Morgunblaðið - 06.01.1999, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1999 C 3
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
in, sem lék vel með FH-liðinu, kastar sér inn úr horni og skorar eitt af mörkum sínum.
Heimavöllur
Eyjamanna
dijúgur
EYJAMENN gefa ekkert eftir á
heimavelli sínum, hvorki í
deild né bikar. Þeir mættu
leikmönnum KA í Eyjum í gær-
kvöldi og gestirnir voru engin
hindrun fyrir ákveðna Eyja-
menn sem sigruðu 27:23 og
hafa þar með fullt hús stiga á
heimavelli sínum.
Sigfús Gunnar
Guðmundsson
skrifar
Eyjamenn tóku snemma leiks á
honum stóra sínum og náðu for-
ystu. Sigmai- Pröstur Óskarsson var
í fínu formi í marki
IBV og vörnin
prýðileg og þar með
lagði liðið grunninn
að þægilegri stöðu,
12:8, er sjö mínútur voru til leikhlés.
En þá tóku KA-menn á sig rögg
með Hilmar Bjamason í broddi
fylkingar og tókst að jafna 12:12 en
staðan í leikhléi var 13:12 fyrir ÍBV.
í upphafi síðari hálfleiks stefndi
allt í hörkuleik en KA-menn misstu
Hilmar Bjarnason út af þriðja sinni
þegar níu mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik í stöðunni 16:15.
Hann hafði verið öflugastur KA-
manna, bæði í vörn og sókn og við
þetta riðlaðist leikur gestanna og
Eyjamenn gengu á lagið og komust
mest í 25:18. Þrátt fyrir mikla bar-
áttu KA-leikmanna undir Iokin þeg-
ar þeir gerðu 4 mörk í röð á rúm-
lega þriggja mínútna kafla tókst
þeim ekki ætlunarverk sitt.
Sigmar Þröstur Óskarsson var
bestur Eyjamanna, varði oft geysi-
lega vel, þar á meðal 3 vítaköst.
Enginn skar sig úr úti á vellinum
heldur lék liðið sem ein heild. Slavis
Rakanovic kom inn í lið Eyjamanna
aftur eftir meiðsl, spilaði hluta úr
síðari hálfleik og gerði það vel.
Hjá KA var Hilmar Bjamason
öflugur í vörn og sókn þann tíma
sem hann lék.
ærandi sigur FH á Fram
LEIKMENN FH, sem hafa átt undir högg að sækja í deildar-
keppninni í vetur, unnu sannfærandi sigur á slökum Frömurum í
Kaplakrika í gærkvöldi, 30:25. Leikurinn var aldrei spennandi
enda náðu heimamenn snemma forystu og höfðu m.a. yfir,
17:10, í leikhléi. Orsök þessa mikla forskots FH-inga var stirður
og einhæfur sóknarleikur Fram auk máttlítillar varnar, sem FH-
ingar nýttu sér til fulls. Þess má geta að varnarleikur beggja liða
var ekki upp á marga fiska í þessum leik.
Framarar náðu aðeins að rétta
úr kútnum í síðari hálfleik og
minnkuðu muninn í fjögur mörk.
Þór Björnsson
leysti Sebastían
fíTgnvaidsson Alexandersson af
skrífar seint í fym halfleik
og stóð sig a.m.k.
betur en sá síðarnefndi, varði sjö
skot og hóf í kjölfarið nokkur
hraðaupphlaup Framara í síðari
hálfleik. En leikmenn Fram virtust
aldrei hafa trú á að hægt væri að
vinna upp forskot FH og vel
stemmt lið heimamanna vann því
verðskuldaðan sigur. Liðið náði vel
saman, var lengi vel skipað ungum
leikmönnum, því Hálfdán Þórðar-
son og Guðjón Amason, þeir
reyndu kappar, komu ekkert við
sögu. Framarar léku án Gunnars
Berg Viktorssonar.
áfram
ingum
mál og taka ákvörðun um leikmanna-
kaup eftir leikinn gegn Haukum á
fímmtudag,“ sagði Guðjón Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri KFI.
Allt þegar þrennt er
Úrvalsdeildarlið Hauka hefur fengið
þriðja Bandaríkjamanninn í sínar raðir
og vonast til að hann verði út tímabilið.
Hann heitir Antonie Brockington og er
24 ára gamall bakvörður. Hann er 1,88
metrar á hæð og leikur fyrsta leik sinn
með liðinu gegn KFI í Hafnarfirði ann-
að kvöld. Myron Walker hóf leiktíðina
með Haukum og síðan kom Brian Hol-
bert en lék aðeins einn leik áður en
hann yfírgaf liðið rétt fyrir jólin.
