Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 C 11 Gamlir gluggar úr karminum og þar voru ekki til heilar rúður. Karmur þessi var í húsi sem byggt var fyrir opinbert fé og voru rúðurnar upphaflega mun stærri en tíðkaðist í gluggum lands- Smiðjan Það er fróðlegt að skoða gamlar rúður og virða fyrir sér bylgjur og spé í glerinu, segir Bjarni Olafsson. Slíkar rúður eru sannkallaðir minjagripir og vert að varðveita þær til skoð- unar fyrir komandi kynslóðir. IEÐ þessari smiðjugrein gefur að líta myndir af fjórum göml- um gluggum. Skemmtilegt væri ef ég gæti setið hjá lesendum greinar- innar er þeir skoða þessar glugga- myndir. Þá fengi ég tækifæri til að spyrja hvort þeir telji að myndirnar muni vera teknar hér á landi? Þið getið rétt til um það, myndirn- ar eru af dönskum gluggum og virð- ast vera orðnir nokkuð gamlir. Ef dæma skal af útliti þeirra geta þeir verið meira en eitthundrað ára gaml- ir, jafnvel allt að tvöhundruð ára. A þeim tíma voru gluggar smíðað- ir með öðrum hætti en nú tíðkast. Þá voru strik og föls hefluð með hand- heflum. Karmarnir geimegldir á hornum með handverkfærum. Fölsin í körmum voru einn þumlungur sinn- um hálfur þumlungur þ.e. 25x12 mm. I þessi fóls voru felld fögin eða rammarnir sem yfirleitt voru opnan- legir á hjörum. Rúðuglerið var í grunnu falsi í römmunum, oft 8x10 mm. Það hve fóls voru grunn, bæði í gluggakörm- um og í römmunum „fógunum" helg- aðist af því hve þunnt efni var notað í gluggana fyrr á árum. Karmar voru oftast smíðaðir úr svokallaðri fimm kvart tommu, um 30 mm þykku efni og rammarnir úr 25 til 30 mm þykk- um listum. Gluggum breytt AUflestir íslendingai- munu nú hin síðari ár hafa tileinkað sér þá skoðun að gluggum húsa skuli helst ekki breyta. Allir eru nú orðið upplýstir um hve gluggasetning og gerð þeirra hefur mikil áhrif á útlit og fegurð húsa. Húsafriðunarnefnd gaf út rit árið 1996 þar sem fjallað er um viðhald og viðgerðir gamalla tréglugga. Þar er lögð áhersla á að óheimilt sé að breyta gluggum í gömlum húsum, nema í samráði við mann er hefur sérþekkingu á þessu sviði. í höfuð- atriðum eru gluggar byggðir upp á svipaðan hátt frá því á átjándu öld. Fyrrum voru rúður miklu minni en nú tíðkast. Sennilega má rekja þá gerð glugga til þess hve erfitt var að koma glerinu heilu á byggingarstað- inn. Þá voru rammarnir hafðir með mjóum sprossum sem skiptu ljósop- inu niður í smáar einingar. Rúður voru þá mun þynnri en nú tíðkast. Aðferðirnar við að fletja út sléttai- glerplötur voru frumstæðar og rúð- urnar mjög brothættar. Enda er merkilegt að skoða gamlar glugga- rúður og virða fyrir sér bylgjur og spé í glerinu. Þessar rúður eru oft misþykkar og tíðum aðeins tveggja mm þykkar. Slíkar rúður eru sannkallaðir minjagripir og er vert að varðveita þær til skoðunar fyrir komandi kyn- slóðir. Að lesa sögu húss Menn sem fróðir eru um glugga- gerðir og þróun þeirra geta lesið sér til um hús, aldur þess og sögu með því að skoða vel glugga hússins og af ýmsum atriðum sem okkur finnast skipta litlu máli og vera smáatriði sem ekki taki að veita athygli, geta fróðir