Morgunblaðið - 17.03.1999, Qupperneq 4
■ JÚRGEN Klinsmann, fyrr-
verandi landsliðsraaður Þjdðverja
í knattspyrnu, segist alltaf hafa
dreymt um að leika með Real Ma-
drid. Hann er nú búsettur í
Bandaríkjunum og sagði í samtali
við CNN-fréttastofuna að hann
hefði tvívegis átt í samningavið-
ræðum við Real Madrid á leik-
mannaferli sínum. Hann lék 108
landsleiki fyrir Þýskaland og lék
með VfB Stuttgart, Intern-
azionale, Mdnakd, Tottenham og
Bayern Miinchen.
■ PAULO Sous a, portúgalski
leikmaðurinn hjá Inter Milan,
verður ekki í byrjunarliðinu í síð-
ari Evrópuleiknum gegn
Manchester United í kvöld.
Ástæðan er sú að hann gagnrýndi
þjálfara liðsins, Rúmenann
Mircea Lucescu, í sjónvarpsvið-
tali og það kunni þjálfarinn ekki
að meta.
■ ALAN Little, sem hefur starf-
að hjá York City undanfai’in 11
ár, hefur verið rekinn frá félag-
inu. Little, sem er bróðir Brians
hjá Stoke, tók við York, sem er í
2. deild, ái-ið 1993, en var þar áður
aðstoðarmaður tveggja fyri'ver-
andi knattspyrnustjóra liðsins.
■ STEVE McManaman fer með
Liverpool í þxiggja daga æfínga-
búðir til Frakklands. Grannt hefur
verið á því góða milli leikmannsins
og Gerard Houllier, knattspyi’nu-
stjóra, en Houllier segir að þeir
hafi rætt málin í bróðemi.
■ JOHN Gregory, knattspyrnu-
stjóri Aston Villa, hefur lagt fram
kvörtun til enska dómarasam-
bandsins vegna Peter Jones,
dómara, og krafist að þess Jones
dæmi ekki fleiri leiki hjá Aston
Villa. Knattspyrnustjórinn var
ævareiður yfír dómgæslu Jones í
leik Aston Villa og Tottenham
um síðustu helgi.
■ MANCHESTER United fær
Francesco Toido, markvörð Fior-
entina, fyrir 1,7 milljarða króna,
að því er kemur fram í Daily Mail.
Segir að Peter Schmeichel fylgi
með í kaupunum. Hæsta verð sem
félagslið hefur reitt fram fyrir
mai’kmann til þessa er tæplega
900 milljónir er Internazionale
keypti Gianluca Pagliuca frá
Sampdoria árið 1994.
■ SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson
skoraði fyrir Walsall sem gerði
jafntefli, 1:1, við Milwall ensku 2.
deildinni í gærkvöldi. Þetta er
fyrsta mark hans fyrir liðið.
Frábær endir á keppnistímabilinu
hjá Þóreyju Eddu, sem sigraði Völu Flosadóttur
Morgunblaðið/Golli
ÞÓREY Edda Elísdóttir úr FH fer hér fimlega yfir 4,37 metra og setti persónulegt
met. Hún hefur sýnt stórstígar framfarir í vetur og bætt sig um samtals 47 sm.
Enn á
uppleið
ÞÓREY Edda Elísdóttir úr FH bætti fyrri árangur sinn
um einn sentimetra er hún stökk yfir 4,37 metra og
sigraði á stökkmóti ÍR í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Engin íslensk kona hefur stokkið jafnhátt hér á landi.
Hún átti mjög góða tilraun við 4,40 metra, fór vel yfir
en kom aðeins við rána á niðurleið. Vala Flosadóttir
úr ÍR stökk 4,22 og varð önnur.
Þórey Edda sagðist ekki hafa búist við þessum árangri. „Ég
byrjaði illa en svo datt ég allt í einu inn í þetta og fann mig
vel. Ég vai- sérstaklega ánægð með árangurinn vegna þess að
mér gekk illa á mótinu á Akui-eyri. Þax- fann ég mig alls ekki
og vii-kaði þung og óörugg. Það er frábært að
enda keppnistímabilið innanhúss með því að
Valur B. setja persónulegt met og það á heimavelli. Það
s“°° munaði litlu að ég færi yfír 4,40 mefra og ég veit
að ég get farið yfír þá hæð,“ sagði Þórey Edda.
Þórey Edda hefur sýnt miklar framfarii’ í vet-
ur og hefur bætt sig um 47 sentimetra. Fyrír tímabilið hafði
hún stokkið yfir 3,90 metra. Besti árangur hennar utanhúss er
4,20 metrar. Hún byrjaði á þvi að stökkva yfir 3,82 metra í
fyrstu tilraun í gær, síðan 4,02 í annairi, 4,12 og 4,22 í fyrstu
og 4,32 í annai-ri. Þá fór hún vel yfii’ 3,37 í lyrstu tilraun og
fyi’sta tilraun hennar við 4,40 var mjög góð og aðeins óheppni
að ráin hékk ekki uppi.
