Morgunblaðið - 23.03.1999, Page 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Tími sumarhúsanna framundan
ÞETTA fallega og vel smíðaða sumarhús er til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni. Það stendur á rúmlega 1/2
hektara eignarlandi úr jörðinni Svarfhóll í Hvalfjarðarstrandarhreppi. Húsið er 44 ferm. auk svefnlofts.
Ásett verð er 4,5 millj. kr.
Verð á sumarhús-
um hefur haldizt
stöðugt, en eftir-
spurn er mikil
Hreyfíng á sumarhúsum fer nú vaxandi,
enda er hún mest síðla vetrar og á vorin.
Eins og fyrr eru uppsveitir Arnessýslu eft-
irsóttasta svæðið, en vegna Hvalfjarðar-
ganganna er meiri áhugi á sumarhúsum í
Borgarfírði en áður. Magnús Sigurðsson
fjallar hér um sumarhúsamarkaðinn.
MEÐ HÆKKANDI sól eykst
áhugi fólks á sumarhúsum.
Þessi hús eru mjög mismunandi að
allri gerð og mismunandi gömul. í
flestum hinna nýrri eru rafmagn og
heitt vatn sjálfsagðir hlutir. Af þeim
sökum er líka unnt er að nýta þau
miklu lengur á hverju ári en áður
tíðkaðist. Sum þessara húsa eru svo
vel útbúin, að hægt er að vera í þeim
um hávetur og húsin þá sannkölluð
vetrarvirki. Svo eru önnur hús, eink-
um þau eldri, sem eru ekki jafn vel
útbúin og kaupverð þeirra er þá líka
þeim mun lægi-a, þegar þau koma í
sölu.
Algengt verð fyrir notaðan bústað
er á bilinu 3-5 millj. kr. og þaðan af
hærra, allt eftir stærð og ásigkomu-
lagi, en verð á sumarhúsum getur
verið afar mismunandi. Þó að húsið
sé orðið gamalt og lítils virði, getur
lóðin verið gróin og falleg og á eftir-
sóttum stað. Verðmætin eru þá
kannski fyrst og fremst fólgin í
henni.
Húsbréfalán fást ekki út á sumar-
hús og kaup og sala á þeim er því
frábrugðin því, þegar um íbúðarhús-
næði er að ræða. Engin ákveðin
regla er til við greiðslu kaupverðs.
Ef um litla bústaði er að ræða, eru
þeir stundum greiddir út í hönd eða
þá á mjög stuttum tíma. Ef um dýr-
ari bústaði er að ræða, er meira um
það, að kaupverðið sé greitt á ein-
hverjum tíma t. d. með skuldabréfi.
Alls konar eignaskipti eru líka til og
bílar jafnvel teknir upp í kaupverðið.
Það fylgir því verulegur kostnað-
ur að koma sér upp sumarhúsi. Ef
um nýtt hús er að ræða, eru pening-
ar ekki einungis lagðir í húsið sjálft,
heldur einnig innbú, lóð, kalt og
heitt vatn, girðingu, rotþró, rafvæð-
ingu, gróður og leiktæki.
Á iandinu eru sumarhús í víðtæk-
ustu merkingu þess orðs nú áætluð
um 10.000 talsins. Þetta er mikil og
ör þróun miðað við úttekt, sem gerð
var 1973, en þá voru sumarhús inn-
an við 2.500 á landinu öllu. Sumar-
húsin eru í nær öllum sveitarfélög-
um landsins, en þeim er þó mjög
misskipt. Þéttust er sumarhúsa-
byggðin í grennd við þéttbýlið á suð-
vesturhorni landsins.
Aðal sölutíminn að hefjast
Sala á sumarhúsum er ekki bund-
in við vorin eða sumrin, heldur fer
hún oft fram á veturna. Aðal sölu-
tíminn er þó að jafnaði á vorin. Þeg-
ar kemur fram í júlí, dregur úr eftir-
spurninni. Það er eins og fólk vilji nú
heilu sumri. Fyrir því eru auðvitað
gildar ástæður eins og gróðursetn-
ing trjágróðurs og fleira.
Reynslan sýnir, að tíðarfar síðla
vetrar og svo á vorin hefur mikil
áhrif á, hvort sumarhúsamarkaður-
inn fer snemma eða seint af stað.
Slíkt er að sjálfsögðu ekki nema
eðlilegt. Fólk þarf að komast á vett-
vang og skoða þau hús, sem það hef-
ur áhuga á og ekki síður umhverfi
þeirra og aðkomu. Ef tíð er slæm og
ófærð helzt lengi á afleggjurum upp
að bústöðum, fer markaðurinn
seinna af stað.
Að baki óskinni um að eignast
sumarhús liggja mörg sjónarmið.
