Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 6
6 C FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Thomas Möller markaðsstjóri Olís hf. um framtíð smásölu, heildsölu og flutninga Birgðir eru dauðir peningar Framtíðin er í smápakkasendingum og vörudreifíngarmiðstöðvar sjá um að koma vörum í verslanir. Þóroddur Bjarnason ræddi við Thomas Möller og skyggndist með honum inn í nútíð og framtíð smásölu, heildsölu og flutninga í ljósi breytinga á markaðnum. Morgunblaðið/Þorkell THOMAS Möller fyrir utan eina af nýju bensínstöðvum Olís í Reykjavík. HÖNNUN heimila verður miðuð við netverslanir, bókabúðir hætta að hafa lagera, hljómplötuversl- anú’ pressa geisladiskana á meðan kúnninn bíður, framtíðin er í smá- pakkasendingum og vörudreifingar- miðstöðvar sjá um að koma vörum í verslanir. Þessi framtíðarsýn er kannski ekki svo óraunveruleg og á Islandi er þessi þróun óðum að taka á sig betri mynd með tækniframför- um á öllum stigum verslunar og inni á heimilunum. Tilhneigingin hefur verið í þá átt, eins og sagt hefur verið ítaidega frá í Q'ölmiðlum að undanfömu, að verslan- ir eru óðum að hætta að versla beint inn frá tugum heildsala og safna á lag- era sína heldur versla þess í stað reglulega við birgða- og dreifingar- stöðvar sem bæði flytja inn sjálfai- og eru í þeirri aðstöðu að geta knúið fram betra verð frá heildsölum en ein- stakar verslanir eru færar um. Einn bíll sér svo um að senda hinar ólíkustu vörur í búðimai-, öllum til mikils hag- ræðis. Dæmin blasa við. Aðföng sér Hagkaupi, Nýkaupi, Bónus, Hrað- kaupum og 10-11 fyrir dagvöru, Búr ehf. þjónustar Nóatún, 11-11 Olíufé- lagið o.fl. á sama hátt og Gripið og greitt þjónustar ýmsa aðila í smá- söluverslun. Fleiri og fleiri dæmi eru að verða til og skemmst er að minnast stofnunar dreifingarfyrir- tækis SS, MS, MF, Osta- og smjör- sölunnar, Sölufélags garðyi'kju- manna, Ágætis, KEA og Kjötmið- stöðvarinnar á dögunum, en sú mið- stöð á einnig að verða opin þeim að- ilum öðrum sem áhuga sýna. Sú miðstöð verður þó, ólíkt Aðföngum t.d., að einungis verður um dreifingu að ræða, ekki innkaup og sölu. Upplýsingar í stað birgða Á svæðinu við Klettagarða er að rísa þyrping atvinnuhúsnæðis sem bætist í flóru annarra fyrirtækja á svæðinu frá Klettagörðum að Súðar- vogi. Thomas Möller, markaðsstjóri Olís, kýs að kalla þetta athafnasvæði flutningaþorp, en hann sér fyrir sér að það verði miðstöð flutninga og dreifingai’ á vörum í framtíðinni. Thomas segir að lykilorðið í versl- un framtíðarinnar sé upplýsingar og að þær komi í stað birgða hjá fyrir- tækjum. „Birgðir eru dauðir pening- ar,“ segir hann. „Stefnan er öll í þá átt að fyrir- tækin hætta að sjá um eigin flutn- inga. Það er ekkert samkeppnisfor- skot í því að meðhöndla vöruna sjálf- ur. I staðinn lætur maður sérhæfð vörudreifingarfyrirtæki um þetta. Og nú rísa þau upp hvert á fætur öðru. Hlutverk heildsala mun breyt- ast úr vörumeðhöndlun í sölu- og upplýsingameðhöndlun. Heildsalar verða upplýsingafyrh'tæki en ekki birgðafyrirtæki. Það er misskilning- ur að menn þurfi alltaf að hafa sinn lager við hlið sér,“ sagði Thomas Möller. Thomas segir margt vera að breytast í flutningamálum heimsins. ,;Það má segja að flutningakerfin til Islands og innanlands verði vart full- komnari en þau eru í dag. Það er gríðarleg samkeppni á öllum sviðum flutningaþjónustunnar og maður fær toppþjónustu hjá öllum þessum fyi'- Midland- banki deyr eftir lang- an feril London, Telegraph. MIDLAND banki verður lagður niður, 75 árum eftir að starfsemi hans hófst í núverandi mynd, og er það liður í 30 milljóna punda breyt- ingu á alþjóðlegri starfsemi móður- fyrirtæksins, HSBC, undir vöru- merki þess. Frá og með maí nk. munu öll úti- bú bankans í Bretlandi bera nafn HSBC og vörumerki þeirra verður rauð-hvítur sexhyrningur. Bankinn tók til starfa 1835 og var kenndur bæði við Birmingham og Midland þar til hann sameinað- ist London & City Bank 1898. Hann starfaði undir nafninu London City & Midland Bank þar til nafnið var stytt í Midland Bank 1923. Þegar HBSC keypti Midland 1992 fyrir 3,7 milljarða punda var því lofað að nafnið fengi að haldast. Hins vegar var finngálknsmerki bankans lagt niðm' fyrir tveimur árum og sexhyrningur tekinn upp í staðinn. Eignir HSBC í heiminum era metnar á meira en 300 millj- arða punda, starfsemin nær til 79 landa og stjórn fyrirtækisins ákvað að taka upp eitt nafn, sem næði til allrar starfseminnar. Sagt er ’að sjái einhverjir eftir Midland-nafninu þurfi þeir ekki að kvarta, því að bankinn hafi gleypt 110 banka á löngum ferli, þar á meðal Bank of Westmoreland, Leamington Priors & Warwicks- hfre Banking Company og Channel Islands Bank. Af þeim bönkum sem deyja um leið og Midland starfa nokkrir í öðram heimsálfum, þar á meðal einn í Hong Kong og annar í Bras- ilíu. 5 ístel Síðumúla 37-108 Reykjavík S. 588-2800 - Fax 588-2801 www.istel.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.