Morgunblaðið - 15.12.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 15.12.1998, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ Einsemd og munúð BÆKUR Ljóð HAUSTMÁLTÍÐ eftir Ásdísi Óladóttur. Andbiær. 1998 - 41 bls. EINSEMDIN er ef til vill ljóð- rænust allra tilfmninga þó að enginn vilji vera einmana. Fá yrkisefni eru algengari og kannski er það í sjálfu sér einmanalegt að vera skáld. Ung kona, Ásdís Oladóttir, sendir um þessar mundir frá sér Ijóðabók þar sem einsemd og ein- angrun er meginvið- fangsefnið. Hún nefnir bókina Haustmáltíð. Bók Ásdísar er frem- ur hugljúf. Hún dregur upp fegurðarheim með fremur upphöfnu Ijóð- máli og leitast við að túlka tilfmningar sínar og kenndir með ljóð- myndum. Myndimar eru fágaðar og nostur- lega unnar og vandað til þeirra og bókarinnar í heild. Hún notar tölu- vert það stílbragð að fara milli skynsviða þannig að oft verður draumkennd áferð á ljóðun- um: Innan um laufíð konan sem strýkur með nekt sinni þögnina og fiskarinir draumkenndu sem synda gegnu mjúkt andlit haustsins. Sem fyrr getur fjalla mörg ljóðin um einangrun einhvers konar og ein- semd. Ásdís yrkir um fugl sem flýg- ur írjáls um himininn og telur hann eiga best heima við gluggann sinn eða innan dyra þar sem hún gæti fært honum daglegt brauð en íhugar málið nánar: Nei, heimkynni hans eru meðal himinfugla fjarri jöklabyggðum þar sem ég er ekki Þessa köldu veröld einsemdar og einangrunar klæðir skáldkonan í goð- sagnakennd klæði í ljóði um Venus, gyðju ástarinnar. Þar fer saman vel heppnuð vísun í goðsögn og markviss samþætting myndar og tilfinningar: í nývöknuðum garði liggurVenusfáklædd í brothættri skel sinni Andlit hylja votir lokkar á öðrum fæti ber hún silfurskó og á hálsi skín í perlufesti I skugga einmana trés sefur gyðjan gleymd á rökkureyju Það er ekki laust við að slík rómantísk sýn sem gengur í gegnum bókina frá upphafi til enda geri hana heldur einleita og fábreytilega. Finna má þó einnig Ijóð í bókinni þar sem skáld- konan leitast við að túlka munúð og ást. Allt er það samt ofurvar- fæmislegt og hófstillt og maður hefur á tilfinn- ingu að öll sú ást sé fremur brothætt. Samt er í þeim bjartari tónn en í ljóðunum sem fjalla um einsenadina og mehú leikur við myndsköpunina: Við hvert skref nálgast rödd hans Þú sér hönd sem á höfuð og augu fyrir sólir Hörund þitt breytist íregn og þú fellur eftir líkama hans. Haustmáltíð er vönduð ljóðabók þar sem höfundur leitast við að túlka kenndir sínar og hugmyndh- með ljóðmyndum. Helstu viðfangsefni Ásdísar eru einsemd og munúð. Ljóð hennar mynda fegurðarheim sem hún fléttar úr upphöfnu ljóðmáli, of- urlítið rómantísku. Þau eru fáguð og vandvirknislega ort. Skafti Þ. Halldórsson Ásdís Óladóttir Form, fanta- sía og mis- skilið menn- ingarsnobb Bjarni sé svolítið sér á parti í ís- lenskum bókmenntaheimi þar sem fantasían hefur ekki alltaf verið vel- komin, að minnsta kosti ekki á þess- ari öld. Raunsæið hefur verið ríkj- andi og virðist raunar eiga betur við Islendinga en hvers konar hugar- flugsskáldskapur - sennilega vegna ofurtrúar á fornsagnahefðina. Þannig áttu til dæmis módernistar í sagnagerð á sjöunda og áttunda ára- tugnum ekki auðvelt uppdráttar hjá frónskum lestrarhestum en í verk- um þeirra var oftlega unnið út frá frásagnarlögmálum fantasíunnar og goðsögunnar. En hvað sem líður fantastískum frásagnarleikjum