Morgunblaðið - 23.03.1999, Side 31

Morgunblaðið - 23.03.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1999 C 31 Canary Wharf er metið á 2 millj- arða punda London. Reuters. VERÐ hlutabréfa í Canary Wharf Ltd., eiganda stærstu þyrpingar skrifstofubygginga í Bretlandi, verður á bilinu 280-350 pens þegar fyrirtækið býður 25% hlut til sölu að sögn talsmanns fyrirtækisins. Canary Wharf býður út 167 milljónir venjulegra hlutabréfa og mun útboðið afla um 470-585 millj- óna punda. Samkvæmt útboðinu er fyrirtækið metið á 1,9-2,3 milljarða punda. Búizt er við að verðið verði gefið upp 26. marz og viðskipti með hlutabréfin munu hefjast 6. apríl. Canary Wharf er 81 ekru svæði við ána Thames í Docklandshverf- inu í austurhluta Lundúna og tákn þess er frægasta skrifstofublokk Lundúna, sem er á 59 hæðum. Byggingalóðin varð kanadíska fasteignasalanum Paul Reichmann og fjölskyldu hans að falli snemma á þessum áratug. Mikil umskipti hafa orðið á högum Reichmanns síðan fyrirtækjasamtök hans undir forystu hans keyptu Canary Wharf aftur af lánardrottnum 1995. Samtökin munu hafa keypt byggingasvæðið á 800 milljónir punda. Bankar höfðu komizt yfir svæðið þegar fyrirtæki Reich- manns, Olympia & York Develoments Ltd, hafði verið tekið til skiptameðferðar vorið 1992. Hár bónus Paul Reichmann hefur tryggt sér rétt til að kaupa hlutabréf í Canary Wharf og mun fá 4% hlut ef áætlanir standast. Reichmann mun fá bónus að andvirði 100 millj- ónir punda. Bónusinn er kominn undir því að Docklands-framkvæmdunum ljúki árið 2005 og samtökin fái nógu mörg fyrirtæki til að taka skrifstof- ur á leigu á svæðinu. Ellefu byggingar era fullsmíðað- ar og sjö til viðbótar eru í bygg- ingu. Þar á meðal er 42 hæða bygg- ing, sem verður aðalbækistöð Hong Kong & Shanghai Bank. JL Skipholt 50b, 2. hæð Sími 561 9500 Fax 561 9501 FASTEIGNASALA Opið virka daga: 9.00-18.00 Laugardaga 12.00-14.00 Ásgeir Magnússon, hrl. og lögg. fasleigna- og skiposdi. Sturla Pétursson sölumaður. Okkur vantar eignir fyrir fólk sem búið er að selja. 2- 3ja herbergja íbúð í vesturbæ og miðbæ. Raðhús í Fossvogi eða svæði 108 3- 4ra herbergja íbúð í Garð- arbæ. Einbýli á Seitjarnamesi. Þrastames Eignarlóð Vel staðsett 1254 fm eignarlóð með sjávarútsýni. Allar nán- ari uppl. á skrifstofu. 1879 EST"einb./raðhús { Súlunes Stórglæsilegt 273,2 fm einbýli með tvöföldum bílskúr og auk þess er mjög góð stúdíóíbúð með sér inngangi. Hér er um að ræða mjög sérstaka eign. 1271 Smárarími Öll skipti skoðuð Fallegt og velstaðsett ca 200 fm hús. Tilbúið að utan en fokhelt að innan. Gott skipulag. Stór bílskúr. Til afhendingar strax. Áhv. 6,3 millj. Verð 12,4 millj. 1868 Ystasel Fallegt og velstaðsett einbýlishús ásamt tvöföldum frístandandi 50 fm bílskúr. 5. svefnherbergi, 3. stofur, 2. baðherbergi og gufubað. Eignin er 276 fm en auk þess er ca 100 fm óinnréttað rými í kjallara sem býður uppá mikla möguleika. Skipti eru möguleg á minni eign í vesturbæ/miðbæ. Húsið er í góðu ástandi. 1854 1Í 1*13 fcSSST’- - -J IJISly Rofabær - Gott verð Erum með í sölu nýlegu húsi mjög fallega og vel innr. 4ra herb. á 1. hæð m. sérinngangi. Góðar nnréttingar og góð tæki. Flísar og korkur á gólfum. Sólríkur sérgarður til suðurs. _aus 1. maf. V. 8,4 m. 1724 Bal EGj.^a mi mm •:,"t i Laugarnesvegur Falleg endumýjuð 5 herbergja 100 fm íbúð á 4. hæð í góðu fjölbýli. Stutt í alla þjónustu. 1882 wi herbergla | Okkur bráðvantar einbýli eða raðhús með sjávarútsýni fyrir viðskiptavin sem búinn er að selja. ■ a m ■ ■ b«í al herbergja | Vantar 4ra herbergja Vegna góðrar sölu undanfarið vantar okkur nú þegar góðar 4ra herbergja íbúðir á söluskrá. Við höfum mikinn fjölda ákv. kaupanda á skrá. ÖFLUGT STARFSFÓLK FINNUR KAUPANDANN AÐ ÞINNI ÍBÚÐ. Páskatilboð herbergja | Hraunbær Falleg (búð á jarðhæð í góðu húsi, parket á gólfum og nýtt baðherbergi. Áhv. 2,8 m. í húsb. og byggsj. V. 5,1 m. Jöklafold Góð 83 fm íbúð á jarðhæð með sérgarði i fallegu fjölbýli. Stutt í alla þjónustu. Áhv. 3,4 millj. í byggsj. 