Morgunblaðið - 08.01.1999, Blaðsíða 4
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Keppnis
tíma-
bilinu
bjargað
STJÖRNURNAR í NBA-deildinni munu sýna listir sínar á vellinum
eftir allt saman á þessu keppnistímabili eftir að stéttafélag leik-
manna náði samkomulagi við eigendur liðanna um nýjan kjara-
samning á miðvikudag. Með samkomuiaginu lauk rúmlega sex
mánaða verkbanni sem deildin hafði sett á leikmenn og með því
tókst að koma í veg fyrir að hún yrði fyrsta atvinnudeildin í
íþróttasögu Bandaríkjanna til að aflýsa heilu keppnistímabili.
Samkomulagið náðist eftir lang-
an næturfund milli Davids
Sterns, forseta NBA, og Billys
■BIIHI Hunters, formanns
Gurrnar stéttarfélags leik-
Valgeirsson manna. Stern og
skrífar frá Hunter hafa átt í
Bandarikiunum .,
miklum eríiðleikum
með að ræðast við undanfarna mán-
uði og voru margir innanbúðar-
menn, sem fylgdust með kjaradeil-
unni, á því að andúð sú sem þeir
hafa hvor á öðrum hafi staðið í vegi
fyrir samkomulagi um nokkra hríð.
Astandið var orðið svo slæmt und-
anfarnar vikur að þeir neituðu að
ræðast við augliti til auglitis og voru
óragir við að senda hvor öðrum tón-
inn í fjölmiðlum.
Eitthvað gerðist þó aðfaranótt
miðvikudags. A þriðjudag var Stern
upptekinn í einkaviðtölum við flesta
stærstu fjölmiðla landsins. Hann
var a.m.k. í fimm sjónvarpsviðtölum
og fjölmörgum blaðaviðtölum. I við-
tölunum lagði hann áherslu á að eig-
endurnir gætu ekki gengið lengra í
samningaviðræðum, en sumir bentu
honum á að þegar síðustu tilboð
beggja aðila væru skoðuð kæmi í
Ijós að lítið bæri orðið á milli. Ekki
skal mat lagt á hvort það hafi haft
áhrif á forsetann, en eftir viðtölin
samþykkti hann að gera lokatilraun
í laumi um nóttina með Hunter.
Samkomulagið var kynnt klukkan
sex um morguninn, aðeins 29
klukkustundum áður en eigendur
liðanna ætluðu að tilkynna að
keppnistímabilinu yrði aflýst. Leik-
menn voru ekki seinir á sér að stað-
festa nýja saminginn, en hann er til
sex ára. Samninganefnd eigenda
hefur lagt til að þeir samþykki
samninginn. Samkvæmt samkomu-
laginu mun hvert lið leika 52 deild-
arleiki í stað 82 og fara íyrstu leik-
irnir fram í byrjun næsta mánaðar.
Samkomulagið
Deildin hafði lagt mikla áherslu á
að setja þak á laun nýliða. Margir af
reyndari leikmönnunum voru sam-
þykkir því þar sem liðin áttu oft litla
fjármuni eftir undir launaþaki sínu
handa þeim eftir að hafa samið við
bestu nýliðana. Samkomulagið felur
í sér að sett er þriggja til fimm ára
þak á laun nýliða. Þá samþykktu
leikmenn þak á hæstu laun. Þetta
ákvæði mun hins vegar aðeins ná til
leikmanna í framtíðinni en núver-
andi leikmenn munu áfram geta
samið um hærri laun.
Leikmenn fengu ákvæði um und-
anþágur frá launaþakinu samþykkt-
ar á fyrsta ári samningsins. Mikil-
vægust þeirra var að halda að
mestu í Larry Bird-regluna sem
leyfir liðum að semja við sína eigin
leikmenn um launahækkun án þess
að fara yfir heildarlaunaþak sitt.
NBA deildin er fyrsta atvinnu-
deildin sem hefur náð að semja um
hámarkslaun fyrir leikmenn, en það
reyndist erfiðasti hjallinn í samn-
ingaviðræðunum.
Leikmenn þurfa ekki að kvarta
mikið yfir kjörum sínum. Þeir eru
langlaunahæstu íþróttamenn í liðsí-
þróttum í heiminum og vinsældir
NBA um allan heim ættu að tryggja
þeim góð kjör í framtíðinni. Meðal-
árslaun þeirra nú eru 2,6 milljónir
dala, um 180 milljónir króna.
Hvað nú?
Mikið mun verða um leikmanna-
skipti og samningaviðræður á
næstu vikum hjá liðunum, en um
200 leikmenn eru með lausa samn-
inga. Meðal þeirra eru Michel Jord-
an, Scottie Pippen, Dennis Rodman,
Charles Barkley, Damon Stouda-
mire og Rod Strickland. Samninga-
viðræður fara fram á sama tíma og
þjálfarar búa lið undir keppnistíma-
bil.
Stærsta spurningin sem menn
velta fyrir sér nú er, hvað verði um
Michael Jordan og Chicago Bulls.
Jordan mun sennilega leggja skóna
á hilluna, Pippen mun líklega semja
við annað lið og Phil Jackson þjálf-
ari er hættur þjálfun. Framtíð liðs-
ins ræðst af ákvörðun Jordans, en
umboðsmaður hans hefur sagt að
framtíð hans sé á huldu.
