Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 1
——————— ...... .................
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
♦
1998
U FIMMTUDAGUR 26. NOVEMBER
BLAÐ
Kristinn níundi
í Winter Park
KRISTINN Björnsson varð í níunda sæti í svigi í
Winter Park í Colorado í gærkvöldi. Þetta var alþjóð-
legt stigamót, ekki ósvipað Evrópubikarkeppninni að
styrkleika. Styi'kstig mótsins var 2,00 fis-stig og fékk
Kristinn 10,93 stig fyrir ái'angur sinn. Margir af kepp-
endum heimsbikarsins tóku þátt í mótinu til að hita
upp fyrir svig heimsbikarsins sem fram fer í Aspen á
laugardaginn.
Sigurvegari í mótinu var Giorgio Rocca frá Ítalíu,
sem fékk tímann 1.21,23 mín. Kristinn var á 1.22,48
mín. og var með þriðja besta brautartímann í síðari
umferð. Benjamin Raich, heimsmeistari unglinga frá
Austurríki, varð annar og Mitja Valencic, Slóveníu,
þriðji. Finninn Mika Marila varð fjórði og Rainer
Scönfelder, Austurríki, fimmti.
Meðal þeiiTa sem féllu úr keppni voru Japaninn
Kiminobu Kimura, Didier Plaschy, Frakklandi, og
Þjóðverjinn Markus Eberle, en þeir eru allir í fyrsta
ráshópi í heimsbikarnum.
HANDKNATTLEIKUR / UNDANKEPPNI HM
SEINNI leikur liðanna
er á sunnudag. Sér Þor-
björn Jensson fram á
breytingar á leikmanna-
hópnum fyrir þann leik?
„Ég er nú ekkert far-
inn að hugsa um það
ennþá, nú á ég eftir að
skoða leikinn aftur á
myndbandi og sjá hvað
borgar sig að gera í stöð-
unni.“
- Kemur ekki til greina
að kalla Róbert Julian
Duranona frá Þýska-
landi til að ná meiri ógn-
un ísóknarleikinn?
„Nei,“ sagði Þorbjörn
Jensson.
Getum gerl betur
„ÞETTA hafðist og tvö stig eru komin í hús,“ sagði Þorbjörn
Jensson, þjálfari íslenska landsliðsins, eftir sigurinn í gærkvöldi.
Við vorum með meiri forystu á
tímabili, mest sjö mörk, en
spiluðum mjög illa í lokin og misst-
um þetta niður.
Bjöm ingi Þetta segir okkur
Hrafnsson hins vegar að við
skrífar getum hæglega unn-
ið þá í Ungverja-
landi, ég er bjartsýnni fyrir þann
leik nú en ég var fyrir þennan
leik,“ bætti þjálfarinn við.
„Við tókum mjög vel á þeim og
stoppuðum þá alveg ótrúlega vel,“
sagði Þorbjörn ennfremur um
Ungverjana. „Við höfðum allan
tímann í fullu tré við þá og öll
þeirra skot í gegnum vörnina voru
af gólfinu og það segir okkur að við
þurfum að leika örlítið öðruvísi
vörn í útileiknum. Við verðum að
spila inn á jákvæðu hlutina í þess-
um leik og nýta okkur í seinni
leiknum."
Þorbjörn viðurkennir að íslenska
liðið hafi átt í vandræðum með vöm
Ungverjanna. „Við spiluðum of
mikið inn í vörnina hjá þeim, sem
er alls ekki rétta leiðin, og verðum
að breyta því íyrir seinni leikinn.
Menn voru að skjóta of fljótt og
biðu ekki eftir því að markvörður-
inn hreyfði sig fyrst. Við getum
gert betur, bæði í vöm og sókn.
Næsta verkefni okkar er að skoða
þennan leik lið fyrir lið til að sjá
hvað það var sem misfórst undir
lokin svo við sjáum hvers vegna við
misstum forskotið svona niður.“
- Kom eitthvað þér á óvart í leik
Ungverjanna?
„Nei, alls ekki. Þeir voru ná-
kvæmlega eins og ég átti von á.
Þeir leika eftir ákveðinni rútínu,
enda margir frá sama félagsliðinu
og ná þess vegna mjög vel saman,"
sagði Þorbjöm Jensson.
AEK AÞENA HAFNAÐI 70 MILLJ. KR. TILBOÐI PSG í ARNAR GRÉTARSSON / C3