Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ Gyffaflöt 9, ReykjaviK. Ark.-t: Úti & ínnl, Vorkt: Már og Guðmundur Rimaskóli. Arkít: ARKÍS, Varkt: Framkvamia íbúðabyggingar framtíð- arinnar munu geta þjón- að íbúum þeirra alla ævi TILRAUNAHÚS dönsku arkitektastofunnar Vandkunsten, þar sem fram komu nýjar hugmyndir í formi og notkun. átaks undir yfirskriftinni „Góð hönnun borgar sig“. Þessu átaki lauk á laugardag með umræðum, þar sem leitað var svara við spurn- .ingunni, hvernig búum við á næstu öld? A undan umræðunum voru flutt erindi. Einn framsögumanna var Hilmar Þór Björnsson arkitekt, sem bar saman skipulag og hönnun íbúðarhúsnæðis í dag annars vegar og íbúðarhúsnæðis í framtíðinni hins vegar. „Höfuðáherzla samfélagsins und- anfarna áratugi hefur gengið út á magn frekar en gæði,“ sagði Hilm- ar Þór Björnsson í viðtali við Morg- unblaðið, þar sem hann gerði grein fyrir viðhorfum sínum. Hann hefur kynnt sér þessi mál sérstaklega og þróað og sett fram hugmyndir um nýjar íbúðagerðir í félagi við Finn Björgvinsson arkitekt, en þeir reka arkitektastofu saman. „Keppikeflið hefur verið hæm laun, meiri vinna, stærri hús, fleiri bílar, breiðari götur, meiri einka- neyzla og meiri félagsleg neyzla," segir Hilmar Þór. „Þetta hefur leitt af sér, að minni tími hefur gefizt til samskipta innan fjölskyldu og vina- hópa. Þegar horft er til framtíðarinnar, er víst, að þetta á eftir að breytast. Starfsaldur fólks mun styttast. Fólk ver stöðugt lengri hluta æv- innar til þess að mennta sig og elli- lífeyrisaldurinn fer lækkandi. Elli- lífeyrisþegum fjölgar og ungt fólk er lengur í námi. Þetta hefur í fór með sér, að hagræða þarf í þjón- ustu aldraðra og útbúa íbúðir þannig, að þær geti þjónað íbúun- um allt æviskeiðið, þar til þeir eru fluttir á langlegustofnanir til um- önnunar. Vinnutíminn styttist, laun hækka og störfum fækkar. Við hærri laun mun fólk ekki minnka neyzluna heldur stytta vinnutímann og veita fleirum aðgang að vinnustöðunum." Of skír mörk í skipulagi „I skipulagi hefur undanfarin ár verið lögð áherzla á skír mörk milli atvinnu- og íbúðasvæða," heldur Hilmar Þór áfram. „Þessi hugmynd var neyðarlausn, sem fundin var upp í upphafi aldarinnar, þegar mengun var óheyrileg eftir iðnbylt- inguna. Sóðaskapur og mengun af öllu tagi gerði það að verkum, að ekki var gerlegt að blanda íbúða- og atvinnusvæðum saman að neinu leyti. Bíllinn gerði fólki kleift að ferðast langa leið milli heimilis og vinnustaðar. Þetta hefur leitt til þess, að bif- reiðaumferð hefur stóraukizt og fjárfestingar hennar vegna eru meiri en nokkurn gat órað íyrir. Tökum sem dæmi Miklubrautina í Reykjavík, en fyrir liggur að fjár- festa þurfi þar milli 8-11 milljarða kr. á næstu árum. Seint á níunda áratugnum var á Los Angelessvæðinu í Kaliforníu einu saman tvöfalt fleiri bflar en í Kína, Indlandi, Indónesíu, Pakistan og Bangladess til samans. Ekki leikur nokkur vafi á því, að floúar þessara landa stefna að því að eign- ast jafnmarga bfla og íbúar Los Angeles miðað við fólksfjölda. Ef það gengur eftir, verður jörðin óbyggileg." Heimili og vinnustaður munu nálgast Hilmar Þór kveðst álíta, að í framtíðinni verði skilin milli at- vinnusvæða og íbúðasvæða í skipu- lagi ekki eins skýr og gert er ráð fyrir í aðalskipulögum nú. „Undan- farna áratugi hafa vinnustaðir verið