Morgunblaðið - 03.02.1999, Page 5
MORGUNB LAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 C 5
Yið höfum áhyggjur af
ástandi karfastofnsins
Aflaklóin Guðmundur
Þ. Jónsson á Baldvini
Þorsteinssyni EA
GUÐMUNDUR Þ. Jóns-
son, skipstjóri á Baldvini
Þorsteinssyni EA, hefur
haldið uppi merki for-
vera sinna og komið með
mesta aflaverðmæti ís-
lenskra fískiskipa að
landi frá því hann tók við skipinu. Baldvin Þorsteinsson EA hefur komið ár-
lega með mesta aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa að landi, eða frá því skipið
kom nýtt til Samherja í lok árs 1992. Guðmundur og skipverjar hans héldu
uppteknum hætti í fyrsta túrnum á nýbyrjuðu ári. Veiðiferðin stóð aðeins
yfir í 16 daga, þar sem skipið fór í hefðbundið viðhald hjá Slippstöðinni
seinni partinn í janúar. Aflaverðmætið var engu að síður um 47 milljónir
króna en uppistaða aflans var þorskur.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þótt vel hafi
gengið síðustu ár, séu ýmsar blikur
á lofti. „Þorskurinn hér á heimamið-
um er í nokkru jafnvægi en aðrar
tegundir eru komnar á hættumörk
og ástandið er sérstaklega slæmt í
karfanum. Þegar þorskveiðai' dróg-
ust saman jókst sókn í karfann.
Vandamálið er hins vegar að það er
aldrei talað um karfa. Það eina sem
við Islendingar tölum um er þorsk-
veiði og svo loðnuveiði. Aðrar teg-
undir gleymast, tegundir sem hafa
skapað okkur mikil verðmæti. En
það er ekki bara ég sem tala um
þetta, því margir af mínum kolleg-
um eru einnig uggandi vegna
ástands karfastofnsins hér við
land.“
Karfi uppistaða aflans
Guðmundur hefur eins og margii'
aðrir stundað veiðar á Reykjanes-
hrygg og hann sagði að þar hafi
veiðarnar gengið nokkuð vel á síð-
asta ári. Hann sagði þetta þó ekki
hafa verið neinn úthafskarfa sem
þar veiddist, heldur djúpkarfi eins
og veiðist á Islandsmiðum. Á Græn-
landsmiðum hafi skipið hins vegar
veitt þennan svokallaða út-
hafskarfa. Uppistaðan í afla togar-
ans á síðasta ári var karfi, þar af um
3.000 tonn í úthafinu og um 1.600
tonn á heimamiðum. Þorskaflinn
var rúmlega 2.000 tonn á heimamið-
um.
Lítið hefur fengist af ufsa á
heimamiðum en að sögn Guðmund-
ar er grálúðustofninn heldur að
jafna sig, enda ekki verið sótt í hann
af jafnmiklum krafti og áður.
Þorskurinn liggur dýpra
Guðmundur sagðist ekki sjá fyrir
sér neinar stórar breytingar á fisk-
veiðistjórnuninni í náinni framtíð.
Hann sagði árið leggjast vel í sig,
þótt hann bæri ugg í brjósti yfir
öðrum fisktegundum en þorski.
„Þorskurinn verður þó ekki veiðan-
legur í jafnmiklu magni og áður og
það er kominn nokkur jöfnuður í
stofninn. Þorskurínn er líka farinn
að liggja mikið dýpra en áður, t.d. á
Vestfjarðamiðum, en það hefur trú-
lega eitthvað með skilyrðin í sjónum
að gera. Þorskurinn tvístrar rækj-
unni sjálfsagt eitthvað en hvort
hann étur hana alla veit ég ekki. En
það breytir því ekki að útlitið í
rækjuveiðunum er ekki gott.“
Meðalaflaverðmæti
um 70 milljónir
Aflaverðmæti Baldvins Þor-
steinssonar EA á síðasta ári var
rúmar 790 milljónir króna og aflinn
rúmlega 7.100 tonn. Þetta mun jafn-
framt vera mesta aflaverðmæti sem
íslenskt fiskiskip hefur nokkru sinni
komið með að landi. Skipið fór í 11
veiðiferðir á síðasta ári og í stærsta
túrnum var aflaverðmætið um 100
milljónir króna. Meðalaflaverðmæti
skipsins á árinu var um 70 milljónir
króna. Veiðiferðirnar voru að jafn-
aði um 30 daga langar en fóru upp í
40 daga.
„Við fiskuðum um 7.700 tonn árið
1997 og rúmlega 8.300 tonn árið
1996 og mér hefur verið sagt að það
sé mesti afli sem íslenskur togari
hefur fiskað á einu ári. Uppistaðan í
þeim afla var líka karfi.“
Guðmundur sagði ekki neinn sér-
stakan galdur á bak við þennan ár-
angur en góð áhöfn, góð útgerð og
miklar aflaheimildir skiptu þar öllu
máli. Hann sagði afurðaverð hafa
verið mjög gott á síðasta ári en út-
litið væri ekki jafngott fyrir þetta
ár. Fólk kaupi ekki fisk á hvaða
verði sem er.
