Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 5

Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 5
4 B FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER1998 HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ 13 28 46 F.h 10 27 37 9 26 35 S.h 9 26 35 22 54 41 Alls 19 53 36 2 Langskot 6 4 Gegnumbrot 0 6 Hraðaupphlaup 4 3 Horn 3 4 Lína 4 3 Víti 2 Morgunblaðið/Golli BJARKI Sigurðsson sendir knöttinn í netið hjá Ungverjum. SÓKNAR- S NÝTING VáP Undankeppni HM: 4. riðill Tuttugasti nýliðinn BIRKIR fvar Guðmundsson er tuttugasti nýliðinn sem leikur undir stjórn Þorbjörns í þeim 73 leikjuin sem hann hefur stjórnað lands- Iiðinu. Þar af hafa fimm nýliðar staðið í markinu, Sigtryggur Al- bertsson, Hlynur Jóhannesson, Reynir Þór Reynisson, Elvar Guð- mundsson og Birkir ívar. RÓBERT Sighvatsson línumað- ur stóð sig vel og gerði fjögur mörk af línunni. „Ég er ánægð- ur með sigurinn en hann hefði mátt vera stærri. Við vorum klaufar á tíu mínútna kafla í síðari hálfleik þegar við misst- um forystuna úr sjö mörkum niður í þrjú. Við erum þó enn með í keppninni um sæti á HM í Egyptalandi og það er fyrir mestu,“ sagði hann. Hann stóð í ströngu á línunni og fékk oft óblíðar viðtökur. „Ég er vanur þessu, enda ekkert ósvipað og gerist í þýska handboltanum. Mér fannst þetta ekkert öðruvísi en venjulega í mikilvægum leikjum. Leikmenn taka á öllu sem þeir eiga. Þegar við vorum að missa forskot- ið niður í síðari hálfleik ætluðum við að taka tvö skref í einu í stað þess að taka bara eitt. Við vorum of bráðir í sókninni og því fór sem fór. Við átt- um að halda áfram að byggja upp eins og við gerðum í fyrri hálfleik og fram í miðjan seinni. Það vantaði skynsemina í sóknarleikinn. Ég er hins vegar mjög ánægður með vörn- ina og Guðmundur varði vel.“ Hann sagðist bjartsýnn fyrir síð- ari leikinn. „Við getum alveg unnið Ungverja á útivelli þó svo að það verði erfitt. Mér skilst að þeir séu með mjög sterkan heimavöll og við verðum að vera tilbúnir að gefa allt sem við eigum og helst aðeins meira. Við þurfum að spila betur á útivelli, sérstaklega í sókninni.“ Var ekki söknuður í liðinu að hafa ekki Geir Sveinsson með? „Jú, auð- vitað hefði verið betra að hafa hann með. En ég held að við höfum þjapp- að okkur jafnvel enn betur saman vegna fjarveru hans. Þetta sýnir að við erum með breiðan hóp og að það kemur maður í manns stað.“ Júlíus fimmti fyrirlið- inn FIMM fyrirliðar hafa verið í leikjum landsliðsins síðan Þor- björn Jensson tók við því 1995. Geir Sveinsson hefur oftast verið fyrirliði, eða í 45 leikjum, Valdimar Grímsson í tólf, Dagur Sigurðsson í tíu, Gústaf Bjarnason í þremur leikjum, í móti í Svíþjóð í byrj- un ára og Júlíus Jónasson í þremur leikjum - gegn Ung- verjum í gærkvöldi og í tveim- ur leikjum í Japan á á dögun- um, gegn Kína og Japan. Birkir áttundi nýliðinn við hlið Guðmundar BIRKI ívar Guðmundsson, Stjörnunni, var áttundi nýliðinn sem hefur staðið við hlið Guðmundar Hrafnkelssonar markvarðar, siðan Guðmundur lék sinn fyrsta landsleik 1986. Þá var Guð- mundur nýliði við hliðina á Brynjari Kvaran á Friðarleikunum í Moskvu. Hinir sjö nýliðamir sem hafa verið teknir í „kennslu" hjá Guðmundi, eru Bergsveinn Bergsveinsson 1987, Gísli Felix