Morgunblaðið - 06.01.1999, Side 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
1999
HANDKNATTLEIKUR
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR
BLAÐ
c
Spenna í Ásgarði
ASMUNDUR Einarsson var frábær í marki Aftureldingar í gærkvöldi þegar 14. umferð 1. deildar fór fram. Frammistaða hans nægði samt
ekki efsta liðinu, því Stjarnan hafði betur, vann 24:23 og gerði Arnar Pétursson sigurmarkið með skoti utan punktalínu á síðustu sek-
úndu. FH skellti Fram, ÍBV lagði KA, Haukar fóru sigurferð til Selfoss, en ÍR og HK gerðu jafntefli eins og Valur - Grótta/KR að Hlíðarenda.
Allt seldist í
hlutafjárút-
boði Fram
HLUTAFJARUTBOÐI í Fram - Fótboltafélagi
Reykjavíkur hf. - lauk á gamlársdag l\já Kaup-
þingi hf., en markinið þess var að afla hlutaQár
til reksturs og uppbyggingar félagsins.
Niðurstaða útboðsins varð sú að allt hlutaféð
seldist. Eru hlutliafar í félaginu 437 taisins, en í
boði voru 30 miiljónir að nafnvirði, eða 40% af
heildarhlutafé félagsins. Gengi bréfanna var 1,15
og seldust því bréf fyrir 34,5 milljónir króna.
Eiríkur Jensson hjá Kaupþingi hf. segir að þar
á bæ séu menn ánægðir með
___ niðurstöðu útboðsins enda
hafi menn rennt algjörlega
blint í sjóinn. „Þetta hljóta að
teljast jákvæð viðbrögð
markaðarins, því hér er uni
nýjung á tjármálamarkaöi að
ræða,“ sagði Eiríkur. Hann
bætti því við að útboðið hefði
geugið afar rólega fyrst í
stað, en svo hafi margar
áskriftarbeiðnir borist síð-
ustu dagana og hiutaféð því
selst allt. Um umframeftir-
spurn hafi ekki verið að
ræða og því skerðist hiutur
hvers og eins ekki.
Eiríkur vildi ekki gefa upji
livernig skipting eignariiluta
hefði verið milli einstakra
hluthafa, sagði að Hlutafé-
lagaskrá myndi birta þann
lista í næsta mánuði.
Greiðsluseðlar verða sendir
nýjum hiuthöfum fyrir 14.
janúar nk. og er greiðslu-
frestur 29. janúar nk.
Stjórn Fótboltafélagsins
hefur ákveðið að sækja um
skráningu hlutabréfa á Vaxt-
ariista Verðbréfaþings ís-
lands á árinu, þegar félagið
liefur uppfyilt öll skilyrði þar
að lútandi.
Hlutafjárútboð KR-Sport
hf. stendur enn yfir, en það
hófst 21. des sl. og stendur til
15. janúar. Þar er uni að
ræða 50 inilljóna hlutafé á
nafnvirði, eða genginu 1,0.
Morgunblaðið/Kristinn
LYFJAMAL
Skiptar skoðanir um hvort refsa eigi félögum falli einstaklingur á lyfjaprófi
Beita á þyngstu refsingu
NÝJASTA lyfjamálið hér á landi, meint neysla körfuknatt-
leiksmanns úr Grindavík, virðist gefa tilefni til vangaveltna
um reglur sem gilda um lyfjaeftirlit hér á landi.
Eins og fram kom hjá Pétri
Hrafni Sigurðssyni, fram-
kvæmdastjóra Körfuknattleiks-
sambandsins, í blaðinu í gær virð-
ast reglurnar fyrst og fremst
sniðnar að einstaklingsíþróttum.
Pétur Hrafn benti meðal annars á
að sér virtist sem KKÍ yrði að fara
eftir reglum Alþjóða körfuknatt-
leikssambandsins varðandi viður-
lög ef einhver yrðu.
