Morgunblaðið - 28.03.1999, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.03.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 B 11 eftir að hljómsveitin fór fyrst að spila opinberlega og síðan fórum við hinir að fást við lagasmíðar. Ég fór að að semja lög sem féllu inn í þá músík sem við vorum að spila.“ Og ekki liðu mörg ái- þar til þið senduð frá ykkur hljómplötu? „Við tókum upp plötuna Mezzoforte árið 1979. Stein- ar Berg gaf út þá plötu. Hún var tekin upp í Hljóðrita í Hafnafírði. A þeirri plötu er svo til eingöngu músík eftir okkur strákana 1 Mezzoforte. Gunnar Þórðarson var upp- tökustjóri á einu iagi á plöt- unni og Stefán Stefánsson á einnig eitt lag, en hann spil- aði með okkur um tíma. Arið 1980 gerðum við plötu núm- er tvö. Þá fengum við tii samstarfs við okkur frá Englandi Geoff Cleaver, sem er giftur Shady Owens, sem söng eitt sinn með Hljómum og Trúbroti. Steinar fékk hann til að koma hingað til Islands til að hjálpa okkur við að fá alþjóðlegri hljóm í tónlistina sem honum tókst ágætlega. Platan var vand- aðri en sú fyrri og vakti at- hygli út í Englandi.“ A áttunda áratugnum og í byrjun þess níunda eru nokkrar goðsagnir að slá í gegn - Bubbi, Stuðmenn og ýmsar popphljómsveitir. Var ekki hörð samkeppnin um hylli unga fólksins einmitt á þeim árum? En þið hafið Morgunblaðið/Kristinn EYÞÓR, fimm ára að aldri, við píanóið. MEZZOFORTE með Ronnie Scott í klúbbnum sem kenndur er við hann. Myndin tekin 1985. Fyrir miðri mynd, til hægri við Ronnie, Jerden De Rijk, hollenskur slagverksleikari sem lék með Mezzoforte um tíma. bak og þannig komst ég meira inn í þennan hefðbundna djass.“ Og þá spilar þú aðallega á hljóm- borð? „Já, og mjög lítið á píanó. Ég spil- aði eingöngu á rafmagnspíanó og hljómborð í nokkur ár eða þar til ég fór að vinna með Tómasi R. Einars- syni að ég byrjaði aftur að spila á pí- anó. „ En þið félagarnir í Mezzoforte byrjuðuð snemma að fást við laga- smíðar? „Framan af var Friðrik eins konar leiðtogi í hljómsveitinni. Hann var árinu eldri og lengra kominn í sínum músíkpælingum. Hann samdi mikið kannski ekki litið á ykkur beinlínis sem keppinauta þar sem þið voruð að spOa allt aðra tónlist? „Já, þannig var það. Við litum aldrei beinlínis á okkur sem keppi- nauta þeirra. Við vorum ekki popptónlistarmenn. Við skilgreind- um okkar tónlist sem einhvers konar afbrigði af djasstónlist". Lagið Garden party selst í hundruðum þúsunda eintaka Er það eftir að fjórða platan frá Mezzoforte kom á markað að hljóm- sveitin verður þekkt á Norðurlönd- unum og í Evrópu? „Já, það var ekki fyrr en með fjórðu plötunni, Mezzoforte fjögur, eða Surprise - Suprise eins og hún heitir í Englandi að hljómsveitin varð þekkt erlendis og á þeirri plötu er lag mitt, Garden party. Þessi plata og smáskífa með laginu Garden party seldust mjög vel, þær fóru í einhverjum hundruðum þúsunda eintaka samtals. Garden party var spilað í útvarpsstöðum víða um heim. I Englandi náði lagið í sautjánda sæti á þessum margumtalaða vin- sældalista og gerði gott betur í mörgum Evrópulöndum, fór í fyrsta sæti bæði í Belgíu og Hollandi árið 1983 og þá fiuttum við til Englands með fjölskyldur okkar og vorum með bækistöð í úthverfi London. Við vor- um þá fimm í hljómsveitinni, Krist- inn Svavarsson kom inn í hljómsveit- ina og Steinar Berg umboðsmaður og útgefandi okkar flutti einnig út með fjölskyldu sína. Við lifðum á vinsældum Garden party í tvö ár þama úti og fórum víða um Evrópulönd og spiluðum. Á ár- unum frá 1983 höfum við spilað í yfir þrjátíu löndum í Evrópu og Asíu.