Morgunblaðið - 28.03.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 B 5
INNRÉTTINGAR apóteksins hafa verið friðaðar. Ekki hefur verið
ákveðið hvers konar starfsemi tekur við þegar apótekið hættir.
Wr
Ljósm./SE
THORVALDSENSSTRÆTI 6 um aldamótin síðustu. Á viðbygg-
ingunni, sem reist var 1881, voru settar upp tvær eirstyttur eftir
Bertel Thorvaldsen af Asklepíosi lækningaguði og Hebu, gyðju
eilífrar æsku. Stytturnar hafa um áraraðir staðið í sal núverandi
Reykjavfkur Apóteks. Myndin er fengin að láni úr bókinni
Reykjavík, Sögustaður við Sund.
lyfjafræðingur telji hann sölu þess
vera menningarslys. „Vagga lyfja-
fræðinnar og saga þess hefur verið
í þessari stofnun. Með því að leggja
apóekið niður er brotið blað í sögu
lyfjafræðinnar."
Jóhannes bætir við, að Lyfja-
fræðingafélagið hafí komið sér upp
safni í Nesi og kveðst hann vonast
til að flestir munanna fari þangað
til að sagan verði varðveitt á einum
stað.
Starfsmenn eru nú 11 í um það
bil átta stöðugildum og hefur að-
eins einn þeirra fengið starf frá
mánaðamótum. Sjálfur segist Jó-
hannes verða sjálfstætt starfandi á
næstunni í afleysingum og öðru
slíku.
Reykjavíkur Apótek hefur verið
eitt fárra apóteka, sem hefm- haft
framleiðslueiningu innan sinna vé-
banda. Hefur sú eining verið seld
Austurbæjarapóteki, sem einnig
hefur haft eigin framleiðslu og
hyggst halda því áfram.
Verndun innréttinga
Um áramótin keypti Eignar-
haldsfélagið Kirkjuhvoll húsið
Austurstræti 16 með þeim hlutum,
sem eru verndaðir samkvæmt úr-
skurði Húsfriðunarnefndar. Þetta
eru innréttingarnar í apótekinu og
styttur eftir Guðmund frá Miðdal,
sem eru í stigauppgangi. Ingjaldur
Hannibalsson stjórnarformaður
lyfjabúðarinnar segir að aðrir mun-
<■
m i
1
■
1 1
, Morgunblaðið/Ásdis
ÁRIÐ 1916 var hafist handa um byggingu Austurstrætis 16 fyrir
Nathan og Olsen. Arkitekt var Guðjón Samúelsson. Þangað flutti
Reykjavíkur Apótek 1930.
ir, s.s. afsteypurnai- eftir Bertil
Thorvaldsen, krukkur eftir Guð-
mund frá Miðdal, lyfjaglös o.fl., fari
annars vegar út í Haga, þar sem
lyfjafræði lyfsala er til húsa og hins
vegar á minjasafnið úti á Nesi.
Að sögn Ingjalds hefur rekstur
apóteksins verið erfiður síðustu
árin, en það er mikil breyting frá
því sem áður var. „Við komumst að
þeirri niðurstöðu, að miðað við að-
stæður á lyfjamarkaðnum væri
Háskóli Islands ekki heppilegur
aðili til að reka fyrirtæki sem
þetta. Eg er sannfærður um að
heppilegra sé að einkaaðilar sjái
um rekstur þegar það er mögu-
legt, enda eru lyfjabúðir almennt
reknar af einkaaðilum. Rekstur
apóteksins er ekki heldur bráð-
nauðsynlegur vegna kennslu í
lytjafræði lyfsala.“
Hann bendir einnig á að friðunin
á húsnæðinu hafi takmarkað mögu-
leika á hagræðingu. Veigamiklar og
dýrar breytingar hefði þurft að
gera til að reka nútímaapótek í því.
Frá sögulegu sjónarhorni segist
hann vissulega sjá eftir rekstrinum.
„Eg kom þarna sjálfur fyrst fyrir
um 40 árum. Síðan hefur leið mín
oft legið þangað, þannig að auðvitað
sér maður eftir apótekinu.“
Húsnæðinu óráðstafað
Karl J. Steingrímsson sem er í
forsvari fyrir Eignarhaldsfélagið
Kirkjuhvol segir að ekki sé fyrirséð
hvað verði í því húsnæði, sem
Reykjavíkur Apótek er nú. Hann
segir þó ljóst, að markmiðið sé að
fjárfestingin skili sér.
„Við flýtum okkur hægt. Það
hafa nokkrar fyrirspurnir borist, en
ég lendi ekki neinu nema ég sé
ánægður með það gagnvart húsinu
og öllu umhverfinu. Vissulega er
afgreiðsluborðið til vandræða, því
það stendur svo framarlega. Ef um
einhverjar breytingar eða tilfærsl-
ur á innréttingum verður að ræða,
verður það í samráði við Húsafrið-
unamefnd.“
kynnum 1999 árgerdir fram ad páskum
1 ekki ein, ekkí tvœr jn>
heldur 15 gerðu-----•w'
BYFUEEMOOD, af fe^Ýsum n <i n |
/^iner fASY CAMP
Tjaldvagnar
Opið alla helgina
sendum myndalista um land allt,
EVRO
Heilsárs fellibústaður með öllum
lúxusþægindum fyrir fjölskylduna I ferðalagið
Borgartún 22 105 Reykjavík. sími 551 1414 fax 551 1479 evro@islandia.is