Morgunblaðið - 08.01.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 C 3
ÍÞRÓTTIR
FOLK
■ SIGURÐVR Pétursson golf-
kennari hefur verið ráðinn kennari
hjá Golfklúbbnum Oddi. Samning-
ur Sigurðar við Golfklúbb Reykja-
víkur var ekki endurnýjaður í
haust en Sigurður hafði kennt þar
á bæ í mörg ár.
■ SIGURÐUR sagði að líklega yrði
nafni hans Hafsteinsson með hon-
um við kennslu hjá Oddi, en hann
yrði ekki með verslun þar eins og
hjá GR. Sigurður mun kenna í
Golfheinium í vetur.
■ LARS Walther handknattleiks-
maður með KA meiddist á hné á
æfíngu á mánudaginn og lék ekki
með gegn ÍBV daginn eftir. Sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu
KA gæti Walther verið frá keppni í
2-3 vikur vegna meiðslana.
■ GORDON Strachan knatt-
spyrnustjóri Coventry hefur fest
kaup á 20 ára gömlum markverði
frá danska liðinu Ikast. Sá heitir
Morten Hyldegaard og gerði hann
fimm ára samning við Coventry.
■ HYLDEGAARD leikur með
Ikast fram á næsta sumar er deild-
arkeppninni lýkur í Danmörku, en
flytur sig þá til Englands. Danskir
markverðir virðast vinsælir í
Englandi því Hyldegaard er sjötti
markvörðurinn sem nú er á samn-
ingi þar í landi.
■ HOLLENSKA liðið Ajax hefur
stofnað lið í Höfðaborg í Suð-
ur-Afríku og mun liðið leika í efstu
deild þar í landi. Hollenska liðið
leikur æfíngaleik á miðvikudaginn
við nafna sína í S-Afríku og viku
seinna mun liðið leika við úrvalslið
landsins.
■ MARSEILLE, efsta liðið í
frönsku 1. deildinni, keypti í gær
miðjumanninn Tchiressoua Guel
frá Fflabeinsströndinni en hann lék
með ASEC Abidjan í Afríku. Petta
er annar leikmaðurinn sem
Marseille kaupir á stuttum tíma því
nýverið festi liðið kaup á brasilíska
varnarmanninum Edson. Hinn 23
ára miðjumaður var valinn besti
leikmaður Afríku á síðasta tímabili
og hefur leikið 35 landsleiki.
■ ANDONI Goikoetxea, fyrrver-
andi landsliðsmaður Spánar í
knattspyrnu, er kominn heim frá
Japan og hyggst hann enda knatt-
spyrnuferil sinn hjá 2. deildarliði
Osasuna. Hann er 33 ára og lék á
sínum tíma 36 landsleiki fyrir
Spánverja. Hann byrjaði ferilinn
hjá Osasuna, en lék síðan með Real
Sociedad, Barcelona og Athletic
Bilbao áður en fór til Japans fyrir
átta mánuðum.
■ FORRÁÐAMENN ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu hyggjast
vopna valinn hóp dómara og aðstoð-
ardómara með hljóðnemum á næstu
leiktíð. Tilgangurinn er að bæta
samskipti þeirra á milli, en undan-
farið hefur mjög farið vaxandi
gagnrýni á störf dómara í ensku
knattspyrnunni. Talsmaður úrvals-
deildarinnar segir að tilraun verði
gerð með hljóðnema í nokkrum
leikjum, en tók fram að eftir væri að
útfæra tilraunina nánar.
egnum vörn Keflvíkinga í nágrannaslagnum i gærkvöldi,
að Njarðvíkingar höfðu haft 19 stiga forystu í leikhléi.
Morgunblaðið/Ásdís
Þar höfðu Kefl-
Liðið lék prýðilega vörn á köflum en sókn-
arleikurinn var ansi brokkgengur og þeir
misstu boltann alltof oft. Það var helst fyr-
ir tilstilli aldursforseta Þórsliðsins, Kon-
ráðs Óskarssonar, að liðið átti góða kafla.
