Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 B 3
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
AEK hafnaði 70 millj.
kr. tilboði PSG í Arnar
AKSTURSÍÞRÓTTIR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN í RALLI
FOLK
■ GERARD Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, hefur fest kaup á
Frode Kippe, miðverði Lilleström -
félags Rúnars Kristinssonar. Kaup-
verðið hefur ekki verið gefíð upp.
Kippe verður fímmti Norðmaður-
inn á Anfield, en fyrir eru þeir Veg-
ard Heggem, Stig Inge Björnebye,
Björn Tore Kvarme og Oyvind Le-
onardsen.
■ FRODE Kippe, sem leikur með
U-21 árs landsliði Noregs, er hávax-
inn og sterkbyggður og átti mjög
gott tímabil með Lilleström í
norsku deildinni í sumar. Hann var
einn fjögurra lykilmanna Lilleström
sem félagið verður að selja vegna
fjárhagsörðuleika; Brann hefur
þegar keypt markvörðinn Magnus
Kilsted. Rúnar Kristinsson er að
skoða aðstæður hjá Aberdeen en
Mamadu Diallo á í erfiðum meiðsl-
um og verður sennnilega ekki seld-
ur í bili.
■ LIVERPOOL er á eftir fleiri leik-
mönnum. Þannig er talið fullvíst að
franski miðvörðurinn Jean-Michel
Ferri gangi í raðir félagsins á næstu
dögum frá tyrkneska félaginu Ist-
anbulspor.
■ FERRI er 29 ára gamall og lék
fímm landsleiki á sínum tíma með
franska landsliðinu, sem þá var
undir stjóm Gerards Houlliers, nú-
verandi stjóra Liverpool. Talið er
að kaupverð leikmannsins verði
tæplega tvöhundruð milljónir
króna.
■ BRYNJAR Valdimarsson sigraði
Jóhannes B. Jóhannesson auðveld-
lega um helgina, 5:0, í úrslitaleik
fjórða og síðasta stigamóts BSSÍ í
snóker á þessu ári. í þriðja til fjórða
sæti urðu Arnar Petersen og Jó-
hannes R. Jóhannesson.
■ ARNAR Richardsson sigraði í 1.
flokki en í öðru sæti varð Örvar
Guðmundsson.
■ MIKA Hakkinen heimsmeistari í
Formulu 1 kappakstri var um síð-
ustu helgi kjörinn íþróttamaður
ársins 1998 í Finnlandi af Samökum
íþróttafréttamanna þar í landi.
Hakkinen fékk tæplega tvo þriðju
greiddra atkvæða.
■ MIKA Myllyla skíðagöngumaður
og ólympíumeistari í 30 km göngu
og bronsverðlaunahafi í 10 km
göngu og boðgöngu hreppti annað
sætið í kjöri finnska íþróttafrétta-
ritara.
Heimsmeistaratitillinn fauk út í veður og vind hjá Sainz
Kviknaði í bflnum 350
metrum frá marki
Finninn Tommi Makinen varð
heimsmeistari í rallakstri þriðja
árið í röð á þriðjudagskvöld eftir
sögulega keppni í breska rallinu.
Allt benti til að Spánverjinn Carlos
Sainz yrði heimsmeistari, en svo
óheppilega vildi til að það kviknaði í
bfínum þegar hann átti aðeins 350
metra eftir ófarna í markið.
Makinen, sem féll úr keppni á
fyrstu sérleið á sunnudag, sat á
hótelherbergi og var að undirbúa
sig fyrir flug heim til Finnlands
þegar Sainz færði honum titilinn
nánast á silfurfati. Munurinn á
þeim var aðeins tvö stig.
Sainz var ekki skemmt eftir
óhappið. „Þetta er það versta sem
hefur komið fyrir mig. Ég náði
ekki að komast í mark því vélin gaf
sig þegar ég átti innan við hálfan
kílómetra eftir af 589. Þetta er ekki
sanngjarnt. Það er ekki hægt að
hugsa sér ömurlegri endi á keppn-
istímabilinu," sagði Sainz sem
nægði fjórða sætið til að verða
meistari og var í því sæti þegar
óhappið átti sér stað. „Það er varla
hægt að lýsa því í orðum hvernig
mér líður. Við vorum með titilinn í
höndunum og ætluðum því að
keyra af öryggi í markið, þurftum
ekki að taka neina áhættu. Svo
rauk þetta út í veður og vind eins
og hendi væri veifað. Þetta er ótrú-
legt.“
„Ég er auðvitað mjög ánægður,
en þetta var óvænt. Ég beið á hótel-
inu í tvo daga eftir að keppnin
kláraðist, svona rétt til að vera við-
staddur ef Sainz myndi mistakast.
