Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 7

Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ _________________FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 B ? BÖRN OG UNGLINGAR Fámennt en góðmennt hjá 3. flokki kvenna í handknattleik Sigur Fylkis kom á óvarl FÁMENNT en góðmennt gæti ver- ið yfíi'skriftin á íslandsmótinu í þriðja flokki kvenna í handknattleik í vetur. Það er ekki neitt nýtt að margar stúlkur hætti í íþróttum á unglingsaldri, en ástandið hefur lík- lega sjaldan verið jafn slæmt og í vetur og það mátti vel merkja það á auðum varamannabekkjum liðanna sem tóku þátt í 2. umferð íslands- mótsins í 1. deild í íþróttahúsinu í Austurbergi um síðustu helgi. Þrettán félög tefla fram liðum í þessum flokki, en af þeim fimm sem tóku þátt í keppninni í efstu deild um síðustu helgi, var aðeins eitt þeirra sem gat teflt fram vel setn- um varamannabekk. Það var Fylk- isliðið, sem kom upp úr 2. deildinni í haust og flestum að óvörum stóð uppi sem sigurvegari frá þessari umferð. Valsstúlkurnar, sem urðu í efsta sæti í fyrstu umferð mótsins í Vestmannaeyjum, þurftu að þessu sinni að berjast fyrir sæti sínu í deildinni. Kom okkur ekki á óvart „Það kann að hafa komið öðrum á óvart að við skyldum sigra, en okkur finnst þepsi sigur ekki óvæntur," sagði íris Dögg Mar- teinsdóttir, fyrirliði Fylkis, sem vann sig upp úr 2. deild í fyrstu um- ferð mótsins. „Flestar stelpurnar í liðinu urðu Islandsmeistarar í fjórða flokki í fyrra og við höfum æft vej í vetur og það skilaði sér,“ sagði íris. Hún neitaði því ekkfyað mikill dagamunur hefði verið á Ar- bæjarliðinu, sem sigraði örugglega í leikjum sínum við FH og IR á laugardaginn, en átti erfitt upp- dráttar gegn ÍBV og Val daginn eftir. „Við hefðum átt að fara létt með IBV-liðið sem var manni færra, en lentum í basli og töpuðum síðan gegn Val. Miðað við þessa leiki mætti segja mér að það verðum við, Valur og FH sem berjumst um titil- inn, en fleiri lið, eins og til dæmis IR, koma einnig vel til greina." Handknattleiksdeild Fylkis er með þeim yngstu á landinu og af þeim fimm félögum sem tefldu fram liðum um helgina, er Fylkir eina lið- ið sem teflir ekki fram meistara- flokksliði. Þriðji flokkurinn er elsti kvennaflokkurinn sem starfræktur er í félaginu og Fylkir býr vel að því að eiga fjölmenna yngri flokka, til að mynda er fjórði flokkur mjög fjölmennur í Arbænum og margar úr þeim flokki léku með 3. flokks Uði félagsins í Austurbergi. Getum gert betur „Við erum með sterkt lið og eig- um að geta gert mikið betur. Það virtist vanta einbeitingu hjá okkur og trúin á eigin getu var yfirleitt ekki til staðar í síðari hálfleikunum. Við erum nýbúnar að skipta um þjálfara, en Oskar Bjarni (Oskars- son) var búinn að vera með okkur í fímm ár og við söknum hans svolít- ið,“ sagði Anna Guðmundsdóttir, hægiáhandarskytta Valsliðsins. „Rétt eins og hjá mörgum öðrum liðum, var varamannabekkur Vals- ara fáliðaður og Anna taldi að mikið álag ætti sinn þátt í