Fín tilfinning
„Samherjaskipin hafa getað veitt
eins mikið og þau hafa getað af öðr-
um tegundum með þorskinum. For-
svarsmenn útgerðarinnar hafa get-
að útvegað miklar aflaheimildir og
það hafa allir notið góðs af því.“
Guðmundur sagðist ekki hafa
orðið var við þá kröfu að Baldvin
ætti alltaf að vera með mesta afla-
verðmætið. „Við reynum að gera
okkar besta og það er fínasta til-
finning að ná þessum árangri. Þótt
túrarnir séu nokkuð langir gleymist
allt slíkt þegar vel fiskast. Aðbúnað-
urinn um borð er mjög góður og
strákarnir hafa staðið sig vel, enda
flestir búnir að vera lengi um borð.
En það er mikil eftirspurn eftir
skipsplássi."
FRYSTITOGARAR
Nafn Stærð Afll Uppist. afla Löndunarst.
í BYLGJÁVE75 277 44 Þorskur Vestmannaeyjar
BYR VE 373 0 7 Lúða Vestmannaeyjar
[ ÞÖRÚNN SVEINSÐÓTTIR VE 401 277 66 Þorskur Vestmannaeyjar
VÍÐIR EA910 865 192 Þorskur Reykjavík
! sunna si 67 saBtfeÉ*'' ? 620 4 : 100 Rækja SigJufjörður
AKUREYRIN EA110 882 186 Þorskur Akureyri
[ EYBÓRG EA 59 305 31 Raekja Akureyri
FROSTI ÞH 229 343 102 Þorskur Akureyri
[ SLÉTTBAKÚR EÁ 304 902 169 Þorskur Akuroyri
GEIRI PÉTUœTH 344 272 48 Rækja Húsavík
í BRETTINGUR NS 60 582 94 Djúpkaríi Vopnafjörður
Aðspurður sagðist Guðmundur
ekki eiga sér neitt uppáhaldsveiði-
svæði. „Við förum hringinn í kring-
um landið og reynum að halda okk-
ur þar sem fiskur er.“
Þorsteinn Vilhelmsson var skip-
stjóri á Baldvini Þorsteinssyni EA
fyrstu árin eftir að skipið kom til
landsins en Arngrímur Brynjólfs-
son tók við af Þorsteini. Guðmundur
byrjaði sem stýrimaður á Baldvini
árið 1994 en tók við skipstjóm af
Arngrími um mitt ár 1996. Arn-
grímur er nú skipstjóri á Þorsteini
EA, nótaskipi Samherja, en Þor-
steinn fór í land fyrir nokkrum ár-
um og er nú útgerðarstjóri fyrir-
tækisins.
Guðmundur, sem er Bolvíkingur,
kom til starfa hjá Samherja árið
1986 og þá sem 1. stýrimaður á
Margréti EA. Árið 1990 tók hann
við skipstjórn á Hjalteyrinni EA og
var þar fram á mitt ár 1994, að hann
fór yfir á Baldvin Þorsteinsson EA.
Guðmundur, sem er aðeins 38 ára
gamall, hefur verið lengi viðloðandi
sjómennsku. Hann var á smábátum
fyrir vestan og einnig með föður
sínum á línuveiðum á tappatogaran-
um Guðmundi Péturs ÍS og á togar-
anum Heiðrúnu ÍS. Áður en Guð-
mundur flutti til Akureyrar og réð
sig til Samherja, var hann 2. stýri-
maður á Sléttanesi ÍS frá Þingeyri.
Þá er Víðir Jónsson, bróðir Guð-
mundar, einnig til sjós en hann er
skipstjóri á Kleifarbergi OF frá
Ólafsfirði.
Fjölgun í fjölskyldunni
Um borð í Baldvini Þorsteinssyni
EA eru 26 skipverjar hverju sinni
en áhafnarmeðlimir eru 40. Reglan
er sú að skipverjar fara í tvo túra og
taka svo einn túr í frí. „Við höfum
ekki leyft mönnum að sækja af
meiri krafti og það er í raun nauð-
synlegt fyrir menn að taka sér frí.“
Fullur hásetahlutur á síðasta ári
var um 8 milljónir ki'óna.
Sjálfur sótti Guðmundur sjóinn
nokkuð stíft í lok síðasta árs og fór
fyrsta túrinn á nýbyrjuðu ári. Guð-
mundur er nú kominn í frí næstu
tvo túra, þar sem kona hans, Vigdís
Hjaltadóttir, á von á fjórða barni
þeirra hjóna síðar í þessum mánuði.
Hann hefur því um nóg annað að
hugsa um en saltan sjó og fisk á
næstunni.
Fyrsti stýrimaður og afleysinga-
skipstjóri er Hákon Þröstur Guð-
mundsson. Hann hefur starfað lengi
hjá Samherja og var síðast skip-
stjóri á Víði EA en fór með Guð-
mundi yfir á Baldvin á sínum tíma.
