Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 8
KNATTSPYRNA
Frakkinn David Ginola
vill fara á Wembley
CHRIS Amstrong og David Ginola fagna sigrinum á Manchester United.
Reuters
Enn tapar Gladbach
BORUSSIA Mönchengladbach
féll úr þýsku bikarkeppninni í
gærkvöldi, tapaði 2:0 fyrir 2.
deildarliði Rot-Weiss Oberhausen
í átta liða úrslitum. Gladbach, sem
er í neðsta sæti í 1. deild, hélt
hreinu í 70 mínútur en þá skoraði
Lars Toborg fyrir heimamenn og
Achim Weber bætti öðru marki
við 12 mínútum síðar.
Werder Bremen átti í mestu
erfíðleikum með að komast í und-
anúrslit en hafði TB Berlín 2:1 í
framlengdum leik. Kreso Kovavec
skoraði íýrir gestina af stuttu fæii
eftir 10 mínútur en norski
miðherjinn Havard Flo jafnaði
fjórum mínútum fyrir leikslok.
Pólski samherji hans, miðherjinn
Pawel Wojtala, gerði sigurmarkið
með skaila þegar 18 mínútur voru
af framlengingunni.
Oberhausen og TB Berlín
unnu sér sæti í 2. deild að loknu
síðasta tímabili en áhugamanna-
liðið Siegen lauk ævintýi’i sínu
með 3:1 tapi í Wolfsburg, þar
sem pólski miðherjinn Andrzej
Juskowiak gerði tvö mörk fyrir
heimamenn.
Bayern Munchen er fjórða liðið
í undanúrslitum, en dregið verður
um framhaldið um helgina.
Jafnt í Istanbúl
TOTTENHAM sló Manchester
United úr Ensku deildabikar-
keppninni, vann 3:1 á White
Hart Lane í gærkvöldi og mætir
Wimbledon í undanúrslitum.
Leicester, sem varð deildabik-
armeistari 1997, vann Black-
burn 1:0 og dróst á móti Sund-
erland í undanúrslitum.
yrri hálfleikur á White Hart Lane
var frekar daufur en fljótlega eft-
ir hlé dró til tíðinda. Heimamenn
sóttu hratt upp vinstri kantinn, Allan
Nielsen gaf fyrir á Ruel Fox sem
skallaði áfram á Chris Annstrong og
hann skallaði af öryggi í netið.
Skömmu síðar gerði hann annað
mark með skalla eftir frábæran und-
irbúning Frakkans Davids Ginolas.
Teddy Sheringham, íyrrverandi leik-
maður Spurs, minnkaði muninn fyrir
gestina eftir gott spil og sendingu frá
Phil Neville 20 mínútum fyrir leiks-
lok, en skallamark hans náði ekki að
kveikja í stjörnuliðinu sem reyndar
lék án helstu stjama - Alex Fergu-
son, knattspyrnustjóri, gerði níu
breytingar frá síðasta leik. Engu að
síður voru þarna menn eins og Ryan
Giggs, Ole Gunnar Solskjær, Nicky
Butt og Sheringham. Ginola inn-
siglaði góðan leik með frábæru marki
skömmu fyrir leikslok, skaut með
vinstri utan vítateigs og skoraði af
öryggi. „Við áttum þetta skilið,"
sagði Ginola. „Við erum í undanúr-
slitum, einum leik frá Wembley og ég
vil fara á Wembley."
George Graham, knattspyi'nustjóri
Spurs, hrósaði Frakkanum. „Hann
hefur skemmt fólki að undanfórnu og
ég þarf að virkja kraft hans til að búa
til sigurlið. Hann hefur verið frábær í
'þremur síðustu leikjum og þegar
hann leikur eins og að þessu sinni, er
skapandi, er það að mínu skapi.“
Alex Ferguson hefm- ekki lagt
mikið upp úr þessari keppni en Gra-
ham sagði að hún skipti Tottenham
miklu máli. „Við erum ekki á sama
plani og United um þessar mundir
en hver keppni er mikilvæg fyrir
okkur. Við erum að reyna að búa til
sigurlið og árangur hvar sem er eflir
sjálfstraustið.“
Neil Lennon tryggði Leicester
sæti í undanúrslitum, sem verða í
janúar og febrúar, með skallamarki
um miðjan seinni hálfleik en Black-
burn hafði átt meira í leiknum.
Todd hrósar
Arnari
COLIN Todd, knattspyrnu-
stjóri Bolton, er bjartsýnn á að
lið lians verði í baráttu um
sæti í úrvalsdeild þó svo að
Nathan Blake hafi verið seldur
til Blackburn. „Við erum með
Arnar Gunnlaugsson, sem hef-
ur sýnt að hann er frábær
miðherji. Við erum með Boh
Taylor, sem hefur skorað sig-
urrnark f þremur sfðustu leikj-
um okkar og við höfum Dean
Holdsworth," sagði Todd og
bendir á að aðeins Sunderland
hafi skorað fleiri mörk en
Bolton í 1. deild, 48 mörk, en
Bolton 39.