Byrjunarhæð Völu var 4,02 metrar og fór hún yfir í fyrstu
tilraun. Það sama gerði hún við 4,12 og 4,22. Hún felldi síðan
4,37 í öllum þremur tilraunum sínum. „Ég er ekki alveg nægi-
lega sátt við árangurinn því mér fannst ég eiga meira inni. Ég
átti mjög gott stökk yfir 4,22 en síðan var stöngin orðin of
mjúk fyrir mig í 4,32. Ég hefði átt að skipta um stöng í annarri
tilraun en gerði það ekki fyrr en í þriðju og það vora mistök.
Þetta var spennandi einvígi milli okkar og kemur til með að
efla okkm’ báðar í framtíðinni,“ sagði Vala, sem á Islands- og
Norðurlandametið í greininni, sem er 4,45 metrai’.
Monique DeWitt frá Hollandi hafnaði í þriðja sæti með
stökk upp á 3,82 metra. Ungverski meistarinn Zsuzsa Szab,
sem á best 4,51 metra, náði ekki að fara yfir byrjunarhæð sína
í keppninni, 4,32 metra. Hún fékk síðan að reyna sig utan
keppni við 4,40 metra eftir að Þórey Edda var hætt, en án ár-
angurs.
Einar Karl Hjartarson, sem tvíbætti Islandsmetið (2,17 m
og 2,20 m) í hástökki á Akureyri á sunnudagskvöld, náði sér
ekki á strik í gærkvöldi. Hann stökk 2,11 metra eins og heims-
meistaiinn í sjöþraut, Sebastian Chmara frá Póllandi. Þeir
fóru yfii’ þá hæð í fyrstu tilraun en felldu 2,15 í þrígang. Þá
þurfti umstökk til að útkljá hvor hlyti fyrsta sætið. Þeir
reyndu fyrst við 2,15 en felldu báðir, þá var lækkað í 2,13 og
aftur féll ráin. Þá vai’ farið í 2,11 metra og Einar Karl fór yfir
°g tryggði sér gullið.
Einar Karl sagðist hafa verið
þreyttui- eftir mótið á Akureyri. „Ég
fann það strax að þreyta sat í mér frá
því á sunnudag. Það þarf að vera
lengri tími milli móta. Ég get þrátt
fyrir allt verið þokkalega sáttur við
þessa hæð og sigurinn,“ sagði hann%
Hin síunga Þórdís Gísladóttir úr ÍR
sigraði örugglega í hástökki kvenna,
stökk 1,74 metra.
HNEFALEIKAR
Rannsókn hafin á viður-
eign Lewis og Holyfield
Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, hefur hafið rannsókn á
því hvort úrslitunum í viðureign
Lennox Lewis og Evander Holyfi-
eld, heimsmeistara í hnefaleikum,
hafi verið hagrætt.
Bardaganum, sem fór fram í
New York aðfaranótt sunnudags,
lauk með jafntefli. Saksóknarar í
New York hafa safnað saman upp-
tökum um að greiðslur hafi verið
inntar af hendi til þess að hag-
ræða úrslitunum. Verulegar fjár-
hæðir eru sagðar í spilinu, en um
10 milljónir manna horfðu á leik-
inn í áskriftarsjónvarpi.
FBI hefur yfirheyrt Bobby
Lee, yfirmann IBF-hnefaleika-
sambandsins, og beint spjótum
sínum að Don King, skipuleggj-
anda viðureignarinnar. King þykir
umdeildur og er sagður hafa verið
viðriðinn ýmislegt misjafnt í
hnefaleikum frá því á áttunda ára-
tugnum. í síðustu viku var yfir-
maður hnefaleikasambands í
Flórída rekinn fyrir að þiggja
rúmar fimm milljónir króna frá
King sem voru sagðar hafa átt að
renna til góðgerðarmála.
Jack Newfield, höfundur bókar-
innar „The life and Crimes of Don
King“ er sannfærður um að King
hafi átt þátt í að hagræða úrslitun-
unum í New York. Newfield segir
að King, sem er talinn hafa þénað
um 1,2 milljarða íslenskra króna á
keppninni í New York, hafi viljað
tryggja að hann gæti haldið áfram
að skipuleggja bardaga í þunga-
vigt, því Lewis hafi ekki gert
samning við King eins og Holyfi-
eld hafi gert við hann fyrir tveim-
ur árum. Sá samningur tryggði
King umsjón með bardögum
Holyfield, að sögn Newfields. „Ef
Lewis hefði unnið hefði King orðið
atvinnulaus," segir Newfield.
Áform eru um að Lewis og
Holyfield mætist að nýju í Bret-
landi og að bardaginn fari fram
innan sex mánaða. Þegar og ef
hnefaleikakapparnir mætast á ný
verða belti þriggja hnefaleikasam-
banda lögð undir eins og í New
York.
Vala og Þórey
í æfingabúðir
VALA Flosadóttir og Þórey
Edda Elísdóttir stangar-
stökkvarar hafa nú lokið
keppnistímabilinu innanhúss.
Það er þó ekkert frí franiund-
an hjá þeim því þær fara í
tveggja vikna æfingabúðir til
Póllands í næstu viku til að
undirbúa sig fyrir tímabilið ut-
anhúss. Þar verða þær undir
handleiðslu þjálfara síns, Stan-
islav Szczyrba. Fyrsta utan-
hússmótið sem þær keppa í
verður f júní i suinar.
FRJALSIÞROTTIR