Morgunblaðið - 03.02.1999, Side 6

Morgunblaðið - 03.02.1999, Side 6
6 C MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ MARKAÐIR Fiskverð heima Kr./kg -160 Þorskur Faxamarkaður Fiskmarkaður Hafnarfjarðar Fiskmarkaður Suðurnesja ,120 Kr/kg 110 100 Um fiskmarkaðina þrjá hér syðra fóru í 239,8 tonn af þorski í síðustu viku. Um Fiskmarkaðinn hf. í Hafnarfirði fóru 30,4 tonn og meðalverð var 129,04 krVkg., um Faxamarkað fóru 63,2 tonn á 138,49 kr./kg og um Fiskmarkað Suðurnesja fóru 146,2 tonn á 133,85 kr./kg. Af karfa voru seld 55,3 tonn. I Hafnarfirði á 73,42 kr/kg (2,61), á Faxamarkaði á 75,38 kr/kg (4,61) og á Fiskmarkaði Suðurnesja á 72,44 kr./kg (48,11). Af ufsa voru seld 88,5 tonn. í Hafnarfirði á 99,43 kr. (16,31), á Faxamarkaði á 86,77 kr. (0,61) og á 86,94 kr./kg (71,21) á Fiskmarkaði Suðurnesja. Af ýsu voru seld 196,4 tonn. Á Fiskmarkaðnum hf. í Hafnarfirði á 121,82 kr. (7,81), á Faxamarkaði á 134,60 kr. (44,81) og á 132,52 kr./kg (143,71) að meðaltali á Fiskmarkaði Suðurnesja. ] Fiskverð ytra Þorskur«"“» Karfi““ Ufsi mmmm Ýsa <■■■■ Skarkoli*"" Alls voru seld 180,6 tonn af fiski af íslandsmiðum í Bremerhafen í síðustu viku. Alls voru seld 165,4 tonn af karfa á 136,50 kr/kg og 6,4 tonn af ufsa á 89,62 kr. hvert kíló. Alls voru seld 611 tonn af fiski á fiskmörkuðum í Grimsby í 4. viku. Miðverð á þorski var 189,32 kr./kg, á ýsu 178,72 kr./kg ogákola 177,20 kr./kg. Fiskverð var sem hér segir... Lægsta Hæsta Þorskur kr./kg kr./kg Stór 182 236 Meðal 164 227 Lítill 145 182 Ýsa Stór 173 200 Meðal 164 200 Lftil 154 182 Koli Stór Meðal 200 236 Lítill 109 164 Miklir ónýttir möguleikar á ítalska fískmarkaðinum Neyslan tvöfaldaðist á síðustu 20 árum FISKNEYSLA er ekki jafn mikil á Ítalíu og sums staðar norðar í álfunni en ljóst er, að góðir möguleikar eru á að auka hana ef vel er að verki staðið. í landinu er nokkurt fískeldi en stöðvarnar eru gamlar og ekki hefur verið fylgst sem skyldi með tækniframförum í greininni. Þess vegna byggist neyslan, jafnt í fiskeldistegundunum sem öðrum, aðallega á miklum inn- flutningi. Svokallað miðjarðarhafsmatar- æði byggist ekki síst á físki og hann er mjög vinsæll matur á veitinga- húsum við ströndina og einkanlega á sumrin. Kunna margir erlendir ferðamenn vel að meta fiskmetið, eins og ítalir matbúa það, en þeir krefjast þess líka, að hráefnið sé fyrsta flokks. Raunar er fiskurinn dýr miðað við marga aðra matvöru en það hefur ekki farið fram hjá ítölum fremur en öðrum, að vart finnst hollari matur en fiskur og einkanlega vegna þess hvað hann er ríkur af fjölómettuðum fitusýrum. 70% úr sjó Á árinu 1997 var fiskframleiðsla ítala sjálfra 735.499 tonn og hafði þá dregist saman um 3,4% frá árinu áður ef sverðfiskur er undanskilinn. Á þessu ári voru 70% framleiðsl- unnar fiskur, sem dreginn var úr sjó, en eldisframleiðslan var þá 211.000 tonn. Þótt innlenda fiskframboðið bygg- ist aðallega á veiðunum er fisk- og skelfiskeldið samt mjög mikilvægt. Árið 1990 var framleiðslan í því 140.000 tonn en 1995 var hún komin í 250.000 tonn og