menn lesið aldur gluggans af töluverðri nákvæmni. Eg get nefnt dæmi um þróun sem orðið hefur á minni starfsævi, þá hafa orðið margs konai' breytingar á gluggagerðum hér á landi. Þegar menn taka t.d. rammana úr körmun- um og setja í þá heilar stórar rúður í stað þess að áður voru sprossar í römmunum með smáar einfaldar rúður. Þegar tvöfalt einangi-unargler er sett í smárúðótta glugga kosta margar litlar rúður miklu hærri upp- hæð heldur en ein stór rúða mundi kosta. Oft má rekja orsök breytingar til kostnaðarliða. Hið sama má segja um smíði glugga. Það er mun dýrara að smíða glugga með mörgum mjóum spross- um heldur en að hafa enga sprossa. Elsti gluggi sem ég hef séð tekinn úr gömiu húsi til endurnýjunar var ótrúlega heillegur, rúmlega 200 ára gamall, smíðaður úr þriggja þuml- unga þykkum eikarplönkum. Hann var ekki mikið feyskinn en þó nokk- uð veðraður, líkt og sandblásinn væri. Hann mun hafa verið smíðaður um það bil árið 1756. Því miður höfðu fögin verið tekin manna hvort heldur á kirkjum eða heimilum. Kostnaður ræður Svo sem sjá má hér að framan- sögðu getur kostnaður oft haft áhrif á stílgerð og útlit. Elstu timburhúsin í sveitum og margar timburkirkjumar sem fyrst voru byggðar höfðu smáar rúður og gluggakarmamir vom gjaman smíðaðir úr eins og hálfs þumlungs þykkum borðum, stundum ■ I jafnvel úr eins þumlungs og einum fjórða, fimmkvart, eins og sagt var. Þarna réðu vafalaust fjárráðin. Prestunum var gert að kosta viðhald og byggingar kirkna sinna og þeir höfðu margir sáralítil laun og börðust því í bökkum við að hafa lifibrauð fyr- ir fjölskyldur sínai-. A sama hátt hafa efni og fjárráð sett mark sitt á húsagerð í landinu. Með betri einangrun húsa og með til- komu einangmnarglers og aukinni notkun þess hafa orðið miklar breyt- ingar á gluggagerð í landinu. Menn hafa gripið til þess ráðs að fjarlægja pósta úr gluggum til þess að rúðurnar stækki, fóg og sprossar hafa verið fjarlægð í sama tilgangi. Eins og áður er sagt hafa glugg- arnir mikil áhrif á stíl og útlitsfegurð húsa. Með notkun einangrunarglers sem hófst í miklum mæli á fimmta áratug tuttugustu aldarinnar, hófst tími stóm rúðanna. Arkitektar vom óhræddir við að teikna hús með stór- umgluggum. Ástæða er til að benda fólki á að styrkja gluggapósta eða að sækja um leyfi til að mega fjölga póstum í gluggum þar sem rúður hafa bilað í límingu. m FASTEIGNAMIÐSTOÐIN JstofrKett 1958 SKIPHOLTI 50B - SÍMI 552 6000 - FAX 552 6005 ehf Stolnsett 1958 Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali. Opið virka daga frá kl. 8-12 og 13-17. HAFNARBRAUT - KOPAV. Til sölu um 500 fm götuhæð í vel staðsettu húsi rétt við Kópavogshöfn. Einnig til sölu í sama húsi tvær skrifstofuhæðir um 1.000 fm. Eignin að mestu fullbúin að utan en tæplega tilbúin til innréttingar. Nánari uppl. á skrifstofu. 