Það er frábær tilfinning að fagna
heimsmeistaratitlinum aftur, eða í
þriðja sinn,“ sagði Makinen. „Auð-
vitað vorkenni ég Carlos Sainz. Ég
veit að allt getur gerst i rallakstri
því þannig er þessi íþrótt.“
Sigurvegari í rallinu á þriðjudag
var heimamaðurinn Richard Burns
á Mitsubishi. Finninn Juha
Kankkunen varð annar á Ford
Escort og Belginn Bruno Thiry
þriðji á Ford.
Finnar geta verið ánægðir því nú
eiga þeir bæði heimsmeistarann í
rallakstri og Formulu 1 kappakstri.
Beckenbauer
bestur í
Þýskalandi
FRANSKA félagið París St. Germain gerði um helgina gríska
liðinu AEK tilboð í Arnar Grétarsson upp á eina milljón
dollara eða 70 milljónir íslenskra króna. Forseti AEK hafnaði
tilboði franska liðsins og sagði að Arnar væri ekki til sölu.
Eg var spenntur iyrir því að
fara til Frakklands og hefði
slegið til og var því frekar von-
svikinn að félagið tæki ekki tii-
boðinu. Frakkarnir komu hingað
til Aþenu á laugardag og ræddu
þá við mig. Þeir horfðu síðan á
leik okkar við Ionkos sem við
unnum 2:1 á sunnudag. Um
kvöldið lögðu þeir inn formlegt
tilboð upp á milljón dollara og var
því hafnað,“ sagði Arnar.
„Ég ræddi við forseta AEK um
þessi mál í gær og spurði hvað
hann ætlaðist fyrir með mig.
Hann sagðist bjóða mér nýjan
samning fyrir jól og það yrði ör-
ugglega góð jólagjöf. Ef ég sætti
mig ekki við það sem hann býður
get ég leikið út samningstímann
sem er til janúar árið 2000 og far-
ið þá laus allra mála. Forsetinn
sagði að honum hefði líka borist
tilboð frá ensku liði upp á 1,5
milljónir punda og því hafí líka
verið hafnað,“ sagði Arnar. Hann
sagði að forsetinn ætlaði sér að
koma AEK í Meistaradeild Evr-
ópu og því seldi hann ekki bestu
leikmenn liðsins.
Blokhin tekur við
þjálfun AEK
AEK hefur verið þjálfaralaust
í þrjár vikur, eða síðan
serbneska þjálfaranum Drag-
ARNAR Grétarsson
oslav Stefanovic var sagt upp. Til
skamms tíma var talið líklegt að
Rúmeninn Anghel Iordanescu
tæki við liðinu, en hann er nú
þjálfari gríska landsliðsins. Rík-
isstjórnin hótaði að afturkalla at-
vinnuleyfí hans ef hann hætti
með landsliðið. I gær var síðan
ákveðið að Rússinn Oleg Blokh-
in, sem var knattspyrnumaður
Evrópu 1975 er hann lék með
Dynamo Kiev, tæki við liðinu.
Blokhin hefur verið þjálfari hjá
nokkrum grískum liðum, m.a.
Olympiakos.
Arnar sagði að gengi liðsins
hefði verið framar vonum eftir að
það var slegið út úr 1. umferð
bikarkeppninnar af 3. deildar liði
frá Saloniki fyrir tíu dögum. „Við
erum nú í öðru sæti í deildinni,
tveimur stigum á eftir Pan-
athinaikos."
FRANZ Beckenbauer, eða „Keis-
arinn“ eins og hann hefúr oft verið
kallaður, var kjörinn besti knatt-
spymumaður aldarinnar í Þýska-
landi í kjöri blaðamanna og sér-
fræðinga um knattspyrnu sem Al-
þjúða samband knattspymusagn-
fræðinga og -tölfræðinga, IFFHS,
stúð fyrir.
Beckenbauer lék með þýska
landsliðinu sem varð heimsmeist-
ari 1974, liðinu sem fékk silfur á
Wembley 1966 og brons í Mexíkú
1970. Hann var þjálfari heims-
meistaraliðs Þýskalands á Italíu
1990.
Gerd Miiller, samheiji Becken-
bauers í landsliðinu sem varð
heimsmeistari 1974, varð í öðm
sæti og Fritz Walter, fyrirliði
heimsmeistara Þýskalands 1954,
hafnaði í þriðja sæti.
í janúar útnefnir IFFHS knatt-
spymumann Evrúpu á öldinni og
em sjö leikmenn tilnefndir: Beck-
enbauer, Englendingurinn Bobby
Charlton, HoIIendingurinn Johan
Cmyff, Spánveijinn Alfredo di
Stefano sem fæddist í Argentínu,
Portúgalinn Eusebio, Ungveijinn
Ferenc Puskas og Frakkinn Michel
Platini.
Reuters
SPÁNVERJINN Carlos Sainz gengur þungum skrefum frá brennandi bifreið sinni um leið og aðstoðarökumaður hans, Luis Moya, sýnir
reiði sína með því að sparka í bifreiðina.