Bjamason 1987, Páll Guðnason 1990, Bjarni Frostason 1994, Sigtrygg- ur Albertsson 1996, HQynur Jóhannes- son 1997 og Reynir Þór Reynisson 1997. Guðmundur, sem hefur leikið við hliðina á fimmtán markvörðum, byij- aði sem lærisveinn, Bryiyars Kvaran, Einars Þorvarðarsonar og Krisljáns Sigmundssonar. Aðrir markverðir sem hann hefur leikið með, sem ekki hafa verið nefndir, eru Hrafn Margeirsson, Sigmar Þröstur Oskarsson, Leifur Dagfinnsson og Elvar Guðmundsson. Guðmundur hefur leikið 293 leiki með Iandsliðinu frá því að hann lék sinn fyrsta leik gegn Sovétríkjunum 1986, þar af 285 A-landsleiki. Gústaf Bjamason kom nú inn í liðið eftir töluverða fjarveru vegna meiðsla. Hann stóð sig með prýði og var markahæstur Islend- inga með fimm mörk. „Það er gam- an að koma aftur inn í landsliðið, sérstaklega í svona alvöruleik. Þó að maður detti út í nokkra mánuði þá hef ég engu gleymt og þetta eru allt sömu andlitin og ég spilaði með áður. Þeir þekkja mig og ég þá,“ sagði Gústaf. „Við spiluðum af hundrað pró- sent krafti fram eftir öllum leik. En það kostar gífurlega orku og það bitnaði á okkur í lokin. Þá misstum við niður smáeinbeitingu Erfiðleikar eru til að sigrast á vegna þreytu. Mér fannst rosalega mikill hraði í leiknum og það tekur sinn toll. Við unnum mjög vel í vörninni og það kostaði þetta mikla orku. Með smáheppni hefði þetta endað öðruvísi, því við vorum óheppnir að nýta ekki betur öll þau góðu færi sem við fengum. Það er ljóst að við þurfum að ná í stig í Ungverjalandi. Við för- um í hvern leik til að vinna og gerum það líka í Ungverjalandi. Þetta er reynt lið og ég vona að við getum nýtt okkur það. Við höfum áður sigrast á erfiðleikum, enda eru þeir til að sigrast á,“ sagði Gústaf. Of bráðir sókninni í lokin i MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 B 5 HANDKNATTLEIKUR Hálfnað er verk þá... ÞRÁTT fyrir að íslenska landsliðinu tækist ætlunarverk sitt í Laugardalshöll í gærkvöldi, þ.e.a.s. að vinna Ungverja, var ekki laust við að margir væru ekki fullsáttir. Þriggja marka sigur, 22:19, hefði mátt vera nokkru stærri. Möguleikinn var fyrir hendi þar sem munurinn var sjö mörk er hálf tólfta mínúta var eftir, 21:14. Þá var sem íslenska liðinu félli allur ketill í eld, botnin datt úr sóknarleiknum, sem hafði reyndar verið brokkgengur. Ekki var laust við að hugurinn leitaði til þýsku borgarinnar Eisenach og eins íbúa hennar, Julians Duranona. ■ Síðustu tólf mínútumar bauð ís- lenska liðið upp á fátt annað en fum og fát í sóknarleiknum, oft jaðr- aði við töf og aðeins tvö mörk voru gerð úr síð- ustu 11 upphlaupunum. Frábær vamarleikur ís- lenska liðsins og stór- markvarsla Guðmundar Ivar Benediktsson skrífar brotin Hrafnkelssonar megnuðu ekki að halda í horfinu ein og sér. Ungverjar gengu á lagið, gerðu fjögur mörk í röð og fógnuðu líkt og um sigurmark væri að ræða er þeir minnkuðu mun- inn í þrjú mörk, 21:18. Sigur var ís- lenska liðinu nauðsynlegur, hann hefði svo sannarlega mátt vera stærri, það hefði verið gott veganesti. tBWuUBi Morgunblaðið/Golli Messa hjá Þorbirni ÞORBJORN Jensson, landsliðsþjálfari íslands, ræðir hér við sína menn í leikhléi í gærkvöidi. Á stóru myndinni sést Gústaf Bjarna- son, sem kom á ný inn í landsliðið eftir