Morgunblaðið - 23.03.1999, Qupperneq 20
áo c
ÞRIÐ JUDAGUR 23. MARZ 1999
r
Opið 9-18
.
W Haukur Geir Garðarsson
a viðskiptafræðingur og
’ löggiltur fasteignasali
SUÐU RLAN DSBRAUT 12 • S ÍAAI 588 5060 • FAX 588 5066
Opið iaugardaga
kl. 12-14
mbUs/fasteignir/fi
habil.is/fi
2ja herbergja
BRAÐVANTAR BRÁÐVANT-
AR 2 HERB. (BÚÐIR Á SKRÁ,
HELST ( VESTURBÆ, MIÐBÆ OG
KÓPAVOGI FYRIR ÁKVEÐNA
KAUPENDUR, HRINGDU STRAX.
VANTAR - VANTAR höfum
KAUPENDUR Á SKRÁ AÐ 3JA HERB.
ÍBÚÐUM M.A. ( BREIÐHOLTI, KÓPA-
VOGI OG AUSTURBÆNUM. TRAUST
ÞJÓNUSTA.
SELJENDUR TAKIÐ EFTIR:
VIÐ BJÓÐUM ÞAÐ SEM MÁLI SKIPTIR,
PERSÓNULEGA OG ÁBYRGA ÞJÓNUSTU
Á SANNGJÖRNUM KJÖRUM
GAMLI MIÐBÆRINN Faiieg,
mikið endurnýjuð lítil 2ja herb. íbúð á
vinsaelum stað í miðbænum. Parket og
flísar. Áhv. lífsj. 1,1 millj. LAUS STRAX.
Verð 2,9 millj.
HÓLAR - TILBOÐ Rúmgóð 2ja
herbergja íbúð, 58 fm, ofarlega í lyftuhúsi.
Vestursvalir, glæsilegt útsýni. Ákv. sala.
ÓSKAÐ ER EFTIR VERÐTILBOÐI.
VESTURBÆR - BÍLSK. -
BYGGSJ. Vorum að fá f einkasölu
fallega 2ja herb. íb. á 3. hæð í fjölb. íb. er
björt með suðursvölum. Hús og sameign
nýmáluð. Stæði í bílskýli. Áhv. 3,2 millj.
Byggsj. rík. LAUS STRAX
3ja herbergja
HAMRABORG - UTSYNI Góð
3ja herb. íb. í lyftuhúsi með mjög fallegu
útsýni. Suðursvalir. Stæði í bílahúsi á
jarðhæð.
HRAUNBÆR Vorum að fá í einka-
sölu fallega 3ja herb. íb. á 3. hæð í litiu
fjölb. Vestursvalir. Hús nýl. klætt og
málað að utan. Gott herb. með glugga í
kjallara. Bein sala eða skipti á 2ja herb.
íb. Verð 6,6 millj.
BAKKAR Falleg 3ja herb. íb. á 1.
hæð í góðu fjölbýli. Góðar innréttingar.
Suðursvalir. Góð staðsetning. Ákv. sala.
Verð 6,6 millj.
GRAFARVOGUR - BÍLSKÝLI
( einkasölu rúmgóð 3ja herb. íb. á 2. hæð
ásamt stæði í bílskýli. Afh. strax tilb. til
innr., hús og sameign frágengin. Ásett
verð 7,5 millj. LYKLAR OG TEIKNINGAR
Á SKRIFST.
4-6 herbergja
VANTAR A SKRA okkur
BRÁÐVANTAR FYRIR ÁKVEÐNA
KAUPENDUR 4-5 HERBERGJA
ÍBÚÐIR V(ÐA Á HÖFUÐBORGAR-
SVÆÐINU. HRINGDU OG REYNDU
ÞJÓNUSTUNA.
GRAFARVOGUR - BILSKYLI
Ný 4ra herb. endaíb. á 3. hæð (efstu) í
litlu fjölbýli. Þvottah. í íb. Stæði í bílskýli.
Afhendist strax tilb. til innréttinga að inn-
an, hús, sameign og lóð fullbúin. TEIKN-
INGAR OG LYKLAR Á SKRIFSTOFU.
HRAUNBÆR Falleg 4ra herb. íbúð
í litlu fjölbýli. Hús í góðu ástandi. Skipti
athugandi.
Hæðir
HLIÐAR Vorum að fá í einkasölu
góða 4ra herb. 107 fm hæð í Hlíðunum.
Austursvalir. Stofa, borðstofa og 2 her-
bergi. Frábær staðsetning. Bein sala eða
skipti á 3-4ra herb. í hverfinu. Verð 9,4
millj.