svaraði þá til rúm- lega 30% af öllu innlenda fiskfram- boðinu. Á næstu tveimur árum hjó hins vegar mikill þörungablómi í Adríahafi stór skörð í skelfiskrækt- unina, aðallega kræklingsframleiðsl- una, sem minnkaði um 50.000 tonn. I eldi sjávarfiska, sem byggist mest á leirslabba og vartara, hefur verið stöðug aukning og framleiðsl- an á árinu 1997, 68.700 tonn, var 7% meiri en á árinu áður. Eldi vatna- fiska fer að langmestu leyti fram á Norður-Italíu og þar er aðaltegund- in silungur. Mikill innflutningur Italir eru mjög háðir innflutningi á sjávarafurðum, um 516.000 tonn á ári, og þar eru helstu tegundirnar túnfiskur, makríll, lýsingur og smokkfiskur. Þótt neyslan hafí stað- ið nokkuð í stað að undanförnu og stundum minnkað aðeins milli ára hefur hún samt aukist mikið á síð- ustu tveimur áratugum. 1980 var hún um 11 kíló á hvert mannsbarn en 23 kíló á síðasta ári. Til samanburðar má nefna, að í Portúgal er fiskneyslan 60 kg á mann; á Spáni 34,8; í Finnlandi 32,5; í Frakklandi 28,5 og í Svíþjóð 26,7 kíló. Aftur á móti er hún ekki nema 12,5 kíló á mann í Þýskalandi, 12,1 kg í Hollandi og aðeins 9,8 kg í Austurríki. í könnun, sem gerð var á Ítalíu meðal 2.000 fjölskyldna, kom fram, að 35% þeirra höfðu fisk, ferskan, frystan eða verkaðan með einhverj- um hætti á borðum sjaldnar en einu sinni í viku; 21% hafði fisk oftar en einu sinni vikulega en 27% allt að þrisvar sinnum í viku. 17% voru að- eins einstaka sinnum með fisk. Dreifingin inn í stórmarkaðina Fiskdreifingin á Ítalíu, einkum þó í suðurhlutanum, hefur lengi verið á hendi sérstakra fisksala og manna, sem selja fiskinn úr bílum eða litl- um vögnum. Á því er þó að verða breyting og stórmarkaðirnir eru að taka við þar sem annars staðar. Hefur það sýnt sig, að í þeim er fiskurinn bæði ferskari og ódýrari en hjá gömlu dreifingaraðilunum. Þar við bætist síðan, að neytendur laðast að vel búnu fiskborði í stór- verslunum og á það sinn þátt í að auka fiskkaupin. Italskir neytendur fylgjast grannt með vöruverðinu, einkan- lega í borgunum, en fiskneyslan er jafnan mest á sumrin. Hefur stund- um gætt nokkurs offramboðs á sil- ungi, sem er eins og áður sá vatna- fiskur, sem mest er ræktaður, og hefur verið brugðist við því með aukinni vinnslu. Er hann þá sneidd- ur niður og unninn líkt og laxinn og selst þá á hærra verði enda hefur hann fallið neytendum vel í geð. Úreltar fiskeldis- stöðvar Silungurinn á hins vegar í vax- andi samkeppni við laxinn, einkum á Norður-Ítalíu, og íiskeldisfyi'ir- tækin líða einnig fyrir að hafa trass- að að endurnýja stöðvarnar í takt við það, sem hefur verið að gerast annars staðar. Eru þær flestar frá sjöunda og áttunda áratugnum. Almennt má segja, að miklir möguleikar séu á ítölskum fisk- markaði, meðal annars vegna þeirr- ar áherslu, sem nú er lögð á hollt mataræði. Fiskkaupin munu fara að mestu fram í stórmörkuðunum og tilbúnir réttir munu koma til með að vega æ þyngra í framboðinu. Saltfiskur frá íslandi íslendingar flytja töluvert af fiski til Ítalíu. Þar er fyrst og fremst um að ræða