Bjarna og fleiri þá er i-aunsæiskrafan enn þá hávær. Einna tærast er það í tveimur verk- um sem nú eru að koma út. Auður Jónsdóttir segir sögu sína, Stjórn- lausa lukku, í raunsæjum frásagnar- hætti sem minnir raunar um margt á nýi-aunsæi áttunda áratugarins. Friðrik Erlingsson er á svipuðum slóðum í bók sinni, Góða ferð Sveinn Olafsson, þar sem sögð er þroska- saga pilts. Söguskoðun Einn frjóasti angi sagnagerðar hér á landi undanfarna áratugi hef- ur verið sögulega skáldsagan. Þar er þetta ár engin undantekning. Hæst í þessum flokki rís Morgunþula ístrá- um eftir Thor Vilhjálmsson. í bók- inni skoðum við ævisögu Sturlu Sig- hvatssonar út frá öðru sjónarhorni en við þekkjum úr Sturlungu. Þetta er þroskasaga með tilvistarlegum undirtón sem sýnir Sturlu í glímu við hetjuhugsjónina en þungamiðja sögunnar er ferð Sturlu suður til Rómar að leita syndaaflausnar hjá páfa. Stíll Thors í þessari bók er við- burður út af íyrir sig, skynjun les- andans er þanin til hins ýtrasta, stundum svo að allt er við að bresta. Veröld víð eftir Jónas Kristjáns- son prófessor leitar enn aftar í tím- ann eða tO tíundu aldar. Bókin rekur örlagasögu Guðríðar Þorbjarnar- dóttur, víðfórlustu konu miðalda, eins og segir á bókarkápu. Einar Kárason sendir frá sér sína sjöundu skáldsögu, Norðurljós, sem einnig sækir efnivið aftur í tímann eða til hinnar ómildu átjándu aldar. Raunar vill sögumaður bókarinnar, sem er í tölu látinna þegar hann seg- ir söguna eins og svo margir ís- lenskra kollega hans síðustu árin, halda því fram að átjánda öldin hafi ekki verið svo slæm sem sögur segja. Viðburðarík ævi hans gæti bæði stutt þá túlkun og hrakið. Enn ein sögulega skáldsagan kemur svo úr sagnabrunni Björns Th. Björnssonar. í þetta skipti er sögusviðið nítjánda öldin og upphaf- ið á þessari. Bókin nefnist Brota- saga og er saga Önnu Sveinsdóttur sem er fædd hórbarn 1867 en gerist síðar saumakona í Reykjavík, fer þaðan til Hull og loks til Eyja. Afþreying Afþreying hefur lengi verið bók- menntalegt skammaryrði á íslandi. Nú virðist hins vegar sem hinn póst- móderníski andi hafi blásið kjarki í brjóst nokkurra höfunda til þess að BÆKUR Höfundur bókarinnar Siggu á Brekku er 95 ára að aldri HÖFUNDUR bamabókarinnar Siggu á Brekku, sem ber undir- titilinn: Endurminningar alda- mótabarns, er Ingibjörg Þor- geirsdóttir, 95 ára að aldri. Bókaútgáfan Æskan gefur bók- ina út, sagan er 143 bls. að lengd. Myndverk bókarinnar eru eftir Sigrúnu Eldjárn á heilsíðu framan við hvern aðalkafla bók- arinnar. Áður hafa komið út eft- ir Ingibjörgu tvær ljóðabækur; Líf og list (1956) og Ljóð (1991). Ingibjörg hefur þar að auki skrifað í blöð, smásögur og seg- ist hafa párað um ýmis mál. Kafla úr sögunni um Siggu á Brekku las Ingibjörg í barna- tíma útvarpsins. Hún flutti líka erindi í þættinum Um daginn og veginn. Ingibjörg býr á dvalarheimili aldraðra á Reykhólum, en er al- in upp á næsta bæ, Höllustöðum. Er Sigga á Brekku sama stelpan og Ingibjörg Þorgeirs- dóttir þegar hún varbarn? „Eg byggi á persónulegri reynslu barnsins og hugmynd- um, en ég tek engan sérstakan fyrir í því sambandi. Grannur- inn er náttúrulega mín eigin reynsla og hvernig ég leit á lífið með augum barnsins, en ég tek mig ekki fyrir sem persónu þótt sum atvik séu sterkari í minn- ingunni en önnur.