Morgunblaðið - 17.03.1999, Qupperneq 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
URSLIT
Frakkland - ísland 28:18
Arenahallen í Skene, Svíþjóð - Heimsbikar-
mótið í handknattleik, A-riðill, þriðjudaginn
16. mars 1999.
Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 6:3, 9:6, 9:8, 10:9,
13:9, 14:10, 16:12, 20:14, 21:16, 25:16, 27:17,
28:18.
Mörk Frakklands: Stephane Joulin 6, Guer-
ic Kervadec 5, Patrick Kazal 5, Jerome
Fernandez 5, Marc Wiltberger 2, Cédric
Burdet 2, Andrej Golic 1, Jackson Richard-
son 1.
Varin skot: Benoit Vaidoteaux 4/1, Christian
Guadin 8 (þar af 1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk íslands: Dagur Sigurðsson 6, Ólafur
Stefánsson 5/2, Sigurður Bjarnason 2, Ró-
bert Sighvatsson 1, Konráð Olavson 1,
Valdimar Grímsson 1, Bjarki Sigurðsson 1,
Gústaf Bjarnason 1.
Varin skot: Birkir Ivar Guðmundsson 3,
Guðmundur Hrafnkelsson 1 (sem fór aftur
til móthei^ja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Peter Hansson og Peter Olsson
frá Svíþjóð, ágætir.
Áhorfendur: Tæplega 2000, full íþróttahöll.
Svíþjóð - Ungveijaland............25:25
Staðan: Frakkland 3 stig, Svíþjóð 3 stig,
Ungverjaland 2 stig, Island 0.
B-RIÐILL:
Þýskaland - Rússland .............30:27
Egyptaland - Noregur..............22:21
Staðan: Þýskaland 4 stig, Egyptaland 3 stig,
Rússland 1 stig, Noregur 0.
Frjálsíþróttir
Stökkmót ÍR
Haldið í Laugardalshöll:
Stangarstökk kvenna:
1. Þórey Edda Elísdóttir, FH.......4,37
2. Vala Flosadóttir, ÍR ...........4,22
3. Monique DeWitt, Ungverjalandi ... .3,82
Hástökk karla:
1. Einar Karl Hjartarson, ÍR.......2,11
2. Sebastian Chmara, PóIIandi......2,11
3. Vegard Hansen, Noregi ..........2,06
4. Ólafur Símon Ólafsson, ÍR.......1,91
Hástökk kvenna:
1. Þórdís Gísladóttir, ÍR..........1,74
2. Ágústa Tryggvadóttir, HSK ......1,70
3. Guðbjörg Lilja Bragadóttir, ÍR..1,66
4. íris Svavarsdóttir, FH .........1,61
5. Maríanna Hansen, IR.............1,56
Knattspyma
Evrópukeppni félagsliða
8-liða úrslit, síðari leikir:
Parma, Ítalíu:
Parma - Bordeaux....................6:0
Hernan Crespo 37., 66., Enrico Chiesa 43.,
59., Juan Veron 48., Abel Balbo 89., víti.
25.000.
■ Parma vann samtals 7:2.
Lyon:
Olympique Lyon - Bologna............2:0
Alain Caveglia 16., Joseph-Desire Job 39.
40.000.
■ Bologna vann samanlagt 3:2.
Róm:
AC Roma - Atletico Madrid ..........1:2
Marco Delvecchio 32. - Carlos Aguilera 59.,
Roberto Fresnedoso 89. Rautt, spjald: Pi-
erre Wome 28., Francesco Totti (báðir
Roma) 90. 64.000.
■ Atletico Madrid vann samanlagt 4:2.
Vigo, Spáni:
Celta Vigo - Olympique Marseille ...0:0
32.000.
■ Marseille vann samanlagt 2:1.
■Dregið verður í undanúrslit á fostudaginn.
England
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Barnsley - Tottenham................0:1
- David Ginola 68. Rautt spjald: Adrian
Moses (Barnsley) 59.18.793.
■I undanúrslitum mætast Newcastle -
Tottenham og Manchester United og Ar-
senal og fara leikirnir fram 11. apríl.
1. deild:
Bury - Wolves.......................0:0
Crewe - Grimsby.....................0:0
2. deild:
Blackpool - Bournemouth.............0:0
Manchester City - Notts County .....2:1
Stoke - Fulham .....................0:1
3. deild:
Brentford - Halifax ................1:1
Rotherham - Cardiff ................1:0
Skotland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit.