saltfisk, bæði flattan, blaut- verkaðan þorsk og söltuð þorskflök. Segja má að Islendingar séu ráð- andi á mörkuðunum fyrir flattan fisk á sunnanverðri Ítalíu, en hlutur þeirra er minni eftir því sem norðar dregur og neyzla á flökum eykst. Þá flytja íslendingar nokkuð af skreið til Italíu og af öðrum tegundum má nefna frystan humar. Byggt á Fishfarming Internationnl. Gengur illa að selja til Brazilíu NORÐMENN eiga nú í nokkrum erfiðleikum með útflutning á þurrkuðum saltfiski til Brazilíu eftir gengisfellingu þar. „Það hefur verið mikið um afpantanir síðustu daga og sala til Brazilíu hefur að miklu leyti stöðvazt, bæði hjá okkur og öðrutn útflytjendum. Ég tel þó að Brazilíumenn nái tökum á ástandinu og salan verði með eðlileg- um hætti á ný,“ segir Leif Haagensen, framkvæmdastjóri Janngaard Ex- port AS í Álasundi, í samtali við norsku fréttastofuna NTB. 99% af öllunt útflutningi Norðmanna til Brazilíu er þurrkaður saltfisk- ur, mest þorskur. Jangaard er stærsti útflytjandi Noregs á þessu sviði og í fyrra seldi það saltfisk til Brazilíu fyrir rúmlega tvo milljarða íslenzkra króna. heildar velta fyrirtækisins var þá um 8,1 milljarður króna. HelldarafH Sjávaraflinn í jan.-des. 1996-98 ÞUSUND T0NNA 1996 1997 1998 Þorskur 181,1 205,2 241,2 Botnfiskur alls «0,2 482,1 562,5 Loðnaog . ... K síldalls 1 -444,5 1.609,4 1.047,0 Krabba- og 7Q. skeldýr alls ,3,1 84,7 66,3 HEIL0AR- o nno p AFLINN ZU03’8 2.176,2 1.675,8 Minni afli en meiri verðmæti FISKAFLINN síðustu þrjú alman- aksárin hefur verið mikill. Árin 1996 og 1997 fór hann í fyrsta skipti yfir tvær milljónir tonna og náði sögulegu hámarki síðara árið eða 2.176.185 tonnum. í fyrra varð heildaraflinn um 1,7 milljónir tonna og er það því í hópi þeirra ára, þegar hvað mest hefur aflazt. Það er loðnan eins og endra nær sem ræður úrslitum um magnið. I fyrra veiddust aðeins 750.000 tonn af loðnu, en mun meira hin tvö ár- in á undan, 1,3 milljónir og 1,2 milljónir. Sfldveiðar gengu vel í fyrra, en töluverður samdráttur varð í rækjuafla. Botnfiskafli hef- ur hins vegar aukizt þessi síðustu árin eftir nær sanifelldan samdrátt nokkur ár á undan. Þannig hefur þorskafli aukizt um 60.000 tonn frá árinu 1996. Aftaverðmæti Aflaverðmætið í jan.-des. 1996-98 mili 1996 JÓNIRK 1997 'RÓNA 1998 Þorskur 12.783 15.034 21.397 Bolnfiskur alls 34.678 35.296 45.379 Loðna og K1 síldalls 8-551 Krabba- og 0 -.. skeldýr alls 8 544 10.077 8.593 8.529 6.853 HEILDAR- « 77, VERÐM. 51,772 53.966 60.761 VERÐMÆTI fiskaflans hefur auk- izt ár frá ári og jukust þau um 6,8 milljarða króna á síðasta ári, þrátt fyrir hálfrar milljónar tonna sam- drátt í heildarafla. Þar ræður eins og venjulega mestu verðinæti þorskaflans, sem á siðasta ári varð 21,4 milljarðar króna og jókst um 6,5 milljarða miðað við árið áður. Aukningin er samsvarandi aukn- um afla, en verð hefur einnig farið liækkandi. Rækjan skilar næst- mestum verðmætum af einstökum tegundum, rúmlega 6,1 milljarði, en loðnan kemur næst með 5,9 milljarða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.