Morgunblaðið - 17.03.1999, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
HANDKNATTLEIKUR
Ríkharður
meiddur
plíicgiwWa&iÍí
1999
MIÐVIKUDACUR 17. MARZ
BLAD
RÍKHARÐUR Daðason, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, meiddist á vinstra hné á æfingu með liði
sínu, Viking frá Stafangri, í fyrrakvöld. Hann
fór í læknisskoðun strax eftir æfinguna og átti
að fara í speglun síðdegis í gær. Paul Erik
Andreasen, þjálfari félagsins, sagði við norska
blaðið Aftenhhidet að Ijóst væri að Ríkharður
gæti ekkert æft næstu tvær til þrjár vikurnar
og yrði því ekki með þegar norska deildakeppn-
in hæfist um miðjan aprfl.
Rfldiarður fékk högg á hnéð og haltraði út af
vellinum á æfingu liðsins á Shell-Ieikvanginum
þegar aðeins fimm mínútur voru liðuar af æf-
ingunni. Þetta keniur sér illa fyrir Viking, sem
er nú með sex leikinenn á sjúkralista aðeins
nokkruin vikum áður en
norska deildin hefst. Þetta
eru einnig mjög slæm tíðindi
fyrir íslenska landsliðið, sein
leikur tvo leiki í riðlakeppni
Evrópumótsins, á móti And-
orra 27. mars og Úkraúiu
31. mars.
Ríkharður fór í uppskurð
vegna náranieiðsla í desem-
ber sl. og var búinn að ná
sér að fullu. Hann var kom-
inn í góða æfingu og lék m.a.
með íslenska landsliðinu
gegn Lúxemborg 10. þessa
mánaðar. Þessi ineiðsl hans
nú gætu einnig sett strik í
reikninginn varðandi áliuga
Stuttgart á að kaupa hann.
DAGUR Sigurðsson,
landsliðsmaður í hand-
knattleik, rauf 100
landsleikja múrinn í
gærkvöld, er hann lék
gegn Frökkum í Skene.
Dagur lék sinn fyrsta
leik gegn Egyptum
1992, 27:10. Þá kom
hann sem nýliði í lands-
liðið ásamt Ólafi Stef-
ánssyni. Vegna meiðsla
hefur Ólafur ekki náð
að leika eins marga
leiki og Dagur, en hann
Iék sinn 93. landsleik í
gærkvöld.
Aðeins tveir Ieikmenn
í landsliðshópnum nú,
Guðmundur Hrafnkels-
son og Valdimar Gríms-
son, léku með þegar
Dagur og Ólafur léku
sinn fyrsta leik.
URS Muhlethaler, nýráðinn lands-
liðsþjálfari Sviss í handknattleik,
fór gagngert til Gautaborgar í gær
til þess að fylgjast með leik fslands
og Frakklands á heimsbikarmótinu
í handknattleik. Var þetta einn lið-
ur í undirbúningi Muhlethaler fyrir
leikina við íslendinga í forkeppni
undankeppni Evrópumótsins í
handknattleik, sem fram fara í maí.
Urslit þeirra leikja ráða því hvort
liðið kemst áfram í undankeppnina
í haust.
„Það var kannski það jákvæð-
asta við leikinn að Muhlethaler hef-
ur líklega orðið margs vísari um ís-
lenska liðið,“ sagði Júlíus Jónas-
son, landsliðsmaður og leikmaður
St. Otmar í Sviss, en hann átti ekki
heimangengt á mótið í Svíþjóð.
Morgunblaðið/Gísli Hjaltason
ÍSLENSKA landsliðið tapaði með tíu mark mun, 28:18, fyrir Frökkum í öðrum leik sínum á
heimsbikarmótinu í Gautaborg ( gær. Þar með er Ijóst að íslenska landsliðið kemst ekki í undanúrslit
keppninnar. Á myndinni að ofan sækir Konráð Olavson að vörn Frakka sem virðist föst fyrir.
Geir og Júlíus hafa
enga ákvörðun tekið
EG GET staðfest að ég hef átt í
viðræðum við Val en það er
það eina sem átt hefur sér stað
milli mín og félagsins. Þær
viðræður hafa ekki leitt til neinnar
niðurstöðu,“ sagði Geir Sveinsson,
landsliðsmaður í handknattleik og
leikmaður þýska 1. deildar liðsins
Wuppertal, í gær vegna fréttar
Stöðvar 2 í gærkvöldi þess efnis að
öruggt væri að hann kæmi heim í
vor og tæki við þjálfun 1. deildar
liðs Vals.
Einnig sagði í fréttinni að líkur
væru til þess að Júlíus Jónasson
léki með Val á næstu leiktíð, en
hann hefur áður ákveðið að koma
heim í vor eftir tíu ára
atvinnumennsku í Evrópu.
„Málið er allt í lausu lofti og er
aðeins að angra mig þessa
dagana,“ sagði Júlíus. „Ég get
staðfest það að 'Valsmenn hafa
rætt við mig um það hvort ég væri
tilbúinn að leika með þeim á næsta
vetri, en ég hef ekkert ákveðið
hvort ég leik með Val eða öðru
liði,“ sagði Júlíus en lét þess
einnig getið að hann hefði heyrt í
forráðamönnum fleiri félaga á
íslandi og þeir falast eftir
liðsstjuk hans.
Geir staðfesti einnig að fleiri
félög en Valur hefðu hringt til sín
en hann hefði hins vegar ekki
verið í viðræðum við annað félag
en Val. „Það er hins vegar ekkert
víst að ég komi heim í vor. Ég er
með samning við Wuppertal til
eins árs til viðbótar, en hef
reyndar þann möguleika að losna
undan samningum í vor og þarf að
vera búinn að gera upp hug minn
fyrir lok apríl. Ég hef hins vegar
sett mér það markmið að koma
handboltamálum mínum á hreint
fyrir lok mars, bæði gagnvart
Wuppertal og þá um leið hvort ég
flyt heim í vor eða verð í
Þýskalandi eitt ár til viðbótar."
Geir sagði það hins vegar alveg
ljóst að kæmi hann heim í vor
myndu keppnisskórnir fara á
hilluna. „Það eru ekki ný tíðindi
því ég hef margsagt það
opinberlega að ég ætli ekki að
leika með félagsliði heima eftir að
atvinnumannaferlinum lýkur, á
þeirri skoðun hefur engin breyting
orðið.“
„Njósnað“ í
Gautaborg
HANDKNATTLEIKUR: SKIPBROT Á MÓTI FRÖKKUM Á HEIMSBIKARMÓTINU / B2