Dundee United - Ayr.................2:1
Murray 42., Magnus Skoldmark 51. - Andy
Walker 46.
■Sigurður Jónsson lék allan leikinn með
Dundee.
Þýskaland
1. deild:
Bochum - Hamburg....................2:0
Andreas Fischer 21., sjálfsmark, Mehdi Ma-
hdavikia 81. 24.603.
I kvöld
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót:
Laugard.: Fylkir -Víkingur.20.30
Deildarbikarkeppnin:
Ásvellir: FH- Selfoss......20.30
Pílukast
Reykjavíkurmeistaramótið í pflukasti
verður haldið í Laugardalshöllinni um
næstu helgi, 20. og 21. mars. Keppendur
verða að skrá sig i síma 551 5522 fyrir
hádegi á laugardag.
HANDKNATTLEIKUR
Islenska landsliðið er úr leik
eftir stórtap gegn Frökkum
Sá ekki
til sólar
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik er í öldudal um þessar mundir og
alls ekki í hópi þeirra bestu. Þetta kom berlega í Ijós í Arenahallen í
Skene, smábæ utan við Gautaborg í Svíþjóð í gærkvöldi, þegar íslending-
ar hreinlega biðu skipbrot gegn frísku liði Frakka í mjög ójöfnum leik,
28:18. Skemmst er frá því að greina að íslendingar sáu nær aldrei til sól-
ar í leiknum - voru alltaf í hlutverki músarinnar gegn þjóðinni sem varð
heimsmeistari á íslandi fyrir fjórum árum og sá baráttuandi sem ein-
kennt hefur „okkar menn“ í gegnum árin virtist víðsfjarri. Ljóst er að
landsliðsþjálfarans bíða margvísleg og erfið verkefni; hans er að binda
saman hripleka vörn og efla sjálfstraust íslenska liðsins fyrir lokaleik
riðlakeppninnar gegn Ungverjum í kvöld - og miklu fremur fyrir leikina
erfiðu gegn Sviss í vor.
Björn Ingi
Hrafnsson
skrifar frá
Gautaborg
Islendingar stilltu upp sama byrjunar-
liði og gegn Svíum á mánudagskvöld,
utan að markvörðurinn Birkir Ivar Guð-
mundsson fékk að spreyta
sig í byrjunarliðinu í stað
Guðmundar Hrafnkelsson-
ar. Birkir hefm' aldrei áður
verið í byrjunarliði lands-
liðsins og var því nokkur vorkunn að
byrja gegn franska liðinu, sem geislaði
af sjálfstrausti frá fyrstu mínútu og
hreinlega labbaði gegnum íslensku
vörnina.
„Eg vissi fyrir mótið að varnarleikur-
inn yrði okkar Akkilesarhæll og það
kom heldur betur í ljós í þessum leik.
En ég gerði mér kannski ekki grein fyr-
ir því að það væri svona slæmt,“ sagði
Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari eftir
leikinn. Hann var þá að ræða varnarleik
íslenska liðsins, eða öllu heldur skort á
honum, því meinilla gekk að stöðva lipra
sóknarmenn andstæðinganna - þeir
annaðhvort smugu gegnum vörnina
næsta auðveldlega, ellegar stukku hátt
yfir varnarmúrinn og þrumuðu knettin-
um í netið.
Aðeins í upphafi leiks höfðu íslensku
leikmennimir í fullu tré við franska and-
stæðinga sína - íljótlega skildi þó leiðir
og um fyrri hálfleikinn miðjan var mun-
urinn orðinn þrjú mörk, 6:3. Vendi-
punktur varð í leiknum er fyrsta
vítakast Valdimars Grímssonar var var-
ið - Frakkar höfðu þá gert fjögur mörk í
röð gegn aðeins einu marki íslendinga.
Lífsmark var þó enn með íslenska lið-
inu og með ærnum erfiðismunum tókst
að minnka muninn í eitt mark, 9:8 og
aftur 10:9. Þá var Frökkum hins vegar
nóg boðið; þeir léku grimman varnarleik
og hann bar árangur - þeir nýttu fimm
síðustu sóknir sínar og í leikhléi var
munurinn fjögur mörk, 14:10.
