Morgunblaðið - 05.02.1999, Side 6

Morgunblaðið - 05.02.1999, Side 6
6 B FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF bestu Úr myndasafni MorgunblaðsinsyGolli RANNSÓKNIR benda til að náið og hlýtt samband milli feðga leiði til þess að sonurinn þrói með sér sterkari sjálfsmynd sem karlmaður. Synirnir sem rannsóknin náði til höfðu allir verið aðskildir frá föður sínum fyrstu tvö ár ævinnar. í flestum tilfellum voru feðumir her- menn sem höfðu farið utan til að gegna herþjónustu þegar synirnir vom enn mjög ungir eða sjómenn sem höfðu verið að heiman flesta mánuði ársins. Það sem vakti at- hygli í þessum rannsóknum var að drengimir þroskuðust eins af- brigðilega og munaðarlausir drengir sem hafði verið komið fyr- ir á fósturheimilum og drengir sem höfðu verið aldir upp hjá einstæð- um mæðmm, án þess nokkurn tím- ann að hafa foður eða staðgengil föður. Þessar niðurstöður koma heim og saman við aðrar rann- sóknir sem sýna að flestir drengir sem alast upp án Fóður, höfðu þró- að með sér vanhæfni í félagslegum, kynferðislegum, siðferðilegum eða vitsmunalegum þáttum. Fyrstu árin mikilvæg Henry nokkur Biller, sem hefur stýrt nokkmm þessara rannsókna og er höfundur bókar sem ber heitið „Fatherhood: Implications for Child and Adult Develop- ment,“ (lauslega snarað; Föður- hlutverkið: Þýðing þess fyrir þroska barna og fullorðinna), hef- ur komist að eftirfarandi niður- stöðu: „Drengir sem hafa alist upp án föður fram til tveggja ára ald- urs em vanþroskaðri á vissum sviðum en drengir sem hafa þurft að vera án föður síns þegar þeir vora farnir að stálpast. Til dæmis eiga drengir, sem liafa verið án föður fyrstu tvö árin, í meiri erfið- leikum með að treysta, þeir em ekki eins iðnir og hafa meiri van- metakennd en þeir drengir sem ólust upp án fóður milli þriggja og fiinm ára aldurs." Biller bendir á þá staðreynd að sýnt hafí verið fram á að náið og hlýtt samband milli föður og sonar leiði til þess að sonurinn þrói með sér sterkari sjálfsmynd sem karl- maður. Hann bætir því við að sá agi og þau mörk sem faðir setur syni sínum, geti aðeins orðið áhrifarík ef þau em í réttu hlut,- falli við kærleiksríkt samband. Ef ekki, geti brotalamirnar orðið til þess að koma í veg fyrir að sonur- inn líti á föðurinn sem fyrirmynd. Gæði sambandsins milli föður og sonar er álíka mikilvægt og ná- vist föðurins. Þótt faðirinn hafi sannað hæfni sína og sjálfstæði á vinnustað, nægir það ekki til þess Morgunblaðið/Ásdís GUNNAR Karlsson vonar að bók hans og Braga Guðmundssonar um fslensku niðurstöðurnar komi út á þessu ári. sonur ungling ISLENDINGAR þurfa ekki að hafa áhyggjur af velferð lands og þjóðar í höndum ís- lenskrar æsku ef tekið er mið af samevrópskri könnun á söguvit- und unglinga. Ekki er þar vísað til gáfna heldur almenns viðhorfs til lífsins og tilverunnar. Islensk ung- menni eru í eðli sínu velviljuð - hlynnt lýðræði, jafnrétti og mann- réttindum - þjóðrækin og trúuð á guð sinn. Hvað er hægt að biðja um betra? - enda segir Gunnar Karlsson, sagnfræðingur og annar Islendinganna sem að könnuninni stóðu, að því megi varpa fram að fundnir séu einhverjir bestu ung- lingar í Evrópu. Könnunin hlaut yfirskriftina „Youth and History" og var gerð í 30 þjóðríkjum og þjóðernisminni- hlutum í Evrópu með svolitlu út- hlaupi austur fyrir Miðjarðarhafs- botn frá því janúar 1995 fram í júlí 1996. Mislangir spurningalistar vom lagðir