Hann lék KR-inga oft grátt og barðist vel.
Öruggt á Króknum
Tindastólsmenn tóku á móti Snæfelli úr
Stykkishólmi á Sauðárkróki í gær-
kvöldi og sýndu enga gestrisni, sigruðu
95:71. Fyrstu tíu mínúturn-
ar var jafnræði með liðun-
um og dálítill hátíðarblær
skrifar var a leik hðanna; leleg
sókn, vond vörn og lítið
skorað. Þá tóku heimamenn sig saman í
andlitinu, Valur Ingimundarson kom inná
og Arnar Kárason fór á kostum og þeir
breyttu stöðunni úr 11:11 í 27:12 og eftir
það varð ekki aftur snúið. I leikhléi var
staða þeirra þægileg, 43:27.
í síðari hálfleik héldu Tindastólsmenn
uppteknum hætti og hertu tökin ef eitt-
hvað var og léku gesti sína mjög grátt. Hjá
Snæfelli hafði Rob Wilson átt misjafnan
leik fyrir hlé en tók sig nú á og fékk mikið
af villum dæmdar á heimamenn og skoraði
mikið úr vítaköstum. Heimamenn gáfu þó
ekkert eftir og juku forystu sína en undir
lokin er yngri strákar fengu að reyna sig
minnkað munurinn aðeins en sigurinn var
aldrei í hættu.
Woods, Arnar og Sverrir Þór Sverrisson
voru bestir í jöfnu liði heimamanna en Wil-
son skástur hjá Snæfellingum.
Mikilvægur sigur ÍA
ÍA og Valur áttust við í íþróttahúsinu á
Akranesi í gærkveldi. Fyrn- leikinn voru
bæði Iið í neðri hluta deildarinnai- og
þurftu því nauðsynlega á
Jóhannes stigum að halda. Valsmenn
Harðarson komu ákveðnir til leiks og
skrifar náðu strax forystu sem þeir
héldu fram í miðjan fyrri
hálfleik. Þá misstu þeir örlítið tökin og
Skagamenn komust meira inn í leikinn,
söxuðu á forskot gestanna og í hálfleik var
jafnt, 36:36. í síðari hálfleik dalaði leikur
—
Valsmanna meðan heimamenn héldu
uppteknum hætti. Þeir náðu
snemma tíu stiga forystu sem reynd-
ist of mikið bil fyrir gestina að brúa
og þegar yfír lauk var munurinn 16
stig, 84:68.
Oft og tíðum reyndu bæði lið að
keyra upp hraðann en þau réðu eng-
an veginn við það og úr varð fum og
fát og fá tilþrif sem glöddu augað
nema vera skyldi góðm- leikur Aiex-
anders Ermolinskij sem var frábær
bæði í vörn og sókn. Dagur Þórisson
lék einnig vel og Björgvin Karl
Gunnnarsson á hrós skilið fyrir
mikla baráttu. Kenneth Richards lék
vel framan af fyi’ir Valsmenn en er á
leið missti hann og félagar hans
móðinn og leikur þeirra fjaraði út.
Ungur Austurríkismaður stal senunni
Raich sló met
Stenmarks
AUSTURRÍSKI táningurinn Benjamin Raich sló heldur betur í
gegn í svigi heimsbikarsins í Schladming í Austurríki í gær. Hann
var með 22. besta tímann eftir fyrri umferð, en gerði sér lítið
fyrir og náði langbesta tímanum í síðari umferð og sigraði. Þetta
er besti árangur sem nokkur skíðamaður hefur náð, þ.e.a.s.
bætt sig á milli umferða og sigrað. Fyrra metið átti sænski
skíðakóngurinn Ingemar Stenmark sem vann sig upp um 21 sæti
í svigi í Madonna Di Campiglio fyrir 24 árum. Kristinn Björnsson
var með 18. besta tímann eftir fyrri umferð en féll í þeirri síðari.