meiðsli, skora eitt af mörkum sínum. Gústaf lék mjög vel. Fyrirliðinn Geir Sveinsson órólegur uppi á áhorfendabekkjum Ánaegður með vöm- ina og markvörsluna Steinþór Guðbjartsson skrifar Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik undanfarin ár, fylgdist með félögum sínum ofan úr áhorf- endabekkjum og var allt annað en rólegur. „Það var mjög erfitt að horfa á leikinn og geta ekki gert það sem ég er vanur að gera í leikjum,“ sagði hann við Morgunblaðið. „En svo furðulegt sem það er fannst mér ég vera undir meira álagi uppi í stúku en ég á að venjast inni á vellinum. Ég get tekið undir það að ég var órólegur, þegar Ungverjarnir voru að saxa á for- skotið síðasta stundarfjórðunginn." Þegar þó nokkuð var liðið á leik- inn fór Geir að bekknum hjá ís- lenska liðinu. „Tilfellið er að uppi í stúku má sjá margt sem fer kannski framhjá manni í hita leiksins innan vallar. Þegar næði gefst til eins og í mínu tilfelli að þessu sinni er auðvelt að sjá að betra getur reynst að taka aðrar ákvarðanir en hafa verið tekn- ar. Þess vegna fór ég að bekknum, að benda Júlla á að þeir mættu alls ekki gleyma Éles [nr. 6] og Sótonyi [nr. 4]. Ljóst var að sóknarleikur Ungverja snerist fyrst og fremst um þessa menn og þeir luku sóknunum. ísland - Ungveijaland Því skipti öllu máli að stöðva þá og ég sagði Júlla að þeir yrðu að ein- beita sér að því.“ Éles gerði sex mörk og Sótonyi fjögur, þar af síðasta mark leiksins, en hann er samherji Sigfúsar Sig- urðssonar hjá Caja Cantabria á Spáni. „Eins og staðan er núna er 22:19 Laugardalshöll, undankeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik, 4. riðill, fyrri leikur þjóðanna, miðvikudaginn 25. nóvember 1998. Gangur leiksins: 1:0, 2:1, 3:3, 5:3, 7:4, 8:6, 10:6, 12:7, 13:10, 13:11, 14:12, 17:12, 18:14, 21:14, 21:18, 22:18, 22:19. Mörk fslands: Gústaf Bjamason 5, Róbert Sighvatsson 4, Valdimar Grímsson 4/3, Patrekur Jóhannesson 4, Ólafur Stefánsson 4, Bjarki Sigurðsson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 17 (þaraf 4 til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Ungvcija: József Éles 6/2, László Sótonyi 4, György Zsigmond 4, István Pásztor 3, István Gulyás 1, Balázs Kertész 1. Varin skot: Janos Szatmári 17/1 (þaraf 11/1 til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Vaclav Kohout og Ivan Dolejs frá Tékklandi. Dæmdu all vel, alls ekki hægt að segja að þeir hafi verið hliðhollir gestunum. Áhorfendur: 3.400. markatala okkar og Ungverja jöfn þegar leikir Sviss eni teknir með í reikninginn. Veðbankar hljóta að reikna með því að Ungverjar fari áfram í úrslitakeppnina en þetta er langt því frá að vera búið hjá okkur, því strákarnir léku að mörgu leyti vel og geta haldið því áfram. Ég var sérstaklega ánægður með varnar- leikinn og markvörsluna en þessir þættir voru til fyrirmyndar nánast allan leikinn. Vegna þessa fengum við mörg hraðaupphlaup en því mið- ur nýttust þau ekki sem skyldi." Geir sagði að sigurinn skipti öllu. „Þegar staðan breyttist úr 21:14 í 21:18 var óðagotið of mikið. Menn ætluðu sér of mikið í hverri sókn. Hins vegar var ég ánægður með sig- urinn og leikmennirnir lögðu sig gíf- urlega vel fram. Baráttan var frá- bær og ekki vantaði viljann og metnaðinn til að ljúka leiknum með sigri.