1880 Veghús Bflskúr Góð 90 fm íbúð á 2. hæð með stórum suðursvölum. Parket og flísar á gólfum. Bílskúr er 26 fm með rafm. og hita. Áhv. 5,5 millj. 1869 Skógarás 80 fm íbúð á 2. hæð í fjölbýli. Laus 1. maí. Áhv. 2,7 millj. V. 7,2 m. 1736 Hverafold Byggsj. Stórglæsileg 89 fm íbúð í mjög góðu húsi. Vandaðar innrétt- ingar. Parket, flísar. Þvottahús í íbúð. sv-svalir gott útsýni. Áhv. 5. millj. í byggsj. Verð 8,5 millj. 1195 Fálkagata Góð 64 fm íbúð á jarðhæð (gengið slétt inn) 13 - býlishúsi á góð- um stað í Vesturbænum. Gegnheilt parket á gólfum. Gott hús og snyrtileg sameign. Getur losnað fljótlega. Áhv. 3,2 m. Verð 5,7 millj. 1884 Laufengi Gullfalleg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð. Parket á góifum, vandaðar innr. Áhv. 5,6 millj. í húsbréfum. Verð 8,3 millj. 1874 Oeppsvegur- Byggsj. Góð 61 fm íbúð á 4. hæð snýr ekki að Kleppsvegi. Parket á gólfum. Suður svalir og frábært útsýni. Baðherbergi flísalagt. Áhv. 3,5 millj. Greiðslubr. 17 þús. á mán. Ekkert greiðslumat. 1872 a""aa I Bfldshöfði Gott 315 fm skrifstofu- húsnæði. Er innréttað sem skrifstofur I dag en auðvelt að breyta í einn sal. Áhv. 8 millj. 1714 Plastlagnir um borð í Örfirisey Lagnafréttir Það er ekki aðeins í byggingum á landi, sem lagnir gegna veigamiklu hlutverki, segir Sigurður Grétar Guðmundsson. Hvar sem maðurinn fer má segja, að hon- um fylgi lagnir í einhverri mynd. AÐ ER sama hvort það er í flugvél eða geimstöð, alls staðar er mikið af lögnum. í bif- reiðum, járnbrautarlestum, í skip- um, hvort sem þau sigla á yfir- borði sjávar eða í undirdjúpunum, eru lagnir úr margvíslegum efn- um. Allt fram á síðustu ár hafa lagn- ir nær eingöngu verið úr einhvers- konar málmum, stáli, ryðfríu stáli, eir og jafnvel eðlari og dýrari málmum. En eins og í landi eykst notkun á plaströrum um borð í skipum, þar koma til tveir eigin- leikar plastsins, það er létt og tær- ist ekki á sama hátt og málmar. Frysting um borð A síðari áram hefur frystitogur- um fjölgað, þar um borð er ekki eingöngu hugsað um að fiska held- ur einnig að gera að aflanum og frysta hann. Þetta útheimtir mik- inn vélakost og að sjálfsögðu miklu meiri lagnir og fleiri lagna- kerfi heldur en í venjulegum tog- urum. En allt útheimtir þetta aukið rými um borð og það era ekki fáir togaramir sem siglt hafa til Pól- lands og komið heim u. þ. b. 10 metrum lengri en þeir fóru út. Með þessu fæst aukið rými fyrir vinnsluna um borð og veitir ekki af. Ekki alls fyrir löngu kom „Orfirisey“, einn af toguram Granda, heim eftir lengingu og var ekki beðið boðanna að setja niður vélar og vinnsluborð í stækkaðan vinnslusalinn. Múffusoðið polypropen Tegundir plaströra eru margar og marvíslegar, einna þekktust er polyeten svörtu rörin sem notuð era sem kaldavatnslagnir í götum og heimæðum húsa. í grunnum sjást oft appelsínu gul rör í frá- rennslislögnum sem að tegundar- heiti nefnast PVC. Frárennsl- islagnir innanhúss eru yfirleitt úr plasti, grá rör úr plastefninu polypropen En rör úr því efni eru einnig notuð í vatnslagnir, einkum fyrir kalt vatn. Þau eru yfirleitt sett þannig saman að rörin eru hituð að utan og tengið, hvort sem það er hné, té eða múffa, hitað að inn- anverðu, síðan er rörinu skotið inn í tengið og brædda plastið rennur saman, harðnar og verður sem heilt. Sævar Stefánsson, pípulagn- ingameistari í Hafnarfirði, hefur sérhæft sig í að leggja sjóhreinsi- kerfi úr polypropen plaströram um borð í skipum og „Örfirisey“ var tæpast lögst að bryggju eftir lengingu í Póllandi þegar hann og fleiri iðnaðarmenn voru komnir^ um borð til að setja upp vélar og tæki og sjóða saman plaströr. Það er best að láta myndirnar lýsa því hvernig grænu plastlagnirnar lífg- uðu upp á vinnusalinn um borð um leið og þær þjónuðu hlutverki sínu, að veita sjó um öll vinnuborð og tæki til hreinsunar eftir vinnslu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.