Að lokum á eftir að koma í ljós
hvort almenningur muni fyrirgefa
leikmönnum og eigendum verkfall-
ið. Ef dæma má af verkfalli hafna-
boltaleikmanna fyrir nokkrum ár-
um gæti orðið erfitt að ná upp fyrri
áhuga. Ef Jordan ákveður að hætta
gæti ástandið orðið verra en ella.
Reuters
MICHAEL Jordan mun sennilega leggja skóna á hilluna.
■ PAOLO Montero, varnarmannin-
um sterka frá Únígvæ sem leikur
með Juventus á Ítalíu, hefur oftast
alh-a verið vikið af velli þar í landi.
Hann var rekinn af velli í leik Juve
og AC Milan á miðvikudaginn og var
það í 12. sinn sem hann fær að líta
rauða spjaldið hjá dómurum í 1.
deildinni á Ítalíu. Kappinn hefur
leikið í átta tímabil á Ítalíu og skaust
á miðvikudaginn upp fyrir Giuseppe
Bergomi hjá Internazionale en hann
hefur 11 sinnum verið rekinn af velli.
■ MONTERO er einnig á góðri leið
með að komast í efsta sæti þeirra
sem oftast hafa verið reknir af velli á
einu og sama keppnistímabilinu.
Hann hefur verið rekinn þrívegis af
velli á þessu tímabili í þeim 15 leikj-
um sem liðið hefur leikið, en metið er
fjórum sinnum.
■ ÞÝSKI miðjumaðurinn Dietmar
Hamann, sem leikur með Newcastle
í ensku úrvalsdeildinni, segist íhuga
að fara frá félaginu, enda ekki sáttur
við að vera á varamannabekknum.
„Ég kom hingað til að standa mig en
ef ég fæ ekki tækifæri til að sýna
hvað ég get hef ég ekkert að gera
hér. Ég var í byrjunarliði Bayern
Miinchen og hvers vegna ætti ég þá
ekki að komast í lið hjá miðlungs-
sterku félagi í Englandi?" sagði
hann. 1860 Munchen hefur lýst yfir
áhuga á að fá Hamann en kappinn
segist heldur vilja leika í útlöndum,
en bætti þó við að allt væri mögu-
legt.
■ DAVID Ginola var útnefndur
leikmaður ensku úrvalsdeildai-innar í
desembermánuði af styrktaraðila
deildarinnar. Er þetta í fyrsta skipti
síðan í ágúst árið 1994 að leikmaður
Tottenham fær þessa viðui-kenn-
ingu. Þá varð Jurgen Klinsmann
fyrir valinu.
■ PETER Schmeichel markvörður
Manchester United hefur fengið
vikufrí hjá Alex Ferguson knatt-
spymustjóra sínum og leikur því
ekki gegn West Ham um næstu
helgi.
■ FERGUSON sagði Schmeichel að
drífa sig í frí burt frá knattspyrnunni
eftir að hafa verið fjarri sínu besta í
síðustu leikjum.
HANDKNATTLEIKUR
Alfneð safnar liði
hjá Magdeburg
ALFREÐ Gíslason, þjálfari
þýska 2. deildarliðsins Hameln,
sem tekur við þjálfarastarfi 1.
deildarliðsins SC Magdeburg í
sumar, er byijaður að safna liði
fyrir átökin næsta keppnistíma-
bil. „Þegar ég gekk frá samningi
mínum við SC Magdeburg lagði
ég Iínurnar fyrir næsta keppnis-
timabil og óskaði eftir að liðið
keypti nýja leikmenn," sagði Al-
freð í samtali við Morgunblaðið.
Alfreð sagði að forráðamenn
Magdeburgar hafi brugðið skjótt
við og gert samninga við þrjá
leikmenn sem hann vildi fá til
liðs við sig. Fyrstan má þar
nefna Rússann Oleg Kulestsjov,
sem er leikstjórnandi rússneska
meistaraliðsins Volgagrad. Þá
var gerður samningur við
franska landsliðsmarkvörðinn
Christian Gaudin, sem Alfreð
fékk til Hameln er hann tók við
ALFREÐ Gíslason
liðiuu. Þriðji leikmaðurinn er
þýski landslisðmaðurinn Michael
Jahns, sem leikur með hinu Mag-
deburgarliðinu, FSV, en hann er
markahæsti leikmaður norður-
deildar í 2. deild. „Jahns er öflug
skytta og er uppalinn hjá SC
Magdeburg - kemur því heim á
ný. Þessir þrír leikmenn koma til
með að styrkja liðið mikið og þá
hef ég augastað á einum leik-
manni til viöbótar," sagði Alfreð.
Þegar er ljóst að tveir leik-
menn fara frá liðinu - landsliðs-
markvörður Litháens, Almantas
Savonis, og Þjóðverjinn Maik
Machulla.
Alfreð sagðist ekki að öðru
leyti skipta sér af gangi mála hjá
SC Magdeburg. „Eg er í vinnu
hjá Hameln og mun einbeita mér
að því að koma liðinu upp í 1.
deild. Ég vil ekki vera að trufla
starf þjálfarans Lothars Dörings
hjá SC Magdeburg og flækja
málið á miðju keppnistímabili,"
sagði Alfreð, sem heldur til Mag-
deburgar í júlí, þar sem hann
mun hitta fyrir landsliðsmanninn
Ólaf Stefánsson. „Ólafur er einn
af lykilmönnum í framtíðarliði
mínu hjá SC Magdeburg."