Morgunblaðið - 08.01.1999, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
Vonbrigði
ENN og aftur féll Kristinn Bjömsson úr keppni i gær-
kvöldi er fímmta heimsbikarmótið fór fram í Schladming í
Austurríki. Hann hefur nú ekki komist í gegnum fjógur
mót í röð þó svo að hann hafi verið nálægt því að þessu
sinni. Hann komst niður fyrri umferðina á ágætum tíma,
en féll í þeirri síðari þegar hann átti um tíu hlið eftir ófar-
in í marldð.
„Petta voru mikil vonbrigði því hann stóð sig mjög vel í
fyrri umferðinni,“ sagði Haukur Bjarnason, þjálfari hans,
við Morgunblaðið eftir mótið. „Þetta var mjög erfíð
beygja þar sem hann fór út úr. Við vorum búnir að vara
hann við þessari hættu. En hann lenti örlítið aftarlega áð-
ur en hann kom I beygjuna og náði henni ekki. Skíðin
þeyttust út í loftið og hann reyndi allt til að bjarga sér, en
því miður gekk það ekki,“ sagði Haukur.
Sigurvegari í gær var tvítugur Austurríkismaður,
Benjamin Raich, sem var með 22. besta tímann eftir fyrri
umferðina. Hann keyrði sig upp í efsta sætið í síðari um-
ferðinni og bætti þar með met sem Svíinn Ingemar Sten-
mark átti. Sjö féllu úr keppni í síðari umferð og flestir
þeiiTa í sömu beygju og Kristinn.
Á myndinni hér til hliðar er Kristinn á fullri ferð í fyrri
umferð svigsins í Schladming í Austurríki í gærkvöldi, en
þá var hann með 18. besta brautartímann.
UM nokkurn tíma hafa for-
ráðamenn Liverpool og
enski landsliðsmaðurinn
Robbie Fowler verið í
launaviðræðum. Ekkert
hefur gengið og hefur
Fowler ekki viljað skrifa
undir nýjan samning, en
hann á átján mánuði eftir
af samningi sínum við liðið.
Arsenal og Blackburn,
ásamt nokkrum erlendum
liðum, hafa sýnt Fowler
áhuga.
Nú hafa forráðamenn
Liverpool opnað möguleik-
ann á að Fowler skrifi und-
ir nýjan samning með því
að bjóða honum 30 þús,
pund í laun á viku, eða um
3,42 millj. ísl. kr., sem gerir
hann að launahæsta leik-
manni Liverpool frá upp-
hafi. Fyrir fimm ára samn-
ing á hann að fá átta millj.
punda, eða um 912 millj.
kr.
plíncgwttlitoíitö
1999
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR
BLAD
Leiftur áfram fjölþjóðlegt
Leiftur úr Ólafsfirði mun áfram
tefla fram sannkölluðu fjölþjóðaliði í
efstu deild karla á næstu leiktíð. í
gær fékkst staðfest að miðvallarleik-
maðurinn Sámal Johansen verður
þriðji færeyski landsliðsmaðurinn í
herbúðum Ólafsfirðinga og þar með
sjöundi erlendi leikmaður liðsins.
Leiftursliðið tefldi fram fjölþjóð-
legu liði á síðustu leiktíð undir stjóm
Páls Guðlaugssonar og hafnaði í 5.
sæti deildarinnar og komst í úrslit
bikarkeppninnar. Páll verður áfram
þjálfari liðsins, en ljóst er að þrír er-
lendir leikmenn em horfnir á braut
auk þriggja sterkra íslenskra leik-
manna.
Sámal Johansen er 24 ára og kem-
ur frá Götu í Færeyjum. Hann er
einnig liðtækur sem varnarmaður og
hefur átt fast sæti í færeyska lands-
liðinu í þrjú ár. Þá hafa Leifturs-
menn einnig samið við framlínu-
manninn Örlyg Þór Helgason, 18 ára
leikmann Þórs á Akureyri. Áður
hafði félagi hans úr Þórsliðinu,
drengjalandsliðsmaðurinn Ingi
Hrannar Heimisson, gengið í raðir
Ólafsfjarðarliðsins.
Ljóst er að enn frekari breytingar
verða á Leiftursliðinu, því um helg-
ina samdi miðvallarleikmaðurinn
John Nielsen við danska úrvalsdeild-
arliðið Viborg. Nielsen lék 15 leiki
með Leiftri í deildinni sl. sumar. Þá
verður Nígeríumaðurinn Peter
Ogaba ekki áfram og hið sama gildir
um framherjann Rastislav Lazorik.
Færeysku landsliðsmennirnir Uni
Arge og Jens Martin Knudsen verða
áfram með Leiftri og einnig Skotinn
Paul Kinniard.