“ Hvað tók svo við eftir að þið kom- uð heim frá London? „Að flytja hingað heim var að skipta um bækistöð. Mezzoforte hélt áfram að spila víða erlendis. Við héldum tónleika á Norðurlöndunum, Þýskalandi og Sviss og í Japan árið 1984. Vinsældir hljómsveitarinnar voru miklar í þessum löndum og í Noregi seldum við meira en tuttugu og fimm þúsund eintök af einni plötu sem þótti mjög gott á þeim tíma og við fengum í viðurkenningarskyni silfurplötu. Við gáfum út nokkrar hljómplötur á ái'unum 1984-89. Við spiluðum alltaf af og til og fiest árin höfum við farið eitthvað út og spilað. Hljómsveitin hefur komið saman þegar við höfum fengið einhver áhugaverð tilboð og þau komu. Árið 1993 fórum við til Indónesíu á alþjóð- legt djassfestival. Þegar við komum þangað kom okkur á óvart hversu þekktir við vorum þar. Við fengum konunglegar viðtökur og þar voru yfir tíu þúsund manns á tónleikum. Við spiluðum líka í Malasíu þá og ár- ið eftir fórum aftur til þessara landa og Singapore og einnig 1996 og þá fórum við einnig til Búlgaríu og Eystrasaltsiandanna og þá var Ósk- ar Guðjónsson saxófónleikari kom- inn í hljómsveitina og Hilmar Jens- son tímabundið í stað Friðriks. Ósk- ar var einnig með okkur þegar við fengum boð um að spila í Moskvu ár- ið 1997. Við spiluðum í klúbbi í eigu rússnesku mafíunnar. Það var vel passað upp á okkur meðan við vorum þarna og þar var vopnaleit við inn- ganginn. Undanfarið höfum við haft hægt um okkur og spilum aðeins ef áhugaverð tónleikaferðalög bjóðast. Við erum komnir með umboðsfyrir- tæki í Noregi sem er að setja saman hljómleikaferð fyrir þetta ár. Fyrr eða síðar tökum við upp nýjan disk og það gæti allt eins gerst á þessu ári eða á aldamótaárinu. Upptökustjóri - útsetjari og djasspíanisti „Ég tók að mér að vera upptöku- stjóri fyrir hina og þessa poppara. Ég vann t.d. með Bubba fyrst árið 1991 að plötunni Von og fór þá með honum til Kúbu og síðan er ég búinn að vinna með honum við sex piötur." Það hefur auðvitað verið ógleym- . anleg ferð. Áhrif frá þeirri dvöl hafa setið í þér lengi? „Svo lengi að síðan er ég farinn að spila á slagverk. Af öllum þeim þrjá- tíu löndum sem ég hef komið til þá er sú ferð minnisstæðust. Ég fór árið 1990 í tónleikaferð með Randy Crawford, sem er þekkt amerísk söngkona. Hljómsveit henn- ar var þá í tónleikaferð í Persaflóa og ég spilaði líka með henni í London. Við spiluðum einnig á öllum Norðurlöndunum. Þetta starf kom í gegnum kunningja mína í Noregi. Það losnaði staða í hljómsveitinni og þeir buðu mér hana. Randý var stór- stjarna einmitt á þessum árum og söng frægt lag in á plötu, Street Live.“ Ekki þykh- mér ólíklegt að þú haf- ir fremur viljað einbeita þér að djassmúsík. Hvenær byi-jar þú fyrst að spila í djasshljómsveit? „Þegar við komum aftur heim frá Englandi fór ég að spila hefðbundinn djass á píanó. Ég fór að spila með Tómasi R. Einarssyni og Sigurði Flosasyni. Sigurður var þá nýkom- inn heim ft-á tónlistarnámi í Banda- ríkjunum. Með mér úr Mezzoforte komu einnig Gunnlaugur Briem og Friðrik Karlsson. Við vorum viku- lega að spila í Stúdentakjallaranum. Árið 1985 gerði Tómas plötu með þessum mannskap sem heitir Þessi ófétis djass og Jazzvakning gaf út.“ Var það ekki þarna um miðjan ní- unda áratuginn að íslenskir djass- leikarar fóru að fá aukin verkefni? „Jú, og þá varð einmitt til djass- klúbburinn Heiti potturinn sem kom fyrir flygli í Duushúsi. Þá var allt í einu kominn staður sem var reglu- lega með djassprógröm. I Heita pottinum komu fram nokkrir þekktir erlendir djassleikarar, t.d. djasspí- anistinn Kenny Drew og bandaríski saxófónleikarinn Gharles McPher- son.“ Þú hlustaðir mikið á Miles Davis, Herbie Hancock og Chick Corea. Eru það einhverjir fleiri sem hafa verið áhrifavaldar í djassinum? „Þarna á níunda áratugnum fór ég að leita meira aftur í hefðbundna djassinn, það á vel mig það frelsi sem þar er. Ég hafði verið meira í rafmagnaðri tónlist. Ég fór að hlusta meira á djass frá sjötta áratugnum, t.d. á Miles Davis og Cannonbali Adderley. Það er ein ákvéðin plata með Cannonball Adderley sem vakti áhuga minn á hefðbundum djass. Ég var hrifinn af því hvað Cann- onball Adderley spilaði lýrískt be- bop. Þessai' línur hans fóru að hafa áhrif á mig og breyttu mikið minni tónhugsun. Hann er skemmtilega melódískur. I gegnum þessa tónlist fór ég meira að leita í þennan hefð- bundna djass.