9345 VESTURHUS EINB./TVIB. Vorum að fá í sölu þetta glæsilega hús. Um er að ræða fullbúið vandað hús á óvenju glæsilegum útsýnisstað. Stærð 305 fm. Húsið hefur verið nýtt sem tvíbýli þ.e.a.s. íbúð á efri og neðri hæð, báðar sjálfstætt skráðar og báðar mjög góðar. Húsið gefur því mikla möguleika að vera nýtt sem einbýli eða tvíbýli. Vandaðar inn- réttingar. Teikningar og myndir á skrif- stofu. Ákveðin sala. 7781 ARNARHRAUN Góð 122 fm ibúð á fyrstu hæð í þríbýlis- húsi. Ibúð mikið endurnýjuð. Sérinngang- ur. Verð 9,0 m. 5423 SNORRABRAUT Góð 92 fm efri sérhæð auk þess 24,1 fm bílskúr sem snýr að Auðarstræti Verð 9,2 m.5279 3ja herb. íbúðir LAUFRIMI Vorum að fá í sölu góða 3ja herb. 97,8 fm íbúð. Sérinngangur af svölum. Verð 8,3 2956 MJÖLNISHOLT Mjög rúmg. og mikið endum. 84 fm 3ja herb. ib. í tvíb. Parket á gólfum. Ávh. veðd. 3,1 m. 4,9% vöxtum. 2866 2ja herb. íbúðir NYBYLAVEGUR - BILSKUR Áhugaverð tveggja herb. Ibúð á fyrstu hæð með aukaherbergi og sérþvottahúsi á jarðhæð. Rúmgóður innbyggður bílskúr. Verð 7,3 m. 1695 HLÍÐAR SÉRINNG. Mjög rúmgóð 68 fm 2ja herb. íbúð í kjall- ara í góðu húsi. Eldhúsið endurnýjað fyrir nokkmm ámm og bað flísalagt. íbúðin er laus. Áhv. 2,8. Verð 6,5 m. 1694 HRAUNBÆR Góð tveggja herb. ibúð á 2. hæð i ágætu fjölbýii. Gott skápapláss. Parket á stofu og herbergi, flísar á öðru. Verð 4,3 m. 1686 Atvinnuhúsnæði SMIÐJUVEGUR Áhugavert húsnæði á besta stað við Smiðjuveg. Allt að 600 fm. Mikil lofthæð í stómm hluta af húsnæðinu. Stórar inn- keyrsludyr. Auðvelt að koma fyrir millilofti ef það hentar. 9350 HAFNARSTRÆTI Mjög vönduð skrifstofuhæð á frábæmm stað í hjarta miðborgarinnar. Hæðin er alls um 272 fm brúttó. Hæðin hefur öll verið endumýjuð á smekklegan og vandaðan hátt, m.a. nýjar tölvulagnir, rafmagn o.fl. Parket á gólfum. Tilbúin til afhendingar strax. 9342 ÞRANDARLUNDUR Til sölu íbúðarhús og bílskúr í landi Þrándar- lundar í Gnúpverja- hreppi á bökkum Þjór- sár. Um er að ræða 278 fm íbúðarhús á 3 pöll- um; 7 svefnherbergi, stór stofa með arni, borðstofa, skrifstofa, 3 salerni, nýlegt eld- hús, búr, stórt þvottahús og geymsla. Garður vel gróinn og fal- legur. Heitur pottur. Bílskúr er 100 fm með gryfju og tvennum stórum innkeyrsludyrum. Lítið gróðurhús er við húsin. Um 8 ha lands fylgir með. Hitaveita og 3ja fasa rafmagn. Glæsilegt útsýni. Stutt er í Árnes, Flúðir og Brautarholt og ýmsa vinsæla ferðamannastaði, s.s. Þjórsárdal, Gullfoss og Geysi. Mikiir möguleikar í tengslum við ferðaþjónustu, smáiðnað, nám- skeiðahald, fundi, hestamennsku o.s.frv. Frábær eign. Myndir á skrifstofu. 11097 SKIPHOLT 50A Til sölu í þessu glæsilega húsi um 1.600 fm. Um er að ræða skrifstofu- og íbúðar- húsnæði, auk þess stór salur og bílskúrar. Húsnæði á einum besta stað í borginni og [ góðu ástandi. Gefur marga nýtingar- möguleika. Góð bílastæði. Nánari uppl. gefur Magnús L. á skrifstofu. 9328 Landsbyggðin AKRANES Til sölu 4ra herb. 110 fm íbúð í fjölbýli við Suðurgötu á Akranesi. Ásett verð 4,8 m. 14225 AKRANES Til sölu 140 fm einbýli auk 47 fm bílskúrs. Húsið er á einni hæð með 5 svefnherb. Verðhugmynd 11,5 m. 14224 HALLKELSHÓLAR GRÍMS- NESI Sumarhús í landi Hallkelshóla í Grímsnesi. Grunnflötur um 64 fm auk um 20 fm svefnlofts. Snyrtilegt hús ekki alveg full- búið. Verð 3,9 m. 130421 i LANDI BJALKAHUS SVARFHÓLS Mjög fallegt 54 fm bjálkahús á eignarlandi I landi