Þá hafa Leiftursmenn samið við
tvo Brasilíumenn og einn Finna og
munu þeir leika með liðinu á næstu
leiktíð. Páll Guðlaugsson þjálfari fór
til Brasilíu sl. haust og fylgdist með
leikmönnum og í kjölfarið var gengið
til samninga við 24 ára framherja og
26 ára varnarmann. Aukinheldur var
samið við fínnskan miðvallarleik-
mann á dögunum. Þá er varnarmað-
urinn Hlynur Birgisson kominn heim
úr atvinnumennsku í Svíþjóð.
Þrír sterkir leikmenn hafa yfírgef-
ið herbúðir Leiftursmanna, Baldur
Bragason gekk til liðs við Islands- og
bikarmeistara ÍBV, Andri Marteins-
son er kominn í FH og Steinar Ingi-
mundarsson er fluttur suður.
Þorsteinn Þorvaldsson, formaður
knattspyrnudeildar Leifturs, sagði í
gær að vissulega væru þetta miklar
breytingar. „Leiftursmenn hafa hins
vegar aldrei verið hræddir við að
fara ótroðnar slóðir og það er ein-
faldlega ódýrara að fara þessa leið
en keppa á innanlandsmarkaði um
leikmenn.“
Þorsteinn bætti því við að hópur-
inn kæmi mun fyrr saman að þessu
sinni og flestir yrðu komnir í mars
og apríl. „Það er mikil breyting fyr-
ir okkur, því í fyrsta leik okkar í
deildinni í fyrra vantaði fjóra leik-
menn.“
Reuters
■ Nánar / C3
TUTSCHKIN
Fowler
boðnar 3,4
millj. kr í
vikulaun
Tutschkin
með Rúss-
um í HM
STÓRSKYTTAN Alek-
sandr Tutschkin, fyrrver-
andi félagi Patreks Jó-
hannessonar hjá Essen,
sem leikur nú með Minden
og er að gera það gott, leik-
ur með Rússum í heims-
meistarakeppninni í Eg-
yptalandi. Tutschkin, sem
er 34 ára, er Hvít-Rússi og
lék með Hvíta-Rússlandi
hér á landi í HM 1995, hef-
ur fengið rússneskt vega-
bréf, þannig að hann geti
valið um hvort hann leiki
með Hvíta-Rússlandi eða
Rússlandi.
KR-ingar aftur
til Watford
VARNARMENNIRNIR Sigurður Örn Jónsson og
Bjarni Þorsteinsson úr KR eru á leið til enska 1.
deildar liðsins Watford. Þeir félagar voru við æf-
ingar hjá Watford í haust og nú hefur félagið ósk-
að eftir því að fá þá aftur til frekari skoðunar.
Watford er ofarlega í 1. deild og hefur komið
mjög á óvart í vetur, en liðið kom upp úr 2. deild
si. vor. Framkvæmdastjóri liðsins er Graham Ta-
ylor, fyrrverandi stjóri enska landsliðsins. Fyrir
hjá félaginu er framherjinn Jóhann B. Guðmunds-
son úr Keflavík.
„Mér líst vel á þetta og það er góðs viti að fé-
lagið vilji fá okkur aftur,“ sagði Sigurður Örn í
gærkvöldi. „Við förum út eftir tvo daga og eigum
að vera ytra í tæpan mánuð. Það er fremur lang-
ur tími fyrir slíka reynsluferð og ætti að nýtast
vel og gefa okkur tækifæri í nokkrum Ieikjum,“
sagði Sigurður ennfremur. Hann bætti því við að
sér hefði litist afar vel á allar aðstæður hjá enska
liðinu og á stjórann, Graham Taylor. Þá spillti
ekki fyrir að Jóhann hefði staðið sig vel að undan-
förnu.
Sigurður Örn og Bjarni eru báðir samnings-
bundnir KR, en skv. heimildum Morgunblaðsins
hefur ekki enn verið rætt um hugsanlegt kaup-
verð milli liðanna. Þó er ljóst að það yrði ekki
undir tíu milljónum króna, enda er Sigurður í A-
landsliðshópi Islands og Bjarni leikmaður ung-
lingaliðsins.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur
danska úrvalsdeildarliðið Lyngby áhuga á Krist-
jáni Finnbogasyni markverði og fullvíst er talið að
varnarmaðurinn Indriði Sigurðsson fari innan
skamms til Liverpool. Allir eru þessir leikmenn
samningsbundnir vesturbæjarliðinu og yrði því
um sölu að ræða.
KNATTSPYRNA
ALFREÐ GISLASON SAFNAR LIÐI HJA MAGDEBURG / C4