Morgunblaðið - 05.02.1999, Síða 4
hhhhh
HHBHHHH
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Kristinn
HVAD á til bragðs að taka? Jón Kristjánsson situr á varamannabekk Valsliðsins og þurrkar svitann meðan Boris Bjarni Akbashev ræðir
við hann um gang leiksins.
Meistarar Vals hafa einungis unnið einn af níu síðustu leikjum sínum
„Áfram harðlífi
u
Óhætt er að segja að íslands- og bikarmeistarar Valsmanna í
handknattleik hafi ekki náð að fylgja eftir frábæru gengi á síð-
ustu leiktíð í efstu deild karla. Meistararnir eru sem stendur í
sjöunda sæti deildarinnar með 17 stig, eða jafnmörg og ÍR sem
er í áttunda sæti. Aðeins efstu átta lið deildarinnar öðlast sæti
í úrslitakeppninni sem hefst í marsbyrjun og gæti svo farið að
sjálfir íslandsmeistararnir verði ekki þar á meðal. Gengi Vals-
manna hefur nefnilega verið afar bágborið upp á síðkastið; lið-
ið hefur tapað fjórum leikjum í röð í deildinni og getur aðeins
státað af einum sigri í níu síðustu viðureignum sínum.
Síðast töpuðu Valsmenn fyrir
Frömurum á miðvikudags-
kvöldið, 23:24. Engu skipti þótt
leikið væri á heima-
Eftir velli, Framarar
Björn Inga höfðu örugga for-
Hrafnsson ystu lengst af og að-
eins undir lokin
tókst heimamönnum að minnka
muninn með góðum leikkafla. Þar
kom í ljós barátta og styrkur, sem
margir telja sig hafa saknað hjá
meistaraliðinu í vetur. Morgunblað-
ið leitaði því álits Jóns Kristjáns-
sonar, þjálfara og leikmanns Vals,
eftii- leikinn gegn Fram, en Jón
gerðist þjálfari liðsins 1995 er Þor-
björn Jensson tók við landsliðinu.
Undir hans stjórn komu Valsmenn
geysilega á óvart í fyrra er hann
skilaði báðum titlunum í íþrótta-
húsið að Hlíðarenda.
„Það er áfram harðlífi hjá okk-
ur,“ var það fyrsta sem Jón sagði
við blaðamann eftir hressilegan
lestur yfir sínum mönnum í bún-
ingsklefanum. „Við erum svosem
þeir einu sem getum bjargað okkur
út úr því og það ætlum við okkur að
gera,“ bætti hann við.
Boris Bjarni Akbashev, aðstoðar-
þjálfari landsliðsins, var á Vals-
bekknum í leiknum gegn Fram og
gerði sitt til að snúa dæminu við og
koma Valsliðinu á sigurbraut á ný.
Ekki gekk þó sú rófan að þessu
sinni, þrátt fyrir góðan endasprett
og hressilegan darraðardans undir
lokin.
Engin ein skýring
Jón segir að engin ein skýring sé
á þessu slæma gengi sinna manna.
„Það var mikið brottfall úr leik-
mannahópi okkar nú í desember og
þegar gengið er slæmt verður oft
erfítt að snúa við blaðinu og ná upp
sjálfstrausti á ný. Það hefur ekki
tekist hjá okkur, reyndar munaði
minnstu í lokin í kvöld en þá fengu
þeir gefins víti og unnu leildnn. Það
var náttúrlega algjört rugl.“
En eftir stendur aðeins einn sig-
ur í níu síðustu leikjum. Ykkur
gekk hreint ágætlega í upphafi
móts, en þá segir sagan að þú hafír
sagt við leikmenn þína að liðið værí
líkast til að leika yfír getu, menn
skyldu búast við skelli fyrr eða
seinna. Er þetta rétti
„Jú, þetta er rétt. Ég sagði mín-
um mönnum að miðað við leik okk-
ar þætti mér við vera að fá of mikið
af stigum. Ég varaði menn því við,
sagði að þetta væri kannski ekki al-
veg eðlilegt og að einhverju leyti
hefur það komið á daginn. Samt
sem áður höfum við upp á síðkastið
einnig verið að tapa leikjum sem
við ættum alls ekki að tapa.“
Telurðu að þessi varnaðarorð þín
hafí ef til vill haft öfug áhrif, jafnvel
dregið úr sjálfstrausti leikmannai
„Nei, alls ekki. Ég er frekar á því
að menn taki síður til heima hjá sér
þegar allt gengur vel, menn hugi
ekki að sér og verði samdauna þeim
vandamálum sem virkilega eru þó
til staðar. Þá er ekki svo auðvelt að
ætla að bjarga hlutunum.