“ Þú ert einn fjöguira meðlima Jazzkvartetts Reykjavíkur. Hvenær byrjai- Jazzkvartett Reykjavíkur að spila? „Jazzkvartett Reykjavíkur var stofnaður árið 1992 og eiginlega í þeim tilgangi að koma tónlist Sigurð- ar Flosasonar og Tómasar R. Ein- arssonar á framfæri erlendis enda höfum við verið svo til eingöngu að spila þeirra músík. Þeir voru báðir búnir að gefa út einhverja diska, sem ég spilaði með á og það koma alltaf af og til einhverjar fyrirspurnir er- lendis frá um íslenska djassmúsík. M.a. spiluðum við á Ronnie Scott’s djassklúbbnum í London í eina viku og þar var tekinn upp diskur og það var ánægjuleg reynsla og mjög eftir- minnileg.“ Hvernig var að vinna með þeim þekkta tónlistarmanni Pétri Óstlund? „Mér fannst það frábært. Ég fékk fyrst tækifæri til að spila með Pétri á diski Tómasar R. Einarssonar, Nýr tónn. Það small eitthvað á milli okk- ar Péturs strax, fann ég og við fund- um það báðir. Það var mjög sérstakt og skemmtilegt. Ég hafði ekki áður spilað djass rneð trommara af hans gæðaflokki. I djassmúsík eru miklar samræður á milli píanista og trommara. Með Pétri voru þær sam- ræður á hærra plani en ég hafði áður kynnst." Á síðasta ári vannstu m.a. með Jó- el Pálssyni þegar hann hljóðritaði diskinn Prím sem vakið hefur at- hygli. Var það ekki ánægjulegt sam- starf? „Jú, Jóel er mjög skemmtilegur saxisti og það er gaman að spila með honum og þessum strákum öllum. íslenskt djasslíf hefur tekið svo miklum framförum á síðustu árum að það er með ólíkindum. Tónlistar- skóli F.Í.H. hefur verið ómetanleg uppeidisstöð fyrir unga og efnilega djassleikara og það eru margir mjög fræmbærilegir músíkantar og Jóel er þar í fremstu röð. Mér þykir skemmtilegast að spila djass á píanó. Ég lít fyrst og fremst á mig sem djasspíanista, en það er erfitt að lifa af því eingöngu og þess vegna fæst ég við margt annað.“ Stóð þér ekki til boða að ganga til liðs við hið þekkta tríó danska bassa- leikarans Mads Vinding? „Jú, mér stóð það tii boða. Það var bara mitt klúður að ekki varð af því. Ég spilaði með honum á Múlanum þegar hann kom hér um árið og það var rosalega gaman. Nokkrum dög- um síðar fékk ég tölvupóst frá hon- um þar sem hann skýrði frá því að ítalskur píanisti sem var þá með hon- um hefði orðið veikur. Hann spurði hvort ég vildi spila með tríóinu á nokkrum tónleikum í Danmörku. Jú, jú, ég var til í það, en var ekki mjög snöggur að svara erindinu til að staðfesta þetta. Hann túlkaði það þannig að ég hefði ekki áhuga og réð annan píanista." Og nú er djasspíanistinn að vinna með Stuðmönnum. „Já. Stuðmenn eru enn einn hópur tónlistarmanna sem ég hef unnið með. Ég hef verið svo heppinn að fá að vinna með ýmsum helstu popp- tónlistarmönnum á íslandi, ýmist sem hljóðfæraleikari, upptökustjóri eða hvortveggja. Sem dæmi má nefna Borgardætur, Bubba, KK, Mannakorn og nú síðast Stuðmenn og með þeim spila ég bæði á hljóm- borð og slagverk." Marga er farið að lengja eftir djas- splötu með þinni eigin tónlist. Þú ert kannski að leggja drög að nýjum diski? „Nei, eiginlega ekki. Ég hef lengi verið að hugleiða að gera eitthvað undir eigin nafni, en ég er ekki búinn að finna mér stefnu í tónsmíðum sem ég er sáttur við og hef einfaldlega ekki gefið mér tíma í það. Ég er að bíða eftir réttum aðstæðum. Þær koma fyrr eða síðar.“ Hvað hefur þú helst verið að starfa við undanfarið og hvað er framundan hjá þér? „Það er eitt og annað sem ég hef komið að. Ég hef verið að vinna við upptökustjórn og t.d. verið að vinna með Bubba Morthens og nú Stuð- mönnum. Ég spila á hljómborð með Sinfóníuhljómsveit íslands síðai- í þessum mánuði þegar söngleikurinn Superstar verður fluttur í Laugar- dalshöllinni. í leiguhúsnæðinu hér í Borgartúni er ég að vinna ýmsa for- vinnu í sambandi við verkefni sem ég er með. Ég mun vinna eitthvað með Borgardætrum á þessu ári og fleir- um.“ Eyþór býr ásamt fjölskyldu sinni, Ellen Kristjánsdóttur söngkonu og bömum þeirra hjóna, Sigríði sautján ára, Elísabetu tólf ára, Elínu átta ára og ungum syni þeirra Eyþóri, í Grafarvogi þar sem byggðin vex ört. Eyþór Gunnarsson er athyglisverður tónlistai'maður sem spennandi verð- ur að fylgjast með á komandi árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.