Ekki virðist hafa gengið að nýta leik-
hléið til að ræða mistökin í varnarleikn-
um, því íslenska liðið lék engu skár í
seinni hálfleik. Þeir félagar Dagur Sig-
urðsson og Ólafur Stefánsson báru leik
Islendinga uppi löngum stundum og
Dagur var í raun eini leikmaður íslenska
liðsins sem lék af eðlilegri getu. Ólafur
stökk nokkrum sinnum hátt yfir vörnina
og gerði glæsimörk - vandinn var aðeins
sá að hann gerir of lítið af þessu og kast-
ar því sumpart hæfileikum sínum á glæ.
Aðrir leikmenn íslenskir náðu sér alls
ekki á strik í sókninni - Róbert Julian
Duranona er ekki svipur hjá sjón og Sig-
urður Bjarnason á erfitt með að festa
sig í sessi sem stórskytta. í hornunum
fundu þeir Konráð Olavson og Valdimar
Grímsson sig ekki og gerðu sig oft seka
um slæm mistök í vamarleiknum ofan í
kaupið.
„Vissulega var sóknarleikur okkar
alls ekki nægilega góður, en leikurinn
tapaðist þó alls ekki vegna hans,“ sagði
Þorbjörn eftir leikinn. „Vömin var
áfram höfuðverkur liðsins, breytingarn-
ar á henni era miklar og það tekur ein-
faldlega tíma að byggja upp sterkan
varnarleik að nýju. Við reyndum okkur í
6-0 vörninni og Rúnar og Dagur léku í
hjarta varnarinnar - fengu þar erfitt
hlutverk. Fyrir aftan stóð Birkir ívar
[Guðmundsson] í sínum fyrsta leik í
byrjunarliðinu. Eg var ákveðinn í að
gefa honum tækifæri, en hann var svo
sannarlega ekki heppinn með varnarleik
liðsins að þessu sinni.“
Birkir Ivar stóð í íslenska markinu í
fjöratíu mínútur og varði alls þrjú skot -
öll á fyrsta sjöttungi leiksins. Að öðra
leyti átti hann ekkert svar við skemmti-
legum skotum frönsku leikmannanna og
ekki heldur Guðmundur Hrafnkelsson
sem fékk að spreyta sig síðustu tuttugu
mínúturnar. Hann náði aðeins að verja
eitt skot, sem raunar hrökk aftur til
Frakkanna og varð að marki, en á þeim
kafla var íslenska liðið reyndar farið að
hengja haus og búið að gefast upp.
Frakkar héldu algjöram yfirburðum í
seinni hálfleik, skoraðu mörk í öllum
regnbogans litum og bætti jafnt og þétt
við sannfærandi forskot sitt. Þegar upp
var staðið var munurinn tíu mörk og
þungbúnir leikmenn íslenska liðsins
gengu hratt til búningsherbergja.
„Við náðum varla að verjast einni ein-
ustu sókn þeirra,“ sagði Þorbjöm og
bætti við að allt of mörg mörk þeirra
hefðu verið niðurdrepandi. „Við náum
ekki að vinna leiki ef við höldum áfram
að fá á okkur tæplega þrjátíu mörk í leik
- slíkt einfaldlega gengur ekki.“
Island er eina þjóðin á heimsbikar-
mótinu sem ekki býr sig nú af kappi
undir HM í Egyptalandi í sumar. Þor-
björn telur að það sjáist greinilega og
tekur undir að liðið sé ekki í sama gæða-
flokki. „Leikur okkar í kvöld sýndi það -
þeir era samt að prófa ýmsa hluti eins
og við, en miðað við frammistöðu okkar í
þessum leik eigum við býsna langt í land
að nálgast þá bestu á nýjan leik.“
Þjálfarinn benti hins vegar á að hann
gæti ekki stillt upp sínu sterkasta liði,
bæði vegna meiðsla og annarra að-
stæðna. „Þessir strákar eiga hins vegar
að taka við liðinu og þurfa nú að axla
aukna ábyrgð - ekki síst í varnarleikn-
um. Okkar undirbúningur verður að
miðast að því að koma þeim inn í varnar-
hlutverkin. En um leið hlýtur maður að
spyrja sig: Era þetta mennirnir í þessi
hlutverk? Þetta þarf ég að skoða vand-
lega á næstunni á myndbandi og kannski
hentar öðrum betur að leika í vörn liðs-
ins. Kannski breyti ég um fyrir leikinn
gegn Ungverjum [í kvöld] - einhverja
bragarbót verðum við að gera. Hins veg-
ar eru hér aðeins mjög sterkar hand-
knattleiksþjóðir og ekkert hlaupið að því
að sigi'a þær.“
FRÖNSKU leikmennirnir höfðu i
um í gær en á sama tíma var h
Sigtryggssonar, Þorbjarnar þjál
Daniel Constar
Mun I
ná í fi
Daniel Constantini, þjálfari frans
kvaðst mjög undrandi eftir stórs
gærkvöldi, 28:18. „Ég átti von á
viðurkenna það. Mér hefur þótt ’
1995, enda urðum við Frakkar h
það eru greinilega kaflaskipti hji
taka tíma að komast í fremstu ri
stantini.