Ég vissi að það kæmi að tapleik
hjá okkur, okkur hefur aldrei geng-
ið svo vel fyrri hluta móts og mér
hefur yfirleitt þótt best að eiga við
vandamálin fyrri hluta móts og
vera þá kominn með liðið í sæmi-
legt ástand þegar í úrslitakeppnina
er kornið."
Forsendurnar
til staðar
Sérðu fram á að það takisf!
„Já, það getur alveg tekist. Við
höfum forsendur til þess, en það
þarf auðvitað að koma ákveðnum
málum í lag. Menn hafa ekki haft
nægilega trú á sér og þess vegna
verið hikandi í sínum aðgerðum,
sérstaklega í byrjun leikjanna. Þeg-
ar við höfum náð að skora nokkur
mörk hefur sjálfstraustið venjulega
aukist og því er brýnt að við náum
þessu fyrr í okkar leikjum og náum
fyrir vikið að halda öllum möguleik-
unum opnum.“
Og ungu drengirnir á bekknum
hafa fengið að spreyta sig af og til.
Verður framhald á því í næstu
leikjum?
„Já, ég hef verið svona hægt og
rólega að taka þá inn. Ég hef verið
meiddur að undanförnu, Ari [All-
ansson] var ekki með vegna
meiðsla og þá verða varamennirnir
að koma til leiks. Þetta eru mjög
góðir leikmenn, en nokkuð ungir og
eiga mikið inni sem handknattleiks-
menn.“
Graf mót-
mælir
stöllum
sínum
ÞÝSKA tenniskonan Steffi
Graf gagnrýndi stöllur sín-
ar Lindsay Davenport og
Martinu Hingis fyrir um-
mæli þeirra um frönsku
tenniskonuna Amelie
Mauresmo, en báðar sögðu
á opna ástralska meistara-
mótinu að Mauresmo léki
eins og karlmaður. „Ég tel
þessi ummæli þeirra vera
alveg út í hött og engin
ástæða til þess að láta þau
frá sér fara,“ sagði Graf, en
ummæli Hingis og Daven-
ports hafa vakið mikla at-
hylgi, ekki síst vegna þess
að Mauresmo er mjög stælt
af aðeins 19 ára kvenmanni
að vera og er auk þess sam-
kynhneigð. Hafa ummælin
jafnvel verið tiílkuð sem
fordómar í garð samkyn-
hneigðra.
■ GORAN Stojanovic, landsliðs-
markvörður Júgóslava í handknatt-
leik og markvörður hjá þýska félag-
inu Kiel, hefur ákveðið að ganga á
næstu leiktíð í raðir Bad Schwartau
sem Sigurður Bjaruason leikur
með. Gerði hann samning við Bad
Schwartau til vorsins 2001.
■ KIEL gerði á dögunum samning
við norska markvörðinn Steinar
Ege um að leika með félaginu
næstu tvö ár, en Ege er nú í her-
búðum Gummersbach.
■ ANDREAS Dittert, landsliðsmað-
ur Austurríkis í handknattleik sem
verið hefur í herbúðum
NiederwUrzbach síðustu ár, hefur
verið seldur til St. Otmar í Sviss og
byrjar að leika með félaginu á
næsta hausti. Er þessi sala ein ráð-
stafana forráðamanna Niederwiirz-
bach til þess að bjarga félaginu frá
gjaldþroti.
■ ANDREAS Larsson, sænski
landsliðsmaðurinn í handnattleik,
sem leikið hefur með Kiel undanfar-
in ár leikur með 2. deildarliðinu
Nordhorn frá og með næsta hausti.
Frá þessu var gengið í vikunni.
Samningur Larssons við Nordhorn,
sem er skipað mörgum leikmönnum
frá Svíþjóð og Danmörku, er til
vorsins 2002.
■ GUNNAR Andrésson hefur gert
27 mörk fyrir Amichita Ziirich í
fjórum leikjum í úrslitakeppni sviss-
neska handknattleiksins og verið
besti maður liðsins. Liðið hefur
unnið einn leik en tapað þremur,
tapaði síðast 25:19 fyrir Suhr. Þá
gerði Gunnar 7 mörk.
■ ROD Strickland hefur loks náð
samkomulagi við Washington Wiz-
ards um að leika með liðinu næstu
árin, en Strickland var með lausan
samning. Wizards hefur keppnis-
tímabilið í NBA með því að heim-
sækja Larry Bird og lærisveina hjá
Indiana í kvöld.
■ EKKI hefur verið gert opinbert í
hverju samkomulagið felst, en vitað
var að Strickland vildi gera fimm
ára samning og fá um 770 milljónir
á ári í laun, en félagið hafði boðið
700 milljónir á árinu fyrir þriggja
ára samning.