Galatasaray og Juventus gerðu
jafntefli, 1:1, í Istanbúl í
gærkvöldi og eiga bæði möguleika
á að komast áfram í Meistaradeild
Evrópu, en það skýrist eftir viku.
Nicola Amoruso skoraði f'yrir
gestina stundaríjórðungi fyrir
leikslok og í kjölfarið var varnar-
maðurinn Igor Tudor settur inná
fyrir miðherjann Filippo Inzaghi.
Fyrir markið höfðu verið gerðar
tvær breytingar á tyrkneska liðinu
og það sótti með þeim árangri að
Suat Kaya jafnaði á síðustu
mínútu. „Við þurftum ekki að fá á
okkur þetta mark en það hafði
áhrif og eftir það sköpuðum við
okkur fjögur eða fímm góð færi,“
sagði Fatih Terim, þjálfari
Galatasaray, sem er efst í riðlinum
með átta stig eins og Rosenborg.
„Við vildum sigra og tryggja okkur
sæti í átta liða úrslitum, en barátt-
an heldur áfram.“
„Við verðum að sigra Rosen-
borg og Galatasaray að tapa fyrir
Atletico Bilbao," sagði Marcello
Lippi, þjálfari Juve, en liðið er með
fímm stig.
Terim þakkaði áhorfendum fyr-
ir að sýna stillingu en Lippi vildi
ekki ræða um leikinn í sambandi
við ólgu Tyrkja út í Itali vegna
framsalsmáls. „Þetta var góður
leikur og málið snerist ekki um
annað.“
Henning
hættur
hjá Skalla-
grími
HENNING Henningsson hef-
ur sagt starfi sínu lausu sem
þjálfari körfuknattleiksliðs
Skallagríms í Borgarnesi.
Að sögn Bjarna Steinarsson-
ar, formanns körfuknatt-
Ieiksdeildar Skallagríms,
féllst stórn deildarinnar á af-
sögn Hennings. „Erlendi
leikmaðurinn okkar, Erik
Franson hefur verið ráðinn
þjálfari svona á meðan við
erum að vinna okkur tíma
og finna eftirmann Henn-
ings,“ sagði Bjarni í
gærkvöldi. Henning mun
áfrani leika með Skalla-
grími. „Við megum alls ekki
við að missa hann sem Ieik-
mann,“ sagði Bjarni.
■ OLAF Thon, fyi'irliði Schalke 04,
mun ekki leika meira með liðinu á
keppnistímabilinu vegna alvarlegra
meiðsla á hásin.
■ MAN. UTD. hefur ekki orðið við
óskum Blackburn um að fá að ræða
við Brian Kidd, aðstoðarmann Alex
Ferguson, knattspyrnustjóra.
■ VIV Anderson er tilbúinn að
starfa áfram með Bryan Robson, ef
hann gerir nýjan fimm ára samning
sem knattspyrnustjóri Middles-
brough.
■ DARREN Ferguson, leikmaður
hjá tílfunum og sonur Alex, knatt-
spyrnu.stjóra Man. Utd., er kominn
til Cosenza á Ítalíu til reynslu.
■ WILLI Reimann, þjálfari þýska
liðsins NUrnberg, hætti í gær störf-
um hjá liðinu. Astæðan fyrir því er
veikindi eiginkonu hans.
■ ÁSTRALSKI landsliðsmaðurinn
Marko Viduka er kominn til Celtic,
sem borgaði Croatia Zagreb þrjár
millj. punda fyrir hann. Viduka
skrifaði í gær undir þriggja ára
samning.
■ TOTTENHAM gekk frá kaupum
á argentínska varnarmanninum
Mauricio Taricco frá Ipswich í gær
á 1,75 millj. punda.
Kidd má
tala við
Blackburn
BLACKBURN Rovers
greindi frá því í gærkvöldi að
Manchester United hefði
heimilað félaginu að ræða við
Brian Kidd, aðstoðarknatt-
spyrnustjóra United, um
stjórastöðu Blaekburn. Robert
Coar, formaður Blackburn,
sagði að heimildin yrði notuð
innan 24 tíma. Martin Ed-
wards, formaður United, sagði
í gærdag að félagið vildi að
Kidd yrði áfram og því fengi
Blackburn ekki að ræða við
hann en Kidd réði framhald-
inu. Ferguson tók þá undir orð
formannsins og sagði að Kidd
væri félaginu og sér mjög mik-
ilvægur en af orðum Edwards
má ráða að Kidd, sem er 49
ára, hafi viljað kanna málið.