fyrir kennara og nem- endur og aðaláherslan lögð á svör nemendanna í niðurstöðunum. Alls bárast svör frá um 31.611 ungling- um, rétt rúmlega 15 ára að meðal- tali. Islensku • unglingamir' voru heldur yngri að meðaltali eða 14,25 ára. Með Gunnari Karlssyni stýrði Bragi Guðmundsson, lektor við kennaradeild Háskólans á Akur- eyi’i, könnuninni hér á landi. Gunnar veltir því fyrir sér hvort jákvætt viðhorf íslensku ungling- anna megi að hluta til rekja til lægri meðalaldurs. „íslensku ung- mennin sýna alla jafna heldur já- kvæðara og jafnvel barnslegi’a við- horf til viðfangsefnanna. Spurning- in er hvort að verið geti að þau séu vegna æsku sinnar ekki farin að IEVROPU? Óttinn við afmenning- arþróun ungu kynslóð- arinnar rak Gunnar Karlsson sagnfræðing til að taka að sér fram- kvæmd samevrópskrar könnunar á söguvitund 7 unglinga á Islandi í byrjun áratugarins. Anna G. Olafsdóttir sá að létt var yfir Gunnari í spjalli þeirra enda gáfu svörin allt aðra og jákvæðari mynd af ís- lénskum unglingum. átta sig eins á vonsku heimsins og samanburðarhóparnir," segir hann og bætir eftir nokkra umhugsun við að á móti megi gagnrýna að gert sé ráð fyrir því að fólk versni endilega með aldrinum. Hann vekur sérstaka athygli á því að þjóðrækni kom ekki í veg fyrir jákvætt viðhorf íslensku ung- mennanna til innflytjanda. „Gaman er að segja frá því að Islendingarn- ir virðast í senn þjóðræknir og já- VERSLUNAREIGENDUR ATHUGIÐ! Tt m »ÝTT Professionals Gullfalleg varalitir og gloss frá Professionals Innihalda Sesame Oil, Aloe Vera, E- og C- vítamín. Allt til að mýkja, græða og fegra varir. Heild verslun Áslaugar Borg Álfheimum 15, sími 588 6717, fax 588 6718. kvæðir gagnvart útlendingum í eigin landi. Ekki er með því aðeins vísað til tímabundins vinnuafls eins og sést best á því hversu vel er tek- ið í að veita útlendingum kosninga- rétt. Hið jákvæða viðhorf verður væntanlega skýrt af reynsluleysi Islendinga af innflytjendavanda- málinu miðað við Norðmenn, Svía, Dani og Breta. Eini gallinn á þeim kenningu felst í því að svipað hlut- fall útlendinga í Finnlandi og á ís- landi hefur ekki haft í fór með sér jafnjákvæða afstöðu unglinga þar í landi og hér.“ Gunnar telur ekki fjarri lagi að tala um Evrópukynslóð. „Hvergi er með sanni hægt að segja að fram komi gerólík sjónarmið innan Evr- ÞANKABROT UM BORN Rétt eins og móðirin er fyrirmynd dóttur að því hvernig á að vera kona, er faðirinn fyrirmynd sonar. Það er til hans sem sonurinn lítur þeg- ar hann byggir upp sjálfsmynd sína og leggur gi’unninn að kynhlutverkinu. Sús- anna Svavarsdóttir skoðar hvers vegna þetta samband er mikilvægara en lengi vel var haldið. ALLT fram á seinustu ára- tugi hafa sálfræðingar og aðrir trúað því að faðir- inn hafi litlu sem engu hlutverki að gegna í Iífí barna fyrr en þau séu orðin þriggja til fjögurra ára. Þær kenningar hafa meira að segja komið fram að hluta-viðvera fóðurins í fjölskyld- unni skapaði barninu hollar og nauðsynlegar hindranir. Á síðustu þrjátíu árum hafa hins vegar kom- ið fram allt aðrar upplýsingar í rannsóknum á þroskaferli barna. I Bandaríkjunum og Noregi hafa verið gerðar rannsóknir á drengjum sem eiga við hegðunar- vandamál að stríða og niðurstöð- urnar vom þvert á það sem áður hafði verið haldið; fyrstu tvö ár ævinnar þurfa synir nauðsynlega á föður sínum að halda. EINHVERJIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.