Margir eru fyrst og fremst að leita
sér að reit upp í sveit, þar sem þeir
geta slappað af með fjölskyldunni og
gera þá kannski ekki miklar kröfur
kröfur til híbýlanna. Rafmagn og
heitt vatn eni tvímælalaust mikill
kostur, en það eru samt ekki allir,
sem sækjast eftir slíku og eru þá
ekki tilbúnir til þess að greiða háar
fjárhæðir fyrir.
Grímsnesið hefur lengi verið mjög
eftirsótt, enda er þar stærsta sum-
arhúsahverfi landsins. Margir vilja
hins vegar ekki vera í því fjölmenni,
sem þar er komið og kjósa heldur
fáfarnari staði, þar sem umferð er
minni. Efthsóttustu sumarbústað-
irnir eru samt fyrr og síðar bústaðir
við Þingvallavatn. Þeir slá sennilega
allt út og seljast yfirleitt strax, þá
sjaldan þeir koma í sölu. Skiptir þá
ekki máli, þó að þeir séu dýrir.
Samgöngur hafa haft mikil áhrif á
sumarhúsamarkaðinn. Með betri
vegum styttist aksturstíminn og
ásókn vex í svæði, sem ekki voru
eins eftirsóknarverð áður. Þannig
hafa Hvalfjarðargöngin aukið áhuga
á sumarhúsum í Borgarfirði og allt
vestur á Snæfellsnes.
Þýðing sumarhúsa og orlofshúsa
fyrir sum sveitarfélög er mikil. Á
sumum stöðum eins og Selfossi hef-
ur smíði þeirra gjarnan verið snar
þáttur í starfsemi byggingarfyrir-
tækjanna, en bærinn liggur vel við
sumarhúsabyggðinni i Árnessýslu.
En sumarhús í Kjós og annars
staðar í nágrenni höfuðborgar-
svæðsins hafa líka mikið aðdráttar-
afl fyrir marga. Fjarlægðin er þá
ekki meiri en svo, að fólk getur not-
að tækifærið, ef veður er gott, til
þess að skjótast þangað á kvöldin.
Gott lóðaframboð í Árnessýslu
Lögmenn, Suðurlandi, sem hafa
aðsetur á Selfossi, hafa ávallt verið
umsvifamiklir í sölu sumarhúsa í Ár-
nessýslu. „Grímsnesið, Laugardal-
urinn og Biskupstungurnar hafa
verið vinsæl undanfarin ár. Sumar-
hús í grennd við Flúðir eru líka orð-
in mjög eftirsótt. Á þessu verður
vafalaust lítil breyting," segir Sig-
urður Jónsson, lögmaður.
Að sögn Sigurðar hefur verð á
sumarhúsum ekki hækkað heldur
haldizt stöðugt. „Framboð er ekki
mikið, að minnsta kosti ekki eins og
er, en eftirspurn er talsverð og það
er mikið hringt,“ segir hann. „Því er
öðru vísi farið með sumarhús en al-
mennt um íbúðarhús. Það er meira
draumur hjá mörgum en knýjandi
þörf að eignast sumarhús. Margir
eru því að spá og spekulegra eins og
sagt er, en svo fer eftir ýmsu, hvort
hægt er að láta drauminn rætast."
Sigurður telur framboð á lóðum
fyrir sumarhús í Árnessýslu vera
gott og mun meira en var. „Verð á
lóðum hefur jafn vel lækkað frá því
að það var hæst fyrir nokkrum árum
sökum meira framboðs, segir hann.
,Ásóknin er mest í vinsæl sumar-
húsahverfi, þar sem heitt vatn er til
staðar."
Hjá Lögmönnum, Suðurlandi eru
nú til sölu mörg sumarhús. Við Eyr-
argötu 44a á Eyrarbakka er til sölu
tvílyft, bárujárnsklætt timburhús
ásamt viðbyggingu úr holsteini.
Eignin skiptist í eldhús, fjögur
svefnherbergi, sem eru með spóna-
parketi á gólfi og baðherbergi. Stof-
an er innaf eldhúsi og er hún með
spónaparketi á gólfi. Nýir gluggar
eru á öllu húsinu og húsið er nýlega
klætt að utan með bárujárni.
Geymslukjallari er undir húsinu að
hluta og er hann ca 40 ferm.
„Þetta hús gæti hæglega nýtzt
sem sumarhús, en á það eru settar
3,2 millj. kr., sem er hagstætt verð,
auk þess sem á því hvfla hagstæð
lán,“ segir Sigurður Jónsson. ,Ann-
að sumarhús, sem mig langar til að
nefna, er fallegt sumarhús í landi
Lækjarhvamms í Laugardal. Það er
um 50 ferm., byggt 1981. Ástand
hússins e'r gott. Lóðin er eignarlóð,
kjam vaxin og um 3.900 ferm.