“ Hvar bjóstu eftir að þú varðst fullorðin? „Ég var að flækjast um landið. Ég fór í Kennaraskólann, en hef verið lungnasjúklingur frá því ég var 23 ára, oftast legið í bólinu í nokkra mánuði í einu. Það gerði mér oft erfitt fyrir. Ég ætlaði t.d. að manna mig upp og fara á Kennaraháskóla í Þrándheimi, sem var framhalds- nám á þeim tíma, en þá veiktist ég. Ég var tvö ár í Noregi og lauk skólanum þar síðari vetur- inn.“ Hvar kenndir þú á Islandi? „Ég var í farkennslu á Hólma- vík og sveitunum þar í kring. Ég hef haft yndi af að flækjast um og hef til dæmis oft komið til Danmerkur og átti þar stóran vinahóp. Ég lærði hins vegar aldrei enskuna. Hún var ekki kennd í skóla þegar ég var við nám, svo ég hef verið ragari að ferðast víðar um heiminn en til Norðurlandanna." Finnst þér heimurinn ekki hafa breyst síðan Sigga á Brekku var barn? „Þetta er furðuveröld og hræðileg sums staðar og allt of víða. Aldamótaskáldin okkar ortu mikið um nið aldamótanna, sem ég upplifði. Sumir héldu að þetta yrði einhver friðar- og dýrðaröld. Hafa börn það betra í dag en í byrjun síðustu aldar? „Þetta er svo gjörólík menn- ing og snið á öllu. Það fer hrað- vaxandi alls konar tæknivæðing, sem okkur dreymdi ekkert um, en inn við beinið er nú blessuð manneskjan eðlislík og hefur yndi af því sem er fallegt og gott. Sem betur fer er lífið alveg eins inni í brjóstum fólks til að leita eftir því sanna, fagra og góða. Þetta er hættulegur heim- ur og hefur alltaf verið, en nú er hann kannski enn hættulegri en áður og það þurfa svei mér allir uppalendur að athuga. Sem bet- ur fer var bara brennivínið í mínu ungdæmi og það var nógu vont. Þá fór vín inn og vit út. Ég vona að barnabókin mín, óska- bókin mfn, komi heldur til með að gleðja en hryggja,“ sagði Ingibjörg Þorgeirsdóttir. Ingibjörg Þorgeirsdóttir að er ljótt að sjá hvernig skepnui-nar hafa farið með hana Skjaldarflöt, hún er öll nöguð og útspörkuð enda túnið fullt af fé þegar ég kom út í morgun. Það er til lítils að vera að hreinsa ef skepnurnar fá að ganga svona í túnið,“ bætti hún við af miklum móði. í því kom Steini inn og sagði að það gagnaði ekki lengur að „reka frá“ á kvöldin, roll- umar vissu alveg hvenær fólkið væri sofnað og óhætt væri að læðast inn á túnið. Nú varð Sigga öll að eyrum. Hún heyrði að pabbi kom inn og hann fór líka að tala um túnið og kindurnar. Og seinast sagði hann skýrt og ákveðið að það yrði víst að „vaka yf- ir“ um tíma svo túnið fengi frið til að spretta. Þá sagðist mamma bara ekki vita hvort hann Nonni fengist til þess lengur. Hann væri orðinn hálf leiður á því. „En gæti ekki hugsast að hann yrði fáanlegri til þess ef Sigga litla ætti að vaka með honum?“ segir þá pabbi. Og mamma sagði að það væri ekki óhugsandi. Ur bókinni Sigga á Brekku Framsýnn merkismaður ráðast gegn þessu misskilda menn- ingarsnobbi. Gamansögur og spennusögur setja mikinn svip á jólabókaflóðið. Fyrsta skáldsaga Árna Sigurjóns- sonar bókmenntafræðings, Lúx, er drepfýndin. Aðrar sögur sem gera út á skemmtigildið eru Almúgamenn efth- Arnmund Backman og Þægir strákar eftir Helga Ingólfsson. Sex íslenskar spennusögur eru svo að koma út um þessi jól og hlýt- ur það að vera met. Þetta eni bæk- urnar Dauðarósir eftir Arnald Ind- riðason, Nóttin hefur þúsund augu eftir Árna Þórarinsson, Renus í hjarta eftir Birgittu H. Halldórs- dóttur, Dagar ljónsins eftir Einar Þorstein, Pósthólf dauðans eftir Kristin