir er um 130 millj. kr. og það
hefur gengið vel að fjármagna þær.
„Búnaðarbankinn tók að sér að fjár-
magna endurnýjun hússins, en í
bankanum hafa menn mikla trú á
þessum framkvæmdum, enda hefur
bankinn stutt mjög vel við bakið á
okkur og reynzt okkur mikill bak-
hjarl,“ segja þeir Þorlákur og Guð-
mundur.
Ahættan við að gera upp gömul
hús með þessum hætti er þó ávallt
töluverð. Þeir félagar telja samt
góðan fjárhagslegan gnindvöll vera
fyrir því að gera upp gömul hús og
breyta þeim fyrir annan rekstur eða
starfsemi, en bæta þó við: „Það er
alveg öraggt, þegar svona gamalt
hús er keypt, að það kostar alltaf
meira að gera það upp en gert var
ráð fyrir í upphafi."
Jafnframt þarf helzt að vera um
all stórar einingar að ræða og að
sjálfsögðu þarf að standa rétt að
framkvæmdum, svo að þær borgi
sig. Helztu mistökin, sem margir
gera, era þau að vera ekki búnir að
ákveða, hvað á að gera við húsið, áð-
ur en það er keypt.
„Það dugir eklri að byrja á því að
kaupa hús af þessu tagi og finna það
út síðan eftir á, til hvers hægt er að
nota það. En maður verður að vera
fljótur að hugsa, þegar hús sem
þetta koma á markaðinn og gera sér
grein fyrir möguleikunum, sem í
þeim felast,“ segja þeir félagar.
Margir óvissuþættir
Hjá þeim Þorláki og Guðmundi
starfa 25-35 iðnaðarmenn og þeir
vinna í tímavinnu en ekki sam-
kvæmt tilboðum. „Þegar verið er að
endumýja gamalt hús era óvissu-
þættimir svo margir, að það er mjög
erfitt að vinna verkið í tilboðsvinnu
og þegar framkvæmdin hefur verið
ÚTSÝNI frá íbúðunum á rishæðinni er afar skemmtilegt og gefur
íbúðunum mikið gildi.
FATAVERZLUNIN Spakmannsspjarir er á götuhæð hússins. Verzlunin var áður í 100 ferm. plássi í húsinu,
en er nú í 300 ferm. húsnæði.