Svarfhóls Hvalfjarðarstrandahreppi. Húsið er byggt 1982 og stendur á 8.040 fm lóð sem er gróin og falleg. Sólarraf- hlaða. Rafmagn komið að lóðarmörkum. Hitaveita væntanleg. Verð 4,9 m. eða til- boð. 13420 FLJÓTSHLÍÐ Til sölu 47 fm sumarhús á eignarlandi úr landi Kirkjulækjarkots. Um er að ræða nýtt fullfrágengið hús. Verð 4,4 m. 13419 KJOSARHREPPUR Nýlegt sumarhús ( Eilífsdal. í húsinu er kamína en rafmagn komið að lóðarmörk- um. Húsið er ekki fullklárað.Verð 2,5 m. 13398 EYRARSKÓGUR Til sölu sumarhús byggt 1988. Um er að ræða myndarlegt 40 fm hús auk svefn- lofts. Allur frágangur vandaður. Stór verönd. Áhugavert hús. Myndir á skrifstofu FM. Verðhugmynd 3,8 m. 13393 BJARG DJÚPÁRHREPPI Til sölu íbúðarhús um 59 fm á 2.500 fm lóð rétt við Hellu. Húsið hefur verið tölu- vert endurnýjað. Myndir á skrifstofu FM. Verð 5,9 m. 11127 SKÚFSLÆKUR VILLINGA- HOLTSHREPPI Til sölu jörðin Skúfslækur í Villingaholts- hreppi. Um er að ræða ágætlega upp- byggða jörð í aðeins 20 km fjarlægð frá Selfossi. Landstærð um 150 ha. Sérlega góð aðstaða t.d. fyrir hestamenn. Jörðin selst án bústofns, véla og án framleiðsl- uréttar. Verð 16,0 m. 10588 SKINNAR, DJÚPÁRHREPPI Til sölu jörðin Skinnar, Djúpárhreppi Rangárvallasýslu. Jörðin selst án mann- virkja. Landstærð um 220 ha. Jörðin á m.a. í Þórisvatni og vötnum á afréttinum. Verðhugmynd 9,5 m. 10586 HVERAGERÐI - GRÓÐRAR- STÖÐ Rótgróin vel rekin garðyrkjustöð í Hvera- gerði til sölu. Góðir möguleikar fyrir áhugasama. Nánari uppl. og myndir á skrifstofu. 10579 GARÐYRKJUBÝLI - MOS- FELLSDAL Til sölu garðyrkjubýlið Laugaból. Um er að ræða stöð í fullum rekstri. Góður húsa- kostur. Sex gróðurhús þar af fimm með lýsingu. Stækkunarmöguleikar. Eignarland 2,3 ha. Ibúðarhús sem gæti auðveldlega verið tvær íbúðir auk bílskúrs. öll aðstaða og búnaður til fyrirmyndar. Kjörið, jafnvel fyrir tvær fjölskyldur. 10578 SÖÐULSHOLT, SNÆFELLS- NESI Til sölu jörðin Söðulsholt á Snæfellsnesi. Um er að ræða áhugaverða jörð. Á jörðinni var til skamms tíma rekið loðdýra- bú. íbúðarhús þarfnast lagfæringar. Hita- veita væntanleg. Jörðin er án bústofns, véla og án framleiðsluréttar. Verð 14,0 m. 10574 RETTARHOLT Til sölu nýbýlið Réttarholt úr landi Skaft- holts ( Gnúpverjahreppi. Um er að ræða um 9 ha lands auk útihúsa. Grunnur að nýju íbúðarhúsi ásamt teikningum. Verð 5,5 m. 10558 EYJAFJORÐUR - KUABU Til sölu jörð í Eyjafirói. Gott (búðarhús og útihús. Jörðin selst með eða án bústofns, véla og framleiðsluréttar. Á jörðinni hefur verið rekið til skamms tíma myndarlegt kúabú. Verð tilboð. 10463 EYLAND Eyland f V-Landeyjum er til sölu, jörðin er um 250 ha að stærð. Á jörðinni enj að hluta til ágætar byggingar m.a. til mjólkur- framl. en jörðin er nú án fullvirðisréttar. Húsakynni og umhverfi er allt einstaklega snyrtilegt. Fallegur garður við ibúðarhús. Aðeins 7 km á Hvolsvöll. Myndir á skrif- stofu FM. 10432 Á söluskrá FM eru núna yfir 50 sumarhús og 86 jarðir í ýmsum stærðum. Ath. nokkrar nýjar jarðir hafa komið á söluskrá síðustu daga. Póstsendum söluskrár um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.