R. Olafsson og Engin spor eftir Viktor Arnar Ingólfsson. Smásögur Að lokum skal bent á fjögur smá- sagnasöfn sem hafa komið út í haust. Guðrún Eva Mínervudóttir er í hópi fjölmargra ungra skálda sem eru að senda frá sér sína fyrstu bók og sennilega eitt það áhugaverðasta. Bók hennar, Á meðan hann horfir á þig ertu María mey, er einkar heild- stæð að efni og stíl. Gerður Kristný sendir frá sér smásagnasafnið, Eitr- uð epli, þar sem þemað er samskipti fólks eins og í bók Guðrúnar Evu. Þórarinn Eldjárn gerir út á fyndn- ina, eins og Gerður, í bók sinni, Sérðu það sem égsé og Matthías Jo- hannessen skrifar fágaðar sögur í bók sína, Flugnasuð í farangiinum. Sé þannig skyggnst yfir sviðið verður ekki annað sagt en að íslensk sagnagerð standi með miklum blóma en það skal tekið fram að hér hefur ekki verið vikið að öllum þeim verkum í bókaflóði ársins sem verð væru athygli. BÆKUR Fræðirit PÉTUR BEN. Eftir Jakob F. Ásgeirsson. 1998. Mál og menning, Reykjavflí. 415 bls. GÓÐAR ævisögur eru sérlega skemmtilegt lestrarefni. Þær gera yfirleitt hvort tveggja í senn að gefa lesendum sérstakt sjónarhorn á þá atburði sem söguhetjan tekur þátt í eða reynir með öðrum hætti. Þær gefa lesendum einnig kost á að hug- leiða innviði einnar mannsævi, skoða hana eins og heilsteypt verk með upphafi, meginverki og endi. Þetta er ekki hægt að gera nema sögu- hetjan sé gengin til feðra sinna því að mannsævin er ekki skiljanleg til hlítar fyrr en henni er lokið. Þessi saga um Pétur Benediktsson, sendi- herra og bankastjóra, eftir Jakob F. Ásgeirsson býður manni allt þetta og ýmislegt fleira. Pétur Benediktsson lifði ævi sína á merkilegum tímum í sögu þjóðar- innar. Hann var alinn upp í miklu návígi við lokaþátt sjálfstæðisbar- áttunnar. Hann var einn þriggja bræðra sem ómótmælanlega settu skarpan svip á íslenzkt þjóðfélag frá því um 1930 og fram yfir 1970 og höfðu mikil áhrif hver á sínu sviði. Pétur átti sjálfur mjög mikinn þátt í að móta utanríkisþjónustu íslenzka ríkisins á fyrstu árunum eftir lýð- veldisstofnunina og varð síðar bankastjóri Landsbanka íslands. Hann lézt 62 ára að aldri af blóðsýk- ingu. I bókinni er ævi Péturs rakin skipulega og vandvirknislega. Byi’j- að er á uppruna hans, uppeldi og skólagöngu. Faðir Péturs var Bene- dikt Sveinsson, sem var lengi forseti neðri deildar Alþingis. Hann var einn eindregnasti talsmaður ís- lenzks sjálfstæðis og var mótfallinn samningnum frá 1918 vegna þess að hann veitti Dönum sama rétt á Is- landi og íslendingum. Bræður Pét- urs voru Sveinn sem lengi var í for- svari fyrir Síldarverksmiðju ríkisins, og Bjarni, síðar forsætisráðherra. Þeir ólust upp í foreldrahúsum en Pétur var lengst af í fóstri hjá ömmu sinni. Þótt faðirinn væri landskunn- ur þingmaður var ekki miklum efn- um fyrir að fara. En uppeldið var vandað og börnin vanin á að ræða um þjóðmál með fullorðnum. Drengirnir voru þó hæfílega baldnir og uppátækjasamir. Á unglingsárum Péturs veldur sósíalisminn fyrstu væringunum í ís- lenzku þjóðfélagi þegar Ólafur Frið- riksson neitaði að láta af hendi rúss- neskan dreng sem talinn var hafa smitandi augnsjúkdóm. Glíman við að skilja og taka afstöðu til þessarar stjórnmálastefnu var eitt meginvið- fangsefni Péturs alla tíð. Hann var ekki neinn einfaldur íhaldsmaður heldur miklu fremur frjálslyndur og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.