Breiðablik með 41 mark
Breiðablik vann Ögra 41:17 í 2.
deildarkeppni karla í handknattleik, en ekki
31:17 eins og misritaðist í blaðinu í gær.
Svíar segja sigurinn fýrir öllu
SÆNSKIR fjölmiðlar gera mikið úr
þætti stórskyttunnar Staffans
„Faxa“ Olssons í naumum sigri
sænska landsliðsins á því íslenska,
29:26, í fyrstu umferð Heimsbikar-
mótsins á mánudagskvöldið. Er þess
getið að leikur sænska liðsins hafi
verið lítt sannfærandi og enn eigi
ýmislegt eftir að laga fyrir átökin á
HM í Egyptalandi í sumar.
„Það er hefð fyrir því að heimalið
vinni fyrsta leik sinn á móti sem
þessu og það gerðu landsliðsmenn-
irnir okkar einmitt - en það leifði
ekkert af því,“ sagði í Gautaborgar-
póstinum. Þar er bent á að sænska
seiglan hafi reynst vel undir lokin -
en tæpara hafi vart mátt standa.
Mestu umfjöllunina fær þó „Faxi“,
enda verður hann 35 ára í næstu
viku og er aftur kominn í sænska
landsliðið eftir níu mánaða hvíld -
lék síðast í sigri Svía í úrslitaleik
EM sl. sumar.
„Við vorum lengi í gang, enda er
nokkuð um liðið frá síðustu leikjum
okkar. Mestu skipti þó að ná að sigra
og lyfta þannig liðsandanum. Það
tókst hjá okkur og fyrir vikið er ekki
annað hægt en að vera bjartsýnn á
framhaldið," sagði „Faxi“ við
sænska blaðamenn.
Það, sem vekur þó kannski hvað
mesta athygli við umfjöllun sænskra
blaða um leik Svía og íslendinga, er
hvað hún er lítil og efnisrýr. Iþrótta-
greinar á borð við íshokkí og knatt-
spyrnu fá miklu meira rúm á síðum
dagblaðanna, einkum þó þeirra sem
er dreift á landsvísu. Umfjöllun í
sjónvarpi og útvarpi hefur verið
meiri - sænska sjónvarpið sýndi
samantekt kl. 22 frá leiknum á
mánudagskvöld og hið sama var upp
á teningnum í gærkvöldi - er Svíar
léku gegn Ungverjum. Gamla kemp-
an Per Carlén vinnur við að lýsa
leikjum sænska liðsins í sjónvarpi
ásamt íþróttafréttamanni, en í út-
varpi er hinn gamalreyndi mark-
vörður Mats Olsson í sama hlutverki.
Franski þjálfarinn kveðst þekkja
afar vel til íslensks handknatt-
leiks og margir leikmanna liðsins
séu frábærir, t.d. Ólafur Stefáns-
son og Dagur Sigurðsson. „Leik-
menn mínir náðu sér sérstaklega
vel á strik í leiknum og léku miklu
betur en t.d. gegn Ungverjum á
mánudagskvöld. Það fór saman við
afar slakan leik íslenska liðsins og
fyrir vikið unnum við býsna örugg-
an sigur.“
Constantini bætti því við að
hann héldi með íslendingum gegn
Ungverjum, en sá leikur fer fram í
kvöld kl. 17:15 að íslenskum tíma.
„Ég hef fulla trú á því að felenska
liðið nái að vinna sig upp úr þess-
ari lægð. Sterkir menn eru fjar-
verandi og það hefur auðvitað sín
áhrif - en liðið getur samt miklu
betur en það sýndi í þessum leik,“
sagði Constantini.
A alls ekki að vera tíu marka
munur
Valdimai' Grímsson, fyrirliði ís-
lenska liðsins, sagði að slakur
vamarleikur hefði orðið Islending-
um að falli gegn Frökkum. „Við
eram að prófa okkur áfram í 6-0-
vörninni og það gekk ekki nógu vel