Raich er tvítugur og fju'rum
heimsmeistari unglinga og hef-
ur verið að skjótast upp á stjörnu-
himininn í vetur. Hann náði þriðja
sæti í sviginu í Kranjska Gora og
fjórða sæti í stórsvigi á sama stað
fyiT í þessari viku. „Ég trúi varla
mínum eigin augum. Þetta var
hreint ótrúleg spenna og biðin var
erfið í markinu þar til allir keppi-
nautarnir voru komnir niður,“ sagði
Raich í sigurvímu eftir mótið um
leið og 30 þúsund áhorfendur fögn-
uðu þessum unga skíðamanni sem
þjóðhetju. „Markmiðið hjá mér eftir
fyrri umferðina var að enda innan
við tíu. Ég gaf allt í botn og vissi að
ég hafði keyrt vel, en bjóst aldrei
við sigri. Þetta er frábært.“
Frá því keppnistímabilið hófst
hafa austurrískir þjálfarar sagt að
Raich væri of ákafur og ætti að
keyra af meira öryggi. Hann væri
jafnvel kraftmeiri og villtari skíða-
maður en ólympíumeistarinn Her-
mann Maier. Toni Sailer, austur-
ríski ólympíumeistarinn frá 1956,
var meðal áhorfenda í Schladming í
gær. Hann sagði: „Ég hef aldrei séð
nokkurn skíðamann keyra eins frá-
bærlega og Raich gerði í síðari um-
feðrinni.“
Frakkinn Pierrick Borugeat, sem
vann á fyrsta svigmótinu í Park
City, varð annar, Kjetil Andre
Ámodt frá Noregi þriðji og æfínga-
félagi Kristins, Svíinn Martin Hans-
son, fjórði og er það besti árangur
hans í heimsbikarnum. Juri Kosir
og Thomas Stangassinger, sem
voru með tvo bestu brautartímana í
fyrri umferð, náðu sér ekki á strik í
síðari umferðinni. Stangassinger
krækti fyrir hlið neðarlega í braut-
inni og var úr leik og Kosir varð að
láta sér lynda fimmta sætið.
Góð fyrri umferð
Kristinn stóð sig vel í fyrri um-
ferðinni. Var mjög einbeittur -
keyrði af öryggi og var hvergi ná-
lægt því að detta. Tími hans var
48,36 sekúndur og var það 18. besti
brautartíminn. Besta tímanum í
fyrri umferð náði Juri Kosir frá Sló-
veníu, sem var 1,07 sekúndum á
undan Ki'istni. Það var mikil spenna
í síðari umferð því lítill tímamunur
var á þeim 30 keppendum sem
fengu að fara niður. Allt gat því
gerst.
Kristinn fór þréttándi niður
brautina í síðari umferð og voru þá
tveir keppendur fallnir úr keppni;
Japaninn Kimura og Norðmaðurinn
Furuseth. Hann var ekki eins ein-
beittur og í fyrri umferð og þegar
hann kom í neðri hluta brautarinnar
féll hann. Það kom mjög þver
beygja eftir svokallaða hárnál.
Hann kom á of mikilli ferð út úr
hárnálinni og var of seinn þegar
hann kom í þveru beygjuna og
missti sig aðeins aftur. Hann náði
ekki pressu á neðra skíðið og missti
þau frá snjónum og krosslagði þau
um leið og hann reyndi að komast í
gegnum næstu beygju fyrir neðan.
Þar með var keppnin úti hjá honum
og vonbrigðin leyndu sér ekki í and-
liti hans.
Kristinn mun næstu daga dvelja
við æfíngar í Schladming en keppir
síðan í Evrópubikarmóti í svigi á
sunnudag og hugsanlega aftur á
fímmtudag. Næsta heimsbikarmót
verður í Wengen um aðra heigi og
viku síðar verður keppt í Kitzbuhel.
Það er síðasta mótið fyrir heims-
meistaramótið sem fram fer Vail í
Bandaríkjunum í byrjun febrúar.
