Morgunblaðið - 06.12.1998, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1998 E 3
\+/
6»'*
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN
Á HÚSAVÍK
Síml: «55 4000-Símbrif: «55 ■
-Símbrdf: <SSS 4010 - Pósthótf: 20
Staða sérfræðings i skurðlækningum.
Laus er til umsóknar staða skurðlæknis við
Heilbrigðisstofnunina á Húsavík með starfsskyldu á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Heilbrigðis-
stofnuninni á Sauðárkróki. Umsoknarfrestur er til 1.
janúar nk. en staðan veitist eftir nánara samkomulagi.
Stofnunin skiptist í tvö svið, sjúkrasvið og heilsugæslu-
svið. Sjúkrasviðið starfar samkvæmt lögum um almennt
sjúkrahús og veitir sérfræðiþjónustu á sviði
handlækninga, lyflækninga og meltingarfærasjúkdóma
ásamt farandþiónustu a ýmsum sérsviðum læknis-
fræðinnar. Heilsugæslusviðið veitir íbúum héraðsins
heilbrigðisþjónustu í samræmi við ákvæði heilbrigðis-
laga um starfsemi heilsugæslustöðva. Sex læknar starfa
við stofnunina.
Hér er um að ræða fjölbreytt og krefjandi starf.
Vinnuaðstaða og tækjakostur er miög góður. Við
stofnunina starfar gott og metnaðarfullt starfsfólk. Hér
er löng hefð fyrir öflugri heilbrigðisþjónustu og
framundan eru spennandi tímar. Heilbrigoisstofnanir
á Norðurlandi eru að vinna að nánari samvinnu með
það að markmiði að bæta þjónustu við Norðlendinga.
Viðkomandi myndi því hafa starfsskyldum að gegna á
Sauðárkróki og á FSA en á móti kæmu sérfræðingar
þaðan til Húsavíkur. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir
næfan einstakling til að taka þátt í enn frekari upp-
byggingu þjónustunnar á næstu árum.
Staða heilsugæslulæknis
- sérfræðimenntun á íslandi!
Laus er til umsóknar staða heilsugæslulæknis við
Heilbrigðisstofnunina á Húsavík. Umsóknarfrestur er
til 1. janúar nk. en staðan veitist eftir nánara
samkomulagi.
Hér er um að ræða fjölbreytt og krefjandi starf.
Vinnuaðstaða og tækjakostur er miög góður. Við
stofnunina starfar gott og metnaðarfulít starfsfólk. Hér
er löng hefð fyrir öflugri heilbrigðisþjónustu og
framundan eru spennanai tímar. Þetta er því kjörið
tækifæri fyrir hæfan einstakling til að taka þátt i enn
frekari uppbyggingu þjónustunnar á næstu árum.
í samvinnu við Heimilislæknadeild Háskóla íslands
og Fiórðungssjúkrahúsið á Akureyri getum við nú
boðið upp a sérfræðimenntun á sviði heilsugæslu-
lækninga. Við vilium því hvetja lækna sem hug hafa
á slíku námi að skoða vel þennan möguleika.
Umsóknir um þessi störf skulu sendast til Friðfinns
Hermannssonar, framkvæmdastjóra, á sérstökum
eyðublöðum sem fást hjá landlæknisembættinu.
Upplýsingar veita Friðfinnur Hermannsson, framkv.stjóri
(hs. 464 1558) og Sigurður Guðjónsson, yfirlæknir (hs.
464 1479) í síma 464 0500.
Heilbrigöisstofnunin á Húsavík
- reyklaus vinnustaður
Yfirlæknir.
Laus er til umsóknar staða yfirlæknis handlækningasviðs
stofnunarinnar, um er að ræða 100% stöðu. Æskileg
sérgrein er almennar skurðlækningar, kvensjúkdóma-
lækningar eða önnur sambærileg sérgrein. Möguleiki
er á að nluti af stöðunni verði í formi starfsskyldu við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Stofnunin skipist í tvö svið, sjúkrasvið og heilsugæslu-
svið. Sjúkrasviðið starfar samkvæmt lögum sem aímennt
sjúkrahús og veitir sérfræðiþjónustu á sviði hand-
lækninga og lyflækninga ásamt farandþjónustu á ýmsum
sérsviðum Yæknisfræoinnar. Undir sjukrasviðið heyrir
einnig rekstur hjúkrunar- og dvalarheimilis. Sex læknar
starfa við stofnunina.