ÞINGHOLTIN - ENDURN. -
LAUS Glæsileg, mikið endurnýjuð um
120 fm, 3-4 herb. íbúð á efri hæð í góðu
steyptu tvíbýli. M.a. ný innrétting, gólfefni
(parket), rafmagn, þak og fl. Áhv. húsbréf
(5,1%) 5,2 millj. ÞETTA ER ÍBÚÐ FYRIR
FAGURKERA. LAUS STRAX, LYKLAR Á
SKRIFST. Verð 9,6 millj.
Einbýli-parhús-raðhús
SELJAHVERFI - SKIPTI A
ÓDÝRARI Gott endaraðhús á 3
hæðum ásamt bílskýli. Stofa, 6-7 her-
bergi. Hús er klætt að utan. SKIPTI ATH.
Á ÓDÝRARI EIGN.
HOFUM KAUPENDUR A
SKRÁ VEGNA MIKILLAR EFTIR-
SPURNAR UNDANFARIÐ BRÁÐ-
VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR
AF EINBÝLIS-, PAR- OG RAÐHÚS-
UM Á SKRÁ. HAFÐU SAMBAND
STRAX. PERSÓNULEG OG
TRAUST ÞJÓNUSTA.
I smíðum
GRAFARVOGUR ( nýju litlu fjöl-
býli, 3ja og 4ra herb. íb. með stæði (
bílsk. Afh. strax tilb. til innr. Teikn. á skrif-
stofu.
GRAFARVOGUR Einbýlishús sem
afh. fljótlega fokhelt að innan, fullfrágeng-
ið að utan og málað. Teikningar á skrif-
stofu.
Atvinnuhúsnæði
SMIÐJUVEGUR - LEIGA tíi
leigu mjög gott atvinnuhúsnæði á
jarðhæð, m. innkeyrsludyrum, um 190
fm. Hentar verslun, heildsölu eða fyrir
iðnað. LAUST STRAX.
SUÐURLANDSBRAUT m leigu
á besta stað við Suðurlandsbraut, rúm-
gott skrifstofuherbergi með aðgangi að
eldhúsi og snyrtingu. LAUST FLJÓT-
LEGA.
SUÐURLANDSBRAUT Tii leigu
um 200 fm húsnæöi á 2. hæð. Getur
leigst í tvennu lagi. Laust strax.
Sumarbústaðir
VANTAR SUMARBU-
STAÐI NÚ ER RÉTTI Tl'MINN AÐ
SKRÁ SUMARBÚSTAÐINN SINN Á
SÖLUSKRÁ HJÁ OKKUR.
ÞAÐ styrkir skjólvegginn mikið að hafa á honum útskot eða innskot, þá stendur hann betur í roki (1). Hægt er að fá söguð sveigð langbönd (2).
Skjólveggur
Smiðjan
Skjólveggir eru mikil vörn gegn næðingnum
——— — -
fyrir gróðurinn, segir Bjarni Olafsson. En það
mættu sjást oftar bogalínur í skjólveggjum.
AÐ HENDIR oft á sólardögum
að við þráum að geta notið sól-
aryls úti í garðinum okkar. Því mið-
ur háttar þannig til í mörgum görð-
um að næðingur fínnur leið að okkur
og kælir rækilega svo að við fáum
ekki notið ylsins sem við sækjumst
eftir.
Sólpallar og skjólveggir hafa náð
mikilli útbreiðslu hér á landi við
íbúðarhús og við sumarbústaði og
þar sem fólk nýtur hitaveitu frá
jarðvarma þarf ekki að spyrja að því
hvort heitur pottur sé einnig í garð-
inum.
Nú get ég ekki neitað því að þessi
mannvirki eru ekki ávallt til prýði í
fallegum görðum. Menn hafa teikn-
að upp og hannað nokkur tilbrigði til
þess að auka fjölbreytni skjólveggj-
anna.
Efnið sem notað er í palla og skjól-
veggi gefur ekki mikla möguleika á
tilbreytni. Helstu frávik sem sjást
eru þau að klætt er ýmist með stand-
andi klæðningu eða með láréttri
klæðningu. Síðan fann einhver upp á
að nota fjörutíu og fímm gráða horn
með þeim árangri að það var víða of-
notað. Gólf sólpallanna voru klædd
frá horni til horns svo að klæðningin
myndaði fjöratíu og fímm gráða
hom við húsið. Hið sama varð uppi
þegar gólf hússins voru lögð með
viði, parket á ská milli horna og
klæðning skjólveggjanna fékk einnig
sama halla. Við megum þakka fyrir
ef fólk hættir ekki að geta gengið yf-
ir götur eftir gangbrautum og fer að
fara skáhallt!!
Meiri fjölitreyfni
Sannarlega mættu sjást oftar
bogalínur á skjólveggjum í görðum
og jafnvel annarskonar efni sem not-
að væi'i af smekkvísi.