Stjarnan
lagði
Þrótt
Stjaman kom á óvart í Asgarði í
gærkvöldi með sigri á Þrótti,
Reykjavík, í fimm hrinu leik, 15:3,
13:15, 9:15, 15:6 og 17:15. Lengi vel
benti fátt til þess að Stjarnan ynni
sigur í oddahrinunni, sem þó varð
æsispennandi undir lokin fyrir til-
stilli Emils Gunnarssonar sem átti
fjórar uppgjafir í röð og jafnaði
metin í 14:14.
Emii var bestur í liði Stjörnunn-
ar, en það var þó fyrst og fremst
öflug hávörn og góð vinnsla í lág-
vörninni sem fleytti liðinu áfram.
„Miðað við hvernig við spiluðum
áttum við ekki skilið að vinna,“
sagði Einar Ásgeirsson, leikmaður
Þróttar, eftir leikinn.
Rífleg uppbót hjá Rosenborg
LEIKMENN Rosenborg fá ágæta
uppbót fyrir þátttöku sína í
Meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu. Þeir sem léku alla leiki
liðsins mega vænta þess að fá um
500.000 norskar krónur í sinn
hlut, u.þ.b. 5 milljónir króna.
Ilver teikmaður fær 200.000
norskar krónur fyrir að komast í
keppnina og fyrir sigurleikina
við Atlfletic Bilbao og
Gaiatasaray verður gi-eidd sama
upphæð. Tveir jafnteflisleikir, við
Bilbao og Juventus, þýða um
100.000 krónur til viðbótar. Þeir
sem vorn á varamannabekknum
fá helming þessara upphæða í
sinn hlut og þeir er voru svo
óheppnir að komast ekki í hópinn
sem tók þátt í hverjum leik fá
10% af ofangreindum fjárhæðum.
Einn fslendingur leikur með
Rosenborg, Árni Gautur Arason,
og út frá þesum upplýsingum má
reikna með að hann fái fyrir sinn
snúð 400.000 norskar krónur,
sem er nærri 4 milljónum króna.
Árni lék annan sigurleikinn og
var á bekknum í báðum jafntefl-
isleikjunum. Auk þess má hann
vænta þess að fá söniu gruun-
greiðslu og aðrir leikmenu,
þ.e.a.s. 200.000 norskar krónur.
Þessi uppbót er alveg óháð öðr-
um lauuum leikmanna hjá félag-
inu. Hefði Rosenborg uáð í 8-liða
úrslita Meistaradeildarinnar
hefðu leikmenn fengið 200.000
uorskar krónur til viðbótar, fyrir
utan greiðslur fyrir árangur í
þeim leikjum sem fylgt hefðu í
kjölfarið, en þeir hefðu a.m.k.
orðið tveir. Rosenborg leikur
þessa dagana í æfmgamóti á
Kanaríeyjum og í gærkvöldi
mætti liðið Galatasaray og sigr-
aði 4:2. Árni Gautur var í mark-
inu og stóð sig injög vel, varði
þrívegis frábærlega og var ör-
uggið uppmálað.
G. Mclnerney Sports Management
Einn helsti fótboltaumboðssali á írlandi
Við útvegum miða á leiki í ensku úrvalsdeildinni
og gistingu á hóteli
Liverpool, Chelsea, Arsenal, Newcastle, Spurs
Liverpool v. Middlesb. 6. feb. Arsenal v. Chelsea 31. jan.
Liverpool v. West Ham 20. feb. Arsenal v. Leicester 20. feb.
Chelsea v. Liverpool 27. feb. Spurs v. Arsenal 10. apríl.
Chelsea v. Leeds 5. apríl. Spurs v. Aston Villa 13. mars
Leikimir hér að ofan eru aðeins féinir af mörgum — við eigum miða á flesta
leiki í deildinni. Hótelin eru flest 4ra stjarna en margir möguleikar eru á gist-
ingu. Allir miðar á leikina og og heimilisfang hótels eru send á heimilisfang
þitt á íslandi með hraðpósti. Verð frá 189 e. pundum (miði og hótel).
Greiðsiukort velkomin.
Sími 00353 61 332121 (Gerry eða Tony), fax 00353 61 335354.
Castletroy, Limerick, Irland
Irelands Leading Football Agents
SKIÐI
BLAK