því hve margar stúlkur hættu. „Við erum reyndar með lið í 2. deildinni, en það breytir því ekki að margar stelpur í mínum árgangi (1982) hafa hætt. Helsta ástæðan fyrir því held ég að séu stífar æfing- íris Dögg Marteinsdóttir Á fullum krafli í tveimur greinum KOLBRÚN Sól Ingólfsdóttir, leik- maður 3. flokks ÍBV og unglinga- landsliðsins, er þekktari sem kylfingur, en hún varð íslands- meistari unglinga sl. sumar. Kol- brún Sól hefur verið valin í ung- lingalandslið í báðum greinunum og greinarhöfundi lék forvitni á að vita hvort það væri hægt að stunda þessar tvær íþróttagreinar af full- um krafti? „Handbolti er vetraríþrótt en golf er stundað yfir sumartímann og að því leyti eiga þessar íþróttir ekki illa saman. Eg er hins vegar þeirrar skoðunar að það sé ekki hægt að gera hvort tveggja vel og ég er þegar búin að velja mér íþrótt og það er golfið. Það er hins vegar mjög erfitt að slíta sig frá handboltanum, sem er mjög skemmtilegur, auk þess sem félag- arnir eru flestir í handbolta,“ sagði Kolbrún, sem meðal annars þurfti að fórna keppnisferð í handknatt- leik síðasta sumar vegna anna í golfíþróttinni. Eyjastúlkur mættu átta til leiks í fyi’stu tvo leiki sína, en voru aðeins sex talsins í síðari tveimur leikjun- um, þar sem tveir af yngstu leik- mönnum liðsins tóku þátt í hönnun- arkeppni fyrir grunnskóla, sem fram fór á sunnudeginum. „Eyja- menn hafa orð á sér fyrir að vera svolítið galnir, vitanlega gengur það ekki upp að spila leiki einum leik- manni færri og ég held að Guðfinn- ur þjálfari hafí ekki verið mjög hress þegar hann frétti af því að stúlkurnar ætluðu að taka þátt í hönnunarkeppninni. Hins vegar var lítið hægt að gera núna. Ástandið er vissulega fremur slæmt, við höfum aldrei verið fjölmenn í þessum ald- ursflokki, en kjarninn hefur hins vegar verið góður og stelpurnar hafa haldið vel saman. Núna meg- um við hins vegar ekki við neinum forföllum." Morgunblaðið/Frosti VALSSTÚLKUR sækja að marki ÍR í leik liðanna sl. sunnudag. ÍR-ingar báru sigur úr býtum, en sigurinn dugði þeim ekki til að forðast fall. ar. Við æfðum sex daga vikunnai’ í allt sumar og vorum þá í styrkjandi æfingum og síðan höfum við verið á sex æfingum á viku nú í vetur. Því er ekki að neita að margar sjá eftir tímanum sem fer í þetta. Ástæðan fyrir miklum æfingum er fyrst og fremst sú að þetta eru bestu árin til að byggja sig upp fyrir framtíðina," sagði Ánna, sem vænti þess að keppnin í vetur yrði spennandi, þar sem nokkur lið kæmu til greina sem Islandsmeistarar. adidaé Anna Guðmundsdóttir LOKASTAÐAN ÖNNUR umferð Islandsmótsins í 3. flokki kvenna, - 1. deild var leikin í íþróttahúsinu Austur- bergi um síðustu helgi. Fimm lið leika í deildinni og urðu úrslit leikja og lokastaðan þessi: Urslit leikja: Valur-FH 13:16 Fylkir-ÍR 16:7 ÍBV-Valur 11:12 FH-Fylkir 11:19 ÍR-ÍBV 10:14 Sunnudagur ÍBV-FH 10:16 ÍR-Valur 12:11 Fylkir-ÍBV 17:15 FH-ÍR 15:7 Valur-Fylkir 16:14 Lokastaðan: Fylkir 4 3 0 1 66:49 6 FH 4 3 0 1 58:49 6 Valur 4 2 0 