ásamt 800 ferm. hlutdeild í sameign-
ariandi. Ásett verð á þetta hús er 3,9
millj. kr.“
„Sumarhúsamarkaðurinn er rétt
að fara í gang,“ segir Ævar Dungal
hjá fasteignasölunni Fold. „En það
er þegar ótrúlega mikið um fyrir-
spurnir og ég á því von á mikilli eft-
irspurn. Flestir virðast vera að leita
að fullbúnum sumarhúsum og því
glæsilegri sem þau eru því betra.
Staðsetningin skiptir ekki megin-
máli, en eftirspurnin er þó meiri,
eftir því sem sumarhúsin ei'u nær
höfuðborgarsvæðinu og vegir
þannig, að hægt sé að komast allan
ársins hring. Það er mikið um, að
bústaðir séu staðgreiddir nú og
meira en var.“
Að sögn Ævars leggja kaupendur
hvað mest upp úr, að húsin séu með
heitu vatni, fallegu útsýni, aðgangi
að veiði, góðum gönguleiðum og
hvort hægt sé að geyma hesta í ná-
grenninu.
Hjá Fold er nú til sölu sumarhús í
Hraunborgum í Grímsnesi, ekki
langt frá Þingvöllum. í því er rúm-
góð stofa, tvö barnaherbergi með
kojum, rúmgott hjónaherbergi með
rúmgóðu holi og lítilli barnakoju,
baðherbergi með sturtu, rotþró, eld-
hús með nýlegri innréttingu og
borðkrókur. Húsið stendur á stórri
og fallegri lóð, sem er í góðri rækt.
Ásett verð er 3,3 millj. kr., sem Æv-
ar segir afar hagstætt verð á jafn
góðu húsi á þessum stað.
Hjá Fold er einnig til sölu sumar-
hús í Varmadal í Mosfellsdal, rétt
við Leirvogsá. Hægt er að kaupa
veiðileyfi í ánni, en í henni fást 600-
800 laxar árlega að sögn Ævars.
Stór og mikill trjálundur er um-
hverfis bústaðinn og skammt í
skeiðvöll fyrir hesta og fieiri góðar
reiðleiðir. Á þetta sumarhús eru
settar 3,8 millj. kr. „Þetta er einn
skemmtilegasti staður fyrir sumar-
hús, sem ég þekki,“ sagði Ævar.
„Ospillt náttúran blasir við og frá
borginni tekur ekki nema stundar-
fjórðung að aka á þennan stað.“
Sumarhús á
Hvalfjarðarströnd
Fasteignamiðstöðin hefur lengi
lagt miklar rækt við sumarhúsa-
markaðinn og hjá henni er á sölu-
skrá fjöldi sumarhúsa, þeirra á með-
al fallegt og vel smíðað sumarhús á
rúmlega 1/2 hektara eignaidandi úr
jörðinni Svarfhóll í Hvalfjarðar-
strandarhreppi, sem er næsta jörð
við Vatnaskóg KFUM. Lóðin er fal-
leg, vel gróin og á henni rennur læk-
ur framhjá húsinu. Sumarhúsið er
byggt 1987. Það er klætt utan með
kúptum panel, frönskum gluggum
og á þaki er stallað rautt járn. Um-
hverfis húsið er verönd á allar hlið-
ar.
Húsið er 44 ferm. auk svefnlofts,
sem er yfir því að hluta. Það skiptist
í stofu og eldhús, 2 svefnherbergi,
baðherbergi og svefnloft. Húsið er
vel innréttað, panelklætt að innan
bæði loft og veggir en á gólfum er
tréex. Húsið er kynt með rafmagni.
Ásett verð er 4,5 millj. kr. eða tilboð.
„Þetta er sérlega fallegt sumar-
hús,“ segir Magnús Leópoldsson,
fasteignasali í Fasteignamiðstöðinni.
„Það er í góðu ástandi og stendur á
fallegum stað í góðu ökufæri frá höf-
uðborgarsvæðinu." Magnús kvaðst
gera ráð fyrir góðri eftirspurn eftir
sumarhúsum á þessu vori og meiri
ásókn í Borgarfjörð og Mýi'ar en áð-
ur. „Með Hvalfjarðargöngunum hef-
ur leiðin vestur á land stytzt mikið
og áhugi fólks á sumarhúsum þar
aukizt til muna,“ segir Magnús Leó-
poldsson.
HJÁ Lögmönnum, Suðurlandi eru til sölu þetta tvflyfta bárujárns-
klædda timburhús ásamt viðbyggingu úr holsteini. Húsið stendur við
Eyrargötu 44a á Eyrarbakka. Geymslukjallari er undir húsinu að
hluta. Ásett verð er 3,2 millj. kr. „Þetta hús gæti hentað vel sem sum-
arbústaður," segir Sigurður Jónsson lögmaður.
HJÁ Fold er til sölu fallegur sumarbústaður í Hraunborgum í Gríms-
nesi, ekki langt frá Þingvöllum. Ilúsið er um 46 ferm. og stendur á
stórri, ræktaðri lóð. Ásett verð er 3,3 millj. kr.