Fjórða málsgrein 12. greinar
reglugerðar ISI um lyfjaeftirlit
hljóðar svo: „Utilokun skal taka
gildi afturvirkt frá þeim degi sem
lyfjaeftirlit það er leiddi brotið í
ljós var framkvæmt eða íþrótta-
iðkandinn neitaði að gangast undir
lyfjaeftirlit. Skal allur árangur sem
íjiróttaiökandinn kann að hafa náð
í keppni frá og með þeim degi og
þar til dómur er upp kveðinn jafn-
framt dæmdur ógildur."
Samkvæmt þessari málsgrein á
íþróttamaður sem fellur á lyfja-
prófi að fara í bann frá og með
þeim degi sem hann fór í lyfjapróf-
ið. Niðurstöður úr lyfjaprófi liggja
yfirleitt ekki fyrir fyrr en tveimur
til fjórum vikum eftir að prófið er
tekið og getur félag viðkomandi
íþróttamanns leikið marga leiki á
þeim tíma. Samkvæmt reglugerð-
inni á að ógilda árangur íþrótta-
mannsins, en hvemig það er gert í
flokkaíþróttum er vandséð.
Ef við tökum ímyndað dæmi af
íþróttamanni í liði A og gefum okk-
ur að hann sé tekinn í lyfjapróf í
byrjun nóvember og í byrjun febr-
úar liggi niðurstaðan fyrir; hann
neytti ólöglegra lyfja. Á þessum
þremur mánuðum lék lið hans tíu
leiki í deildinni auk leikja í bikar-
keppni, þar sem liðið lék til úrslita.
Á að ógilda alla þessa leiki? Sam-
kvæmt reglugerðinni virðist það
hið rétta en skoðanir virðast skipt-
ar ef marka má viðbrögð þeirra
sem rætt var við í gær vegna þessa
máls.
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ,
sagði að hugsunin með reglugerð-
inni væri að hún gilti fyrir hópí-
þróttir jafnt sem einstaklingsí-
þróttir. „Þegar niðurstaða í lyfja-
prófi liggur fyrir er viðkomandi
íþróttamanni, félagi hans og viðeig-
andi sérsambandi sagt frá því og
eftir það má segja að það sé á
ábyrgð félagsins hvort leikmaður
liðsins er settur í bann eða ekki þar
til dómur hefur verið kveðinn upp,“
segir Ellert.
Hann segir í rauninni erfitt að
gera þetta með öðrum hætti. „Ef
við tökum dæmi um hópíþrótta-
mann sem er tekinn í lyfjapróf í
dag og eftir mánuð liggur niður-
staðan fyrir og í ljós kemur að
hann hefur neytt ólöglegra lyfja. Á
að sleppa liði hans og honum al-
veg? Lyfjamisnotkun er mjög al-
varlegt brot og stangast á við
grundvallarreglur íþróttanna. Noti
menn lyf til að reyna að auka ár-
angur sinn á að beita þyngstu refs-
ingu, það má hvorki hlífa íþrótta-
manninum né liði hans. Það verður
að taka hart á slíku því annars
yppta menn bara öxlum og kæra
sig kollótta. Það verður að hræða
menn frá því að beita ólöglegum
aðferðum til að ná betri árangri,"
sagði Ellert.
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bandsins, sagðist ekki hafa lesið
reglugerð ÍSÍ en viðurlögin hjá
bæði FIFA og UEFA væru þau að
einstaklingurinn væri dæmdur í
sektir og leikbann, en liðinu væri
hins vegar sjaldnast refsað. „Mér
finnst ekki skynsamlegt að refsa
heilu liði ef einstaklingur innan
þess verður uppvís að lyfjamis-
notkun. Séu reglur ÍSÍ þannig
finnst mér brýnt að endurskoða
þær því reglur þurfa að vera
þannig að þær séu framkvæman-
legar og skynsamlegar,“ sagði
Geir.
STEINAR EGE OG S-KOREUMAÐURINN YOON FARA TIL KIEL/C3