í ljósi þess hlýtur þessi sigur FH
að auka sjálfstraust yngri leik-
manna liðsins til muna. Gunnar
Beinteinsson, sem gerði 6 mörk
fyrir FH, er því sammála. „Já,
þessi sigur hefur eflaust mjög góð
áhrif. Það var gaman að sjá hvað
þeir börðust vel í vörninni og léku
vel undir álagi.“ Gunnar sagði
einnig að FH hefði jafnan átt í
nokkrum erfiðleikum með Fram í
gegnum tíðina og að félagar hans
hefðu verið staðráðnir í að láta
finna fyrir sér og „bursta þá,“ eins
og hann komst að orði.
Erfitt framundan hjá
Selfyssingum
Það fór ekki mikið fýrir varnar-
leik framan af leik Selfoss og
Hauka í gærkvöldi en gestirnir
sigruðu 33:30 og
Sigurður Fannar Uóst að Það verður
Guðmundsson erfitt ár hjá Sel-
skrifar fyssingum. I byrjun
fyrri hálfleiks var
eins og bæði lið gætu skorað að
vild og mikið baráttuleysi ein-
kenndi leik beggja liða. Þegar líða
tók á hálfleikinn virtust Haukarnir
átta sig á mikilvægi vai-narinnar.
Jónas, markvörður þeirra, varði 8
skot á stuttum tíma og Haukarnir
náðu að snúa leiknum sér í vil áður
en flautað var til leikhlés.
Fram að þessum kaflaskiptum í
leiknum höfðu Selfyssingar haft yf-
irhöndina en þeir náðu aldrei að
stilla saman strengina í vörninni og
því varð það hlutskipti þeirra að
byrja síðari hálfleikinn þremur
mörkum undir. Sá munur hélst
framan af síðari hálfleik en þá loks
náði vörn Selfyssinga saman og
heimamenn náðu nokkrum hraða-
upphlupum sem gáfu mörk og þeir
náðu að minnka muninn í 21:10.
Þá sögðu Haukarnir hingað og
ekki lengra og náðu aftur þriggja
marka forystu sem þeir héldu til
leiksloka. Selfyssingar áttu mögu-
leika á að jafna í lok leiksins en
fóru illa með færi sín og Haukarnir
fóru með nokkuð sanngjarnan sig-
ur af hólmi að þessu sinni.
Bestir í hði Hauka voru Óskar
Armannsson og Jónas markvörður
Stefánsson. Óskar fór fyrir sókn-
inni á meðan Jónas gaf vörninni
tóninn. Hjá Selfyssingum var það
helst Sigurjón Bjamason sem lék
vel en yfir höfuð virtust leikmenn
liðsins afar mistækir og áhugalaus-
ir.
Björgvin Rúnarsson, fyrirhði
Selfoss, var afar óhress í leikslok.
„Við misstum þetta út úr höndun-
um á okkur, nýttum ekki færin og
spiluðum alls ekki nógu góða
vörn.“ Hann segir úthtið ekki bjart
en það býr meira í liðinu og Björg-
vin telur að á góðum degi geti liðið
sýnt mun betri handbolta en það
hefur gert í vetur.
Finnur barg stigi
fyrir ÍR-inga
Enn einu sinni brenndu HK-
menn sig á sama soðinu, þ.e.
þeir féllu í gryfju fljótfæmi og
^—I skorts á yfirvegun
jvar þegar sigur var inn-
Benediktsson an seilingar. Þetta
skrifar henti þá nú í heim-
sókn til IR-inga í
íþróttahús Austurbergs. Þegar
rúmar 2 mínútur voru eftir höfðu
Kópavogspiltar, undir stjórn Sig-
urðar Sveinssonar, þriggja marka
forskot og með skynsemi í farteski
og yfirveguðum leik áttu þeir að
geta unnið bæði stigin gegn afar
slökum IR-ingum. En kappið bar
skynsemina ofurliði og IR-ingar
nýttu sér það til hins ýtrasta og
tókst að jafna leikinn í þann mund
sem flautað var af, lokatölur 26:26.
Finnur Jóhannsson og Hrafn
Margeirsson innsigluðu dýrmætt
stig íyrir heimamenn. Hrafn varði
slakt skot Stefáns Freys Guð-
mundssonar þegar örfáar sekúnd-
ur vora eftir, sendi knöttinn fram í
hendur Finns sem skoraði af ör-
yggi rétt áður en flautað var til
leiksloka. IR-ingar dönsuðu af
gleði enda verðskuldaði leikur
þeirra að þessu sinni ekki að þeir
fengju stig úr leiknum. HK-menn
gengu hins vegar hnípnir af leik-
velh og gátu engum nema sjálfum
sér kennt um hvemig fór. Þessi úr-
sht geta vegið þungt þegar tímabil-
ið verður gert upp.
Annars var leikurinn í heild slak-
ur og oft nokkuð stórkallalegur.
Baráttan bar skynsemina ofurliði
oftar en ekki og leikmenn vora oft
reknir út af, oft fyrir æði klaufaleg
brot.