2 52:53 4 ÍBV 4 2 0 2 50:55 2 ÍR 4103 36:56 2 ■Hafdís Hinriksdóttir úr FH varð skoraði flest mörk í 2. um- ferð, tuttugu alls í leikjunum fjórum. ÍBV og ÍR leika í 2. deild í næstu umferð, en sæti þeirra taka KA og Fjölnir sem fengu bæði fullt hús stiga úr riðlum sínum í 2. deild. Morgunblaðið/Frosti KOLBRÚN Sól Ingólfsdóttir, leikmaður ÍBV, hefur verið valin í unglingalandslið í tveimur íþróttagreinum. - En hvaða liði spáir hún íslands- meistaratitli í vor? „Síðan við byrjuðum í handbolt- anum, hefur þetta verið slagur á milli Vals og FH, en frammistaða Fylkisstúlkna um helgina bendir til þess að þær geti blandað sér í bar- áttuna. Við höfum æft lengi saman og eigum að geta gert miklu betur en við sýndum í dag.“ ÚRSLIT MÓT í íslenska fimleikastiganum var haldið í íþróttahúsi Gerplu og Ármanns í síðustu viku. Helstu úr- slit urðu þessi: FYRSTA ÞREP - 12 ára og yngri: Fjölþraut: Sif Pálsdóttir, Arm ................33,425 Ásdís Guðmundsd., Árm...............31,275 Tanja Björk Jónsd.,Björk ............29,75 Svava Björg Örlygsd., Arm ............29,4 Birta Benónýsd., ....................29,25 Anna Guðbj. Bjarnad., KR............29,225 Hildur Jónsdóttir, Björk..............29,1 Hrefna Halldórsd., ARM .............28,325 Hæstu einkunnir á einstökum áhöldum: Sif fékk 8,45 fyrir stökk, 7,925 á tví- slá, 8,55 á jafnvægisslá og 8,5 á gólfi. 13 ára og eldri Fjölþraut: Anna Hulda Ólafsd., Gerplu.........31,75 Inga Rós Gunnarsd., Gerplu..........30,1 Vala Védís Guðm.sd., Árm .........29,525 Kristbjörg T. Ásbjörnsd., Bj.......27,55 Sóldís L. Benjamínsd., Arm........26,575 Aðalheiður Gunnarsd., Arm.........20,475 Hæstu einkunnir á einstökum áhöldum: Inga Rós fékk 8,7 fyrir stökk og 8,3 fyrir gólfæfingar. Ánna Hulda fékk 8,25 fyrir tvíslá og Vala Védís fékk 7,275 fyi’ir gólfæfmgar. ÞRIÐJA ÞREP 11-13 ára: Fjölþraut: Hildur Þórðardóttir, Gróttu ........34,075 íris Mist Magnúsd., Stjörnunni .......33,3 Halldóra Hanna Halldórsd., Gr.......32,475 Helga Björg Jónsd., Áimanni .........31,85 Aðalbjörg Guðm.sd., Björk ...........31,85 Hulda Magnúsdóttir, Björk ...........31,15 Sigurlaug Helga Árnad., Gerplu ... .30,225 Jóna Kristinsdóttir, Gróttu ......30,0(><? Hæstu einkunnir á einstökum áhöldum: íris Mist hlaut hæstu einkunn í stökki, 8,925, Hildur Þórðardóttir hlaut 8,65 á tvíslá og og 8,425 á jafn- vægisslá og Hildur Þorsteinsdóttir, Gróttu fékk 9,235 fyrir æfingar sín- ar á gólfi. AUs voru 24 stúlkur skráðar til leiks í þessum flokki. ÞRIÐJA ÞREP - 10 ára og yngri: Harpa Snædís Hauksd., Gróttu .........32,6 Auður Jóna Guðm.d., Árm..............32,525 Dagný Björk Stefánsd., Gerplu.........30,7 Halla Logadóttir, KR.................30,45 Hæstu einkunnir á einstökum áhöldum: Harpa Snædís fékk 8,8 fyrir stökk og 8,7 á tvíslá. Auður Jóna fékk 8,2 fyrir æfingar sínar á jafnvægisslá og Ai-ndís Halldórsdóttir, Armanni fékk 8,85 fyrir gólfæfingar. Átta stúlkur kepptu í þessum flokki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.