“ Frá fyrstu mínútu var vamarleikur Islands góður, öflug 5-1 vöm, stjórn- að af vökulum huga fyrirliðans og besta leikmanns vallarins, Júlíusar Jónassonar. Hann var óþreytandi að hvetja félaga sína til dáða. Enginn vafi lék á að sóknarleikur Ungverja hafði verið rækilega skoðaður, ekkert í honum sló vömina út af laginu. Hins vegar fóru aðvörunarljós fljótlega að blikka í sóknarleiknum. Eins og reiknað hafði verið með léku gestimir 3-2-1 vöm sína, þá skorti á dirfsku og áræði lykilmanna. Alltof mikið var um mistök hjá Degi Sigurðssyni og síðast en ekki síst Ólafi Stefánssyni, sem náði sér aldrei á strik og gerði sig sekan um aragrúa mistaka sem er harla óvenjulegt af þessum snjalla sóknarmanni. Patrekur Jóhannesson gerði hvað hann gat og Gústaf studdi hann vel, en minna fór fyrir Valdi- mari Grímssyni og þá sérstaklega Bjarka Sigurðssyni í hægra horninu enda h'tinn stuðning að fá frá Ólafi. Það var hins vegar áðumefndur varn- ai’leikur sem skilaði íslenska liðinu því frumkvæði sem það náði snemma leiks og hélst til hálfleiks, staðan þá 13:10. Munurinn hefði hæglega getað orðið meii’i ef eitthvert þeirra fjög- urra hraðaupphlaupa sem fóru for- görðum hefði verið nýtt. Framan af síðari hálfleik lék ís- lenska liðið allvel í sókninni. Fram- liggjandi vöm Ungverja hafði ekki eins mikil áhrif og gestimir höfðu vonað. Síðast en ekki síst héldu vöm- in og Guðmundur áfram að fara ham- förum og Ungverjar vora að brotna er þeir léku út síðasta ás sínum. Hann fólst í að bakka aftur í flata vörn og þá vora góð ráð dýr hjá íslenska lið- inu. Enginn gat tekið af skarið. Ólaf- ur hélt uppteknum hætti og Dagur einnig, Patreki gekk allt í mót og hann skipti við Sigurð Bjamason, sem stóðst ekki álagið og ógnaði ekk- ert. Róbert Sighvatsson, sem hafði fengið úr talsverðu að moða á línunni og átt stórgóðan leik bjó við stöðugt þröngari kost. Möguleikarnir voru því fáir, nauðsynlega vantaði mann- inn í Eisenach, eini íslenski hand- knattleiksmaðurinn fyiir utan Sigurð Sveinsson sem um þessar mundir getur skotið á markið af 10 til 11 metram. Hálfnað er verk þá hafið er, segir máltækið. Nú verður íslenska liðið að láta kné íylgja kviði í síðari leiknum nk. sunnudag. Eftir þessum leik að dæma er það íslenska mim sterkara en vissulega verður erfítt að sækja Ungverja heim. Vömin er sterk og markvarslan sömuleiðis. Sóknin var hins vegar upp og ofan. Þrátt fyrii’ það var liðið að skapa sér mikið af færum gegn framliggjandi vörn Ung- verja. Því miður fóru mörg færanna í súginn. En með viðlíka frammistöðu ytra og að því viðbættu að lykilmenn taki sig saman í andlitinu og færi verði nýtt betur verður að telja mögu- leika íslenska landsliðsins á að tryggja sér farseðilinn til Egyptalands næsta vor góða. Það sem einu sinni hefur gerst, getm’ alltaf gerst aftur. Bjarki fékk blóm BJARKI Sigurðsson fékk í gærkvöldi blóm fyrir sinn tvö- hundraðasta landsleik, sem hann Iék gegn Kínverjum í llirosima í Japan 25. júní í sumar, en þá skoraði hann 12 mörk í sigurleik 29:19. Bjarki liefur leikið 210 leiki ineð landsliðinu siðan hann lék sinn fyrsta landsleik í ferð með landsliðinu til Bandaríkj- anna 1987, þar af 206 a-Iands- leiki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.