Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 6
£ B FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER1998
MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN OG UNGLINGAR
STÚLKUM frá Gróttu gekk vel í 3. þrepi. í aftari röð eru þær
Harpa Snædís Hauksdóttir og Halldóra H. Hannesdóttir og fyrir
framan þær eru Erna Svanhvít Hreinsdóttir, Hildur Þorsteins-
dóttir og Hildur Þórðardóttir.
Gróttustúlkur voru
ánægðar í mótslok
GRÓTTUSTÚLKUR voru í sjö-
unda himni yfir árangrinum, en
stúlkur frá félaginu létu mikið að
sér kveða í keppninni á þriðja þrepi
í Armannsheimilinu sl. sunnudag.
Þrjár þeirra komust á verðlauna-
pall, en það voru þær Hildur Þórð-
ardóttir, sem sigraði í fjölþraut í
flokki þrettán ára og eldri, og Hall-
dóra Hanna Hannesdóttir sem
hafnaði í 3. sæti í sama flokki. Þá
sigraði Harpa Snædís Gunnars-
dóttir í flokki tíu ára og yngri.
Stúlkurnar æfa alla daga vikunnar
að undanskildum sunnudögum og
voru sammála um að erfiðið hefði
borgað sig.
„Við erum ekki alltaf ánægðar
með þær einkunnir sem við fáum
frá dómurunum, en ég held að við
getum ekki kvartað núna,“ sagði
ein þeiixa.
Kjarkur
og þor
FLESTIR íþróttamenn ráða
ekki við að stökkva aftur fyrir sig
á gólfi, hvað þá á tíu sentimetra
breiðri slá í spennandi keppni,
enda er það varla á færi nema
fremsta fimleikafólks. Sif Páls-
dóttir, ellefu ára gömul fimleika-
stelpa úr Armanni, lét sig ekki
muna um að sýna þetta stökk,
sem fimleikafólk kallar „flikk“ á
mótinu í fimleikastiganum um
síðustu helgi. Kannski hafa tilþrif
hennar á myndinni hér til hliðar
átt stóran þátt í að hún fékk
hæstu einkunn á jafnvægisslánni
í sínum flokki.
Ekki hægt
að hætta!
UM eitt hundrað ungmenni tóku
þátt í móti í Fimleikastiganum sem
haldið var í íþróttahúsi Gerplu og
Armanns um síðustu helgi. Fim-
leikasambandið gekkst fyrir mótinu
ÞEGAR illa gengur langar mann
stundum til að hætta, en það er
eins og það sé ekki hægt. Fimleik-
arnir toga alltaf í mann, því það er
svo gaman þegar vel gengur,“
sagði Anna Huld Ólafsdóttir, sigur-
vegari í fyrsta þrepi 13 ára og
eldri.
Anna Huld, sem æfir hjá Gerplu,
bar sigurorð af Ingu Rós Gunnars-
dóttur, Gerplu, og Völu Védísi
Guðmundsdóttur, Armanni. Verð-
launahafamir æfa allir í sautján til
átján klukkustundir í viku hverri
og munu eflaust láta að sér kveða í
frjálsum æfingum eftir áramót.
INGA Rós Gunnarsdóttir, Anna Huld Ólafsdóttir og Vala Védís
Guðmundsdóttir fengu hæstu einkunnir í fjölþraut.
Morgunblaðið/Frosti
ÁSDÍS Guðmundsdóttir, Sif Pálsdóttir og Tanja Björk Jónsdóttir
komust á verðlaunapall fyrir æfingar 12 ára og yngri í fyrsta
þrepi Fimleikastigans.
Nýlt fimleikamót
sem er eitt það fyrsta sem fimleika-
fólki stendur til boða í vetur. Enn er
nokkur haustbragur á fimleikafólki,
en kannski ekki nema von, vertíðin
hefst ekki af alvöru fyrr en í febrúar
þegar flest helstu mót vetrarins
fara fram.
Mótið, sem einfaldlega var kallað
Fimleikastiginn, hófst með keppni í
fjórða þrepi, sem haldið var sl.
fimmtudagskvöld í umsjá Gerplu og
þar mættu um sextíu keppendur til
leiks. A sunnudaginn sáu Armenn-
ingar um að halda mót fyrir fyrsta
og þriðja þrep stúlkna. Keppni í
þriðja og fjórða þrepi byggist upp á
því að keppendur framkvæma
skylduæfingar í ákveðinni röð á
áhöldunum fjórum, en meira frjáls-
ræði er í æfingum á fyrsta þrepi.
Framundan er tími jólasýninga,
sem einstök félög halda. Til að
mynda halda Armenningar upp á
110 ára afmæli sitt 13. þessa mánað-
ar og þeim tímamótum verður vel
fagnað af fimleikafólki félagsins
sem og öðrum.
HANDBOLTI / ÍSLANDSMÓT FIMMTA FLOKKS DRENGJA
Víkingur og Fram kepptu um gullið hjá A-liðum
ÖNNUR umferð Islandsmótsins í
fimmta aldursflokki drengja,
Landssímamótið, var haldin í
Breiðholti helgina 20.-22. síðasta
mánaðar. Keppendur á mótinu
voru 426 talsins, frá 37 liðum, og
Ieikið var á tveimur völlum sam-
tímis, í íþróttahúsinu við Austur-
berg og í Iþróttahúsi Fellaskólans.
Helstu úrslit urðu þau að Víking-
ur sigraði Fram í úrslitaleik A-liða
16:14, en IR hafnaði í þriðja sæti
eftir baráttusigur gegn Haukum,
12:11.
í flokki B-liða sigruðu Haukar
Fram 12:7 í úrslitaleik, en Aftur-
elding lagði FH í leik um þriðja
sætið, 26:15.
Lið frá KA hrósaði sigri í C-liða-
keppninni, en Hafnarfjarðarfélögin
Haukar og FH höfnuðu í 2. og 3.
sæti.
Landssíminn styrkti þessa um-
ferð Islandsmótsins og gaf öllum
þátttakendum bol auk þess sem
leikmenn efstu þriggja liðanna hjá
A-, B- og C-liðum fengu verðlauna-
peninga til minningar um árangur-
inn.
'Z-u V
1 i1 m' * & «1 k
3 'A> n
nw.i-6 Í-'W:
VÍKINGSLIÐIÐ sem sigraði í A-liðakeppni í annarri umferð íslandsmótsins í fimmta
flokki. Aftari röð frá vinstri: Barbara Fischer þjálfari, Brynjar Hreggviðsson, Vil-
hjálmur Ólafsson og Andri M. Númason. Fremri röð frá vinstri: Stuðningasamður,
Helgi Ö. Hafsteinsson, Sæþór F. Sæþórsson fyrirliði, Arnar M. Magnússon, Emil Ás-
v grímsson, Sverrir Hermannsson og Gunnar Magnússon þjálfari.
FRAMARAR höfnuðu í 2. sæti í keppni A-liða. Aftari röð frá vinstri: Jón Eggert
Finnsson þjálfari, Gunnar Þ. Gunnarsson, Hermann E. Hreinsson, Halldór Arin-
bjarnarson, Kristján Hauksson og Kristján Andrésson, Fremri röð frá vinstri: Jón
Orri Ólafsson, Maríus Þ. Haraldsson, Jóhann G. Einarsson, Vilhjálmur Steingríms-
son, Ólafur Markússon og Nikolay Titov þjálfari.