Þeir munu einnig vera til mai-gir
hagleiksmennirnir sem gætu haft
ánægju af að skreyta stöku stoð með
einfóldum skorum, ekki mjög áber-
andi, fremur til þess að leggja natni
og alúð í verkið. Það veith- athyglinni
fró að sjá tilbreytingu.
A sumum skjólveggjum væii tii
mikilla bóta að leggja ofaná stand-
andi klæðningu mjúkan og vel
heflaðan lista með ávölum bránum.
Slíkur listi hefur gildi til fegranar og
dregur úr því að vatn komist greið-
lega niður í endatré klæðningarinn-
ar. Auk þess veldur svona mjúk-
heflaður listi ofaná klæðningunni því
að maður meiðir sig ekki eða verður
sár af að halla sér með handleggi yfír
vegginn og ef þörf verður á að viðra
kodda, púða eða teppi má setja það
upp á skjólvegginn í góðviðri.
Efni keypt
Stóru timburverslanii-nar undir-
búa nú vor- og sumarverslun með
því að hafa á boðstólum hentugt
timbur í sólpalla, skjólveggi og í
sumarbústaði.
Þessar stóra timburverslanir
kappkosta að hafa á boðstólum hæfi-
legt efni sem hentar vel til pallasmíði
og skjólveggja. Ef ætlunin er að
bregða frá algengustu gerð t.d. eins
og ég nefndi hér á undan með því að
smíða bogadregið horn eða heflaðan
kúptan lista ofaná standandi klæðn-
ingu þá þarf að fá sagaða boga í
beygjuna. Það þarf að panta bogana
sérstaklega og auðvitað allt annað
sem er öðruvísi en hefðbundið efni.
Timburskjólveggir blasa víða við
MORGUNBLAÐIÐ
1969-1999
30 ára reynsla
••
Oryggisgler
j B GLERVÉRKSMIÐJAN
I
Eyjasandur 2 • 850 Hella
* 487 5888 • Fax 487 5907
Hafðu öryggi
og reynslu í
fyrirrúmi
þegar þú
kaupir eða
selur fasteign
_______if
Félag Fasteignasala
sjónum vegfarenda og í tilefni þess-
arar Smiðjugreinar brá ég mér í
ökuferð um nýlega byggð íbúða-
svæði. Eg vildi sjá tilbreytingu í
gerð skjólveggja. Það má með réttu
segja að töluverð tilbreyting er í út-
liti og gerð skjólveggjanna. Eg ók
um byggðir Kópavogs, Arbæjar-
svæði og alla leið út á Seltjaraarnes.
Teiknið garðinn
Nauðsynlegt er að teikna garðinn
upp. Teikna hvar tré skulu standa og
hvar runnar, blómabeð og matjurtir
eiga að vera. Ekki er sama hvernig
garðurinn snýr, hvort hann verður
allur sléttur eða ef halli er á svæð-
inu. Þá þarf að ákveða hvort eða
hvar stallar skulu gerðir.
011 þessi atriði og mörg fleiri
skipta miklu máli fyrir gróðurinn,
hvernig hann þrífst. Þá skiptir ekki
litlu máli hvernig hinn mannlegi
gróður grær og dafnar í garðinum.
Fyrir mörgum árum var ég að
setja í stand lóð við eigið hús og
langaði mig til að koma þar fyrir
nokkrum jarðarberjaplöntum. Fann
ég þeim reit undir austurhlið húss-
ins. Hlakkaði ég til að sjá hvernig
þessar góðu plöntur kynnu við sig á
móti suðaustan rigningarátt.
Reynsla mín vai’ð sú að þar leið
plöntunum afar vel og hafði ég aldrei
fengið jafn góða jarðarberjaupp-
skeru sem þarna. Plönturnar fengu
allmikla vökvun en einnig mikla sól.
Morgunsólin er mikil og dugar vel.
Oft var orðið skýjað um hádegið en
þá hafði sól skinið á jarðarberja-
plönturnar frá því snemma morguns.
Þessa sögu segi ég til þess að
leggja áherslu á að það er ekki sama
hvaðan vindurinn blæs, enda mun
öllum lesendum mínum vera það
Ijóst.
Langur skjólveggur getur hæg-
lega skemmst í miklu roki og vil ég
benda á að það styrkir slíkan vegg
að setja á hann innskot. Verður það
oft fallegt ef plantað er runnum eða
trjám inni í innskotið. Raunar verður
útkoman víðast hvar sú að plantað
verður oft báðum megin við skjól-
vegginn. Það eykur mikið gildi hans
til skjóls og verður með tímanum
mun fallegra.
Eg vil vekja athygli á að í timbur-
verslunum fást einnig rimlagiindur
sem eru léttari og gefa skjólveggn-
um léttara yfirbragð en ef hann er
klæddur með borðviði alla leið. Auk
þess skapa slíkir rimlar eða grindur
góða tilbreytni.