HUMARBA TAR
Vilja hækka
veiðileyfagjald
NÚ ER áformað að hækka
veiðileyfagjald í Bretlandi um
10%, en gjaldið rennur til
skráningar- og eftirlitsstofnun-
arinnar Seafish Industry Aut-
hority. Upphaflega kom tillaga
um 15% hækkun á gjaldinu,
sem nú er 8,40 pund á tonnið
eða 996 krónur íslenzkar. An
hækkunar er talið að draga
verði úr starfsemi eftirlitsins.
H
Nafn Stærð Afl i Fiskur Sjóf. Löndunarst.
| HAFNAREY SF 36 101 3 19 2 Homafjörður
SKELFISKBA TAR
Nafn Stærð Afli Sjóf. Löndunarst.
| STAPAVlK AK 132 46 24 5 . Akranos
GRETTIR SH104 148 63 6 Stykkishólmur
[ HRÖNNBA335 41 52 Stykkishóimur :
KRISTINN FRIÐRIKSSÖN SH 3 104 58 6 Stykklshólmur
! ARSÆLL SH 68 101 48 6 Stykkishólmur j
ÞÓRSNES II SH 109 146 27 4 Stykkishólmur
SILDARBA TAR
Nafn Stærð Affli Sjóf. Löndunarst.
I ÓU I SANDGERÐI AK 14 0 ,30kil :~t~ Akranes
BEITIR NK 123 756 1261 3 Neskaupstaður
! HOFFELL SU 80 0 628 Homafjðrður
HÚNARÖST SF 550 361 498 3 Homafjörður
f JÓNÁ ÉÐVÁLDS SF 20 441 251 2 ; Homafjörður
RÆKJUBA TAR
Afli Fiskur Sjóf. Löndunnrst.
HÖFRUNGUR BA 60 27 6 0 4 Bíldudalur
PÉTUR ÞÓR BA 44 21 2 0 2 Bíldudaiur
ÞALLHELGÍ1s142 29 6 0 4 Bolungarvík
BÁRA IS 66 25 8 0 5 ísafjöröur
HALLDÓR SIGURÐSSON ÍS 14 27 8 O 5 Isafjöröur !
STAKFELL ÞH 360 471 15 0 1 Isafjöröur
FENGSÆLL Is 83 22 2 0 1 Súðavfk
SKAGFIRÐINGUR SK 4 860 31 0 1 Súðavik
HAFRÚN HU 12 64 1 0 3 Hvammstangi j
HAFÖRN HU 4 20 2 0 4 Hvammstangi
SIGLUVÍK Sl 2 450 16 0 1 Siglufjörður 1
SÓLBERG ÓF 12 500 30 0 2 Siglufjörður
HAFÖRN EA 955 142 9 0 1 Oalvlk “J
SVANUR EA 14 218 13 0 1 Dalvfk
GUÐRÚN BJÖRG ÞH 6Ö 70 7 0 5 Húsavlk 1
HAFÖRN ÞH 26 29 6 0 4 Húsavfk
REISTARNÚPUR ÞH 2T3 76 5 0 5 Húsavfk
SIGURBORG SH 12 200 15 0 1 Húsavík
ÞORSTEINN GK 15 51 32 0 5 Kópasker
VOTABERG SU 10 250 20 0 1 EsklfjÖrður
Morgunblaðið/Kristján
GUÐMUNDUR Þ. Jónsson, skipstjóri á Baldvini Þorsteinssyni EA, fyr-
ir framan togarann í flotkvínni á Akureyri. Þar var skipið í hefð-
bundnu viðhaldi í síðustu viku en hélt til veiða á sunnudagskvöld.
Tsurumi Pump
Vönduö
kapalþétting
Yfirhitavörn
Ní&sterkur
rafmótor
3x380 volt
3x220 volt
Tvöföld þétting
með sílikoni
á snertiflötum
TSURUMI
SLOGDÆLUR
Oflugur valkostur
fyrir útgerð og vinnslu
„ViS höfum notaS Tsurumi dælu frá
1994 og reynslan er feikilega góð.
Dælan er önug, stíflast ekki og viS
erum löngu hættir aS hlífa henni."
Smári Einarsson úfgerðarmaður
w
Öfluat
lugt og vel opið dæluhjól
oKarbíthnífum
Skútuvogl 12a Sími 568 1044
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Sjúkrahús Reykjavíkur
Slysavarnaskóli sjómanna
Sjúkra- og slysahjálp -
lyfjakista - samstarfsverkefni
Námskeið fyrir skipstjórnarmenn verður haldið í
Stýrimannaskólanum, um borð í Sæbjörgu
og slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Kennarar eru læknar, hjúkrunarfræðingar og
leiðbeinendur Slysavarnaskólans.
Samhliða námskeiðinu verða gengnar vaktir á
bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Námskeiðið hefst 15. febrúar kl. 9.00.
Þátttakendur mæti í Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Verð kr. 40.000.
Innritun á námskeið og aðrar upplýsingar á skrifstofu
Stýrimannaskólans frá kl. 8-16 í síma 551 3194,
fax 562 2750.