að fjarlægjast heimilin,“ segir hann. „Á komandi árum mun þetta snúast við og heimili og vinnustað- ur nálgast, bæði huglægt og hlut- lægt. Vinnustaðimir verða þrifa- legri og minni og geta því með betri hætti en áður blandast íbúðasvæð- um. Vélarnar menga minna og eru hávaðaminni en áður. Járnsmiðir ganga nú jafnvel um í hvítum sloppum. Þetta mun hafa í for með sér minnkandi bflaumferð og aukinn frítíma, vegna þess að sá tími sem nú fer í það að vinna fyrir einka- bflnum og í akstur milli heimilis og vinnustaðar styttist. Tæknin skap- ar möguleika á því að gera skilin milli vinnu og frítíma ógreinilegri og skilin milli líkamlegrar og and- legrar vinnu verða ekki jafn skörp og hingað til. Háþróuð tölvustýrð framleiðsla af ýmsu tagi verður unnin á litlum vinnustöðum, sem dreifðir verða um íbúðahverfin. Stór hluti verzlunar- innar verður gerður inni á heimilinu með tölvu. Meginhluti háskólanáms mun fara fram í íbúðahverfum með svokallaðri margmiðlunartækni og nemendurnir fara í skólann aðeins einn til tvo daga í viku. Þetta mun hafa í fór með sér S// ÁL-UNDIRBYGGINGAKERFI ** fyrir loftræstar klæðninaar Sindri 1 undirbyggingarkerfið er islensk hönnun og framleiðsla, prófuð hjá Rannsóknarsofnun Byggingariðnaðarins fyrir íslenskar aðstæður Smdn 1 hentar fyrir flestar tegundir klæðnmga Ðorgartún 30, Reykjavík. Arkii: Ingímundur Sveinsson. Verkt: Alftarós SINDRI -Þegar byggja skal með málmum Borgartúni 31 ■ 105 Ftvik ■ sími 575 OOOO ■ fax 575 0010 ■ www.sindri.is lefndi í síðustu viku til fræðslu- Hvernig búum við á næstu öld? Nýtt athafnasvæði fyrir austan Vesturlandsveg NÚ ER til kynningar hjá Borgar- skipulagi Reykjavíkur deiliskipu- lag fyrir nýtt athafnasvæði á vest- asta hluta Grafarholts. Deiliskipu- lagið skiptir svæðinu í þrjá hluta og eru tveir þeirra teknir til með- ferðar nú en skipulagi þriðja hlut- ans frestað. Höfundar skipulagsins eru arkitektarnir Guðmundur Gunnarsson og Sveinn Ivarsson. Suðurhluti athafnasvæðisins liggur í miklum bratta. Aðkoma þar verður annars vegar frá vegi, sem liggur samsíða Vesturlands- vegi og hins vegar eftir götu, sem liggur inn í hverfið. Á þessum reit eru fjórar lóðir og er heildarflatar- mál þeirra 23.960 ferm. Bygging- arnar verða tveggja hæða og heild- ar byggmgarmagn 8000 ferm. Gert er ráð fyrir, að hverri lóð sé úthlutað til tveggja aðila og að reist verði tvö hús á lóð, en einnig er hægt að úthluta hverri lóð til eins aðila, sem þá getur reist eina samfellda byggingu. Fyrir norðan suðurhluta at- hafnasvæðisins liggur lóð Orku- veitu Reykjavíkur, en síðan tekur við norðurhluti athafnasvæðisins, sem er að mestu leyti á flötu landi. Aðkoma þar er frá nýjum vegi, sem mun liggja fyrir norðan svæð- ið. Á þessum reit er gert ráð fyrir tveggja hæða byggingu, sem verð- ur 3.200 ferm. að grunnfleti og því 6.400 ferm. alls. Samræmt yfirbragð Samkvæmt deiliskipulaginu er mikil áherzla lögð á gróður, en um- hverfis bílastæði við byggingarnar skal gróðursetja runna og trjá- gróður og einnig meðfram lóða- mörkum. Deiliskipulagssvæðið er á jaðri Grafarholts og er áberandi, þegar HÖFUNDAR deiliskipulagsins eru arkitektamir Sveinn fvarsson og Guðmundur Gunnarsson. Mynd þessi er tekin við nýja skipulagssvæð- ið, sem liggur í vestasta hluta Grafarholts. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.