Framan af fyrri Hálfleik var
frumkvæðið HK-manna en eftir
þrjú mörk í röð frá IRum miðjan
fyrri hálfleik snera þeir stöðunni
sér í hag og vora marki yfir í hálf-
leik, 10:9.
Doði einkenndi leikmenn ÍR í
síðari hálfleik og virtist sem þeir
hefðu engan áhuga á því sem fram
fór á leikvellinum og metnaður var
takmarkaður. Óvænt útspil Sigurð-
ar og félaga í upphafi síðari hálf-
leiks að setja Helga Arason í sókn-
ina hafði tilætluð áhrif. Hann gerði
fimm af fyrstu átta mörkum liðsins
í hálfleiknum og mörkin virtust
vera að leggja grann að sigri HK-
liðsins.
Jafnframt því sem Helgi var at-
kvæðameiri losnaði um Sigurð
Sveinsson og hann átti að vanda
dýrmætar línusendingar. En sem
fyrr segir gerði skynsemiskortur
vart við sig í herbúðum HK og það
reyndist þeim dýrt.
■ FYRIR báða leikina í Eyjum var
Kristbjargar Þórðardóttur minnst
með því að áhorfendur risu úr sæt-
um og minntust hennar með
skammri þögn. Bæði lið ÍBV léku
með sorgarbönd. Kristbjörg varð
bráðkvödd 4. janúar, en hún var
sambýliskona Arnars Richardsson-
ar, leikmanns ÍBV, og skilur einnig
eftir sig tvö börn.
■ GAMLA kempan Elías Bjarahéð-
insson hefur snúið aftur til Eyja eft-
ir víking í nokkur ár í Svíþjóð þar
sem hann lék handbolta við góðan
orðstír. Elias fékk þó ekki að
spreyta sig í leiknum í gærkvöldi en
á örugglega eftir að styrkja leik-
mannahóp Eyjamanna.
■ HALLGRÍMUR Jónasson, mark-
vörður ÍR, og félagi hans, Ólafur
Gylfason, léku ekki með liði sínu
gegn HK. Hallgrímur er meiddur á
lærvöðva en Ólafur á handlegg eftir
högg sem hann hlaut í leik við Aft-
ureldingu snemma í desember.
■ ÞULURINN á leik ÍR og HK í
Austurbergi var ekki að teygja
lopann við að kynna lið gestanna,
liðsmenn HK. Lét hann nægja að
kynna Sigurð Sveinsson og sagði
það vera vegna þess að hann væri
nú kominn á fimmtugsaldur. Því
miður fyrir þulinn þá er það ekki
rétt þar sem Sigurður verður ekki
fertugur fyrr en 5. mars og þá fyrst
kemst hann á fimmtugsaldurinn.
■ SIGURÐUR fór sér annars frek-
ar hægt í leiknum, skoraði 3 mörk,
þar af 2 úr vítakasti. Aldrei þessu
vant brást honum bogalistin í
tveimur vítaköstum.
■ JÓN Kristjánsson, þjálfari og
leikmaður Valsmanna, var ekki
með lærisveinum sínum i gær-
kvöldi. Jón fór í aðgerð um hátíð-
aniar vegna hnémeiðsla og verður
líklega frá í hálfan mánuð. Þá vant-
aði línumanninn Magnús Agnar
Magnússon í lið Gróttu/KR, en
hann var veikur.
■ ÁSMUNDUR Aniarsson, sem
varð þriðji markahæsti leikmaður
Fram í knattspymunni í sumar
kemur einnig að handboltanum, því
hann er sjúkraþjálfari Gróttu/KR.
■ OLEG Titov, hinn rússneski
línumaður Fram, kom inn á fyrir lið
sitt gegn FH í gær, en hann hefur
ekkert leikið í vetur vegna meiðsla.
Titov tók þrjú vítaköst í leiknum og
misnotaði þau öll.
Vantar ár í aldarfjórðung
GUÐMUNDUR Þórðarson, ieikmaður ÍR, stóð að vanda í vörn liðsins
í gærkvöldi, en með leiknum náði hann þeim áfanga að hafa verið i
meistaraflokksliði 1. deild í 24 ár. Þar með sló hann met Gunnlaugs
Iljálinarssonar sem eiunig lék lengst af sínum ferli með ÍR, en var
einnig með Fram. Guðmundur, sem verður 41 árs 12. mars nk., hóf að
leika með meistarafiokki ÍR í 1. deild 1975 og vantar því aðeins eitt
ár í að liafa verið f ineistaraflokkki í aldarfjórðuug. Líkt og Gunn-
laugur þá hefur Guðmundur ieikið með öðra félagi á löngum ferli því
hann var með Stjörnumönnum úr Garðabæ um nokurra ára bil, en
kom sfðan lieim á nýjan leik fyrir uokkrum árum.