Hér er um að ræða fjölbreytt og krefjandi starf og er
vinnuaðstaða og tækjakostur á stofnuninni mjög góour.
Á sjúkrasviðinu er 71 rúm sem skiptast í 15 rúm á
almennri sjúkra- og fæðingadeild og 56 rúm á
hjúkrunaraeildum. Þar fyrir utan er 10 rúma
þjónustudeild rekin ítengslum við stofnunina. Stofnunin
nefur á að skipa góðu og samstilltu starfsfólki sem
leggur metnað sinn í að gera góða stofnun betri. Þetta
er pví kjörið tækifæri fyrir framtaksama og metnaðarfulla
einstaklinga. Stöðunni fylgir embættisbústaður.
Umsóknir skulu sendast til Birgis Gunnarssonar
framkvæmdastjóra á eyðublöðum sem fást hjá
landlæknisembættinu. Umsóknarfrestur er til 1. janúar
1999 en staðan veitist eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar veitir framkvæmdasjóri í síma 455 4000.
í Skagafirði búa tæplega 5.000 manns. Þar af búa 2.700 manns
á Sauðárkróki. Sauðarkrókur byggir á öflugu og fjölbreyttu
atvinnulífi og fjölbreytni f þjónustu við íbúa béraðsins. íþrotta-
og félagslíf er hér í miklum blóma. í héraðinu eru tveir
framhalasskólar, á Sauðárkróki er Fjölbrautaskóli Norðulands
vestra með tæplega 500 nemendur og á Hólum í Hjaltadal er
rekinn Bændaskófí. Sauðárkrókur liggur vel við samgöngum og
eru þær góðar bæði á lofti og á landi. Skagafjörður er romaður
fyrir náttúrufegurð og má segja að þar séu merkir staðir og
sögustaðir úr ísYandssögunni víð hvert fótmál.
Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki
- reyklaus vinnustaður
Hæ
FJÓRÐUNGSSjÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRl
Staða sérfræðings í almennum skurðlækningum.
Laus er til umsóknar staða skurðlæknis við hand-
lækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í skurð-
lækningum. Æskilegt er að umsækjandi hafi einnig
góða reynslu í kviðsjáraðgerðartækni (laparoscopískri
kirurgiu) og jafnframt reynslu í speglun meltingarfæra.
Starfinu fylgir vaktskylda á handlækningadeild, þátttaka
í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og
deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknavinnu.
Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi
samkvæmt fyrirfram ákveðnu skipulagi.
Staða sérfræðings í kvensjúkdómalækningum.
Laus er til umsóknar 75% staða kvensjúkdómalæknis
við fæðinga-og kvensjúkdómadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri. Umsækjandi skal hafa fullgild
réttindi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum.
Starfinu fylgir vaktskylda á fæðinga- og kvensjúkdóma-
deild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun
aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsókna-
vinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á
Norðurlandi samkvæmt fyrirfram ákveðnu skipulagi.
Staða sérfræðings í öldrunarlækningum.
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í öldrunar-
lækningum við öldrunarlækningadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri. Umsækjandi skal hafa fullgild
réttindi í öldrunarlækningum. Starfinu fylgir vaktskylda
á öldrunar- og endurhæfingardeild, þátttaka í kennslu
heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna,
auk þátttöku í rannsóknavinnu. Starfsskylda er við
heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi samkvæmtfyrirfram
ákveðnu skipulagi.
Heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi stefna að náinni
samvinnu með það að markmiði að bæta þjónustu
við Norðlendinga. Því eru stöður sérfræðinga auglýstar
með það í huga að starfsstöðvar verði fleiri en ein.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir hæfa einstaklinga til að
taka þátt í að móta og byggja upp heilbrigðisþjónustu
á Norðurlandi til framtíðar.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu
ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og
sjálfstæðra vinnubragða.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum
sjúkrahússlækna.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám
og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar
rannsóknir og ritstörf, auk kennslustarfa.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást hjá
landlæknisembættinu, ásamt fylgiskjölum þurfa að
berast í tvíriti fyrir 20. janúar 1999 til Þorvaldar
Ingvarssonar, lækningaforstjóra FSA, 600 Akureyri.
Stöðurnar veitast eftir nánara samkomulagi. Nánari
upplýsingar gefa: Shree Datye, yfirlæknir hand-
lækningadeildar, Vilhjálmur Ándrésson, yfirlæknir
fæðinga- og kvensjúkdómadeildar, Þorvaldur
Ingvarsson, lækningaforstjóri, í síma 463 0100 og
Halldór Halldórsson, yfirlæknir öldrunarlækninga-
deildar, í síma 463 1100.
Öilum umsóknum verður svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
- reyklaus vinnustaður
rfW"! tW
LANDSPÍTALINN
...í þágu mannúðar og vísinda...
Hjúkrunarfræðingur
óskast:
1) í Bióðbankann sem fyrst. Um er að ræða
100% starf í blóðsöfnunardeild. Starfið felur
í sér blóðtöku, söfnunarferðir og gæsluvakt-
ir. í Blóðbankanum starfa um 40 manns og
unnið er að uppbyggingu gæðakerfis og
stefnt að vottun skv. ISO 9002. Starfsþjálfun
og aðlögunartími í boði.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 560 2040.
2) Á lyflækningadeild 14-G. Deildin sérhæfir
sig í hjúkrun sjúklinga með gigtar- og
nýrnasjúkdóma. Unnið er þriðju hverja helgi
og fáar næturvaktir.
Upplýsingar veita Þóra Árnadóttir, deildar-
stjóri og Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri í síma 560 1000.
Sjúkraliðar
óskast á endurhæfingar- og hæfingardeild
Landspítalans í Kópavogi, deild 18, sem er
heimilisdeild átta aldraðra íbúa staðarins.
Starfshlutfall samkomulag (ekki næturvaktir).
Æskileg reynsla af öidrunarhjúkrun. Upplýs-
ingar í síma 560 2700 virka daga, frá kl. 8:00—
16:00.
Líffræðingur
óskast á tæknifrjóvgunardeild kvennadeildar
frá 1. janúar 1999. Um er að ræða fullt starf
sem felur m.a. í sér vinnu með kynfrumur og
fósturvísa, ætagerð og frumuræktanir.
Upplýsingar veitir Júlíus Gísli Hreinsson,
líffræðingur, sími 560 1175.
Umsóknir berist til Þórðar Óskarssonar, yfir-
læknis fyrir 20. desember nk.
Lyfjatæknir
óskast í apótek Landspítalans. Upplýsingar
veitir Sigrún Valdimarsdóttir, lyfjafræðingur
í síma 560 1617.
Umsóknarfrestur er til 18. desember nk.
Röntgentæknir
óskast á röntgen- og myndgreiningadeild
Landspítalans. Endurnýjun tækjabúnaðar og
fleiri spennandi verkefni framundan. Upplýs-
ingar veitir Nanna Friðgeirsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri í síma 560 1080.
Sérhæfður
aðstoðarmaður
óskast í 100% starf á dauðhreinsunardeild
Landspítalans, Tunguhálsi 2. Vinnutími 8:00-
16:00 virka daga. Upplýsingar veitir Birna
Lárusdóttir, deildarstjóri í síma 560 2495.
. ■ ■ T
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags
og fjármálaráðherra.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi
Ríkisspítala, Þverholti 18 og í uppiýsingum á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þogar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
BHS
Kennsla
í bifvélavirkjun
í Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli auglýsir eftir kennara í bif-
vélavirkjun frá áramótum. Um er að ræða fullt
starf í ágætri aðstöðu í nýjum skóla.
Laun samkv. kjarasamningum HÍK og KÍ.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum.
Umsóknir sendist skólanum sem fyrst og ekki
síðar en 15. desember.
Skólameistari.